Morgunblaðið - 09.11.1984, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 09.11.1984, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1984 t Eigínmaöur minn, SIGURÐUR E. ÁSBJÓRNSSON, Víöivöllum 6, Salfossi, or lést 2. nóvember veröur jarösunginn frá Selfosskirkju laugar- daginn 10. nóvember kl. 13.30. Fyrir hönd vandamanna, Sólrún Siguróardóttir. 1 Móöir okkar og tengdamóöir. ■ ÁGÚSTA INGJALDSDÓTTIR fré Auósholti, Njörvasundi 36, Reykjavfk, andaöist 7. nóvember. Hallur Guömundsson, Súsanna Guömundsdóttir, Guöjón Guðmundsson, Jóna Einarsdóttir, Sigriöur Guömundsdóttir, Ólafur Holgason. t Elskuleg móöir okkar, tengdamóöir og amma, RÓSA GUÐMUNDSDÓTTIR, Þinghólsbraut 34, Kópavogi, andaöist á Vífilsstöðum, 7. nóvember. Anna R. Jónatansdóttir, Vernharöur Aöalsteinsson, Guömundur Jónatansson, Maria Guömundsdóttir, Helgi Jónatansson, Þorgeröur Einarsdóttir og barnabörn. t Eiginmaöur minn og faðir okkar, ÞORSTEINN ÓLAFSSON, tannlæknir, Laufásvegi 42, varö bráökvaddur aö heimili sínu 6. nóvember. Ólöf Vilmundardóttir, Ólafur Þorsteinsson, Kristín Þorsteinsdóttir. t Móöir okkar, FRANZISKA KARÓLÍNA SIGURJÓNSDÓTTIR, lóst í Landakotsspítalanum þann 6. nóvember. Kristín Jónasdóttir, Árni Jónasson, Sigurjón Jónasson. t Móöir okkar, SVANHILDUR SVEINSDÓTTIR, sem andaöist 28. október veröur jarösungin frá Víkurkirkju laug- ardaginn 10. nóvember kl. 2.00. Athöfnin hefst meö húskveöju frá heimili hinnar látnu kl. 1.30. Börn hinnar látnu. t SÓLVEIG ELÍSABET JÓNSDÓTTIR frá Stóra-Sandfelli, Hátúni 12, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 12. nóvember kl. 10.30. Vandamenn. Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi. VALUR JÓHANNSSON, prontari, Kaplaskjólsvagi 9, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni i dag, föstudaginn 9. nóv- ember kl. 13.30. Unnur Jóhannesdóttir, Trausti Valsson, Birta Hákonardóttir, Erla Valsdóttír, Jóhann Guómundsson, Árni J. Valsson, Halldóra Haröardóttir, Edda Valsdóttir, Gunnar H. Ragnarsson og barnaböm. Jón G. Nikulásson læknir — Minning Fæddur 30. desember 1897 Dáinn 1. nóvember 1984 1 dag verður farsæll læknir og frábær heiðursmaður borinn til moldar. Vegna áratuga langra góðkynna okkar hjóna við þau Jón og Helgu langar mig til að mega vera í hópi þeirra mörgu sem færa Jóni G. Nikulássyni innilegar þakkir á útfarardegi hans fyrir þá frábæru samfylgd sem hann veitti öllum er áttu þess kost að njóta hennar. Jón var kominn af góðum aust- firskum bændaættum, fæddur að Hrafnabjörgum í Jökulsárhiið. Hann lauk námi í læknisfræði vorið 1929. Framhaldsnám stund- aði hann í Vínarborg árin 1932, 1933 og 1934. Árið 1936 varð hann viðurkenndur sérfræðingur í kvensjúkdómum og fæðingar- hjálp. Eftir það var hann starf- andi læknir í Reykjavík þangað til fyrir nokkrum árum er veikindi lömuðu vinnuþrek hans. Árið 1936 kvæntist Jón Helgu Gísladóttur ólafsson. Þau eignuð- ust tvö börn, Selmu og Gunnar Karl. Góður fóstri reyndist Jón tveim börnum Helgu frá fyrra hjónabandi hennar. Jón var mjög góður læknir og naut mikillar og verðskuldaðrar virðingar í sérgreinum sínum. Ég efast um að skýringarinnar á því sé eingöngu að leita í ágætum gáf- um hans, mikilli menntun og langri lífsreynslu. Ég held að hana sé einnig að finna í þeim eðlislægu hæfileikum sem sumum eru gefnir en aðrir geta aldrei áunnið sér, náðargáfunni, „læknishöndunum" sem finna þar mein sem öðrum er hulið. Þegar hér við bætist óbrigð- ul hjartahlýja og örlæti á vinnu- stundir alla tíma sólarhringsins þá verður til manngerð Jóns Nik- ulássonar, hugvitssöm f leit að því sem þjakar líkamann, styrk þeim í sálusorgum sem eru í andlegri neyð. Vegna þessa var öllum gott að koma til Jóns og af þessum orsökum var hann alla tíð vafinn vinsældum. Jón var mikill bókmenntaunn- andi og eignaðist stórt og fjöl- breytt safn innlendra og erlendra bóka. Hann vann einnig að þýð- ingum, ritaði greinar um sérsvið sín og skráði margvíslegan fróð- leik um menn og málefni, einkum ættfræði hin síðari ár. Þrátt fyrir íhygli og alvöru andspænis vanda- sömum viðfangsefnum hafði hann glöggt auga fyrir öllu spaugilegu og brá oft á léttan leik í samræð- um. Sennilega er Jón einn