Morgunblaðið - 09.11.1984, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1984
Erindi
Bjargar
Það hefir hvarflað að mér í
seinni tíð, að sú hugmynd að gefa
út á prenti aðskiljanlegt efni út-
varpsins, væri kannski ekki svo
vitlaus þegar á allt er litið. Hvað
um þætti Hannesar H. Gissurar-
sonar: Skilyrði fyrir friði, sem ég
hef áður minnst á og tel að gefi
tilefni til frjórrar umræðu um
utanrikismál? Má ekki gefa út
slíka þætti í einhvers konar tíma-
ritsformi, og væri þar fléttað inní
gagnstæðum skoðunum vísra
manna? Ég tel að blómleg sérrita-
útgáfa hér á landi hafi sannað, að
slík rit, er til dæmis taka fyrir
álitamál á sviði stjórnmála, eigi sér
lífsgrundvöll. Nú, og hvað um stór-
merk útvarpserindi Bjargar Ein-
arsdóttur er bera samheitið Líf og
störf íslenskra kvenna. Má ekki gefa
slík erindi út á bók?
Verk aö vinna
Ég held að þessi erindaflokkur
Bjargar, sem er að mínu viti í senn
áheyrilegur, fróðlegur og skemmti-
legur, eigi fullt erindi við æsku
þess lands. Hvernig væri að flétta
slíkum erindaflutningi inn í ís-
landssögukennslu, svona einsog til
að minna nemendur á, hve stutt er
síðan að íslenskar konur komust
hér til sjálfræðis í menningarmál-
um, ef svo má að orði komast. Og
líka til að lífga uppá kennsluna. Tel
ég að hér sé verk að vinna fyrir
námsgagnastofnun. Fátt er mikil-
vægara uppvaxandi kynslóð en
vakandi áhugi á sögu lands og þjóð-
ar, því annars er hætta á að hún
festi eigi rætur í landi voru, menn-
ingu þess og sögu, og verði auðveld
bráð hinum alþjóðlega vitund-
ariðnaði er máir út öll landamæri.
Vaxtarverkir
Og ekki nóg með það að sagan sé
dýrmætt vegarnesti uppvaxandi
kynslóð. Ég tel að það sé afar mik-
ilvægt að skoða atburði líðandi
stundar ætíð í víðara sögulegu
samhengi, annars fæst eigi sá sam-
anburður sem er nauðsynlegur til
að átta sig á stöðunni hverju sinni.
Að mínu viti þjáist íslenska sam-
félagið af vaxtarverkjum, slíkum
er meginlandsþjóðir á borð við Svía
hafa löngu gleymt. Enda líta Svíar
á okkur eins og ungling á mót-
þróaskeiði, að því er mér skilst.
Þetta er auðvitað alveg hárrétt
skoðun hjá frændum okkar, því
eins og kemur fram í erindi Bjarg-
ar Einarsdóttur frá síðastliðnum
miðvikudegi, um þær Olöfu Finsen
og Önnu Pétursdóttur, var ekki
komin nokkur einasta skikkan á ís-
lenskt samfélag fyrr en leið að
aldamótum. Sem dæmi má taka að
hér var engin spítali fyrr en Carl
H. Simsen gaf húseignina „Skandi-
navia“ fyrir enda Aðalstrætis,
ásamt gamla klúbbhúsinu þar suð-
uraf árið 1866, en fjórum árum áð-
ur hafði fyrsti barnaskólinn í
Reykjavík verið stofnsettur. Hugs-
ið ykkur bara, nú er hér mikilfeng-
legt sjúkrahúsakerfi, er státar
meðal annars af einhverri full-
komnustu ungbarnagæslu er þekk-
ist í víðri veröld, og skólakerfið er
landi og þjóð til sóma.
Hver trúir því ...
Já, og allt hefir þetta gerst hjá
fámennri þjóð í harðbýlu landi á
undraskömmum tíma og við, sem
nú njótum ávaxtanna, auðvitað
löngu búin að gleyma því, að hér
hafi ekki alla tíð verið til staðar
fullkomin sjúkraþjónusta og skil-
virkt skólakerfi. Og ætli nokkur ís-
lenskur velferðarþegn trúi því, að á
sama tíma og hér risu fyrstu spít-
alarnir og barnaskólarnir, birtist
eftirfarandi auglýsing í Þjóðólfi:
„Hér til landsins eru komnir tveir
rússneskir kaupmenn, þeir herra
Johannesberg og Welensky og vilja
kaupa höfuðhár af konum og borga
vel. Þar eð ég er aðstoðarmaður
þeirra, bið ég alla góða landa mína
að styðja fyrirtæki þetta, þar sem
mörgum fátækling gefst þar með
færi á að fá góða borgun í pening-
um í aðra hönd. Brynjúlfur Gunn-
lögsen."
