Morgunblaðið - 11.04.1985, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.04.1985, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1985 Höggmyndin „Hug-sjón“ flutt suður í galvaníseringu NÚ í vikunni var farið með myndverkið Hug-sjón eftir Ragnhildi Stefánsdóttur myndhöggvara í galvaníseringu til fyrirt*kisins Stálvers á Ártúnshöfða, en Ragnhildur hefur unnið verkið í Járnblendiverk- smiðjunni á Grundartanga og unnið það í sérstaka járnsteypu blandaða kísilryki. Verk þetta er unnið fyrir sýn- ingu Myndhöggvarafélagsins sem hefst á Kjarvalsstöðum um helg- ina. Hún hefur unnið að þessu verki jafnhliða öðru verki uppi á Grundartanga, en það er verkið Tyrkja-Gudda, sem hún er að vinna fyrir Vestmanneyinga. Um hugmyndina að verkinu Hug-sjón, sagði Ragnhildur í samtali við Morgunblaðið: „Þetta er búr sem vill ekki vera búr, það teygir sig, berst um og vill breyta sér í eitthvað annað, svona kannski eins og manneskja sem reynir að losa sig við þau höft sem hún hefur sjálf." Unnið hefur verið að tilraunum með þessa kísiljárnsteypu uppi á Grundartanga undanfarna mán- uði og frétti Ragnhildur af því og ákvað að prófa þetta efni. Hún sagði að mjög gott væri að vinna með það, hún yrði eins og leir og væri mjög þurr. Þá væru í steyp- unni járntrefjar, sem gerðu áferð- ina skemmtilega hrjúfa og svo væri styrkur þessarar steypu mjög mikill, sem gerði það að verkum að ekki þyrfti að steypa verk í brons, en það væri mun dýrara. Ragnhildur Stefánsdóttir lauk prófi frá Myndlista- og handíða- skóla Islands fyrir þremur árum og er á leið til Bandaríkjanna til frekara náms. Ljósmyndina tók Friðþjófur Helgason Ijósmyndari Morgun- blaðsins í vikunni á Vesturlands- veginum er vörubíll frá ÞÞÞ á Akranesi flutti verkið niður á Ár- túnshöfða, en það er um það bil 3 Vz metri á hæð. Bjórfrumvarpið afgreitt úr nefnd í dag: Meirihluti nefndar hlynntur bjórnum Rætt um 5 % hámarksstyrkleika FASTLEGA er gert ráð fyrir að alls- herjarnefnd neðri deildar Alþingis afgreiði bjórfrumvarpið á fundi sín- um árdegis í dag, og samkvæmt upp- lýsingum formanns nefndarinnar, dr. Gunnars G. Schram, er líklegt að það verði meirihluti fyrir samþykkt frumvarpsins í allsherjarnefnd. Gunnar sagði að enn væri alveg eftir að ganga frá frumvarpinu og skrifa nefndarálit. Ekki myndi iiggja fyrir með hvaða hætti mælt yrði með að bruggun og sala áfengs öls yrði leyfð hér á landi fyrr en nefndarálit hefði verið samið. Þó sagöi Gunnar að til umræðu hefði komið hvort ætti aö setja í lögin hámarksstyrkleika og þá hefði tal- an 5% verið rædd, en það og annaö væri enn ófrágengið. Aðspurður hvort hann teldi að hægt yrði að afgreiða þetta frum- varp frá Alþingi á þessu þingi sagði Gunnar: „Ef menn hafa áhuga á að afgreiða frumvarpið, þá verður það hægt. Það þarf ekki að taka nema örfáa daga að afgreiða frumvarpið frá neðri deild. Fyrsta umræða þar er búin og önnur umræða þarf ekki að taka nema einn dag.