Morgunblaðið - 01.06.1985, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 01.06.1985, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐID, LAUOARDAGUR 1. JÍ!N( 1986 Stöðug viðleitni til að gera hluti tímalausa — segir listakonan Myriam Bat-Yosef, sem nú sýnir á Kjarvalsstöðum Myriam Bat-Yosef sýnir á Kjar- valsstööum um það bil 100 verk, sem eru yfirlit yfir það sem hún hef- ur verið að gera að undanfornu. Þetta eru verk, sem máluð eru á silki og annað efni svo og klippi- myndir. Þá eru á sýningunni silki- þrykkt veggteppi, málaðir hlutir og Ijósmyndir af gjörningum. Myriam Bat-Yosef er íslenskur ríkisborgari og heitir á okkar tungu María Jósefsdóttir. Hún kom fyrst til íslands fyrir um það bil 30 árum og var þá gift list- amanninum Erró, Guðmundi Guð- mundssyni. Þau eiga eina dóttur, sem heitir Tura og er fædd 1960. María hefur aðsetur í París en kemur hingað öðru hvoru. Hún hefur haldið nokkrar sýningar í Reykjavík alveg síðan 1956 og sýnt víða erlendis bæði á einkasýning- um og samsýningum. María hefur hlotið ýmsar erlendar viðurkenn- ingar fyrir verk sín, meðal annars heiðursverðlaun á Tríenníalinum í Tókýó árið 1964 og árið 1966 gagn- rýnendaverðlaun Arnys í París. Um list sína hefur hún sagt meðal annars: „Á fyrstu árum myndlistarferils mins hafði ég at- vinnu af listinni, vinna mín tengd- ist fagurfræðilegum og listfræði- legum kröfum; málverk varð að vera tæknilega vel gert og fagur- fræðilega séð þurftu myndir að vera í góðu jafnvægi. Smám sam- an varð myndlist mín eina leiðin til að lifa lífinu. Hjá mér þróaðist þörf til að túlka reynslu, sem tengdist líkama mínum og dreifa Myriam Bat-Yosef henni yfir allt umhverfi mitt. Þannig byrjaði ég að mála hluti og fólk, tengdi það umhverfi og síðan fór ég að fremja gjörninga. Öll mín vinna er i raun og veru stöðug viðleitni til að gera hluti tímalausa. Þess vegna málaði ég erfðaskrá mína í stað þess að skrifa hana og sendi til lögfræð- ings míns.“ Það má geta þess, að nokkur at- riði úr erfðaskrá Myriam Bat- Yosef eru á sýningunni á Kjar- valsstöðum. Sýningin stendur til 17. júní næstkomandi. H.E. Sýning í As- grímssafni SUNNUDAGINN 2. JÚNÍ verður opnuð í Ásgrímssafni hin árlega sumar ^ sýning. Að þessu sinni eru sýnd um 35 myndverk og hefur verið lögð áhersla á að hafa sýninguna sem fjölbreyti- legasta, bæði hvað varðar myndefni og tækni. Á heimili Ásgríms á neðri hæð hússins eru sýnd verk frá fyrsta og öðrum tug aldarinnar, olíumálverk, vatnslitamyndir og teikningar. Uppi í vinnustofu málarans, á annarri hæð hússins, hafa verið dregin fram yngri úrvalsverk í eigu safnsins. I sumar verður Ásgnmssafn opið alla daga vikunnar, nerna laugardag, kl.13:30—16:00. Aðgangur er ókeypis og verður sýningin opin til ágúst- 4 loka. (KrétUlilkynning) Ásgrímur Jónsson: Fri Borgarfirði. Sjómannadagurinn 1985 Reykjavík Dagskrá 48. sjómannadagsins í Reykjavík 2. júní 1985. 8.00 Fánar dregnir að húni á skipum í Reykjavíkurhöfn. 