Morgunblaðið - 05.01.1985, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.01.1985, Blaðsíða 1
48 SIÐUR STOFNAÐ 1913 3. tbl. 72. árg. LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins Þrír fund- ir áform- aðir í Genf Genf, 4. janúar. AP. GEORGE Shultz og Andrei Gromyko áforma a.m.k. þrjá viðræðufundi er þeir hittast í Genf á mánudag og þriðjudag og verður sá fyrsti á mánu- dagsmorgni. Alls er búist við að 900 erlendir blaða- og sjón- varps og útvarpsmenn komi til borgarinnar að fylgjast með fundunum. Robert Byrd leiðtogi demókrata í öldungadeild Bandaríkjaþings sagði Shultz njóta fyllsta stuðn- ings demókrata í viðræðunum við Gromyko. Kvaðst hann ekki óttast að afstaða stjórnar Reagans í við- ræðunum yrði of hörð til að árangur næðist. Dagblaö sovézka kommúnista- flokksins, Pravda, sagði í leiðara, sem birtur er á forsfðu, að Sov- étmenn hefðu auðsýnt sáttfýsi en það væri Bandaríkjarpatina að gera tilslakanir. Þar voru geim- vopn sögð alvarlegasta viðfangs- efni viðræðnanna og reynt að gera Bandaríkjamenn ábyrga fyrir því að slökun mætti nást á alþjóða- vettvangi. Símamynd/AP ísraelsk stúlka (í miðið) kennir gyðingabörnum frá Eþíópíu stafróf hebreskunnar á nýju heimili, sem börnin hafa eignast í Eilat við RauÓahafiÓ. Eþíópíustjórn fordæmir björgun Falashas-gyðinga Addis Ababa. 4. ianúar. AP. STJÓRNVÖLD í Eþíópíu lýstu því yfir í kvöld að þau ættu enga aðild að hinum umfangsmiklu loftflutn- ingum Falashas-gyðinga til Israel og fordæmdu yfirvöld í Súdan og öðrum þeim löndum, sem aðstoðað hefðu við að smygla á brott eþíóp- ískum borgurum. í yfirlýsingu, sem utanríkis- ráðuneytið í Addis Ababa sendi frá sér í kvöld, segir að loftflutn- ingarnir séu „óhugnanlegir" og þeir séu gróf íhlutun f innanrfk- ismál Eþiópfu. Gyðingarnir í Eþfópiu voru fluttir á brott samkvæmt sér- stakri björgunaáætlun tsraels- stjórnar i því skyni að forða þeim undan hungursneyðinni f landinu. Sjá: „Þúsundum Eþíópfu- gyðinga bjargað frá hungursneyð" á bls. 20. Viðurkenna flug stýriflaugarinnar Helsinki, 4. janúar. AP. SOVÍ7TMENN viðurkenndu og báðu norsk og finnsk stjórnvöld afsökunar á að hafa í síðustu viku skotið eldflaug sem farið hefði inn f norska og finnska lofthelgi. Áður en Sovétmenn auðsýndu sektarkennd sfna höfðu norsk stjórnvöld fordæmt atburðinn og borið fram mótmæli við yfirvöld í Moskvu, og Finnar óskað eftir að- stoð Rússa við leitina að flauginni, sem haldið verður áfram. Finnskir landamæraverðir hafa árangurslaust leitað f nágrenni Popplög á metsöluplötu Pavarottis Modena, fuUn, 4. j*nú»r. AP. Óperusöngvarinn Luriano Pav- arotti sagðist ánægður en hissa með viðtökur hljómplötu sinnar „Mamma“, sem er ó hraðri leið upp lista yfír söluhæstu plötur á ftalíu, en á plötunni er popptón- list I dag var platan f sjötta sæti lista yfir söluhæstu plötur á Ítalíu og er spáð að hún eigi eftir að færa sig ofar. Pavarotti sagðist áforma að syngja poppsöngva og slagara inn á aðra plötu. vatnsins Inari að flauginni eða brotum úr henni. Veður versnaði f dag og útlitið óljóst enda þótt þvf hafi verið heitið f dag að leit