Morgunblaðið - 25.07.1984, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 25.07.1984, Blaðsíða 62
62 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JtJLÍ 1984 Næg marktækifæri en mörkin vantaði Fram og Breiðablik gerðu markalaust jafntefli í 1. deildinni é Laugardaisvellinum á mánu- dagskvöldið enis og við skýröum stuttlega frá í blaðinu í gser. Talsvert var um góð marktæki- fasri í leiknum en hvorugu liöinu tókst þó að skora þannig að liðin skiptu stigunum á milli sín. Blikarnir áttu mun meira í fyrri hálfleik og voru þá miklir klaufar aö skora ekki mark. Þaö vantaöi ekki aö þeir reyndu aö skjóta á markiö, en öll skot þeirra voru í hærra lagi þannig aö Guömundur Baldursson í marki Fram átti ekki i erfiðleikum meö aö verja þau skot. Guömundur stóö sig mjög vel í markinu, en Blikarnir heföu aö ósekju mátt reyna aö skjóta meira niöri á markiö því völlurinn var blautur og þá eru jaröarboltar mun hættulegri en hærri skot. Guömundur var eini Frammar- inn sem stóö upp úr í fyrri hálfleik. Hjá Blikunum voru þeir Jón Ein- arsson og Þorsteinn Hilmarsson alltaf á fullri ferö, gáfust aldrei upp. Vignir, Jóhann Grétarsson og Guömundur Baldursson stóöu sig einnig vel. Mikiö dofnaöi yfir Blikaliöinu í síöari hálfleik samfara því aö Frammarar fóru aö láta meira aö sér kveöa, sérstaklega um miðbik hálfleiksins, en allt kom fyrir ekki. Boltinn vildi ekki í netin í mörkun- um. Leikurinn var sæmilega vel leik- inn nema hvaö hann var óþarflega fast leikinn af hálfu nokkurra leikmanna Fram. Ragnar Örn Pét- ursson, dómari leiksins, varö fimm sinnum aö taka spjöldin úr vasa sínum. Tvivegis fengu Frammarar Fram - UBK 0:0 gult, Blikarnir fengu líka aö sjá þaö gula í tvígang og undir lok leiksins fékk Guömundur Baldursson rauöa spjaldiö. Rétt ákvöröun hjá Ragnari Erni en gula spjaldiö sem Guömundur fékk í fyrri hálfleik var mjög haröur dómur því þetta var fyrsta brot Guömundar en hins vegar hafði hitt liöiö á vellinum leikiö mjög fast en sloppiö viö spjöldin. EINKUNNAGJðFIN: FRAM: Guömundur Baldursson 8, Þorsteinn Þor- steinsson 5, Sverrir Einarsson 7, Hafþór Sveinjónsson 5, Þorsteinn Vilhjálmsson 5, Kristinn Jónsson 6, Ómar Jóhannsson 6, Guö- mundur Torfason 5, Guömundur Steinsson 5, Víöar Þorkelsson 44, Rafn Rafnsson 5, örn VaJdimarsson (vm. á 71. mín.) 4, Bragi Björnsson (vm. á 83. mín.) lék of stutt. BREIÓABLIK: Friörik Friöriksson 6, Benedikt Guömundsson 6, Ómar Rafnsson 5, Loftur Ólafsson 5, Ólafur Bjömsson 5, Vignir Baldursson 7, Þorsteinn Hilmarsson 7, Jóhann Grétarsson 7, Jón Ein- arsson 6, Guömundur Baldursson 6, Sigurjón Kristjánsson 5, Magnús Magnússon (vm. á 57. mín.) 4, Jón Gunnar Bergs (vm. á 76. mín.) lék of stutt. í stuttu máli: Laugardalsvöllur 1. deild Fram — UBK 0:0 Gul spjöid: Guömundur Steinsson og Viöar Þorkelsson úr Fram og Benedikt Guömunds- son og Guömundur Baldursson úr Breiöabllkl. Rautt spjald: Guömundur Baldursson úr Breiöabliki. Dómari: Ragnar örn Pétursson og tókst hon- um sæmilegaa upp í erfiöum leik Áhorfendur: 611. • Guðmundur Baldursson Arnljotur skor- aði tvö mörk — er ísland sigraði Færeyjar 4.-0 ARNUÓTUR Davíðsson úr Fram skorðai tvívegis tyrir ís- lenska drengjalandsliðiö í knattspyrnu í gærkvöldi er það sigraöi Færeyinga 4:0 á Noröur- landamótinu — en líðin ióku á Sauöárkróki. Sigur íslenska liöslns var mjög öruggur — íslensku strákarnir höfu yfirburöi á öllum svlöum en greinileg þreyta sat þó í þeim eft- ir hinn erfiöa leik viö Svía í fyrra- kvöid. Staðan í leikhléi í gær var 3:0. j síöari hálfleiknum slökuöu ís- lensku leikmennirnir á og skor- uöu aöeins eitt mark. Auk Arn- Ijóts skoruöu þeir Rúnar Krlstins- son og Steinar Ingimundarson. Nóg að gera hjá aganefnd KSÍ í gær: Guðmundur Baldurs- son í tveggja leikja bann — Breiðablik aðvarað vegna kæru dómara AGANEFND KSÍ aamþykkti á fundi aínum í gær aö sanda stjórn knattspyrnudeildar Breiðabliks aðvörunarbréf vegna kæru Gíala Guömundssonar, dómara, an ett- ir leik í Kópavoginum á dögunum var drasli hent í Gísla. Breiöa- bliksmenn voru varaðir viö því að ef slíkt henti aftur yrði dæmdur af þeim einn heimaleikur. Fundur aganefndar