Morgunblaðið - 28.12.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.12.1984, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1984 „Gæti orðið staðfesting á réttmæti frjálsræðis í vaxtamálum" — segir Ragnar Önundarson bankastjóri Iðnaðarbankans um stofnun verðbréfasjóða „VIÐBRÖGÐ Irtnartarbankans við stofnun verðbréfasjóða eru jákvæð. Við teljum að enda þótt þeir verði væntanlega keppninautar bankanna þá leiði starfsemi þeirra til þess að verðbréfamarkaðurinn hér á landi verði stærri og fullkomnari," sagði Ragnar Önundarson, bankastjóri Iðnaðarbanka íslands hf. í samtali við blaðamann Mbl. þegar leitað var álits hans á fregnum um stofnum verðbréfasjóða hér á landi sem Lögreglan kvödd að bandaríska sendiráðinu: „Sprengjan“ reyndist vera konfektkassi LÖGREGLAN í Reykjavík var kvödd að bandaríska sendiráðinu á annan dag jóla vegna gruns um að sprengju hefði verið kastað inn í sendiráðið. Maður hafði komið að sendiráðinu og þegar öryggisvörður opnaði dyr sendiráðsins, þá var pakka kastað inn á ganginn. Örygg- Góö kirkjusókn KIRKJUSÓKN var mjög góð í Reykjavík um hátíðarnar, einkum á aðfangadagskvöld. Fylltust þá kirkjur víða þannig að fólk mátti standa. Milli sjö og átta hundruð manns voru við messu í Bústaða- sókn og um sjö hundruð í Dóm- kirkjunni, en Dómkirkjan tekur um 500 manns í sæti. Um eitt þús- und manns voru við messu í Lang- holtskirkju, en þetta eru fyrstu jólin sem messað er í henni, en kirkjan var vígð í haust. isvörðurinn setti pakkann út vegna hins sérkennilega framgangsmáta við afhendingu pakkans og var hugs- anlegt talið að sprengja væri í hon- Lögreglan fór með pakkann út í Örfirisey. Þar var pakkinn opnað- ur og kom dýrindis konfekt í ljós, en pakkinn var merktur: „með jólakveðju..." frá tilteknum manni í Reykjavík. Þykir nú ljóst að ekkert illt hafi búið að baki afhendingu pakkans. o INNLENT Póstkassi sprengdur SPRENGJU var í gærkveldi komið fyrir t póstkassa á horni Laugarteigs og Gullteigs og kassinn sprengdur af veggnum sem hann var festur á. Átta til tíu bréf voru í kassanum og brunnu þau nokkuð, en voru ekki alveg óþekkjanleg. Atburðurinn átti sér stað skömmu eftir klukkan átta. Ljóst þykir að það var ekki kínverji sem olli sprengingunni, þar eð kraftur- inn í henni var það mikill. Ekki hafði í gærkveldi tekist að hafa upp á sökudólgunum. Talið er póstkassinn sé ónýtur. Morgunblaðið/RAX Matthías Á. Mathiesen bankamálaráðherra, afhendir Tómasi Árnasyni, nýskipuðum Seðlabankastjóra skipunarbréf sitt. Tómas Árnason skip- aður seðlabankastjóri VIÐSKIPTARÁÐHERRA, Matthías Á. Mathiesen, skipaði í gær Tómas Árnason, fyrrverandi ráðherra, bankastjóra við Seðlabanka íslands, frá og með 1. janúar 1985. Jafnframt sagði Tómas af sér þingmennsku í gær. Sæti hans á þingi tekur Jón Kristjánsson, félagsmálastjóri á Egilsstöðum. Tómas Árnason er fæddur á Hánefsstöðum í Seyðisfjarðar- hreppi N-Múlasýslu, 21. júlí 1923. Stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1945 og cand. juris frá Háskóla íslands 1949. Fram- haldsnám við Harvard School of Law í lögfræði. Sat