Morgunblaðið - 15.11.1984, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 15.11.1984, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984 Kartöfluverksmidjurnar lækka franskar um 20 % Verksmiðjan á Svalbaröseyri framleiðir á lager Kartöfluverksmiðjurnar á Sval- barðseyri og í Þykkvab* hafa Iskk- að verð á frönskum kartöflum um 20% og verksmiðjan á Svalbarðseyri hefur aukið afköstin um helming. Verksmiðjurnar eru í harðri sam- keppni við innfluttar vörur og eru með þessu móti að reyna að koma offramleiðslu landsmanna á kartöfl- um í verð. Verksmiðjan á Svalbarðseyri framleiðir nú úr 15 til 16 tonnum af kartöflum á sólarhring. „Við er- um að reyna að bjarga verðmæt- um með þvi að auka framleiðsl- una, en á sama tíma neyðumst við til að lækka verðið vegna harðrar samkeppni við innfluttar vörur,“ sagði Karl Gunnlaugsson kaupfé- lagsstjóri í samtali við blm. Mbl. Karl sagði að verksmiðjan stæði ekki undir að framleiða og selja á þessu lága verði og ef að verðstríð- ið héldi áfram sagði hann að það hlyti að koma niður á lægra skila- verði til kartöflubænda. Karl sagði að salan væri dræm, hún væri rétt að komast af stað eftir verkfallið. Nú á verksmiðjan 70 eða 80 tonn af frönskum kartöfl- um í frysti. Sagði Karl að gífur- lega erfitt væri að vera með svo mikið fjármagn bundið i birgðum en kartöflurnar geymdust jafn- góðar í marga mánuði. Aðspurður um ástæður þess að innfluttu kartöflurnar væru ódýrari þegar hægt er að framleiða slíka vöru hér sagðist Karl hafa heyrt að mikil uppskera hefði verið í Evr- ópu og markaðsverð hráefnisins þvi lágt. Sagðist hann til dæmis vita til að kartöfluverksmiðja f Danmörku þyrfti ekki að greiða nema 3 krónur íslenskar fyrir kartöflukílóið á sama tíma og hrá- efnisverðið hér væri 15,65 kr. Friðrik Magnússon, fram- kvæmdastjóri kartöfluverksmiðj- unnar í Þykkvabæ, sagði í samtali Þrír af hljóðfæraleikurum Pax Vobis Pax Vobis leik ur á Borginni HLJÓMSVEITIN Pax Vobis heldur tónleika á Hótel Borg í kvöld í tilefni að nýútkominni plötu hennar. Hljómsveitina skipa þeir Ásgeir Sæmundsson, Skúli Sverrisson, Þorsteinn Gunnarsson, Þorvaldur Þor- valdsson og Þorsteinn Jónsson. Hljómleikarnir hefjast klukk- an 22. Þá má einnig geta þess að hljómsveitin mun einnig leika í Safarí á föstudag og laugardag. BÓKAÚTGÁFAN Iðunn hefur sent frá sér bókina Ja, þessi heimur, ver- aldarsögu og reisubók Péturs Karls- sonar Kidson. Þorgeir Þorgeirsson skráði eftir frásögn Péturs sjálfs. Pétur Karlsson Kidson, njósnari Breta á íslandi á stríðsárunum og f þorskastríðinu fyrra, fæddist á Norður-Englandi en gerðist síðar íslenskur ríkisborgari. Hann kom fyrst til íslands á vegum breska setuliðsins sem fáum mánuðum fyrr hafið hernumið landið. í þess- ari bók rekur Pétur lífshlaup sitt. Segir hann fyrst frá uppvexti sín- um, dvöl í Þýskalandi 1938 og því er hann var kvaddur f herinn við byrj- un stríðsins. Um langt skeið starf- aði Pétur í bresku leyniþjónust- unni, hafði það hlutverk að afla upplýsinga sem utanríkisráðuneyt- inu komu vel en lágu ekki altént á lausu. Þetta var starf hans hér á landi á hernámsárunum þar sem hann fékk m.a. það verkefni að fylgjast með ferðum þýskra njósn- ara norður á Melrakkasléttu. Frá íslandi fór Pétur skömmu eftir að Bandaríkjamenn tóku við vörnum Höfundarnafn féll niður NIÐUR féll höfundarnafn