Morgunblaðið - 11.11.1984, Blaðsíða 69

Morgunblaðið - 11.11.1984, Blaðsíða 69
69 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1984 Rannsóknarstofa mjólkuriðnaðarms: Þjónustustöð fyrir nær öll mjólkursamlög á landinu ALLT frá stofnun nautgriparæktarfé- laganna hér á landi hefur mjólk úr hverri kú verið vegin reglulega og fitu- magn hennar mælt. Þetta er gert til þess að vita, hvaða gripir eru bestir til kjnbóta með tilliti til aukinnar nyt- hæðar kúa og fitumagns mjólkur. Fyrst í stað fóru eftirlitsmenn milli bæja og tóku sýni. Síðar tóku mjólkurbúin upp þetta eftirliL Þá voru send sýni frá hverjum bónda og þau rannsökuð hjá búunum. ör þróun hefur orðið i tækni við efnamælingar á mjólk, bæði á eggja- hvítu og fitu. Til þessara mælinga eru notaðar sérstakar vélasamstæð- ur. En stofnkostnaður þeirra er það mikill að það er ofviða einstökum mjólkursamiögum að festa kaup á þeim. Þann 22. janúar 1982 tók til starfa í Reykjavík Rannsóknarstofa mjólk- uriðnaðarins. Flest mjólkursamlög á landinu eiga þessa Rannsóknarstofu og er hún eins konar þjónustumið- stöð fyrir þau. Mikil áhersla var lögð á að þessi þjónustustöð gæti einnig sinnt öðrum veigamiklum þætti i starfsemi mjólkursamlaganna, en það eru júgurbólgurannsóknir. Hluti af tækjasamstæðunni. Starfsemin er því þriþætt, þ.e. efna- greiningar á mjólk fyrir nautgripa- ræktarfélögin, efnagreiningar fyrir mjólkursamlögin og júgurbólgu- rannsóknir. Til þess að framkvæma þessar rannsóknir var fengin sérhönnuð tækjasamstæða að verðmæti um 5 milljónir króna. Hún getur mælt prósentutölu fitu, eggjahvitu og mjólkursykurs auk þess sem hún sýnir frumutölu. Þetta er eina sam- stæðan af þessu tagi hérlendis. Efnarannsóknartækið og frumutaln- ingartækið vinna samhæft og tengj- ast með tölvubúnaði. Niðurstöðurnar prentast út á tölvuprentara og fara inn á tölvudiskettu þar sem þær eru varðveittar til frekari úrvinnslu. Efnarannsóknir fyrir nautgripa- ræktarfélögin voru komnar að fullu í gang haustið 1983. Niðurstöður rannsóknanna fara beint til tölvu- deildar Búnaðarfélags íslands til úr- vinnslu og notkunar við val nauts- mæðra og kynbótanauta. 23.000 kýr voru skýrslufærðar á vegum naut- griparæktarfélaganna árið 1983. Bændur í nautgriparæktarfélögum senda sýni úr hverri kú 8 sinnum á ári. Mjólkursamlögin senda sýni af mjólkurinnleggi hvers bónda og nota niðurstöðurnar í uppgjöri sínu við bændur. Enn sem komið er er aðeins mælt fitumagn mjólkur. 1 framtið- inni er þó búist við að meiri áhersla verði lögð á eggjahvituinnihald mjólkur og jafnvel borgað eftir þvi. Það er talinn mikill kostur að þessar mælingar fari nú allar fram á sama stað og unnar af sama fólki. Ólafur E. Stefánsson formaður stjórnar Rannsóknarstofu mjólkuriðnaðarins sagði að markmiðið væri að rækta kúakyn, sem gæfi hóflega mikla mjólk með hóflega mikilli fitu og mikilli eggjahvitu f mörg ár. Hann Stjórn Rannsóknarstofu mjólkuriðnaðarins. F.v. Pétur Sigurðsson, Magnús H. Sigurðsson, Ólafur