Morgunblaðið - 26.07.1984, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 26.07.1984, Blaðsíða 62
62 MORGUNBLAÐID, FIMMTUDAGUR 26. JÚLl 1984 Stærsta íþróttablað Banda- ríkjanna spáir Einari silfri Stærsta íþróttablaö Banda- ríkjanna, Sport llluatrated, gef- ur út riaastórt blað í tilefni ólympíuleikanna. Blaöió er 540 aíöur og er allt hiö glœsilegasta og þar er farið rækilega ofan í aaumana á leikunum og öllum þeim íþróttum aem þar er keppt í. Blaðiö spáir úrslitum í hverri grein í leikunum og þaö er mjög athyglisvert aö íslendingnum Einari Vilhjálmssyni er spáö silfurverölaunum í spjótkasts- keppninni. Blaöiö sem fær sér- fræöing til aö spá um hverja grein og um spjótkastið segir þaö: .í fjarveru Uwe Hohn, Austur-Þjóöverja, sem á dögun- um setti nýtt heimsmet, kastaöi 104,80 metra, og landa hans Detlef Michel, ætti fyrrum heims- methafa, Tom Petranoff frá Bandaríkjunum, ekki aö veröa skotaskuld úr því aö sigra í spjótkastkeppni ólympíuleik- anna. Segja má aö Petranoff keppi á heimavelli — hann þekk- ir mjög vel inn á allar aðstæöur í Kaliforníu og hefur tekiö þátt hér í mörgum stórmótum." Einar Vilhjálmssyni er spáö ööru sætinu í spjótkastinu og ( þriöja sæti veröi Bandaríkjamaö- urinn Duncan Atwood sem hefur komiö mjög á óvart meö góöum köstum í sumar. Því er jafnframt spáö aö þessi svo til óþekkti bandaríski spjótkastari geti jafn- vel komiö á óvart og hreppt fyrsta sætiö. Þegar litiö er yfir spá blaösins yfir Ólympíusigurvegara kemur í Ijós aö reikna er meö því aö Bandaríkjamenn veröi lang sig- ursælastir í leikunum og þeir komi til meö aö sópa tii sin verö- launum. Þess má geta til gamans aö fyrstu verölaunin sem afhent veröa á þessum Ólympíuleikum verða afhent fyrir hjólreiöar. Þaö er 190 km hjólreiöakeppni sem fram fer á götum Los Angeles. Frá Þórarni Ragnarssyni, blaðamanni Morgunblaðsins á Ólympíuleikunum í Los Angeles Los Angeles komin í hátíðar- búning vegna ólympíuleikanna Los Angeles, „Englaborgin“ í Kalíforníu, er tilbúin til aö halda Ólympíuleikana. Borgin er nú þegar komin í hátíðarbúning og Ólympíuleikvangurinn er þegar fánum prýddur og allar götur kringum hann fagurlega skreyttar. Jafnframt hefur veriö komið upp miklu af stórum skiltum sem minna á leikana og segja má aö augu allra hér í Kaliforníu og sjálfsagt víöar um heiminn beinist nú að ólympíu- hringjunum og aó Ólympíuleik- unum sem veróa settir á laug- ardag. Forseti Bandaríkjanna, Ronald Reagan, segir aö þjóö sín veröi stolt af þessum leikjum sem standa munu frá 28. júlí til 12. ágúst. Allt hefur veriö lagt í söl- urnar til aö gera leikana sem glæsilegasta og aö þeir veröi eft- irminnilegri en nokkru sinni fyrr. En ieikarnir fara ekki aöeins fram hér í Los Angeles. Þeir munu fara fram á heimilum fólks um alla veröld og aldrei áöur hef- ur verið lagt jafn mikiö í sölurnar til þess aö vel takist til meö sjón- varpsútsendingar. Bandaríska sjónvarpsstööin ABC mun veröa meö 2.500 manns sem leggja munu nótt viö dag viö útsend- ingar og gert er ráö fyrir því aö 2,5 milljónir manna um allan heim muni fylgjast grannt meö þessari stærstu íþróttahátíö sem nokkru sinni hefur fariö fram. ABC borgaöi 225 milljónir dollara fyrir sjónvarpsréttinn af leikunum og er þaö hærri upp- hæö en nokkru sinni áöur. Marg- ir hafa óttast, sérstaklega Evr- opubuar, aö erfitt veröi aö keppa í Los Angeles vegna hins mikla hita og mengunar sem oft er hér í lofti, en ráðamenn Ólympíuleik- anna hafa fullvissað alla