Morgunblaðið - 13.06.1985, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.06.1985, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 131. tbl. 72. árg. FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins Jórdanska þotan sprengd f loft upp í Beirút: Ræningjarnir komust undan í ringulreiðinni BeirúL Líbanon otf Larnaca. Kvnur. 12. iúnf. AP. Beirút, Líbanon og Larnaca, Kýpur, 12. júnf. AP. SHfTARNIR sex frá Líbanon, sem rændu jórdanskri farþegaþotu í gær, létu alla farþega og áhöfn, 66 að tölu, lausa á flugvellinum í Beirút í morgun og sprengdu síðan stjórnklefa vélarinnar í loft upp. Þeir komust undan í ringul- rciðinni, sem skapaðist á flugvellinum Plugræningjarnir höfðu á brott með sér átta jórdanska öryggis- verði, sem voru um borð í vélinni, en létu þá lausa nokkru siðar, eftir að hafa yfirheyrt þá. Shítarnir höfðu upphaflega krafist þess, að allir skæruliðar Palestínumanna yrðu reknir úr flóttamannabúðum í Beirút. Heimtuðu þeir, að fá að ræða það mál við Chedli Klibi, fram- kvæmdastjóra Arababandalags- ins, en við því var ekki orðið. Um tíma höfðu flugræningjarnir í hót- unum um að sprengja flugvélina í loft upp án þess að ieyfa nokkrum að fara frá borði. Þegar þeim varð ljóst að ekki yrði orðið við kröfu þeirra slepptu þeir farþegum og áhöfn, komu fyrir sprengjum í vél- inni og fóru á brott. Eftir að stjórnklefi jórdönsku farþegaþotunnar hafði verið sprengdur upp kviknaði eldur í vél- inni og brann hún að heita má til kaldra kola. I dag gerði óþekktur maður, sem kvaðst hafa handsprengju í fórum sínum, tilraun til að ræna farþega- þotu frá Líbanon á flugvellinum í Larnaca á Kýpur. Kvaðst hann með því vilja hefna fyrir rán jórd- önsku vélarinnar í gær. Eftir nokkurt þóf gafst hann upp og flutti lögregla hann um borð í jórdanska farþegaþotu, sem var á heimleið. Fulltrúadeild Bandaríkjaþings: Breytt um stefnu í málum Nicaragua Washington, 12. júní. AP. FULLTRÚADEILD Bandaríkjaþings samþykkti í dag með 232 atkvæðum gegn 1%, að framlengja ekki bann við stuðningi bandarískra stjórn- valda við hernað skæruliða í Nicar- agua. Síðar um daginn samþykkti fulltrúadeildin með miklum meiri- hluta tillögu, sem áður hafði hlot- ið samþykki öldungadeildarinnar, og felur í sér, að skæruliðar í Nic- aragua fá 27 milljónir dollara i styrk til að kaupa matvæli, lyf og fatnað. Litið er á þessar samþykktir sem mikinn sigur fyrir Reagan forseta og stefnu hans. Jafnframt Myrtu 4 á Spáni Madrid. 12. júni. AP. BASKNESKIR hryðjuverkamenn myrtu fjóra menn í Madrid og Bilbao í dag, aðeins nokkrum klukkustundum áður en leiðtogar ríkja Evrópubandalagsins komu til Spánar til að undirrita samning er veitir Spánverjum aðild að bandalaginu. í Madrid voru Vicente Rom- ero, ofursti, og bílstjóri hans skotnir til bana er þeir voru að aka í miðborginni. Nokkru seinna lét sprengjusérfræðing- ur lögreglunnar í Madrid lífið er sprengja sprakk í bifreið morðingjanna, sem skilin var eftir skammt frá morðstaðnum. Þá skaut óþekktur maður liðsforingja í sjóhernum til bana skammt frá Bilbao. Morð- inginn komst undan. felst í þeim veruleg stefnubreyting fulltrúadeildarinnar í málum Nic- aragua. Er talið að rekja megi hana til ferðar Ortega, leiðtoga Nicaragua, til Sovétríkjanna fyrir nokkru. AP/Símamynd Stjórnklefí jórdönsku farþegaþotunnar á Beirútflugvelli sprengdur upp. Efst í horninu sést er flugmaður vélarinnar, Svíinn Ulf Sultan, fer frá borði. Finnarnir frjálsir fái Lahd að hitta menn sína Marjajoun, Líbanon, AP. BLAÐAMENN og Ijósmyndarar frá ísrael fengu í dag að hitta fínnsku friðar- gæsluliðana, sem menn úr hinum svonefnda Her Suður-Líbanon (SLA) rændu á fostudag. Reyndust þeir vera í haldi í fjögurra herbergja húsi í þorpinu Marjayoun í suðurhluta Líbanon. Virtist ekkert ama að þeim og gerðu þeir að gamni sínu við blaðamennina, en kvörtuðu yfír því að maturinn væri vondur. Antoine Lahd, leiðtogi SLA, sagði, að Finnarnir yrðu ekki látnir lausir fyrr en hann hefði fengið upplýsingar um örlög ellefu her- manna sinna. Hann hefur áður fullyrt, að finnsku gæsluliðarnir hafi afvopnað þá og fengið shítum þá í hendur. Eftir öðrum heimild- um er haft að mennirnir hafi gerst liðhlaupar. Fyrr um daginn sagði Lahd í samtali við AP-fréttastofuna, að hann hefði í gær sent yfirmanni friðargæsluliðs Sameinuðu þjóð- anna í Beirút tillögu um lausn deil- unnar um Finnana og SLA-menn- ina. Kvaðst hann hafa lagt til að ellefumenningarnir yrðu fluttir á hlutlaust svæði og þeim gefið tæki- færi til að skýra hvað fyrir þá kom. AP/Simamynd Jean Pons, annar æðsti yfírmaður friðargæslusveita Sameinuðu þjóðanna í Líbanon, heimsótti í dag finnsku gæsluliðana sem eru í haldi hjá hersveit kristinna manna (SLA) f Marjayoun í Suður-Líbanon. Leiðtogi SLA, Antoine Lahd, er lengst til hægri. David Kimche í utanríkisráðu- neyti ísraels sagði í dag, að Lahd hefði lofað að láta Finnana lausa ef hann fengi að hitta menn sina til að ganga úr skugga um hvort þeir hefðu hlaupist undan merkjum eða verið rænt. Aðildarríki EB orðin 12 Linabra og Madrid, 12. júni. AP. SAMNINGAR um inngöngu Portúgals og Spánar í Evrópu- bandalagið voru undirritaðir við hátíðlega athöfn í höfuðborgum ríkjanna í dag. Verða aðildarríki bandalagsins þá orðin tólf um næstu áramót, þegar samningarn- ir taka gildi. Viðstaddir undirritunina í dag voru auk þjóðhöfðingja og stjórnmálaforingja ríkjanna tveggja helstu leiðtogar aðild- arríkja Evrópubandalagsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.