Morgunblaðið - 22.11.1984, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. NÖVEMBER 1984
51
Allt of
„einhliða“
Hljóm-
plotur
Siguröur Sverrisson
U2
The unforgettable fire
ísland/ Fálkinn
Þetta nýjasta afsprengi U2
reyndist mér hreint ekki svo
auðmeltanlegt í fyrstu umferð,
reyndar ekki í annarri og þriðju
umferð heldur. Það var ekki fyrr
en eftir það að platan tók að
vinna á — þannig hafa plötur U2
reyndar margar hverjar verið.
Dálítið seinteknar en hafa setið
þeim mun fastar í minninu á eft-
ir.
Þrátt fyrir marga þrælgóða
kosti er The unforgettable fire
hreint ekki gallalaus gripur. Síð-
ari hliðin er t.d. svakalega lit-
laus eftir kröftuga og litskrúð-
uga fyrri hlið. Sú síðari rennur
að meira eða minna leyti út í eitt
og slíkt getur aldrei talist vera
til góðs. Ef ekki kæmi til af-
bragðs fyrri hlið er ég hræddur
um að aðdáendur U2 hefðu
margir hverjir orðið óskaplega
svekktir.
Fyrri hliðin hefst á laginu A
sort of homecoming og í kjölfar
þess fylgir lagið Pride, sem náð
hefur svo miklu vinsældum hér
heima, m.a. á Rás 2. Sannkall-
aður meistarasmellur. Lögin þar
á eftir, Wire og titillagið, The
unforgettable fire, eru bæði
mjög góð en lokalagið er eigin-
lega ekki neitt neitt. Síðari hlið-
in er svo sem fyrr greinir
skrambi litlaus og mikil von-
brigði eftir það sem á undan er
gengið.
Fyrri helmingur plötunnar,
svo enn sé fjallað um hana í
tvennu lagi, sýnir glögglega að í
U2 sameinast afar sterkir kraft-
ar. Að baki hinum sérstæða og
góða söngvara, Bono, standa
fjölhæfur bassaleikari, geysi-
hraður og teknískur en um leið
„lýrískur" gítarleikari og
trommari, sem veit hvað klukk-
an slær. The unforgettable fire
er alls ekki besta plata U2 en
fyrri hliðin ein réttlætir fylli-
lega kaup á henni.
Wterkurog
Ll hagkvæmur
auglýsingamiöill!
KÆRIRÐU ÞIG UM LÁGA
RAFMAGNSREIKNINGA?
OSRAM
Ijós og lampar eyða broti af því rafmagni sem venjuleg
Ijós eyða og lýsa þó margfalt meira. OSRAM flúorsent
Ijós eyða 11 wöttum þegar þau bera 75 watta birtu. Svo
endast þau miklu lengur.
OSRAM CIRCOLUX ” stílhreint,
fallegt Ijós sem fæst í ýmsum útfærslum, hentar
stundum í eldhús, stundum í stofu eða hvar annars
staðar sem er - allt eftir þínum smekk.
Rafbúð
Domus Medica, Egilsgötu 3 Sími 18022.
OSRAM
LJÓSLIFANDI ORKUSPARNAÐUR