Morgunblaðið - 13.11.1984, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
9fguitilrifafrUtí
STOFNAÐ 1913
221. tbl. 71.
árg.
ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Herskáir námamenn láta til skarar skrída:
Kasta sprengjum og
spjótum að lögreglu
AP-aimamynd.
Herskir námamaður tekinn fastur við Cortonwood-námuna f Jórvfkurskíri á
Englandi f einhverjum verstu átokum námamanna og lögreglu frá því náma-
verfallið hófst 12. marz. Fleiri og fleiri námamenn snúa aftur til vinnu og
kom til átaka er herskáir námamenn reyndu að sporna við þvf.
LowIob, 12. oÍTeaber. AP.
Tvö þúsund námamenn til viðbót-
ar sneru baki við samtökum sfnum
og mættu til vinnu f dag. Kom til
börðustu átaka námamanna og lög-
reghi til þessa í námaverkfallinu,
sem staðið hefur f nfu mánuði. Köst-
uðu striðandi námamenn heima-
smíðuðum spjótum og benzín-
sprengjum að lögreglunni, sem
handtók 54 námamenn.
Samtals hafa verið handteknir
um 7.000 námamenn f verkfallinu,
sem hófst 12. marz vegna fyrirœtl-
ana stjórnarinnar um að loka 20
óarðbærum námum. Ofbeldisað-
gerðirnar f dag áttu sér einkum
stað f Jórvikurskfri er herskáir
verkfallsmenn reyndu að sporna
við því að félagar þeirra sneru til
vinnu.
Námamannafjölskyldur eiga nú
i miklum raunum og af þeim sök-
um snúa æ fleiri námamenn til
vinnu. Einnig hafa tilboð um ríf-
legan jólabónus virkað hvetjandi á
þá. Alls eru skráðir 54.000 náma-
menn af 178.000, sem ekki eru í
verkfalli og fjölgar þeim daglega
Skriðdrekar á
götum Managua
Muijpia, 12. aATeaber. AP.
Tuttugu T-55 skriðdrekar, sem
smfðaðir eru f Sovétrfkjunum, tóku
sér stöðu á götum höfuðborgar Nic-
aragua er ber landsins var skipað f
viðbragðsstöðu og öryggissveitir
óbreyttra borgara kvaddar saman
vegna árásar Bandarfkjanna, sem
sandinistastjórnin segir yfirvofandi.
Fimmtán skriðdrekar gættu
iðnaðarhverfis í norðurhluta Man-
Rajiv tekur við formennsku í Kongress-flokknum:
Fylgir stefnu
móður sinnar
[>elkí, 12. BÓvember. AP.
RAJIV GANDHI hét þvf f sinni fyrstu stefnuræðu að halda áfram stefnu
látinnar móður sinnar, Indfru. Opinberri þjóðarsorg vegna morðsins á Indfru
31. október lauk í gær með því að Rajiv dreifði ösku móður sinnar úr flugvél
yfir snævi þöktum tindum Himalayafjalla.
„Indverjar halda áfram að Rajiv þá við einslega.
vinna í þágu friðar, vináttu og al-
þjóðlegrar samvinnu," sagði Rajiv.
Hann gaf i skyn að hann muni
áfram líta á Sovétríkin sem náinn
bandamann, en lýsti samskiptum
Indlands og Bandarfkjanna sem
„marghliða".
Rajiv sagðist áfram um að koma
samskiptum Indverja við ná-
granna sfna, þ.á m. Pakistana og
Kínverja f betra horf. Tilgreindi
hann Pakistan sérstaklega, en Zia
Ul-haq forseti var viðstaddur
bálför Indfru og ræddust þeir
Gandhi hvatti þjóð sfna óspart
til samlyndis og að sýna umburð-
arlyndi, og hét því að útrýma
„spillingu, leti og afkastaleysi“ úr
stjórnkerfinu og betrumbæta
menntakerfið.
Árla í dag tók Rajiv formlega
við leiðtogahlutverki Kongress-
flokksins, og hóf undirbúning að
þingkosningum, sem halda á 20.
janúar næstkomandi, samkvæmt
stjórnarskrá landsins.
Sjá: „Ösku Indiru dreift“
ábls.27
agua og öðrum var stillt upp i suð-
austurjaðri borgarinnar á vegin-
um til Masaya. Þá sást til ferða
hertrukka, sem smfðaðir eru f
Austur-Þýzkalandi, í öðrum borg-
arhlutum, en óljóst er hver farm-
ur þeirra var.