11.00 Minningarguðsþjónusta í Dómkirkjunni. Biskupinn yfir Islandi, herra Pétur Sigur- geirsson, minnist drukknaðra sjómanna. Séra Hjalti Guð- mundsson þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur undir stjórn Marteins H. Friðriks- sonar. Skemmtisigling um sundin blá. 12.15 Skemmtisiglingar með hvalbátum um sundin við Reykjavík fyrir þá sem keypt hafa merki sjómannadagsins. Börn yngri en 12 ára þurfa þó að vera í fylgd með fullorðnum. Farið verður frá Faxagarði í Reykjavíkurhöfn. Siglingar hefjast kl. 12.15 og síðasta ferð verður farin kl. 16.00. Þrír bát- ar verða í förum. ÚtihátíAahöld við Reykjavíkur- höfn 13.00 Milli 13.00 og 14.00 sigla fé- lagar í sportbátaklúbbnum Snarfara bátum sínum innan Reykjavíkurhafnar. Ennfrem- ur verður sjóskíðaíþrótt á þeirra vegum. 13.30 Lúðrasveit Reykjavíkur leikur létt sjómannalög, stjórn- andi er Stefán Þ. Stephensen. 14.00 Samkoman sett. Þulur og kynnir dagsins er Anton Niku- lásson. Ávörp: A: Fulltrúi ríkisstjórnarinnar, Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, í fjarveru sjávarútvegsráðherra. B: Fulltrúi útgerðarmanna, Einar K. Guðfinnsson, útgerð- armaður í Bolungarvík. C: Fulltrúi sjómanna, Pétur Sigurðsson, togaraskipstjóri. D: Pétur Sigurðsson, formaður sjómannadagsráðs, heiðrar aldraða sjómenn með heiðurs- merki sjómannadagsins. Skemmtanir dagsins. Milli kl. 14. og 15.00 sigla félag- ar í Brokey og Siglingafélagi Reykjavíkur inn í Reykjavík- urhöfn á seglskútum sínum. 14.45 Kappróður í Reykjavíkur- höfn. Keppt er bæði í karla- og kvennasveitum á nýjum kapp- róðrarbátum. Björgunarsýningar Félagar í björgunarsveit SVFÍ Ingólfi í Reykjavík sýna með- ferð öryggis- og björgunar- tækja. 15.30 Björgunarþyrla Landhelg- isgæslunnar ásamt félögum í björgunarsveitinni Ingólfi sýna björgunaræfingar úr sjó. Koddaslagur fer fram af ekju- brú Akraborgar ef næg þátt- taka fæst. Keppendur gefi sig fram á staðnum. Hrafnista Reykjavík. 14.30 Lúðrasveit Reykjavíkur leikur við Hrafnistu í Reykja- vík. 14.30—17.00 Kaffisala í kaffi- og samkomusal. Jafnframt verður sýning og sala á handavinnu vistmanna. Allur ágóði rennur til velferðarmála heimil- ismanna Hrafnistu í Reykja- vík. 19.30 sjómannadagshóf á Hótel Sögu, Súlnasal. Miðasala og borðapantanir verða á Hótel Sögu laugardaginn 1. júní frá kl. 17.00-19.00. Hafnarfjörður Dagskrá sjómannadags í Hafnar- firði. Laugardaginn 1. júní kl. 20 verður haldið sjómannahóf á skemmtistaðnum Tess, verður framreiddur þar matur frá Skút- unni og mun Ómar Ragnarsson sjá um skemmtiatriði ásamt fleir- um. Sunnudagur Kl. 8.00. Fánar dregnir að húni. Kl. 11.00. Sjómannamessa í Hafnarfjarðarkirkju, prestur sr. Gunnþór Ingason. Kl. 13.00. Skemmtisigling með börn út á Hafnarfjörð. Kl. 14.00. Hátiðin sett. Ræður flytja Helgi Einarsson skipstjóri af hálfu sjómanna og Engilráð Óskarsdóttir af hálfu Slysavarna- félagsins Hraunprýði. Aldraðir sjómenn heiðraðir. Reiptog, koddaslagur og kappróður. Lúðra- sveit Hafnarfjarðar leikur á há- tíðarsvæðunum. Kl. 22.00. Dansleikur í Tess. Hrafnista í Hafnarfirði. Kl. 10.30. Lúðrasveit Hafnar- fjarðar leikur. KL. 11.00. Sjómannamessa í Kapellu Hrafnistu, Hafnarfirði, prestur sr. Sigurður H. Guð- mundsson. Kl. 14.30-17.30. Kaffisala í borð- og samkomusal. Jafnframt verður sýning og