um aö þaö muni ekki hafa áhrif á leik- ana og þegar þetta er skrifaö er hitinn hér í Los Angeles mjög þægilegur — um 28 gráöur — og ekki er hægt aö segja annaö en aö loftiö sé nokkuö gott, jafn- vel inni i miöborginni, þar sem loftiö er oft mjög mettaö af óhreinindum og mengun. Margir höföu t.d. áhyggjur af hlaupurum í lengri vegalengdun- um og þess má geta aö hér hefur veriö skýrt frá því í bfööum aö rússneska blaöiö Pravda hefur reynt aö gera lítiö úr Ólympíu- leikunum og birt myndir af mönnum á hlaupum meö gas- grímur og sagt aö ekki sé hægt aö hlaup hér meö góöum árangri ööru vísi en með gasgrímur fyrir • Mikill fjöldi fólks safnaöist saman viö Santa Anita-veöhlaupavöllinn í Arcadia í Kaliforníu í gær, í von um aö ná sór í miöa á Ólympíuleikana. Þar var veriö aö selja mióa sem afgangs uröu — þeir höföu veriö teknir frá fyrir þjóöir, sem síöan afboöuóu komu sína á leikana á síöustu StundU. Morgunblaölö/Símamynd AP andlitinu. Þetta er án efa alrangt. Maraþonhlaupararnir sem koma til með aö hlaupa 42,2 kíló- metra, hafa kviðiö fyrir, en Bandaríkjamenn hafa haft ráö undir rifi hverju, og ákveöiö aö koma fyrir sturtum á hlaupaleiö- inni þannig aö keppendur geti kælt sig niöur meö vissu millibili. Ekki ósvipaö kerfi og þegar bíll fer gegnum bílaþvottastöö! Til aö menga ekki loftið enn frekar á því svæöi sem mara- þonhlaupiö fer fram mun engin bílaumferö veröa leyfð á því svæöi — og einu bílarnir sem fá aö fylgja þeim eru sérstakir raf- magnsbílar sem byggöir voru eingöngu fyrir ABC-sjónvarps- stööina og þeir munu fylgja hlaupurunum eftir. Þaö fer ekki fram hjá neinum sem kemur nálægt blaöamanna- miöstööinni og leikvanginum sjálfum aö öryggisgæsla er gíf- urleg hér í Los Angeles. öryggís- verðir eru á hverju strái, einkenn- is- og óeinkennisklæddir. Ólympíuleikar fá nú í fyrsta skipti markaösfrelsi, ef svo má aö oröi komast. Fram aö þessu hafa Ólympíuleikar yfirleitt veriö reknir meö tapi og viökomandi borgir hafa setiö uppi meö stór- kostlegt fjárhagslegt tap. En nú veröur breyting á. Los Angeles-borg heldur ekki leikana heldur voru þeir boönir út. Venjulega fá Ólympíuleikar ríkisstyrk, þeir fá ágóöa af happ- drætti og gjafir frá ýmsum aöil- um, en nú er öllum þessum greiöum hafnaö. Reyndar eru happdrætti bönnuö meö lögum hér í Kaliforníu, og ólympíunefnd einkafjármagnsins tók aö sér aö leysa dæmiö. Hún seldi sjón- varpsréttinn, eins og áöur kom fram, fyrir 225 milljónir dollara, og síöan samdi hún viö 50 stór- fyrirtæki um framlög gegn leyfum til aö nota Ólympíuleikana i aug- lýsinga- og áróöursskyni. i þriöja lagi er stefnt aö því aö selja aö- göngumiöa inn á leikana fyrir 90 milljónir dollara. Islensku siglingamennirnir: Frammistaða þeirra hefur komið á óvart íslenskir síglingamenn taka nú þátt í ólympíuleikum í fyrsta skipti, Gunnlaugur Jónasson og Jón Pétursson. Þeir félagar hata nú dvaliö hér á aðra viku og hafa stundað æfingar af miklum krafti nióur vió Long Beach þar sem siglingakeppnin mun fara fram. Þeir hefja æfingar kl. sjö á hverjum morgni og sigla mjög mikiö hvern dag. Þeir láta vel af öllum aöstæöum hér og kunnugir segja aö frammistaö þeirra á æf- ingum hafi komiö nokkuö á óvart og þeir kunna greinilega meira fyrir sér í þessari grein en margur hyggur. Þaö kæmi mér ekki á óvart þó þeir ættu eftir aö sýna góöa frammistööu í siglinga- keppninni. Keppt verður sjö sinnum og samanlögö stig ráöa úrslitum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.