fyrst á þingi sem varamaður 1956 og var al- þingismaður Austurlands frá 1974. Fjármálaráðherra 1978—79 og viðskiptaráðherra 1980—83. safna munu áskriftum og framlögum með útgáfu hluta- og skuldabréfa, sem aftur verður ávaxtað með kaup- um á verðbréfum á hinum frjálsa verðbréfamarkaði. „Starfsemi verðbréfasjóðanna mun leiða til meiri fjárfestinga í verðbréfum og lækkandi ávöxtun- arkröfu á markaðnum þegar fram líða stundir. Frá okkar bæjardyr- um séð er stofnun sjóðanna frek- ari staðfesting á réttmæti frjáls- ræðis í vaxtaákvörðunum bank- anna því að án vaxtafrelsis verða bankar og sparisjóðir ekki sam- keppnisfærir um spariféð. Á síðastliðnum 20 árum hefur orðið mjög ör þróun í Bandarikj- unum á sviði verðbréfasjóða og hafa mikil viðskipti færst frá bönkunum til sjóðanna vegna þess að stjórnvöld hafa ekki gert bönk- unum kleift að keppa við verð- bréfasjóðina. Ég tel að íslenskir bankamenn geti því litið á tilkomu þessara nýju keppinauta sem ein- hverskonar staðfestingu á rétt- mæti frjálsræðis í vaxtamálum,” 3agði Ragnar einnig. Frá mótmælastöðunni við sovéska sendiráðið í gær. Morgunblaðið/Friftþjófur Grimmilegum hernaði í Afganistan mótmælt „VIÐ UNGA fólkið þekkjum ekki af eigin raun þær hörmungar er fylgja stríði. Og við ættum og hljótum að vera þakklát fyrir það, en þetta má ekki verða til þess að við sofnum á verðinum. Dæmin höfum við svo víða í kringum okkur þar sem farið er með ófriði og yfirgangi. í Afganistan sjáum við dæmi um þetta sem er kannski skýrara en nokkuð annað sem við þekkjum í dag: Algjör lítilsvirðing gagnvart hlutleysi og sjálfstæði þjóðar.“ Þannig mælti Stefán Kalmansson, formaður Stúdentaráðs Háskóla Islands, við upphaf mótmælastöðu við sovéska sendiráðið í Reykjavík síðdegis í gær. Andmæltu menn þar fímm ára innrásarstríði sovéska hersins gegn Áfgönum. Þrjú félög ungra sjálfstæð- ismanna, Heimdallur Reykjavík, Týr Kópavogi og Stefnir Hafnar- firði, Friðarhreyfing fram- haldsskólanema, Vaka, félag lýð- ræðissinnaðra stúdenta, Varðberg og Afganistanefndin á íslandi stóðu fyrir mótmælunum. Safnað- ist hópur manna við skrifstofu- byggingu sovéska sendiráðsins í Garðastræti og stóð þar með log- andi kyndla frá kl. 17.30 til 18.00. Að loknu ávarpi Stefáns Kal- Karl Þorsteins í 3.—5. sæti KARL Þorsteins er í 3—5 sæti á Evrópumeistaramóti unglinga í skák sem haldið er í Groningen í Hollandi, þegar sjö umferðum er lokið og mótið rúmlega hálfnað. Hann gerði í dag jafntefli við hollenska skákmanninn Nijboer, og er ásamt honum og DeWit með 5 vinninga. Efstur er Romero frá Spáni með 6 vinninga og í öðru sæti Hellers frá Svíþjóð með 5 ‘A, en þeir tefldu inn- byrðis í gær og sigraði Sví- inn. Var það fyrsta tap Rom- eros, en hann sigraði Karl í 5. umferð. Karl vann Horwarth frá Ungverjalandi í 4. umferð og Kozul frá Júgóslavíu í 6 um- ferð og gerði jafntefli í gær eins og fyrr sagði. Áttunda umferð verður tefld í dag og er líklegt að Karl fái Hellers frá Svíþjóð sem andstæðing, en Hellers er aðeins 15 ára að aldri. manssonar knúði hann og Sigur- björn Magnússon, formaður Heimdallar, dyra