verði haldið áfram þar til flaugarbrot finnast. Sovétmenn sögðu bilun hafa valdið þvf að stýriflaugin fór af fyrirfram ákveðinni flugleið við flotaæfingar á Barentshafi. Af hálfu Norðmanna er málinu lokið, að sögn Svenn Stray utanríkis- ráðherra. Sagði hann samskipti Norðmanna og Sovétmanna svo og sambúð austurs og vesturs betri eftir afsökunarbeiðni Sovétmanna. Aður en Sovétmenn báðust af- sökunar lét Stray svo um mælt að flest benti til að um slys hafi verið að ræða af hálfu Sovétmanna. Um hafi verið að ræða óvopnaða æf- ingaflaug og yrði atvikið ekki til að auka á spennu f þessum heims- hluta. Hermálasérfræðingar í Danmörku töldu að ekki hafi verið um stýriflaug að ræða, heldur minni tegund flaugar, sem notuð væri sem skotmark, gamla úrelta tegund flaugar, sem á sfnum tfma hefði getað borið kjarnorkuvopn. Brezka sjónvarpsstöðin BBC kvaðst hafa það eftir ónafngreind- um en góðum heimildum að flaugin hefði verið af SS-N-12-gerð, tegund sem hönnuð var 1973 til þess að granda skipum. AP/Slm«mynd. KJÖKUR VIÐ RÉTTARHÖLD Lögreglumaðurinn Waldemar Chmielewski lautinant (Lv.) kjökrandi við rétt- arböld vegna morðsins á prestinum Jerzy Popieluszko. Chmielewski sagði að sér hefði verið lofað vernd af yfirboðurum sínum. Var heitið vernd af yfirboðurunum Toraa, 4. jmnúmr. AP. WALDEMAR Chmielewski lautinant, pólskur lögreglumaður, sem var einn banamanna.s Jerzy Popieluszko, prestsins sem studdi óháðu verkalýðshreyfíng- una, sagði við réttarhöld f dag að yfirmenn sínir f innanrfkisráðuneytinu hefðu lofað því hann yrði ekki sóttur til saka fyrir morðið þar sem „góðir strákar" myndu verða f nefnd er rannsaka myndi ódeðið. Chmielewski felldi tár er hann stóð f vitnastúkunni þriðja daginn f röð en sagðist hafa verið misnotað- ur af yfirmönnum sínum og svik- inn. Sagði hann að i hópi góðu strákanna f nefndinni, sem yfir- mennirnir hefðu nefnt svo, væru Zenon Platek hershöfðingi og inn- anrfkisráðherra Póllands og deild- arstjóri f ráðuneytinu, Zbigniew Jablonski. Adam Pietruszka ofursti, sem sakaður hefur verið um að hafa aðstoðað morðingjana þrjá, sat einnig i rannsóknarnefnd- inni. Chmielewski dró í efa sann- leiksgildi niðurstöðu krufnings- rannsóknar um að Popieluszko hefði verið kyrktur eða kafnað f böndum eftir misþyrmingar. „Ég er sannfærður um að hann lézt við barsmiðar, það lifir enginn af högg af þvf tagi sem honum voru veitt,“ sagði hann stamandi og kjökrandi. Lauk Chmielewski vitnisburði með því að lýsa því hvers vegna hann gekk til samstarfs við rann- sóknaraðila eftir handtöku og benti á hvar lík prestsins væri að finna, þrátt fyrir loforð um vernd frá yf- irmönnum sínum. „Ég hefði ella glatað fjölskyldu minni, um líf mitt var að tefla,” sagði hann og féll kona hans, sem var viðstödd rétt- arhöldin, þá saman, en hún er kom- in átta mánuði á leið. „Presturinn átti einnig fjölskyldu — það fólk þjáðist. Það var ekki hægt að reyna að felast lengur með þetta á sam- vizkunni. Lffið hefði orðið óbæri- legt ef ég hefði reynt að hylma yfir þessa villimannslegu aftöku.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.