Morgunblaðið - 25.07.1984, Blaðsíða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLl 1984
„Ef þú vilt fcunx, þá.
siend ég eklKi' í \Jcgi tynr pér."
ást er ...
eitthvað
sem gerist af
sjálfu sér.
TM Refl U S Pat Off — rights reserved
Los Angeles Times Syndicate
Fyrir 12 árum byrjaði hann á neð-
anjarðargöngum og síðan hef ég
ekki séð hann.
Ofbauð ósyífnin
H.M. skrifar:
Kæri Velvakandi.
Sunnudaginn 15. júlí sl. skrifaði
Páll Þór Pálsson grein i dálka
þina þar sem hann skýrði frá und-
arlegri framkomu „rudda í Vest-
urbæjarlauginni**. Þann 19. júlí
birtist svo grein eftir mann sem
kallar sig „laugargest" og virðist
hann ekki á sama máli og Páll, og
spyr jafnvel hvort hann fari ekki
með fleipur.
Ég var stödd I heita pottinum á
þessum umrædda degi og sá hvað
fram fór. í stuttu máli sagt óð
„laugargesturinn" ofan i pottinn,
gekk rakleitt að Páli og snaraði
honum i burtu frá nuddtækinu.
Síðan stjakaði hann við vinum
Páls, sem i hræðslu sinni færðu
sig frá og settist sjálfur við nudd-
stútinn.
I grein sinni segir „laugargest-
urinn“: „12 ára barn situr I róleg-
heitum við nuddstútinn og lætur
nuddið dynja á baki sér. Potturinn
er yfirfullur af fólki og a.m.k. einn
maður bíður eftir að komast að
nuddinu. En barnið á bara sætið
við nuddstútinn.
Það á enginn sætið við nudd-
stútinn. Mönnum ber að nudda
sem fljótast þá vöðva, sem þurfa
nudd, en vlkja síðan frá til að aðr-
ir komist að. Það ætti enginn að
sitja í rólegheitum og láta „nudd-
ið„ dynja á baki sér.“
Ég get frætt laugargest um það
að enginn virtist vera að bíða eftir
að komast að nuddtækinu, heldur
sat fólkið í rólegheitum, þar á
meðal Páll. Það skal tekið fram að
hann hafði aðeins setið örskamma
stund við nuddtækið og hver veit
nema drengurinn sé bakveikur.
Það vekur undrun „laugargests"
að Páll skuli kalla sætið sitt, og í
því sambandi vil ég benda á að
fólk talar oft um hluti sem sína
eign, þó að eiginleg merking liggi
vitanlega ekki að baki s.s. skólinn
minn, landið mitt o.s.frv.
Laugargestur segir einnig að
það myndi enginn komast upp
með slfkt í ásýnd annarra. I fyrstu
misstu sundlaugargestirnir í pott-
inum andlitið og varð öllum star-
sýnt á „sundlaugargestinn". Loks
gat kona ein, sem ég held að hafi
skrifað greinina „Börn eru líka
menn“, sem birtist í dálkum Vel-
vakanda þann 22. júli sl., ekki orða
bundist og minnti manninn á að
drengirnir hefðu borgað sig inn 1
laugina rétt eins og hann og hefðu
því fullan rétt á því að notfæra sér
nuddstútinn. Laugargesturinn
virti konuna ekki viðlits en lét
nuddið áfram dynja á líkama sín-
um. Mér ofbauð svo ósvífnin í
manninum að ég yfirgaf pottinn.
. v '-.c > - -----------
Aldrei er of varlega farið í umferðinni og vill bréfritari að bflstjórar strætisvagna hugsi slíkt hið sama.
Þessir hringdu . . .
Bflstjórar
strætisvagna
aki gætilegar
EJ. hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja:
Ég var að hlusta á það í út-
varpi að verið var að áminna-
fólk um að fara varlega, þegar
farið er út úr strætisvögnunum
og er víst aldrei of varlega farið.