á húsi sendi- ráðsins. Lögreglumaður fylgdi þeim upp tröppurnar. Sendi- ráðsmenn opnuðu og buðu þeim Stefáni og Sigurbirni inn. Dvöld- ust þeir nokkra stund á fundi með fulltrúum Sovétstjórnarinnar og afhentu þeim eftirfarandi bréf til ríkisstjórnar Sovétríkjanna: „Fyrir fimm árum notuðuð þér jólahátíð kristinna manna til að ráðast inn I nágrannaríki yðar, Afganistan. Upp frá því hafið þér háð grimmilegan hernað gegn íbúum landsins með þeim afleið- ingum að ein milljón Afgana hef- ur fallið og á fimmtu milljón manna hefur hrakist í útlegð. Við, sem hér erum saman komin við sendiráð yðar í Reykjavík, mótmælum harðlega þessu sví- virðilega athæfi yðar gegn hinni fátæku og hugrökku þjóð í Afgan- istan. Við krefjumst þess að þér farið að samþykktum Sameinuðu þjóðanna og kallið innrásarherinn tafarlaust til baka svo Afganir megi á ný njóta friðar og frelsis í landi sínu.“ í fundarlok skýrði Sigurbjörn Magnússon frá því að fulltrúar Sovétstjórnarinnar i sendiráðinu hefðu ekki tekið bréfið upp. Að sögn sendiráðsmannanna væri bréfið íhlutun í innanríkismál Sovétríkjanna. Þegar þeir voru minntir á ítrekuð andmæli alls- herjarþings Sameinuðu þjóðanna gegn innrásinni og kröfum þjóða heims um brotthvarf sovéska her- aflans úr Afganistan, sögðu sendi- ráðsmennirnir að sovéski herinn hefði verið sendur til landsins fyrir eindregin tilmæli stjórn- valda í Afganistan og hyrfi þaðan ekki nema að ósk Barbak Karmal, forsætisráðherra Afganistan. Sjá greinina Afganir sameinað- ir í baráttu gegn Rússum bls. 18 og forystugrein á bls. 28. Eldsvoði að Ármúla 24: Tveir piltar handteknir vegna gruns um íkveikju TVEIR piltar voru handteknir laust eftir hádegi í gær vegna rannsóknar Rannsóknarlögreglu ríkisins á upptökum eldsvoða að Ármúla 24 í Reykjavík í fyrrinótt Litlu munaði að stórtjón yrði þar, en öryggisgæsluvörður frá Securitas varð þess var rétt um klukkan 05, að rúða hafði verið brotin í húsinu og var eldur laus í stigagangi. Hann tilkynnti stjórnstöð Securitas umsvifalaust um eldinn og var slökkviliði og lögreglu þegar í stað gert viðvart. brotin var í hurð í anddyri og var blóðslóð upp stigaganginn. Eldur logaði í stigagangi á 2. hæð í húsinu og var að breiðast út á hæðirnar, þegar slökkviliðið kom á vettvang. Mikill reykur var í húsinu, en eldur hafði læst sig í plasteinangrun í þaki og er ljóst að húsið hefði orðið alelda á skammri stundu, ef ekki hefði ver- ið brugðist svo skjótt við sem raun ber vitni. Slökkviliðið réðst til at- lögu við eldinn og tókst að slökkva hann á tiltölulega skammri stundu. Ljóst þykir að um íkveikju sé að ræða. Blóð var á rúðunni, sem „Tjón hjá okkur hefur ekki verið metið, en sót og reykur lagðist á mörg dýr og viðkvæm tæki,“ sagði Helgi Agnarsson, eigandi prent- þjónustunnar Korpus í samtali við Mbl. „Á næstu dögum kemur í ljós hve skemmdir eru miklar, en ég vil þakka Slökkviliðinu ogöryggis- gæslumanni Securitas að ekki fór verr. Þeir brugðust skjótt við og var eldurinn slökktur á skammri stundu,“ sagði Helgi Agnarsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.