á inn- lendum vettvangi, sem birtur var í blaðinu í gær og fjallaði um Járn- blendiverksmiðjuna á Grundar- tanga. Höfundurinn er Stefán Friðbjarnarson blaðamaður. landsins og barst þá víða um lðnd. Súes, Jerúsalem, Kairó, Róm, þetta eru fáeinir áningarstaðir. Hann var líka í Noregi þegar uppgjör við þýsku nasistana fór þar fram. Síðan dvaldist hann um skeið f Rússlandi og hafði margháttuð kynni af ofurvaldi sovéska kerfisins. Pétur kom aftur til íslands á ör- lagatímum þegar útfærsla land- helginnar í tólf mllur stóð fyrir dyrum. í bókarauka er birt skýrsla frá 1945 um njósnir Þjóðverja á Islandi og Grænlandi og koma þar fram upplýsingar sem hingað til hafa verið á fárra vitorði. — Bókin er prentuð í Odda. Kápa hönnuð á auglýsingastofu Ocavo. (Úr fréttatilkynningu.) -þessj heimui við blm. Mbl. að þar hefði verð framleiðslunnar einnig verið lækkað. Hinsvegar hefði ekki ver- ið farið út i að framleiða á lager en höfuðáherslan lögð á söluna, enda hefði hún aukist að undan- förnu. Sagði hann að samkeppni við innflutning væri gifurlega hörð og sagði að kartöflubændum þætti það skjóta skökku við að kartöflur væru eina landbúnað- arfurðin, sem hömlulaust mætti flytja inn. Friðrik sagði að í verk- smiðunni væri framleitt úr um 8 tonnum af kartöflum á dag, en sagði að nauðsynlegt hefði reynst að lækka verð steikarkartafln- anna til bænda vegna verðlækkun- arinnar. Páll Halldórsson hjá Ekta hf. á Eyrarbakka, sem framleiðir kart- öfluflögur og ýmsar aðrar „snack-vörur", sagði að hingað til hefði verksmiðjan eingöngu fram- leitt vörur úr unnum innfluttum kartöflum en nú væru þeir að byrja með kartöfluflögur úr ís- lenskum kartöflum. Sagði hann að íslensku kartöflurnar virtust henta vel til framleiðslunnar en vandamál væri að fá þær rétt geymdar. Sagði Páll að salan hefði gengið vel og þessar vörur fengið ótrúlega góðar viðtökur. Síðan í ágúst, þegar verksmiðjan var stofnuð, hafa selst 120 þúsund pokar (70 gr.) af „snack-vörum". Hofsá — nýtt skip Hafskips NÝJASTA kaupskip Hafskips hf., ms. Hofsá, kom til Reykjavíkur sl. laugardag, með fullfermi frá Evr- ópuhöfnum. Hofsá, sem er sjöunda skip í kaupskipaflota fé- lagsins, er smíðuð í Austurríki 1972, en skipið var keypt af kanad- ísku skipafélagi. Ms. Hofsá er 3.200 lestir og tek- ur 183 gámaeiningar fulllestuð. Áhöfnin, 12 manns, er íslenzk og skipstjóri er Guðmundur Eyjólfs- Með tilkomu nýja skipsins fer ms. Hvítá, sem er spánskt leigu- skip með spánska áhöfn, úr leigu Hafskips hf. Ms. Hvitá lestar nú vöru í Bandaríkjunum fyrir Haf- skip hf. í síðasta sinn, en skipinu verður skilað í byrjun næsta mán- aðar. Ms. Hofsá verður í áætlunar- siglingum til Norðurlandahafna á móti ms. Skaftá. Miklar sveiflur vinnuleysi sl. 2 í yfirliti vinnumálaskrifstofu félags- málaráðuneytisins um atvinnuástand- ið hér í september og október sl. kem- ur m.a. fram að í septembermánuði voru skráðir 11.600 atvinnuleysisdag- ar eða færri en í nokkrum öðrum mánuði ársins. Svarar þetta til þess að 540 manns hafi verið á atvinnuleys- isskrá allan mánuðinn, sem er nánast sama tala og í september i fyrra (530), eða 0,4% af áætluðum mannafla. í októbermánuði voru skráðir rösklega 24 þúsund atvinnuleysis- dagar á landinu öilu, en það jafn- gildir því að 1.100 manns hafi verið á atvinnuleysisskrá allan mánuðinn eða 10% af áætluðum