E, Stefánsson, formaður, Þórarinn E. Sveinsson og Sigurður Sigurösson. sagði að allar þessar rannsóknir miðuðu að því. Frumutalan er notuð sem mæli- kvarði á júgurheilsu kúnna. Ráða má nokkuð um almennt ástand hjá hverjum bónda eftir sýnum af safn- mjólk frá honum, en ef frumutalan er há er ástæða til að rannsaka nán- ar hverja kú. Tæki þessi eru fljótvirk við þessar rannsóknir, en júgurbólga rýrir mjög nythæð kúnna og veldur mjólkurframleiðendum ómældum tekjumissi af þeim sökum. Ef sýklar finnast i mjólkursýni eru þeir greindir og næmi þeirra við ýmsum tegundum af fúkalyfjum athuguð. Dr. ólafur Oddgeirsson forstöðu- maður Rannsóknarstofu mjólkuriðn- aðarins sagði að nú væri mikið um ónæmar bakteríur vegna þess að notuö hafa verið mjög einhæf lyf. Þar væri sérstaklega átt við penisil- in. Nú eru niðurstöður rannsókn- anna sendar viðkomandi bónda, mjólkursamlagi og dýralækni og fylgja leiðbeiningar um lyfjanotkun til að ráða niðurlögum sýkingar f hverju tilfelli. Húsnæðið, sem Rannsóknarstofan er í, er leigt af Mjólkursamsölunni í Reykjavik. En eins og áður sagði er hún í eigu flestra mjólkursamlaga á landinu, sem greiddu stofnkostn- aðinn, 12—14 milljónir króna. Tímaritið Bóndinn nýkomið út TÍMARITIÐ Bóndinn, þriðja tölu blað ársins 1984, er nýkomið út, og hefur ritið þegar verið sent um 4.500 bændum víðs vegar um landið, en bændur fá Bóndann heimsendan endurgjaldslaust. — Þá er Bóndinn einnig seldur öðrum í áskrift og hann fæst í bókaverslunum um allt land, og er heildarupplag ritsins nú 5.200 eintök. Meðal efnis í Bóndanum að þessu sinni eru stutt viðtöl við bændur í öllum landshlutum, þar sem fjallað er um nýliðið sumar, heyskap og fleira. Þá er að finna viðtöl við bændur á Fljótsdalshér- aði, sem byrjaðir eru að rækta nytjaskóg, og er fjallað um þá framtíðaratvinnugrein, sem og skógrækt almennt. Yfirgripsmikil grein er i Bóndanum um framtíð- armöguleika í fslenskum landbún- aði, eftir Gunnar Bjarnason, ráðu- naut. Þá er viðtal við Egil Jónsson alþingismann á Seljavöllum, undir fyrirsögninni „Ég er þingmaður bænda, en þó ekki bænda einna.“ Enn má nefna að grein er um at- hyglisverðar tilraunir, sem gerðar hafa verið með smágrfsadeildir í Danmörku, greint er frá eininga- húsaframleiðslu Trésmiðju Fljóts- dalshéraðs, rætt er við heimilis- fólkið á Stafafelli í Lóni, stuttar fréttir eru úr ýmsum áttum, les- endabréf og verðlaunakrossgáta á sínum stað, fjallað er um niður- skurð vegna riðuveiki í fé í Barða- strandarsýslu, skiptar skoðanir birtar um útburð lyfsins fenemals og áhrif þess á hafarnarstofninn, og margt fleira efni er i Bóndan- um að þessu sinni. Forsiðumyndin er af ungum haferni, en hana tók Hjálmar R. Bárðarson. Útgefandi Bóndans er útgáfufélagið Fjölnir hf., ritstjóri er Anders Hansen, auglýsinga- stjóri Erna Ragnarsdóttir. (FrélUtilkywiiu.) HLJOMBÆR Verð frá kr. 24.500,- HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999 i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.