Morgunblaðið - 20.11.1984, Blaðsíða 1
72 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
STOFNAÐ 1913
227. tbl. 71. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bretland:
Lýkur verk-
falli fyrir jól?
LondoB, 19. nóvember. AP.
Á ÞRIÐJA þúsund námamanna
sneri til vinnu í dag og hafa ekki
fleiri hætt verkfallinu á einum degi
frá því það hófst í mars sl. Telja
margir, að með sama áframhaldi
verði flestir komnir til vinnu fyrir
jól.
Að sögn stjórnar kolanámafé-
lagsins tóku 2.282 menn upp vinnu
i dag og hafa ekki fleiri skorast
Dollar
hækkar
LondoD. 19. nóvember. AP.
BANDARÍSKI dalurinn hækkaði I
verði í dag þrátt fyrir orðróm um að
vestur-þýski seðlabankinn hefði
reynt að vinna gegn hækkuninni. Er
ástæðan sögð sú, að flestir trúa á
áframhaldandi vöxt í bandarísku
efnahagslífi og fremur háa vexti.
Staða dollarans var þessi árla
dags: Einn dollar jafngilti 2,4535
svissneskum frönkum; 9,1250
frönskum frönkum; 3,3527 hol-
lenskum gyllinum; 1,845,25 itölsk-
um lirum og 1,3158 kanadiskum
dollurum. Fyrir pundið fengust
1,2539 dollarar. Gullverðið lækk-
aði nokkuð.
undan merkjum marxistans Arth-
urs Scargill á einum degi. Scargill
boðaði til verkfallsins í mars en
vildi þó ekki bera verkfallsboðun-
ina undir námamenn sjálfa eins
og lög kveða á um. Meðal þeirra,
sem hófu vinnu i dag, var John
Cunningham, formaður í einu fé-
lagi kolanámamanna. Talsmenn
ríkisrekna kolanámafélagsins
spáðu þvi i dag, að verkfallinu yrði
að mestu lokið fyrir jól og sögðu,
að því hefði verið lokið fyrir löngu
ef menn hefðu ekki óttast ofbeld-
isfullar þvinganir verkfallsvarða.
Eftir því sem fleiri snúa til
vinnu eykst ofbeldi verkfallsvarð-
anna. I dag var grjóti kastað í
lögreglumenn, kveikt í vegatálm-
unum, bílum velt og eldur borinn i
bensín, sem hellt hafði verið a
vegi. Verkfallsverðir brutust i nótt
inn í rannsóknastofur kolanám-
anna í Doncaster, eyðilögðu tölv-
urnar, köstuðu ritvélum út um
glugga og unnu stórskemmdir á
húsinu með þvi að opna fyrir
brunahana og láta vatnið flæða
um allt.
Arthur Scargill fer nú hamför-
um við að reyna að hindra að
verkfallið fari út um þúfur en
ýmsir þingmenn vilja, að hann
verði saksóttur fyrir að hvetja til
ofbeldis og fyrir að hafa tekið við
einni milljón dollara frá Sovét-
mönnum til að fjármagna ólöglegt
verkfall í lýðræðisríki.
Haldið heim frá vinnu
Tveir námamenn halda heim að loknum vinnudegi. Til að komast heilu og höldnu til heimiiis síns fylgja þeim sex
lögreglumenn. Annars ættu þeir á hættu að verða fyrir alls kyns kárínum og jafnvel meiðingum af hendi þeirra félaga
sinna, sem vilja halda verkfallinu áfram.
Franskt herlið
aftur til Chad?
Áfall fyrir Mitterrand að hafa treyst Khadafy
Parfa, 19. DÍT«Db«f. AP.
CHARLES Hernu, varnarmálaráð-
herra Frakklands, og Hissene
Öfgafullir dýravinir ógna
fólki með eitruðu sælgæti
LoDdDD, 19. DÓTember. AP.
TALSMENN öfgafullra dýra-
verndunarsamtaka { Bretlandi
skýrðu frá þvf í gær, að rottueitri
hefði verið komið fyrir í ótöldum
stöngum af Mars-súkkulaði í mót-
mælaskyni við tilraunir vísinda-
manna, sem hafa verið að kanna
hvernig tannskemmdir ganga fyrir
sig í öpum. í dag sagði svo annar
talsmaður samtakanna, að þetta
hefði verið blekking, engu eitri
befði verið komið fyrir í sælgæt-
inu. Breskir verslunareigendur
voru þá búnir að taka niður úr hill-
unum 10 milljónir Mars-stanga.
Einn talsmanna dýraverndun-
arsamtakanna, Ronnie Lee,
sagði í dag í útvarpsviðtali, að
ekkert sælgæti hefði verið eitr-
að, það hefði bara verið sagt til
að skaða framleiðanda Mars-
súkkulaðisins, sem heföi stutt
tilraunir vísindamanna á öpum
en þær voru fólgnar í því að gefa
þeim sætindi og fylgjast síðan
með tannskemmdum í þeim.