mannafla samkvæmt spá Þjóðhagsstofnunar. „Ja, þessi heimur“ Endurminningar Peturs Karlssonar Kidsons Þungarokkstónleikar í Safarí í at- mánuði Þetta er 10 þúsund dögum fleira en skráðust í sama mánuði í fyrra. Segir í yfirlitinu að ástæðurnar fyrir þessari þróun, þar sem skráð atvinnuleysi meira en tvöfaldaðist milli mánaða, megi rekja til þeirra erfiðleika sem útgerð og fiskvinnsla hafa átt við að stríða. Þannig megi rekja 75% af umræddri aukningu eða 9.500 af 12.500 skráðum at- vinnuleysisdögum til sjö staða á landinu þ.e. Hafnarfjarðar, Akra- ness, ólafsfjarðar, Seyðisfjarðar, Eyrarbakka, Vestmannaeyja og Keflavíkur, en þessir staðir voru hver um sig með 1.000 til 3.500 skráða atvinnuleysisdaga í október og ástæðurnar lengri eða skemmri stöðvun fiskvinnslunnar. Þá kemur fram í yfirlitinu að fyrstu 10 mánuði ársins voru skráð- ir 317 þúsund atvinnuleysisdagar á landinu öllu eða að meðaltali 32 þúsund dagar í mánuði. Þetta jafn- gildir því að tæplega 1.500 manns hafi til jafnaðar verið á atvinnu- leysisskrá eða 1,2% af mannafla á vinnumarkaði. Á sama tímabili i fyrra voru skráðir 234 þúsund at- vinnuleysisdagar og hefur þeim því fjölgað um 35% milli ára. í KVÖLD verða þungarokkstón- leikar í Safarí. Þar mun hljóm- sveitin Pass leika eingöngu frumsamið efni. Tónleikarnir hefjast klukkan 22. Meðfylgjandi mynd er af hljómsveitinni Pass. Smygl fannst í tog- aranum Arinbirni TOLLVERÐIR I Reykjavfk fundu mikið magn af áfengi um borð í togar- anum Arinbirni RE 54 aðfaranótt þriðjudagsins. Togarinn lagðist að bryggju í Reykjavík á mánudagskvöld- ið cftir að hafa selt afla í Cuxhaven f V-Þýzkalandi. Um borð fundust 830 flöskur af áfengi; mest 1 líters flöskur af 75% vodka, en einnig fundust um borð um 130 flöskur af 96% spfra. Þá fundust um borð 70 kassar af bjór, vindlingar, þvottavél, bílaútvarp, símar og 80 myndbönd og 5 mynd- bandstæki. Sjö skipverjar hafa viðurkennt að eiga góssið, sem var falið á fjórum stöðum í togaranum, í vél, lest, á gangi í vistaverum skipverja og milli þilja í einu herbergi. Þetta er eitt umfangsmesta smyglmál sem komið hefur upp um nokkurra ára skeið. Leiðrétting I GREIN eftir sr. Bjartmar Kristjánsson í Morgunblaðinu síð- astliðinn þriðjudag hefur ártal f annarri línu brenglazt í meðförum blaðsins. I greininni segir, að Syðra-Laugaland hafi með lögum frá 1936 verið gert að prestssetri í Grundarþingaprestakalli. Hið rétta er að þetta var árið 1935. Egilsstaðir: Áskriftartónleikar EgibHtaðuni, 12. nóvember. AÐRIR áskriftartónleikar Tónlistarfé- lags Fljótsdalshéraðs á þessu starfsári voru haldnir í Valaskjálf á laugardag. Þar komu fram þeir félagar, sr. Gunn- ar Björnsson sellóleikari og David Knowles pianóleikari. Á efnisskránni voru verk eftir J.S. Bach, Beethoven, Fr. Schubert og Sigurð Egil Garöarsson — auk þess sem þeir félagar léku aukalega verk eftir Debussy og Brahms. Áheyrendur fögnuðu listamönn- unum vel — enda var samspil þeirra með ágætum. Áheyrendur munu hafa verið um 80 talsins og er það orðin nokkuð vfs aðsókn að tónleik- um hér. í gær efndi Tónlistarfélagið svo til árlegrar kaffisölu f Menntaskólan- um á Egilsstöðum. Þar komu fram ýmsir ungir og efnilegir heimamenn. Formaður Tónlistarfélags Fljóts- dalshéraðs er Bergur Sigurbjörns- son. _ ólafur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.