Sovézka flutningaskipið, sem
styrr hefur staðið um sfðustu
daga, og talið var flytja sandinist-
um fullkomnar MiG-orrustuþotur,
lét úr höfn f Nicaragua I dag.
Fjórða daginn í röð heyrðust yfir
Nicaragua hávaði til marks um að
hljóðmúrinn hefði verið rofinn og
sagði útvarpsstöð sandinista að
háfleyg bandarísk SR-71 njósna-
flugvél hefði þar verið á ferð.
Af hálfu Bandaríkjamanna hef-
ur þvf verið visað á bug sem al-
gjörum þvættingi, að f ráði væru
hernaðaraðgerðir gegn Nicaragua.
Starfsmenn leyniþjónustunnar
láku þvf til fjölmiðla f sfðustu viku
að ekki væri hægt að útiloka hern-
aðaraðgerðir til að koma f veg
fyrir að MiG-þotunum yrði skipað
á land. Caspar Weinberger land-
varnamálaráðherra Bandarfkj-
anna sagði f gær að „engin stað-
festing“ lægi fyrir um að flutn-
ingaskipið hefði haft MiG-þotur
innanborðs. Lét Weinberger í ljós
áhyggjur með „linnulausan flutn-
ing árásarvopna“ sem gerði það að
verkum að nágrannarfkjunum
stafaði mikil hætta af Nicaragua.
sem mæta til vinnu. Eru nú 119
námur af 174 starfandi og hafa
ekki verið fleiri frá því verkfall
hófst.
Lögreglan lfkti ástandinu vfða i
Jórvíkurskiri við ringulreið. Fóru
herskáir námamenn i hópum um
mörg námaþorp og rændu og rupl-
uðu. Köstuðu þeir benzfnsprengj-
um að lögreglustöð, rifu niður
ljósastaura úr steinsteypu,
kveiktu í bifreiðum og höguðu sér
sem á þá hefði runnið æði. Segir
lögregian að svo virðist sem um
skipulegar aðgerðir hafi verið að
ræða um allt skírið.
Símasamband við móðurina
Stúlkubarnið Fae hlýðir á rödd móður sinnar í gegnum síma. Móðirin
þjáist af kvefi og fær því ekki að dveljast hjá dóttur sinni, sem nú er
nær mánaðargömul. Fae sýndi þess merki að líkaminn hafnaði bavfana-
hjartanu, sem grætt var f hana tveggja vikna gamla, en hurfu þau
einkenni með lyfjagjöf og braggast hún vel. Sjá nánar „Baby Fae“ yfir
erfiðan hjalla“ á bls. 24.
Söguleg björgun
fj ar skip tahna ttar
KuiTfraHASa, 12. BÓTtmbn. AP.
BILUÐUM gervihnetti var bjargað f dag um borð I geimferjuna Discovery.
Verður hnötturinn fiuttur til jarðar til viðgerðar áður en honum verður skotið
á braut um jörðu á ný.
Geimfarinn Joe AUen „hand-
samaði“ fjarskiptahnöttinn Pal-
apa B2 er hann sveif út fyrir Dis-
covery án þess að vera tengdur
ferjunni með taug, og er það f
fyrsta sinn sem aðgerð af þessu
tagi er framkvæmd með þeim
hætti. Með sérstökum búnaði
stöðvaði hann snúning hnattarins
og færði hann siðan að geimferj-
unni. Þar greip lyftikrani ferjunn-
ar hnöttinn og kom honum fyrir f
farangursrýminu. Stjómaði Anna
Fisher lyftikrananum.
Discovery átti stefnumót við
Palapa eftir fjögurra daga elt-
ingarleik og 2,5 milljón kilómetra
ferðalag. Hafði Discovery farið 64
hringi um jörðina er hún kom að
hnettinum i 360 km hæð yfir
jörðu. Að björgun lokinni hófst
undirbúningur að björgun annars
fjarskiptahnattar, Westar 6, sem
er á rangri braut í 1.100 km fjar-
lægð frá Palapa. Báðir hnettirnir
hafa verið gagnslausir frá i febrú-
ar sl. er hreyflar þeirra biluðu
með þeim afleiðingum að þeir
komust ekki á rétta braut um
jörðu. Hnettirnir eru metnir á 35
milljónir dollara hvor um sig.