Morgunblaðið - 14.11.1984, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.11.1984, Blaðsíða 1
80 SIÐUR MffiMttfifafetö STOFNAÐ 1913 222. tbl. 71. árg. MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins HryÖjuverk Sovétmanna í Afganistan: Myrtu 450 óvopn- aða andspyrnumenn Hundruð afganskra barna send nauðug í „sovéskt uppeldi“ Nýju-Delhí. 13. nóvember. AP. Vestrænir stjórnarerindrekar sem ekki vildu lita nafna getið segjast hafa það eftir áreiðanlegum heimild- um, að sovéskir hermenn og afg- anskir stjórnarhermenn hafi myrt 450 andspyrnumenn sem gefist höfðu upp og lagt niður vopn eftir harða orrustu. Erindrekarnir segja atburðinn hafa átt sér stað í síðasta mánuði, er stjórnarhermenn og Rússar gerðu áhlaup á stöðvar and- spyrnumanna nærri Hezzera Jot í fjöllunum f norðvesturhluta Afg- anistan. Andspyrnumennirnir sem um ræðir bjuggu um sig í virki miklu, en voru umkringdir og gátu eigi hörfað. Vörðust þeir þó uns skotfæri þeirra þraut, en þá drógu þeir hvítan fána að húni og lögðu niður vopn. Er þeim hafði verið smalað saman gaf sovéskur herforingi skipun um að þeir skyldu allir liflátnir og voru and- Ósætti um inngöngu Spánar og Portúgals Bnunel, 13. nÓTember. AP. Utanríkisriðherrar Efnahags- bandalags Evrópu sátu í dag á fund- um í höfuðstöðvum bandalagsins og skeggræddu inngöngu Spánar og Portúgals í samtökin. Innganga landanna hefur verið ákveðin 1. janúar 1986, en ýmis vandamál hafa komið upp á ráðherrafundum EBE sem gætu tafið gang mála. Ýmis þessarra mála voru rædd á fundinum f dag og f gær, en árang- ur varð lftill eða enginn. 26. nóv- ember munu ráðherrarnir hittast og hafði sá fundur verið áætlaður sá sfðasti vegna málsins, síðan átti að ræða beint við Spánverja og Portúgali á tveimur næstu dög- unum. Nú eru horfur á að því verði frestað um óákveðinn tíma. Er hængurinn sá, að þau lönd sem fyrir eru f EBE hafa ekki getað komið sér saman um hvað sé hægt að bjóða Spáni og Portúgal f staðinn fyrir það sem þau lönd bjóða. Þá berast þær fregnir úr höfuð- stöðvum EBE, að Marokkó hafi sótt um aðild að bandalaginu. Munu vera mjög skiptar skoðanir innan EBE hvort af því geti orðið. Einn háttsettur embættismaður innan bandalagsins sagði að inn- ganga Marokkó væri „ekki raun- hæf“. Hassan Marokkókonungur er á öðru máli, hann sagði i viðtali f sfðustu viku, að umsókn Marokkó hefði verið rædd af mikilli alvöru á fundi EBE í júnf siðastliðnum. spyrnumennirnir þá umsvifalaust skotnir á staðnum. Morðin fram- kvæmdu bæði sovéskir hermenn og stjórnarhermenn. Sovétmenn eru farnir að flytja hundruð afganskra barna í „upp- eldi“ til Sovétríkjanna. Fyrsti hópurinn hélt frá Kabúl til Mið- Asfu 5. nóvember síðastliðinn. Þá hurfu á braut 870 börn á aldrinum 7 til 9 ára. Stjórnarandstæðingar og vestrænir stjórnarerindrekar segja börnin hafi verið tekin nauð- ug af foreldrunum og flughöfnin f Kabúl hafi verið troðin grátandi foreldrum. Herma fregnir að fleiri hópar muni verða sendir f hið „sovéska uppeldi" á næstunni, en börnin munu verða f allt að 10 ár i Sovétríkjunum. Forseti landsins, Babrak Karmal, sem Sovétmenn styðja eindregið, kallar þetta „stórkostlegt og einstætt vinarhót sovésku þjóðarinnar i garð Afg- ana“. Ný átök Símamynd AP. Til nýrra átaka kom f grennd vió nokkrar kolanámur í