vamm- lausasti maöur sem ég hef kynnst á æfiferlinum. Hann var strang- heiðarlegur og svo hrekklaus að hann átti mjög örðugt með að trúa því sem miður fór í fari annarra. Jón naut jafnan fágætra vinsælda meðal sjúklinga sinna og þótti mörgum er hann lét af störfum sem þeir myndu aldrei framar finna neinn er fyllti hans skarð. Þessi fjölmenni hópur kveður nú í Halldóra Karls- dóttir - Minning Nýlátin er á Akureyri Halldóra Karlsdóttir ættuð úr Austúr- Húnavatnssýslu. Nú við brottför hennar af þess- um heimi vil ég biðja Morgunblað- ið fyrir þakkarorð frá mér og mín- um til hennar. Um árabil vorum við nágranna- konur á Akureyri. Stóð heimili hennar og fyrri manns hennar þá í Friðbjarnarhúsi. Hann hét Guð- mundur Halldórsson. Hann and- aðist í hestamennsku fyrir mörg- um árum síðan. Þeim Guðmundi og Halldóru varð einnar dóttur auðið, Katrínar. Býr hún á Akur- eyri. Katrín reyndist móður sinni mjög vel. Dvaldist hún hjá henni síðustu mánuði æfi sinnar. Eftir að Halldóra varð ekkja giftist hún síðar seinni manni sín- um, Ragnari Jóhannssyni. Hann átti ættir sínar að rekja úr Eyja- firði og átti hann heimili um skeið í Siglufirði. Heimili Ragnars og Halldóru stóð lengi vel á Klepps- vegi hér í borg. Halldóra varð að reyna þá djúpu sorg að verða ekkja í annað sinn. Hún leitaði Drottins í raunum sínum. Bænin var henni iífslind og skjól. Um mörg ár vann Halldóra t Þökkum innilega öllum þeim mörgu sem auösýndu okkur samúö og vínáttu viö andlát og útför HELGU MARTEINSDÓTTUR, Bólstaöarhlið 42, Karl Jónaaon, Erna Karladóttir, Bjarni Jónaaon, Jón Stefán Karlaaon, Hafdía Ólafadóttir, Marteinn L. Karlaaon, Sigurbjörg Jónadóttir, Birgir Karlaaon, Halldóra Sveinadóttir og barnabörn. t Alúöarþakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför HALLGRÍMS JÓNSSONAR, vélatjóra, Heióarhrauni 30, Grindavík. Gréta Jónadóttir, Hjálmfríöur Eyjólfadóttir, Elíaabet Kriatjánadóttir, Aöalateinn Hallgrimsson, Jón Þór Hallgrímaaon, Hjálmar Hallgrímaaon, Jóhann Þorgrímur Hallgrímaaon, Elísabet Bogadóttir, Jón Kriatjánaaon. Lokað í dag frá kl. 13.00—15.00 vegna jarðarfarar SÆVARS SIGURÐSSONAR, bifreiöastjóra. Nýja sendibílastöðin. dag hinn ágæta lækni sinn með miklum söknuði og innilegum þökkum. Við erum fámennari sem nutum um langa hríð samvista við þau Helgu og Jón innan veggja hinna hlýlegu heimila þeirra. Enda þótt minningarnar um þær samveru- stundir séu of kærar og persónu- legar til þess að bera þær á torg í minningargrein þá skulu fyrir þær færðar innilegar þakkir þeim báðum, Helgu, sem við njótum enn, og Jóni sem við kveðjum í dag með innilegum þökkum fyrir að hafa fengið tækifæri til að njóta samvista við fágætan heiðurs- mann, afburða lækni og ljúfan lagsbróður. Megi minningarnar um hann verða sem allra flestum til eftirbreytni. S.M. bæði á Hrafnistu og á Landspítala við saumaskap. Hún var ákaflega vel lagin og nýtin. Sá hún um föt sjúklinga, lagfærði og endurnýj- aði. Naut hún mikils trausts yfir- boðara sinna. Enda töluðu verk hennar betur en orð. Eins og fyrr er getið vorum við Halldóra nágrannar. Fannst mér gott að leita til hennar. Hún var höfðingi og leit til hins smáa og lítilmagnans. Þegar ég, einstæð kona með þrjá fóstursyni mína, flutti frá Akureyri suður á land þurfti ég að rýma hús mitt. Átti ég þá gott skjól hjá Halldóru og gekk jafnt yfir okkur öll og þá þrjá fóstursyni mína, Ib, Hans og Gunnar. Vorum við þar til skips- ferð féll suður. Fannst mér ég standa í mikilli þakklæti til Hall- dóru fyrir þetta og allt annað er hún sýndi mér. Halldóra flíkaði ekki tilfinning- um sínum. Hún var ákaflega traustur vinur vina sinna. Um tíma var hún sjúk á Vífilsstöðum. Beðið var fyrir henni, um leið og hún naut hjúkrunar og ráða fær- ustu lækna. Halldóra fann kraft Guðs og læknaðist. Fékk hún dá- samlegan tíma, þar sem hún var hress og glöð. Enginn má sköpum renna. Eitt sinn hlýtur hver að deyja. Hall- dóra er gengin á fund Drottins. Sakna ég hennar sárt. Heiðríkja er í huga mínum er ég minnist Halldóru Karlsdóttur. Veri hún Guði falin um tíma og eilífð, í Jesú nafni. Guðný Guðjónsdóttir, Njálsgötu 25, Keykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.