En það þyrfti líka að áminna
strætisvagnabílstjórana um að
keyra gætilegar en þeir gera
sumir hverjir.
Þeir ættu að hugsa um það að
þeir eru með fólk í vögnunum en
ekki einhverjar vörur. Það hafa
allt of mörg slys hlotist af völd-
um strætisvagna og sum hver
mjög slæm, sem rekja má til
ógætilegrar keyrslu. Þessu þarf
að breyta strax.
Hver er réttur
barna?
Þröstur Magnússon hringdi og
hafði eftirfarandi að segja:
í sambandi við skrif laugar-
gests um Pál Þór Pálsson, sem
birtust hér í Velvakanda 19. júlí
sl., langar mig til að koma hér
með dálitla athugasemd.
Laugargestur segir í grein
sinni að 12 ára barn hafi setið I
rólegheitum við nuddstútinn i
Vesturbæjarlauginni. Það er
ekki rétt, því barnið (Páll Þór)
var nýsest við stútinn þegar
þessi ruddi kom og þeytti því frá.
Einnig talar hann í greininni um
föðurlega umhyggju og í því
sambandi verð ég að segja að ég
vorkenni börnum hans, ef hann
á einhver.
Laugargesturinn segir einnig
að börn hafi ekkert að gera við
stútinn, því hann sé til að lækna
vöðvabólgur og harðsperrur. Mig
langar til að benda þessum
manni á að Páll Þór, 12 ára, þjá-
ist af vöðvabólgu og hefur því
sama rétt og aðrir á því að not-
færa sér nuddstútinn í Vestur-
bæiarlaug.
Ég tek því heilshugar undir
með öðrum laugargesti sem
skrifaði í Velvakanda 22. júlí sl.,
að börn eru lika menn.
Frábær
þjónusta
5326-4212 hringdi og hafði eft-
irfarandi að segja:
Ég fór um daginn hringferð I
kringum landið og eins og oft vill
verða bilaði billinn hjá okkur á
Egilsstöðum. Þetta var á sunnu-
degi og ég sá því I hendi mér að
ekkert viðgerðarverkstæði
myndi verða opið.
En viti menn, varahlutaversl-
un ein að Selási 1 var opin og
afgreiðslumaðurinn þar bauðst
til að aðstoða okkur. Var hann
ótrúlega almennilegur og hjálp-
samur og gerði við bílinn á
svipstundu. Langar mig enn og
aftur að koma þakklæti minu á
framfæri við þennan alúðlega
mann.
Ennfremur langar til mig að
koma hér einni hugmynd á
framfæri við Mjólkursamsöluna.
Á Egilsstöðum er alveg einstakt
mjólkurbú, sem framleiðir það
besta skyr og rjóma sem ég hef
bragðið. Legg ég til að Mjólkur-
samsalan sendi mann austur til
að læra af þeim skyr-, rjóma- og
smjörgerð því eins og allir vita
fáum við borgarbúar ævinlega
gamalt og vont smjör og dósa-
skyrið er ekki borðandi. Hef ég
hér með komið hugmynd minni á
framfæri og vona að samsölu-
menn bregðist vel við henni.
Fór húsavillt
Asdís hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja:
Mig langar til að koma hér að
leiðréttingu í sambandi við grein
sem birtist I Velvakanda 20. júlí
sl. eftir Elísabetu, starfsstúlku
Kvennaathvarfsins, undir fyrir-
sögninni „Undarlegar upplýs-
ingar“.
Élísabet gerir þar athugasemd
við greinarkorn eftir mig sem
birtist I Velvakanda 7. júlí sl.
undir fyrirsögninni „Að afmenn-
inga þjóðina“.
Ég vil biðja Elísabetu afsök-
unar, en misskilningur minn var
fólginn I þvf að ég fór húsavillt
með vandlæti mitt á gáleysisleg-
um uppátækjum atorkusamra
kvenna.