“ Gunnar sagðist ekki telja að þingmenn myndu reyna að þæfa málið, þegar það væri komið úr nefnd. Sjómenn á Vestfjörðum: Verkföllin breiðast út REIKNAÐ er með að sáttafundur I deilu ísfirskra sjómanna og útvegsmanna á Vestfjörðum verði haldinn öðru hvoru megin við næstu helgi, að sögn Guðlaugs Þorvaldssonar, ríkissáttasemjara. „Ríkissáttasemjari hefur ekkert að gera hingað vestur ef útgerð- armenn eru ekki reiðubúnir til við- ræðna á okkar grundvelli," sagði Sigurður Ólafsson, formaður Sjó- mannafélags Isfirðinga, I samtali við blm. Morgunblaösins. Verkfallið, sem hófst í raun fyrir páska, er lítil áhrif farin aö hafa á atvinnulíf á ísafirði. Einhver fiskur mun hafa borist þangað frá ná- grannabyggðunum. Verkalýðsfélagið á Þingeyri hef- ur boðað verkfall sjómanna frá 17. apríl næstkomandi og síðdegis I gær átti ríkissáttasemjari von á verkfallsboðun frá Flateyri, sem væntanlega tekur gildi daginn eftir að verkfall hefst á Þingeyri. „Óforsvaranlegt að sleppa seiðunum“ — segir Gylfi Pálsson formaður Landssambands stangarveiðimanna „VIÐ teljum óforsvaranlegt að sleppa seióum úr stöó þar sem nýrnaveiki hefur komið upp, þrátt fyrir aó sýkin hafi komið upp áður í öðrum stöðvum, því hugsanlegt er að sýkt seiði villist í önnur vatnasvæði,“ sagði Gylfi Páls- son, formaður Landssambands stang- arveiðifclaga, í samtali við blaöamann Mbl. er hann var spurður um skoðan- ir stangveiðimanna á aðgerðum til út- rýmingar nýrnaveiki úr Laxeldisstöð ríkisins í Kollafirði. „Línuhraðall jafnstórt stökk og kóbalt-tækið fyrir 15 árumu — segir Þórarinn Sveinsson yfiriæknir krabbameinsdeildar á Landspítalanum Lionsmenn á íslandi munu standa að landssöfnun dagana 12. til 14. aprfl nk. með sölu á „Rauðu fjöðrinni". Að þessu sinni verður söfnunarfénu varið til kaupa á línuhraðli, sem er geislalækn- ingartæki og er ætlaður staður í K-byggingu Landspítalans. Af því tilefni hafði Mbl. sam- band við Þórarin Sveinsson, yfir- lækni á Krabbameinslækninga- deild Landspítalans, og bað hann að segja lítillega frá eiginleikum tækisins og hverju það kæmi til með að breyta við geislalækn- ingar hér á landi. „Breytingin sem verður á geislalækningum með línuhraðli er jafnstórt stökk og þegar kob- alttækið kom hingað fyrir 15 ár- um. Kobalt er geislavirkt efni, sem gefur frá sér röntgengeislun, en orkan er föst og óumbreytan- leg. Með línuhraðli er hægt að auka styrkleika röntgengeislans eftir þvf hversu innarlega í líkam- anum æxlið liggur og þá stendur valið um tvö orkustig. Vilji maður hins vegar beina geislanum að æxli, sem liggur grunnt, allt frá einum cm til sex undir húð, þá er hægt pð taka út geisla, sem el- ektrónur og velja á milli 5 orku- þrepa. Geislinn sem línuhraðall gefur frá sér er auk þess öðruvísi í laginu og eru öll ytri mörk með- ferðarsvæðisins skarpari og er því hægt að gefa hærri geisla- skammta nálægt viðkvæmun líf- færum eins og t.d. auga eða mænu. Þetta eðli geislans hefur i væru greind 700 ný krabbameins- tilfelli á ári og ef það er margfald- að með meðalævilengd þá væru það 52.500 tilfelli á hverja meðal- ævi Islendings. Væri reiknað áfram meö um 230 þús. íbúum i landinu án aukinnar tfðni sjúk- dómsins þýddi það að 4 til 5 hver Islendingur fengi krabbamein. I dag er áætlað að hægt sé að lækna milli 40—50% krabbameinssjúkl- inga, ef aðstæður eru góðar, en