Nokkrar súkkulaðistengur fund-
ust í verslunum í ýmsum borgum
með viðvörun um að sælgætið
væri eitrað en svo reyndist ekki
vera við athugun. Talið er, að
breskir kaupmenn hafi tekið
Slmamynd/AP
Þessi verslunarstjóri í verslun í
London notaði sunnudaginn til að
tæma hillurnar af Mars-súkkulaði
til að unglingar eða börn gæddu
sér ekki á þvf á mánudagsmorgni.
Seinna kom í Ijós, að um blekk-
ingu hafði verið að ræða. Ekkert
rottueitur fannst í súkkulaðinu.
ofan 10 milljónir súkkulaði-
stanga af ótta við eitrið.
Dýraverndunarsamtökin, sem
kallast Framvarðafylkingin,
hafa oft ráðist á tilraunastofur
vísindamanna, sleppt lausum
dýrum í dýragörðum og unnið
stórskemmdir á loðdýrabúum.
Stundum hafa félagar í þeim
sleppt þúsundum minka lausum
með þeim afleiðingum, að fugla-
lífi á stórum svæðum hefur verið
stefnt í voða. Þegar talsmaður
þeirra var spurður í fyrrnefndu
útvarpsviðtali hvort væri mik-
ilvægara, líf dýranna eða barn-
anna, sem þeir hefðu hótaö að
eitra fyrir, svaraði hann: „Líf
þeirra, sem þjást meira, er
dýrmætara. Á hverju ári er
milljónum dýra misþyrmt."
Konunglega dýraverndunarfé-
lagið í Englandi hefur harðlega
mótmælt aðferðum Framvarða-
fylkingarinnar og sumir þing-
menn hafa á orði, að nauðsyn-
legt sé að fylgjast grannt með
þessu fólki því að hvenær sem er
geti það gripið til alvarlegra
hryðjuverka. Bresk stjórnvöld
hétu þvi f dag að uppræta þenn-
an félagsskap.
Habre, forseti Chad, áttu f dag fúnd
í N’djamena, höfudborg Chad, en f
París er sterkur orðrómur um, að
franskt herlið verði sent aftur til
landsins vegna brigða Khadafys,
Líbýuleiðtoga.
Franskir embættimenn segja,
að nú sé verið að ganga úr skugga
um hvort líbýsku hermennirnir í
Chad séu þar vegna tæknilegra
erfiðleika við brottflutninginn eða
vegna þess, að Khadafy ætli þeim
pólitískt og hernaðarlegt hlutverk
f landinu. Ef það siðarnefnda
reynist rétt, mun franska stjórnin
hafa það að leiðarljósi, að „ef þeir
fara, förum við, ef þeir verða um
kyrrt, munum við einnig verða um
kyrrt“, sagði einn embættismanna
f forsætisráðuneytinu, sem ekki
vildi láta nafns síns getið.
10. nóvember sl. gáfu stjórnir
Frakklands og Lfbýu út sameigin-
lega tilkynningu um að brottflutn-
ingi herja þeirra væri lokið, en
þremur dögum síðar skýrði banda-
ríska utanríkisráðuneytið frá því,
að enn væri líbýskt herlið í Chad.
Vildi franska stjórnin í fyrstu
ekkert um þá fullyrðingu segja, en
á daglöngum fundi þeirra Mitterr-
ands og Khadafys á Krft, komst sá
fyrrnefndi að hinu sanna. Þykir
þetta mál mikið áfall fyrir Mitt-
errand og ekki hafa aukið hróður
hans að treysta Lfbýu-
leiðtoganum.
Merk uppgötvun
í stærðfræðinni
New York, 19. DÓrember. AP.
TUTTUGU og átta ára gamall
stæröfræóingur af indverskum ætt-
um hefur fundiö nýja aðferö til að
leysa stæröfræðileg viðfangsefni,
sem hingað til hafa verið ofviða full-
komnustu tölvum. Skýrði blaðið
„Tbe New York Times“ frá þessu í
dag.
Opinberlega verður ekki skýrt
frá þessari uppgötvun fyrr en eftir
mánuð hið minnsta en hún hefur
verið hljóðbær meðal stærðfræð-
inga og forráðamönnum einkafyr-
irtækja leikur hugur á að vita
hvort með henni megi leysa flókin,
verkfræðileg úrlausnarefni þar
sem taka verður tillit til mörg
þúsund þátta. Hingað til hefur
svokallaðri „simplex-aðferð" verið
beitt i svona málum en hún leiðir
til bestu lausnar þótt taka verði
tillit til allt að 20.000 ólíkra atriða.
Tilraunir, sem hafa farið fram á
nýju aðferðinni, sýna, að hún er
margfalt fljótlegri og stórvirkari
og ræður við viðfangsefni, sem
hingað til hafa verið óleysanleg.
Sem dæmi má nefna hagkvæm-
ustu lagningu simalina á milli
þúsunda borga og önnur álfka
verkefni.
Höfundur nýju aðferðarinnar er
dr. Narendra Karmarkar, sem
starfar hjá Bell-rannsóknastofun-
um, en í hans ætt eru stærðfræð-
ingar á hverju strái.