Morgunblaðið - 26.07.1984, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 1984
23
Ályktun þings Bandalags
fatlaðra á Norðurlöndum
MORGUN BLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá Sjálfsbjörg
— Landssambandi fatlaðra:
„Til ríkisstjórnanna í Dan-
mörku, Finnlandi, íslandi, Noregi
og Svíþjóð.
Bandalag fatlaðra á Norður-
löndum, sem heldur nú 11. þing
sitt í Járvenpaá, Finnlandi, lýsir
yfir áhyggjum sínum eftir að
skýrslur aðildarsambandanna um
félags- og stjórnmálalega þróun á
Norðurlöndum hafa verið fluttar
þingfulltrúum.
Stjórnmálamenn á Norðurlönd-
um hafa ætíð lagt áherslu á sam-
stöðu með þeim hópum, sem lítils
mega sín í þjóðfélaginu, og á síð-
Endurmennt-
unarnámskeið
fyrir sjómenn
Endurmenntunarnámskeið
Stýrimannaskólans í Reykja-
vík lauk 2. júní sl.
Samkvæmt samþykktum Al-
þjóðasiglingamálastofnunar er
ríkisstjórnum skylt að sjá um
reglulega endurmenntun skip-
stjórnarmanna og voru slfk nám-
skeið haldin í Reykjavík í maí og
júní sl. Þetta kemur fram í
fréttatilkynningu sem Mbl. hefur
borist þar sem ennfremur segir
að þátttakendur hafi verið 31
starfandi skipstjórnarmaður og
að auki nokkrir á eigin vegum.
Meðal þess sem kennt var á
námskeiðinu var ratsjárútsetn-
ing, ratsjársiglingar á samlíki,
skipagerð, slysa- og eldvarnir,
sundköfun og að auki tölvunotk-
un um borð í skipum og sjávarút-
vegi.
Þetta er þriðja vorið í röð nú á
seinni árum, sem endurmenntun-
arnámskeið eru haldin í Stýri-
mannaskólanum og alls hafa nú
65 skipstjórnarmenn tekið þátt í
þessu námi. I lok áðurnefndrar
fréttatilkynningar er greint frá
því að stefnt sé að því að hafa
einhverja endurmenntun og
námskeið samhliða námi í Stýri-
mannaskólanum á veturna.
í lagi með
TF-GRÓ
Gæsluþyrlan TF-GRÓ reynd-
ist minna biluð en búist var við,
en eins og sagt var frá í Morgun-
blaðinu í fyrri viku fékk hún
úlpu í skrúfuna er hún flutti
steypumót út í Engey.
A tímabili var óttast að senda
þyrfti skrúfublöðin utan til við-
gerðar, en sá ótti reyndist
ástæðulaus og stöðvaðist þyrlan
aðeins í einn dag vegna þessa.
ustu þremur áratugum hefur farið
fram mikil uppbygging á þeim
sviðum, sem eru hvað mikilvægust
fyrir fatlað fólk, þ.e. hvað varðar
menntun, atvinnu, húsnæði og
flutninga.
Þátttakendur á þessu þingi, 125
talsins, lýsa þess vegna yfir
áhyggjum sínum vegna þróunar-
innar hin síðustu ár. í stað upp-
byggingar kemur niðurskurður og
samdráttur og einkunnarorð Al-
þjóðaárs fatlaðra, „full þátttaka
og réttindi", falla óðum í
gleymsku.
Þó svo að þjóðfélögin hafi ekki
jafn mikið efnahagslegt svigrúm
og áður, hörmum við, að samstaða
með veikari hópum samfélagsins
eigi sér ekki dýpri rætur en svo, að
ráðamenn á Norðurlöndum kjósi
að láta versnandi efnahagslíf
bitna fyrst og fremst á lífsafkomu
þessa fólks.
Þrátt fyrir sveiflur í efnahags-
lífi norrænna ríkja munu samtök
fatlaðra og meðlimir þeirra ávallt
krefjast þess, að nauðsynlegar
ráðstafanir séu gerðar til þess að
bæta fólki upp fötlunina. Það er
jafnréttiskrafa, að fatlaðir ein-
staklingar fái sömu möguleika og
aðrir þjóðfélagsþegnar til þátt-
töku á öllum sviðum þjóðlífsins.
Sérstaklega vill þingið benda á,
að eitt mikilvægasta félagslega
markmiðið felst í jöfnum rétti til
atvinnu. Sé atvinna ekki fyrir
hendi, hafa fjölmargir fatlaðir
einstaklingar ekki tækifæri til
þátttöku á öðrum sviðum þjóðlífs-
ins á jafnréttisgrundvelli. Þróunin
er sú, að atvinnumarkaðurinn á
Norðurlöndum þrengist sífellt.
Þetta bitnar fyrst og fremst á fötl-
uðu fólki. Bandalag fatlaðra á
Norðurlöndum beinir því þeim til-
mælum til ríkisstjórna á Norður-
löndum, að auka viðleitni til þess
að skapa fleiri atvinnutækifæri.
Frá þjóðfélagslegu sjónarhorni er
atvinnulíf, sem aðgengilegast er
öllum, hagkvæmast og frá mann-
legu sjónarmiði hið eina rétta.
Tónleikar
Gammanna
HUÓMSVEITIN Gammarnir, sem
sendi í síðustu viku frá sér fyrstu
breiðskífu sína, efnir í kvöld,
uuiíutuuá^, tíl íuiuCiIia ÓU núíei
Borg og hefjast þeir kl. 21. Á tón-
leikunum munu Gammarnir kynna
efni af nýju plötunni auk þess sem
þeir leika annað efni.
Hljómsveitina Gammana skipa
eftirtaldir: Skúli Sverrisson/bassi,
Björn Thoroddsen/gítar, Stefán S.
Stefánsson/saxófónn, Steingrím-
ur Óli Sigurðarson/trommur og
Þórir Baldursson/hljómborð.
öíoK)
IM
Philips ferðatæki í fararbroddi LW - MW.
Verð frá aðeins kr. 799.-
FM - LW - MW tæki frá kr. 1.440 -
... 88 91 9 97 fOO 104 FM
. , || ,|| |, n JPhiiip* bíltæki. Sambyggt útvarps- og segul-
mmmmt-..,, ibandstækiFM.LW-MW. Verð frá kr. 7.547.-
! 5.
jPhilips kassettur í öllum gerðum, langtum
ódýrari en þig grunar.
I Til dæmis C-60 aðeins á kr. 49.-
Heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 - 20455- SÆTÚNI 8-15655
6
Sambyggð ,
útvarps- og segulbandstæki mono"
Verð frá aðeins kr. 3.573.-
Ef þú kaupir fyrir meira en 4.999 krónur
gerumst við ótrúlega sveigjanlegir
í samningum.
Látiu reyna á það!