Morgunblaðið - 02.02.1985, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.02.1985, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 1985 I HANDAVINNUPOKINN Alpahúfa: Það getur verið mjög klæðilegt að vera með húfu í sama lit og fötin, sem þú gengur í, en jafn- framt erfitt og tímafrekt að leita hennar búð úr búð. Saumaðu hana heldur sjálf. Nú eru útsölur í mörgum vefnað- arvöruverzlunum, og góður bút- ur kostar ekki mikið. Nota má t.d. flauel, hvort heldur er slétt eða rifflað, eða mjúkt efni sem fellur vei. Húfan er í 3 hlutum: Hringlaga stykki (1) að um- máli ca. 23 sm. Millistykki (2) ca. 70 sm langt og 10 sm breitt. Sníðið stykkið aflíðandi til hliðanna þannig að það sé um 6 sm breitt til end- anna (sjá mynd). Kanturinn (3) er ca. 60 sm langur og 4 sm breiður. Teiknið sniðið á blað með málbandi, og mælið svo hvort kanturinn passar fyrir ykkur. Gerið svo rétt snið samkvæmt því. Millistykkið (2), það sem mjókkar til endanna, saumast meðfram hringstykkinu (1). Ger- ið svo nokkur lek hingað og þangað á neðri (slétta) kantinn á millistykkinu svo það passi alveg á kantstykkið (3). Kanturinn (eða líningin) verð- ur fallegri ef hann saumast tvö- falt. Húfan verður að sjálfsögðu enn fínni ef þið fóðrið „toppinn“ (1) og millistykkið (2). Þetta er alltaf smekksatriði, og fer mikið eftir því hvaða efni er notað. Ef það er eitthvað sem vefst fyrir ykkur, þá bara skrifið. Sparið og notið betur Þegar samfestingar litla fólksins eru orðnir of litlir er óþarfi að leggja þá til hliðar. Það má búa til úr þeim prýðis jakka. Sprettið upp buxunum og klippið þær af þar sem rennilásinn endar. Bryddið kantinn með skábandi, eða það sem er enn betra, saumið prjóna-„stroff“ að neðan og framan á ermamar. Með t.d. þykkum flauelsbuxum er þarna kominn ágætis kulda- fatnaður. Suðurland, eitt skipa Nesskipa í Eskifjarðarhöfn. Nesskip flutti hálfa millión lesta í fyrra — aukningin frá árinu áður 33 % VERULEG aukning var á ílutning- um skipafélagsins Nesskip hf. á síðasta ári. Félagið flutti þá sam- tals 505.000 lestir af ýmsum vörum, en árið áður námu flutningar fé- lagsins 379.000 lestum. Aukningin milli ára nemur um 33%. Nesskip á 5 skip. Eftirfarandi upplýsingar um flutningana, skipin og horfur á þessu ári eru fengnar frá Nes- skip: Skipafélagið Nesskip hf. flutti samtals 505.000 tonn af vörum á árinu 1984 (379.000 árið 1983). Félagið hefur aldrei flutt svo mikið magn á einu ári fyrr. Guðspjall dagsins: Matt. 20.: Verkamenn í víngarði. DÓMKIRKJAN: Laugardag: Barnasamkoma í kirkjunni kl. 10.30. Sr. Hjalti Guömundsson. Sunnudag: Messa kl. 11.00. Sr. Agnes M. Siguröardóttir messar. Sr. Þórir Stephensen. Messa kl. 14.00. Sr. Hjalti Guömundsson. Dómkórinn syngur. Organleikari Marteinn H. Friöriksson. ÁRBÆ J ARPREST AK ALL: Barnasamkoma í safnaöarheimili Árbæjarsóknar kl. 10.30. Guös- þjónusta í Safnaöarheimilinu kl. 14.00. Organleikari Smári Ólas- on. Miövikudag 6. febr. fyrir- bænastund i safnaöarheimilinu kl. 19.30. Sr. Guömundur Þor- steinsson. ÁSKIRKJA: Barnaguösþjónusta kl. 11.00. Guösþjónusta kl. 14.00. Kaffisala safnaöarfélags- ins eftir messu. Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson. BREIÐHOLTSPREST AK ALL: Barnasamkoma kl. 11.00. Sr. Solveig Lára Guömundsdóttir. Guösþjónusta kl. 14.00. Organ- leikari Guöni Þ. Guömundsson. Æskulýösfundur þriöjudags- kvöld. Félagsstarf aldraöra miö- vikudag kl. 14—17. Aldraðir íbú- ar sóknarinnar, sem óska eftir bílfari fyrir messuna, láti vita í síma 35507 milli kl. 10 og 12 á sunnudag. Sr. Ólafur Skúlason. DIGRANESPREST AKALL: Barnasamkoma í safnaöarheimil- inu viö Bjarnhólastíg kl. 11.00. Guösþjónusta í Kópavogskirkju kl. 11.00. Aöalfundur kirkjufé- lagsins í safnaöarheimilinu fimmtudagskvöld kl. 20.30. Sr. Þorbergur Kristjánsson. ELLIHEIMILID GRUND: Messa kl. 10.00. Sr. Lárus Halldórsson. FELLA- OG HÓLAPRESTA- KALL: Laugardag: Barnasam- koma í Hólabrekkuskóla kl. 14.00. Sunnudag: Barnasam- koma i Fellaskóla kl. 11.00. Guösþjónusta í Menningarmiö- stööinni viö Geröuberg kl. 14.00. Sr. Hreinn Hjartarson. FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK: Al- menn guösþjónusta kl. 14.00. Ræðuefni: Talentur í víngaröi. Hjónavígsla veröur í messunni og tvö börn skírö. Fríkirkjukórinn syngur, organleikari og söng- stjóri Pavel Smid. Sr. Gunnar Björnsson. GRENSÁSKIRKJA: Barnasam- koma kl. 11.00. Guösþjónusta kl. 14.00. Organleikari Árni Arin- bjarnarson. Sóknarnefndarfund- ur mánudag kl. 17.30. Æskulýös- starf föstudag kl. 17—19. Sr. Halldór S. Gröndal. HALLGRÍMSKIRKJA: Barna- samkoma og messa kl. 11.00. Altarisganga. Sr. Karl Sigur- björnsson. Kvöldmessa meö alt- arisgöngu kl. 17.00. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Þriöjudag: Fyrir- bænaguösþjónusta kl. 10.30, beöió fyrir sjúkum. Fimmtudag: Kvenfélagsfundur í safnaöarsal kl. 20.30. Laugardag: Samvera fermingarbarna kl. 9—14. Fé- lagsvist í safnaöarsal kl. 15.00. LANDSPÍTALINN: Guösþjónusta kl. 10.00. Sr. Ragnar Fjalar Lár- usson. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 10.00. Barnaguösþjónusta kl. 11.00. Sr. Arngrímur Jónsson. Messa kl. 14.00. Sr. Tómas Sveinsson. BORGARSPÍTALINN: Guösþjón- usta kl. 10.00. Sr. Tómas Sveinsson. KÁRSNESPRESTAKALL: Laug- ardag: Barnasamkoma í safnaö- arheimilinu Borgum kl. 11 árd. Sunnudag: Guösþjónusta í Kópavogskirkju kl. 14.00. Miö- vikudag: Spilakvöld á vegum þjónustudeildar safnaöarins í Borgum kl. 20.30. Sr. Árni Páls- son. LANGHOLTSKIRKJA: Óska- stund barnanna kl. 11.00. Söng- ur — sögur — myndir. Sögu- maöur Siguróur Sigurgeirsson. Guösþjónusta kl. 14.00. Prestur sr. Pjetur Maack. Organleikari Jón Stefánsson. Sóknarnefndin. LAUGARNESKIRKJA: Fjöl- skylduguösþjónusta kl. 11.00. Skólakór Kársneseskóla syngur. Fermingarbörn aöstoöa. Mánu- dag 4. febr. aöalfundur Kvenfé- lags Laugarnessóknar kl. 20.00. Þriöjudag, bænaguösþjónusta kl. 18.00. Sr. Jón Dalbú Hró- bjartsson. NESKIRKJA: Laugardag: Sam- verustund aldraöra. Heimsókn í athvarf aldraöra í Ármúla 32. Kynnt veröa réttindi ellilífeyris- þega á afslætti á ýmiss konar þjónustu á stór-Reykjavíkur- svæöinu. Kaffiveitingar. Brottför frá Neskirkju kl. 15.00. Sr. Frank M. Halldórsson. Sunnudag: Barnasamkoma kl. 11.00. Messa kl. 14.00. Orgel og kórstjórn Reynir Jónasson. Sr. Guömund- ur Óskar Ólafsson. Mánudag: Æskulýösstarf kl. 20.00. Miöviku- dag: Fyrirbænamessa kl. 18.20. Sr. Guömundur Óskar Ólafsson. Fimmtudag: Biblíulestur kl. 20.00. Sr. Guömundur Óskar Ólafsson. Ath.: Opiö hús fyrir aldraöa þriðjudaga og fimmtu- daga kl. 13—17 (húsiö opnað kl. 12). Kvenfélagiö. SELJASÓKN: Barnaguösþjón- usta í Ölduselsskóla kl. 10.30. Barnaguösþjónusta í Seljaskóla, ath. ekki í iþróttahúsinu vegna viögeröar þar. Guösþjónusta í Ölduselsskólanum kl. 14.00. Þriöjudag kl. 20.00 fundur æsku- lýösfélagsins í Tindaseli 3. Myndbandakvöld. Fyrirbæna- samvera Tindaseli 3, fimmtu- dagskvöld kl. 20.30. Sóknar- prestur. SELTJARNARNESSÓKN: Barnasamkoma í sal Tónskólans kl. 11.00. Sóknarnefndin. PRESTAR REYKJAVÍKURPRÓ- FASTSDÆMIS: Hádegisfundur í Hallgrímskirkju mánudag. HVÍTASUNNUKIRKJAN: Fíla- delfía: Sunnudagaskóli kl. 10.30.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.