sala á handa- vinnu vistmanna. Allur ágóði rennur til velferðarmála heimil- ismanna. Kl. 15.30. Sundlaug Hrafnistu í Hafnarfirði vígð og tekin í notk- un. Séra Sigurður H. Guðmunds- son vígir sundlaugina. Keflavík og Njarðvík Dagskrá sjómannadagsins í Keflavík og Njarðvík. Kl. 9.00. íslenski fáninn dreginn að húni við minnismerki sjó- manna og við höfnina. Kl. 11.00. Sjómannamessa í Y tri-Nj arðvíkurkirkju. Kl. 12.45. Skemmtisigling með börn bæði frá Keflavíkurhöfn og Njarðvíkurhöfn. Kl. 14.00. Hátíðarhöld við höfn- ina sett af Jóni Ólafssyni, for- manni sjómannadagsráðs. Full- trúi Vélstjórafélags Suðurnesja flytur ávarp. Aldraðir sjómenn heiðraðir. Áflakóngur vertíðar- innar 1985 heiðraður. Kappróður, stakkasund, koddaslagur, reiptog. Um kvöldið verður Sjómanna- hóf og matur í KK-húsinu. Hljómsveitin Ægir leikur fyrir dansi. Kaffisala verður í Víkinni á sjó- mannadaginn kl. 14.00—18.00. Einnig verða seld merki sjó- mannadagsins og verða þau af- hent sölubörnum í Víkinni kl. 9.00. Akureyri Dagskrá sjómannadagsins á Ak- ureyri. Kl. 8.00. Fánar dregnir að húni. Kl. 11.00. Guðsþjónusta í Akur- eyrarkirkju, prestur sr. Þórhallur Höskuldsson, og í Glerárkirkju, prestur sr. Pálmi Matthíasson. Sjómenn aðstoða við messuna. Kl. 13.30. Hátíðarhöld við sundlaugina hefjast. Ávörp flytja Valdimar Bragason fulltrúi út- gerðarmanna og Sigurður Frið- riksson fulltrúi sjómanna. Aldr- aðir sjómenn heiðraðir. Þá verður stakkasund og björgunarsund og fleiri uppákomur. Kl. 16.00. Kappróður við Torfu- nefsbryggju. Kl. 18.00. Landhelgisgæslan sýnir björgun úr sjó og henni til aðstoðar verður Sjóbjörgunar- sveitin Súlur. Á eftir verður þyrla Landhelgisgæslunnar til sýnis á túninu framan við Dynheima. Nökkvi, félag siglingamanna, verður með seglbrettasýningu og -leigu. Drangur mun fara nokkrar ferðir með fólk um Pollinn. Slysavarnakonur selja veit- ingar í Laxárgötu 5. Leikfélag Akureyrar sýnir á sjómannadag leikritið „Köttur- inn“ eftir ólaf Hauk Símonarson. Dansleikur verður í Sjallanum um kvöldið og fer þar fram verð- launaafhending fyrir íþróttir dagsins. Gautar frá Siglufirði leika fyrir dansi. ísafjörður Dagskrá sjómannadagsins á ísa- firði. Laugardagur 1. júní. Kl. 14.00. Hópsigling með börn- in, áætlaðir 2 tímar. Þá mun Landhelgisgæslan sýna björgun úr sjó með aðstoð Björgunarsveit- arinnar Skutull. Sunnudagur 2. júní. Kl. 9.30. Messa í kapellunni i Hnífsdal, prestur sr. Jakob Hjálmarsson. Að henni lokinni hópganga að minnisvarða sjó- manna þare sem lagður verður blómsveigur. Kl. 10.45. Hópganga frá miðbæ ísafjarðar að minnisvarða sjó- manna við kirkjuna og lagður að honum blómsveigur. Kl. 11.00. Messa í ísafjarðar- kirkju, prestur sr. Jakob Hjálm- arsson. Kl. 14.00. Hátíðin sett við báta- höfnina af Kristjáni Jónssyni formanni sjómannadagsráðs. Aldraðir sjómenn heiðraðir. Ávarp flytur Guðmundur Ein- arsson vélstjóri. Kappróður skipshafna og landsveita kvenna og karla. Björgunarsveitin Skut- ull mun sjá um ýmsa leiki við smábátahöfnina. Kl. 16.30. Knattspyrna á íþróttavellinum milli undir- og yf- irmanna bátanna. Kaffiveitingar verða kl. 15.00—18.00 