í gær var langur og strangur en hvorki meira né minna en 80 mál lágu fyrir nefndinni. Fjöldi leikmanna var ( u Llð VlkUIM iar & Jónas Róbertsson Guðmundur Erlingsson Þrótti (1) Kristján Jónsson Þór (4) Þrótti (3) Ársæll Kristjánsson Valþór Sigþórsson Þrótti (3) IBK (3) Kristinn Guómundsson Ómar Torfason Höröur Jóhannsson Víkingi (2) Víkingi (2) ÍA (3) Ámundi Sigmundsson Heimir Karlsson Ragnar Margeirsson Víkingi (3) Víkingi (2) ÍBK (5) dæmdur í bann. Aöeins tveir þeirra voru úr 1. deild. Guðmundur Bald- ursson, Breiöabliki, var dæmdur í tveggja leikja bann: í einn leik vegna 15 refsistiga og einn aö auki fyrir brottrekstur, en hann var rek- Stórsigur sænsku strák- anna á Dönum SVÍAR sigruöu Dani 5:0 á Noröur- landamóti drengjalandsliða í knattspyrnu á Húsavík ( g»r- kvöldi. Eins og tölurnar bora með aér voru yfirburðir Svía miklir og léku þeir sænsku frábæra knattspyrnu. Höfðu mikla yfir- burði. Sérstaklega voru þaó miöju- mennirnir sænsku sem léku vel í gær — þeir hreinlega „rúlluöu" kollegum sínum í danska liðinu upp í leiknum. Staöan var aöeins 1:0 í hálfleik en í síöari hálfieiknum réöu dönsku leikmennirnir ekkert viö Svía sem skoruöu fjórum sinn- um. Norömenn og Finnar geröu markalaust jafntefli í keppninni í gær á Húsavík. Finnar voru sterkari og áttu meöal annars skalla í stöng á síöustu mínútu leiksins. Archibald fer til Barcelona Skrífaði undir í gær Frá Bob H«nn«ssy, fréttamanni Morgunbiaósin* í Englandi. ÞAÐ VAR staöfest í dag aó Steve Archibald, skoski landsliösmaö- urinn hjá Totfenham, heföi skrif- að undir samning viö spánska fá- lagiö Barcelona. Samningaviö- ræður hafa staöið yfir í nokkurn tíma — og loks var gengiö frá málinu í gær. Kaupverð er ( kringum eina milljón sterlings- punda. Archibald, sem er 27 ára, skor- aöi 28 mörk fyrir Spurs á síöasta keppnistímabili, þrátt fyrir aó eiga í útistööum viö framkvæmdastjór- ann, Keith Burkinshaw, í vetur. Þeir töluöust ekki víö. Archibald var keyptur til Tott- enham á 830.000 pund frá Aber- deen í maí 1980 og var hann dýr- astl leikmaöur sem Keith Burk- inshaw keypti á tíma sínum sem framkvæmdastjóri Spurs. Morgunblaöið/Simamynd Thomas Kienzle „Ut!endingarnir“ hans Benthaus • „Útlendingarnir“ hjá Stuttgart á fyrstu æfingu félagins eftir sumarfrí ásamt Helmut Benthaus þjálfara. Vinstra megin Ásgeir Sigurvinsson og til hægri belgíski landsliösmaðurinn Nico Claesen sem félagiö keypti nýlega. inn útaf í leiknum gegn Fram í fyrrakvöld. Guömundur Torfason, Fram, var einnig dæmdur í eins leiks bann, vegna brottreksturs, en hann var rekinn af velli gegn Þrótti á dögun- um. Guömundur Torfason missir því af leik Fram og KR á laugar- daginn og nafni hans Baldursson missir af leikjum Breiöabliks viö ÍBK og Víking. Hann getur hins vegar leikiö gegn Þór á föstu- dagskvöldiö þar sem bannið tekur ekki gildi fyrr en um hádegi á laug- ardag. Þrír leikmenn úr 2. deild fóru í bann i gær: Óli Agnarsson, KS, í tvo leiki vegna 15 refsistiga, Ólafur Jóhannesson, Skallagrími, í einn leik vegna brottreksturs, og Aöal- björn Björnsson, Einherja, í einn leik vegna brottreksturs. Staðan í 1. deild ÍA 12 10 1 1 22:8 31 ÍBK 12 6 3 3 14:10 21 Þróttur 12 4 6 2 13:10 18 Víkingur 12 4 4 4 21:20 16 Valur 12 3 5 4 11:10 14 KA 12 3 4 5 18:23 13 Fam 12 3 3 6 13:15 12 Breiðablik 12 2 6 4 10:12 12 KR 12 2 6 4 11:10 12 Þór 12 3 2 7 14:19 11 Næsti leikur veröur á fimmtu- daginn og leika þá Þróttur og Keflavík á Laugardalsvelli og hefst leikurinn kl. 20. Sjómannagolf úti í Eyjum! VestmannMyjum, 24. júli. Nú á laugardaginn verður haldin i Vestmannaeyjum sér- stök opin golfkeppni fyrir þá sjómenn og útgerðarmenn hvaöanæva af landinu sem hafa fengiö golfbakteríuna i blóðið með saltinu. Keppnin hefst kl. 13 á laugardag á golfvellinum í Herjólfsdal og verða leiknar 18 holur með og án forgjafar. Um kvöldiö varö- ur verölaunaafhending og kvöldverður ( samkomuhús- inu. Fjölmörg glæsileg verö- laun veröa ( boöi og sárstök aflaverðlaun. Aðstandendur keppninnar taka það sérstak- lega fram aö ekkert kvótakerfi verói aett á högg og holur. — hkj.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.