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP/SJÓNVARP
Anthony Braxton
og Shelley Manne
Vernharður Linnet stjórnar jazzþætti á
Rás 2 í dag kl. 16. Að sögn hans mun þátt-
urinn fyrst og fremst vera helgaður Anth-
ony Braxton saxófónleikara, klarinettuleikara og
tónskáldi, en Braxton mun halda tónleika í Félags-
stofnun stúdenta á sunnudag. Vernharður sagði, að
Braxton hefði verið í slagtogi með svokölluðum „Hópi
skapandi tónlistar", en þeim hópi tilheyrði m.a. Art
Ensemble og Chicago, sem komið hafa hingað til
lands. „Um 1970 bjó Braxton í Evrópu og var þá með
hljómsveit ásamt Chic Corea,“ sagði Vernharður.
„Hann hefur verið frumkvöðull að því að leika á lítt
þekkt hljóðfæri, t.d. kontrabassasaxófón og kontra-
bassaklarinett." Auk þess að fjalla um Anthony Brax-
ton ætlar Verðharður að minnast Shelley Manne
trommuleikara, sem lést í september sl.
Kvöldvaka
Það kennir
ýmissa grasa á
dagskrá Kvöld-
Andrés Björnsson skrifar
frásögu þáttinn Sigling
Gullmávsins, sem Sigurlaug
M. Jónasdóttir les á kvöld-
vöku í kvöld.
vöku útvarpsins í kvöld.
Fyrst flytur Guðmundur
Sæmundsson frá Neðra-
Haganesi frásöguþátt,
sem nefnist Fyrirbæri á
fiöllum. Að sögn Helgu
Agústsdóttur, umsjón-
armanns Kvöldvöku, fjall-
ar frásöguþáttur Guð-
mundar um sæluhúsið í
Hvítárnesi, en sæluhús
hafa lengi verið tilefni til
frásagna af dulrænum
fyrirbrigðum. Þegar Guð-
mundur Sæmundsson hef-
ur lokið lestri tekur við
vísnaþáttur í umsjá nafna
hans Guðmundar Þórð-
arsonar. f vísnaþættinum,
sem kallast Vökunætur,
er kveðskapur úr ýmsum
áttum. Kvöldvöku lýkur
með lestri Sigurlaugar M.
Jónasdóttur á frásögn er
Andrés Björnsson skráði
og nefnist hún Sigling
Gullmávsins. Ekki er
meira gefið upp um sigl-
ingu þessa, enda ógaman
að heyra slíkt fyrirfram.
Judy Dench og Frederick Forrest í hlutverkum sínum sem breska bankastarfsmærin og
bandaríski levniþjónustumaðurinn, sem leika stór hlutverk í Saigon á hættutímum.
Saigon á ári kattarins
Sjónvarpið sýnir í kvöld nýja breska sjónvarpsmynd, sem nefnist Saigon á
ári kattarins. Myndin skeður í Víetnam á árunum 1974—1975. Styrjöldin
er á lokastigi. Bresk kona, sem leikin er af Judy Dench, starfar hjá banka
í Saigon. Hún kynnist bandariskum manni, sem Frederick Forrest leikur, og uppgötv-
ar fljótlega að hann er starfsmaður CIA, leyniþjónustu Bandaríkjanna. Samband
þeirra verður fljótt náið og bæði eiga þau eftir að leika stórt hlutverk í brottflutningi
Vesturlandabúa frá borginni.
Leikstjóri myndarinnar er Stephen Frears og í aðalhlutverki er, auk þeirra er áður
voru nefnd, E.G. Marshall. Þýðandi er Kristrún Þórðardóttir.
Veröld Busters
Sjónvarpið hefur í kvöld
sýningar á nýjum dönsk-
um framhaldsmynda-
þætti fyrir börn, sem nefnist Veröld
Busters. Samnefnd bók eftir Bjarne
Reuter og Bille August hefur komið
út á íslensku í þýðingu ólafs Hauks
Símonarsonar. En meira um Buster.
Hann er ungur drengur, sonur at-
vinnulauss töframanns og sonar-
sonur fallbyssukóngsins mikla,
Osman, sem stundum var skotið svo
langt út úr fallbyssunni, að hann
varð að taka með sér nestispakka.
Það er því greinilegt, að sitthvað
skemmtilegt getur komið fyrir í
fjölskyldu Busters, sem leikinn er af
Mads Bugge Andersen. Það ættu því
allir krakkar að fylgjast vel með frá
upphafi, því þættirnir eru aðeins
sex og alltaf leitt að missa úr.
1925
Buster Oregon Mortensen, eins og hann heitir
fullu nafni, ásamt móður sinni, sem leikin er af
Katja Miehe-Renard.
2210
ÚTVARP
FÖSTUDKGUR
9. nóvember
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
A virkum degi. 7.25 Leikfimi.
7.55 Daglegt mál. Endurt.
þáttur Sigurðar G. Tómas-
sonar frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15
Veðurfregnir.
Morgunorð: — Jón. Ól.
Bjarnason talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
.Breiðholtsstrákur fer I
sveit" eftir Dóru Stefánsdótt-
ur. Jóna Þ. Vernharösdóttir
les (8J.
9J0 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
íngar. Tónleikar. 9.45. Þing-
tréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).
10.45 .Þaö er svo margt aö
minnast á" Torfi Jónsson sér
um þáttinn.
