Morgunblaðið - 24.11.1984, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.11.1984, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK STOFNAÐ 1913 231. tbl. 71. árg. LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 1984 Ítalía: Andreotti stóð af sér orrahríð Arafat á þingi Palestínuaraba Yasser Arafat, leiðtogi PLO, Frelsissamtaka Palestínuaraba, (t.h.), Shazli Kilbi, framkvæmdastjóri Arababandalagsins og Farouk Kaddoumi, formaður stjórnmálaarms PLO, koma af þingi Palestínuaraba, sem nú situr i Konunglegu menningarmiðstöðinni í Amman i Jórdaníu. Sjá frétt um þingið á bls. 21. Flótti rússnesks ferðamanns dregur dilk á eftir sér: Atök gæslusveita SÞ og Norður-Kóreumanna R4m, 23. Bírnbef. AP. ÍTALSKA þing- ið felkli f kvöld tillögur komm- únista og ný- fasista, að áfram skyldi haldið rannsókn á ásökunum um spUlingu, sem boraar hafa ver- ið á Giulio Andreotti, utanríkisráðherra, vegna þess að hann skipaði Raffale Giudice hershöfðingja, í embætti yfirmanns tolla- og skattalögreghinnar, fýrir nokkrum árum. Síðar kom í ljós, að Giudice var félagi í hinni illræmdu leynistúku frímúrara P2 og sat hann inni um skeið fyrir aðild að fjársvikamáli. Símamynd/ AP Minningarathöfn Menachem Begin, fyrrum for- sætisráðherra Israels, sótti í dag minningarathöfn í Tel Aviv um eiginkonu sína, sem lést fyrir tveimur árum, og var þessi mynd þá tekin. Begin hefur ekki látið sjá sig opinberlega nema tvisvar sinnum síðan hann sagði af sér ráðherraembætti og hætti afskiptum af stjórnmálum f september á siðasta ári. Andreotti, sem fimm sinnum hefur gegnt embætti forsætisráð- herra og hefur verið áberandi í stjórnmálastarfi kristilegra demó- krata í fjóra áratugi, sagði í varn- arræðu sinni í þinginu í dag, að hann hefði ekki gert neitt rangt. Þegar hann, sem varnarmálaráð- herra, hefði skipað Giudice í emb- ætti hefði hann aðeins fylgt ráð- leggingum sérfræðinga sinna. Lögbrot Giudice hefðu ekki verið upplýst fyrr en mörgum árum síð- ar. Tillaga kommúnista um að þing- nefnd héldi áfram að rannsaka tengsl Andreotti og Giudice var felld með 484 atkvæðum gegn 421. Tillaga ný-fasista, að mál And- reottis færi fyrir stjórnlagadóm var felld með 507 atkvæðum gegn 101. Scoal, 23. névember. AP. AÐ MINNSTA kosti þrír létu lífið og þrír særðust í gærmorgun í skotbardaga á hlutlausa svæðinu, sem skilur að Norður- og Suður- Kóreu, að sögn fulltrúa gæslu- sveita Sameinuðu þjóðanna. Tveir hinna látnu eru norð- ur-kóreskir hermenn og hinn þriðji er hermaður af suður- kóresku þjóðerni. Einn hinna særðu er Bandaríkjamaður, en hinir tveir Norður-Kóreumenn. Útvarpið í Pyongyang í Norður-Kóreu segir að fjórir hafi látið lífið, en gat ekki um þjóðerni hinna látnu. Það sagði að til átakanna hefði komið þegar landamæraverðir hefðu reynt að hindra að sovéskur ferðamaður færi til Suður- Kóreu Að sögn talsmanna Samein- uðu þjóðanna í þorpinu Panm- unjom, sem er á hlutlausa belt- inu, ruddist hersveit 20—30 manna frá Norður-Kóreu í óleyfi inn á svæðið til að reyna að handsama flóttamann. Sner- ust gæslusveitirnar til varnar innrásarliðinu, en ekki hefur verið greint frá því hve lengi bardagar stóðu yfir og hvers eðlis þeir voru. Hefur rannsókn verið fyrirskipuð til að hindra að atvik af þessu tagi endurtaki sig. Að sögn japönsku fréttastof- unnar Kyodd er sovéski flótta- maðurinn 22 ára gamall Rússi, Prentsmiðja Morgunblaðsins Basil Mapuzak að nafni, og hef- ur hann óskað eftir hæli í Bandaríkjunum, sem pólitískur flóttamaður. Sú frétt hefur hins vegar hvergi fengist staðfest. Eitt þúsund námu- menn til starfa í dag Loodon, 23. ■óvember. AP. ElT'l' þúsund námuverkamenn á I þúsunda, sem fyrr í vikunni hættu Bretlandi sneru til vinnu í dag og þátttöku í verkfalli stéttarfélags bættust þannig í hóp þeirra fimm | síns. Vestur-Þýskaland: Græningjar taka upp samband við Rússa Bonn, 23. nóvember. AP. FLOKKUR umhverfisverndar- sinna í Vestur-Þýskalandi, svonefndir Græningjar, hyggst koma á reglulegum samskiptum vid Kommúnistaflokk Sovétríkj- anna, ad því er leiðtogar Græn- ingja upplýstu í dag. I þessari viku áttu Græningjar viðræðufund með fimm manna sendinefnd frá Æðsta ráði Sov- étrikjanna undir forystu Lev Tolkunov, sem er forseti annarr- ar málstofu ráðsins. Engin yfirlýsing var gefin út að fundinum loknum, en Renata Mohr, talsmaður Græningja, segir að vilji hafi verið hjá báð- um aðilum að koma á sambandi milli flokkanna. Væru frekari viðræður fyrirhugaðar þegar á næsta ári og yrði þá skipst á upplýsingum um umhverfismál. Mohr vildi ekki greina frá efn- isatriðum umræðnanna í vik- unni, en kvað þær m.a. hafa snú- ist um ástandið í Evrópu eftir uppsetningu kjarnaflauganna og ýmis utanríkismál, þ. á m. skuld- ir ríkja í Rómönsku Ameríku við lánastofnanir á Vesturlöndum. Græningjarnir segjast vera óháðir í deilum austurs og vest- urs, en stefni að því að draga úr spennu í heiminum. Samtímis þvi, að þeim fjölgar ört, sem virða verkfallið að vett- ugi, hafa átök milli verkfallsvarða annars vegar og lögreglu og verk- fallsbrjóta hins vegar harðnað gíf- urlega. í dag slösuðust sjö lög- reglumenn og þrír verkfallsverðir í átökum við kolanámur viðs vegar um landið. 25 verkfallsverðir voru handteknir. Stjórn ríkisreknu kolanámanna hafði heitið hverjum þeim náma- manni er kæmi til starfa fyrir helgina Jólabónus", sérstakri aukagreiðslu að upphæð 1.400 sterlingspund (jafnvirði rúmlega 68 þúsund isl. króna). Hefur frest- ur til að þiggja þetta boð nú verið framlengdur til mánudags. Er tal- ið að greiðsla þessi hafi haft mikil áhrif í þá átt að fá námamenn til að hætta þátttöku i hinu umdeilda verkfalli, sem staðið hefur átta mánuði og ekkert útlit er fyrir að verði leyst við samningsborðið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.