það eru um 20 þús. tslendingar á ári. Með línuhraðli væri stigið stórt skref í þá átt. „Forsenda þess að hægt var að fá tækið hingað til landsins er sú að yfirstjórn mannvirkjagerðar á Landspítalalóð tók þá ákvörðun að hefja byggingu þess hluta K-byggingar þar sem tækinu er ætlaður staður, en byrjað var að kanna það mál 1979. Vegna sterkra geisla þarf að sérhanna húsnæði fyrir línuhraðalinn og er stefnt að því að hægt verði að taka á móti fyrstu sjúklingunum 1988. Hingaö til höfum við sent sjúklinga héðan í meðferð erlend- is, en í framtfðinni munum við ekki sætta okkúr við lakari þjón- ustu né árangur hér á landi. Við höfum alla þekkingu til þess í landinu að standa öðrum þjóðum jafnfætis ef ekki framar á þessu sviði,“ sagði Þórarinn að lokum. Sjá fylgiblað B um lands- söfnun Lions-manna Þórarinn Sveinsson, yfirlæknir. för með sér að aukaverkanir á heilbrigðan vef, sem liggur ná- lægt æxlinu, minnka verulega. I sem stystu máli má segja að með linuhraðli minnki aukaverkanir sem fylgja geislalækningum, um leið og tækið gerir mögulegt að bæta árangur meðferðar vegna aukinnar nákvæmni og þar af leiðandi hærri geislaskammta f æxlisvefinn." Þórarinn benti á að hér á landi Línuhraðall eins og sá sem safnað verður fyrir. Eins og fram hefur komið kom nýrnaveiki upp í stöðinni fyrr í vet- ur og hefur fisksjúkdómanefnd gert tillögur til landbúnaðarráðherra um að öllum fiski í stöðinni verði slátrað. Ráðherra hefur hinsvegar ekki gefið út hvað gert verði en komið hefur til tals, ekki síst meðal fiskeldismanna, að sleppa seiðunum f hafbeit og sótthreinsa síðan stöð- ina. „Stjórn Landssambandsins hélt fund með veiðimálastjóra og sér- fræðingi fisksjúkdómanefndar fyrr f vetur og lýstum við þá yfír áhyggjum okkar vegna þess dráttar sem verið hefur á aðgerðum gegn nýrnaveikinni í Kollafjarðarstöð- inni,“ sagði Gylfi. „Við sögðum sem svo: Það er vitað og yfirlýst að laxar úr Kollafjarðarstöðinni hafa gengið í ár nánast um allt land, eða allt frá Lagarfljóti, suður um land og vest- ur til Súgandafjarðar. Við teljum óforsvaranlegt að sleppa seiðum úr stöð þar scm þessi sýki hefur komið upp, þrátt fyrir að hún hafi komið upp áður f öðrum stöðvum, því hugsanlegt er að sýkt seiði villist upp í önnur vatnasvæði. Þá er nauðsynlegt að það komi fram að það hefur ekki verið stað- fest að nýrnaveiki sé f villtum laxi í ám á Islandi," sagði Gylfi ennfrem- ur, og ályktanir um að svo kunni að vera eru órökstuddar tilgátur. Með- an svo er teljum við ekki forsvar- anlegt að sleppa seiðum sem kunna að vera sýkt af svo alvarlegum sjúkdómi í hafbeit." Landsfundur settur í dag: Allir full- trúar koma LANDSFUNDUR Sjálfstæðisflokks- ins verður settur í Laugardalshöll kl. 17.30 í dag. Rétt til setu á fundinum eiga 1189 fulltrúar og síðdegis í gær höfðu allir fulltrúarnir tilkynnt fund- arsókn sína, en að sögn Kjartans Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, hefur slíkt aldrei gerst áður. Kjartan sagði að á landsfundin- um 1983 hefðu 1099 fulltrúar átt rétt til fundarsetu, en 1091 hefðu greitt atkvæði i formannskjöri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.