Bretlandi í dag og slösuðust nokkrir lögreghimenn og verkfallsmenn í þeim. Þá mættu vfða enn fleiri verkfallsmenn til vinnu og hafa átök farið vaxandi eftir þvf sem fleiri hafa hætt verkfallsaðgerðum og mætt aftur til vinnu. Telur lögreglan að aðgerðir verkfallsmanna séu mun skipulegri en áður. Vfða er ástandið hörmulegt Illa horfir fyrir nær helmingi Afríkubúa Nairóbf, Kenya, 13. nóvember. AP. ÁSTANDIÐ í Afrfkurfkjunum 27 sem illa hafa orðið úti í þurrkun- um miklu sem valdið hafa hinni miklu hungursneyð, fer versnandi þegar á heildina er litið. Það kem- ur fram í nýútkominni skýrslu FAO, Matvæla- og Landbúnað- arstofnun Sameinuðu þjóðanna. 1 skýrslunni segir að fjögur lönd hafi bæst við langan lista þeirra sem neyðarástand rfkir f, Burundi, Kenya, Marokkó og Rwanda. Hungursneyðin er verst í fimm löndum , Chad, Eþiópfu, Mali, Mauritanfu og Mozambique, en ljósu punktarnir f skýrslunni voru þeir, að smárikið Swaziland þyrfti eigi lengur á aðstoð að halda og f Benin, Ghana, Guinea Bissau, Mið-Afríkulýðveldinu og Togo væri búist við eðlilegri uppskeru. Samt er ástandið afar slæmt, hungur sverfur að 200 milljónum af 500 milljónum íbúa Afríku. Pólland: Stjórnin segir mannrétt- indanefndum stríð á hendur Varajá, Póllandi. 13. nóvember. AP. JERZY URBAN, talsmaður stjórnvalda í Póllandi, sagði í dag, að leiðtogar hinna nýju mann- réttindahreyfinga, sem sprottið hafa upp í kjölfarið á morðinu á séra Jerzy Popieluszko á dögun- um, skyldu gera sér grein fyrir því að starfsemi slíkra nefnda væri með öllu ólögleg og þeir sem tækju þátt í starfseminni ættu á hættu að vera sóttir til saka fyrir vildð. Mannréttindanefndir hafa verið skipaðar í þremur stór- borgum i Póllandi og á döfinni hefur verið að stofna fleiri. Verkefni þeirra hefur verið hugsað m.a. að greina frá vald- beitingu lögreglu. Aðstandend- ur hreyfinganna eru allir leið- andi menn innan Samstöðu og COR. Urban greindi frá þvi, að stefnumál hreyfinganna væru „fjandsamleg ríkinu og sniðin til þess að einangra stjórnvöld Morð á landamærun- um kælir sambúðina Prag, 13. nóvember. AP. SAMBÚÐ Austurrfkis og Tékkó- slóvakíu hefur versnað til mikilla muna sfðustu dagana, eða eftir að austurriskir landamæraverðir fundu tékkneskan flóttamann dáinn Aust- urríkismeginn við línuna. Hafði hann verið skotinn í bakið. Snðrp orðaskipti hafa verið milli stjórnvalda landanna beggja vegna þessa atburðar og nú hafa Tékkar kallað sendiherra sinn í Vínarborg heim „um óákveðinn tíma“. Tala Tékkar nú um „furðu- lega andtékkneska herferð“, en í Austurríki er mikið talað um morð landamæravarðanna. Tékk- ar neita staðfastlega að maðurinn hafi verið felldur á austurrískri grund. og koma á stjórnleysi i landinu á ný“. Þá sagði hann umsvif Samstöðu- og COR-manna ómakleg svo ekki væri meira sagt, að notfæra sér dauða prestsins Popieluszko í eigin- hagsmunaskyni. Mannréttindahreyfingarnar eru fyrstu fjörbrot Samstöðu sem talandi er um síðan herlög voru sett á í Póllandi 1981 til að uppræta hreyfinguna. Urban sagði: „Hreyfingarnar eru ólög- legar vegna þess að það þarf leyfi til að stofna félög. Slíkt leyfi hefur ekki verið veitt. Þessir menn eru að rífa niður lög og reglu á sama tíma og þeir segjast ætla að standa vörð um þau.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.