í félagsheimilinu í Hnífsdal á vegum slysavarna- deildarinnar. Dansleikir verða í Uppsölum á vegum Sjómannadagsráðs bæði laugardags og sunnudagskvöld frá kl. 23.00-3.00. Blöð og merki dagsins verða af- hent sölubörnum á laugardag kl. 17.00—18.00 við Hafnarvog. Siglufjörður Siffhifirói 30. maí. SJOMANNADAGURINN hefur lengi verið haldinn hátíðlegur á Siglufirði og í þetta sinn er það einkum tvennt sem mun gera dag- inn eftirminnilegan. f fyrsta lagi hafa piltar úr björgunarsveitinni fest kaup á kappróðrarbátum sem verða teknir í notkun á sjómanna- daginn og í annan stað verður af- hjúpaður minnisvarði sjómanna. Hann var gefinn fyrir allmörgum árum, eða nánar tiltekið við préd- ikun á sjómannadegi árið 1978. Dagskrá dagsins verður sem hér segir: Laugardagur. Kl. 14:00. Undanúrslit kappróð- urs við hafnarbryggjuna. Sunnudagur. Kl. 10:00. Lúðrasveit Siglufjarð- ar leikur undir stjórn Ánthony Raleys, við sjómannastyttuna. Kl. 11:00. Sjómannamessa í Siglufjarðarkirkju, prestur er sr. Virfús Þór Árnason. Kl. 13:00. Haldin verður ræða dagsins við hafnarbryggjuna, heiðraðir aldnir sjómenn, reiptog, netaboðhlaup, úrslit í kappróðri o.fl. Kl. 15:00. Kaffisala á hótel Höfn ■ á vegum slysavarnafélagsins. Kl. 17:00. Fótbolti sjómanna. Kl. 23:00—03:00. Sjómanna- dansleikur á hótel Höfn, hljóm- sveitin Miðaldamenn leika fyrir li dansi. — mj. VESTMANNAEYJAR \ estmannaeyjum, 31. maí. MIKIÐ verður um dýrðir hér í Eyjum á sjómannadaginn eins og tíðkast hefur í áraraðir. Hér í stærstu verstöð landsins þykir ekki annað hæfa en halda tveggja daga hátíð, heila sjómannahelgi. Þá létta hetjur hafsins sér upp með fjölskyldum sínum og vinum eftir langan og strangan vetur og við hin samgleðjumst þeim. Hátíðahöldin hefjast á morgun, laugardag, í Friðarhöfn kl. 13.00. Þar verður sprangað og keppt í hefðbundnum íþróttum sjó- 1 mannadagsins, svo sem kapp- róðri, koddaslag, tunnuhlaupi, reiptogi og stakkasundi. Á laugar- dagskvöldið verða dansleikir í þremur húsum til kl. þrjú um nóttina. Á sunnudaginn, sjálfan sjó- mannadaginn, hefst hátíðin kl. 13.00 með því að hátíðin verður sett við Oddgeirsminnisvarðann á Stakkagerðistúni. Síðan verður skrúðganga að Landakirkju þar sem séra Kjartan Örn Sigur- björnsson messar. Að lokinni messu verður minningarathöfn við minnisvarða á kirkjulóðinni um þá sem hafa hrapað eða drukknað. Þá athöfn annast sem fyrr Einar J. Gíslason. Síðdegis á 1 sunnudag verður útiskemmtun á Stakkagerðistúni. Þar verður flutt ræða dagsins og sjómenn verða heiðraðir. Veittar verða við- urkenningar fyrir unnin afrek í íþróttum laugardagsins og fyrir björgunarafrek. Einnig verða ým- is skemmtiatriði. Um kvöldið verður vegleg skemmtun í Sam- komuhúsinu, þar sem m.a. afla- kóngar Eyjanna verða heiðraðir. Hátíðinni lýkur síðan með miklum dansleikjum í Samkomu- húsinu og á Skansinum sem standa munu yfir til kl. fjögur um morguninn. Eins og ávallt á sjómannadag- inn mun Slysavarnadeildin Ey- kyndill vera með kaffisölu í Al- þýðuhúsinu. Þá var gefið út hér mjög vandað og læsilegt sjómannadagsblað. — hkj.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.