11.15 Morguntónleikar.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12J» Fréttir. 12.45 Veöur-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
14.00 .A íslandsmiðum" eftir
Pierre Loti. Séra Páll Pálsson
á Bergþórshvoli les þýðingu
Páls Sveinssonar (12).
14J0 Miðdegistónleikar.
Scherzo op. 25 ettir Josef
Suk. Tékkneska Fllharmón-
lusveilin leikur; Zdenék Mác-
al stj.
14.45 A léttu nótunum.
15J0 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16J0 Slðdegistónleikar.
a. Brandenborgarkonsert nr.
4 I G-dúr eftir Bach. Con-
centus Musicus hljómsveitin I
Vlnarborg leikur; Nikolaus
Harnoncourt stj.
b. Planókonsert i D-dúr eftir
Leopold Kozeluck. Felicja
Blumental leikur meö Nýju
kammersveitinni I Prag; Al-
berto Zedda stjórnar.
17.10 Slödegisútvarp
Tilkynningar
18A5 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
20.00 Lög unga fólksins. Þóra
Björg Thoroddsen kynnir.
20.40 Kvðldvaka
a. Fyrirbæri á fjöllum. Guð-
mundur Sæmundsson frá
Neðra-Haganesi tekur sam-
an og flytur frásöguþátt um
Sæluhúsið l Hvltárnesi.
b. Vökunætur. Guðmundur
Þórðarson sér um vlsnaþátt.
c. Sigling Gullmávsins. Sig-
urlaug M. Jónasdóttir les
frásögn er Andrés Björnsson
skráði. Umsjón: Helga Ag-
ústsdóttir.
21J5 Framhaldsleikrit:
„Draumaströndin" eftir
Andrés Indriðason. V. og
slðasti þáttur endurtekinn:
„Sólarmegin I llfinu". Leik-
stjóri: Stefán Baldursson.
Leikendur: Arnar Jónsson,
Kristbjörg Kjeld, Tinna
Gunnlaugsdóttir. Steinunn
Jóhannesdóttir, Hjalti
Rögnvaldsson og Baltasar
Samper.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
SJÓNVARP
FÖSTUDKGUR
9. nóvember
19.15 A döfinni.
Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson. Kynnir Birna
Hróltsdóttir.
19.25 Veröld Busters.
Nýr tlokkur. — Fyrsti þáttur.
Danskur framhaldsmynda-
flokkur I sex þáttum, gerður
eftir samnefndri barnabók
eftir Bjarne Reuter og Bille
August sem komiö hefur út I
Islenskri þýöingu Ólafs
Hauks Slmonarsonar. (Nord-
vision — Danska sjónvarp-
iö.)
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Kastljós.
Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaður Helgi E.
Helgason.
21.10 Skon okk.
Umsjónaimenn Anna Hinr-
iksdóttir og Anna Kristln
Hjartardóttir.
21.40 Hláturinn lengir llfiö.
Annar þáttur. Breskur
myndaflokkur I þrettán þátt-
um um gamansemi og gam-
anleikara I fjölmiölum fyrr og
slðar. Þýðandi Guðni Kol-
beinsson.
22.10 Saigon á ári kattarins.
Ný bresk sjónvarpsmynd.
Leikstjóri Stephen Fears.
Aðalhlutverk: Judy Dench,
Frederic Forrest og E.G.
Marshall. Myndin gerist á
lokastigi styrjaldarinnar I VI-
etnam. Bresk kona, sem
starfar I banka I Saigon,
kynnist bandarlskum leyni-
þjónustumanni og þau leika
bæði nokkurt hlutverk I
brottflutningi Vesturlanda-
búa frá borginni. Þýðandi
Kristrún Þórðardóttir.
00.00 Fréttir I dagskrárlok.
22.35 „Brot frá bernskuslóð-
um“. Baldur Pálmason les úr
minningum Hallgrlms Jón-
assonar rithöfundar.
23.00 Djassþáttur — Tómas
Einarsson.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
24.00 Næturútvarp frá rás 2 til
kl. 03.00.
RÁS 2
10.00—12.00 Morgunþáttur
Fjörug danstónlist. Viðtal,
gullaldarlög, ný lög og vin-
sældalisti.
Stjórnendur: Jón Ólafsson
og Sigurður Sverrisson.
14.00—16.00 Pósthólfið
Lesin bréf frá hlustendum og
spiluð óskalög þeirra ásamt
annarri léttri tónlist.
Stjórnandi: Valdls Gunnars-
dóttir.
16.00—17.00 Jazzþáttur
Þjóðleg lög og jazzsöngvar.
Stjórnandi: Vernharður Linn-
et.
17.00—18.00 I föstudagsskapi
Þægilegur múslkþáttur I lok
vikunnar.
Stjórnandi: Helgi Már Barða-
son.
23.15—03.00 Næturvakt á Rás
2
Stjórnendur: Vignir Sveins-
son og Pétur Steinn Guö-
mundsson.
(Rásir 1 og 2 samtengdar kl.
24.00 og heyrist þá i Rás 2
um allt land.)