Morgunblaðið - 15.06.1985, Blaðsíða 1
56 SÍÐUR OG LESBÓK
STOFNAÐ 1913
133. tbl. 72. árg.
LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Stórfelldar loft-
árásir íraka á
14 borgir í íran
78 manns biðu bana og yfir 300 særðust
NíIlómii, U.júni AP.
AÐ MINNSTA kosti 78 manns biðu bana í dag í stórfelldum loftárásum
íraka á 14 borgir í íran. Beittu írakar bteði flugvélum og eldflaugum í
þessum árásum. Skýrði íranska fréttastofan IRNA frá þessu í dag og var þar
tekið fram, að auk fallinna hefðu á fjórða hundrað manns særzt.
Ljóst þykir, að stríð Irana og
íraka sé enn að magnast, því þetta
voru mestu loftárásirnar í allri
sögu stríðsins. Það hefur nú staðið
í 56 mánuði. Samkvæmt frásögn
IRNA mátti heyra sprengjur falla
á mörgum stöðum í höfuðborginni.
Þetta varð þó ekki til þess að
koma í veg fyrir fjöldagöngur
borgarbúa, en þessi dagur er trú-
arlegur hátíðisdagur í lran.
I kvöld tilkynnti Saddam Hus-
sein, forseti Iraks, að hann hefði
fyrirskipað hlé á þessum loftárás-
um í tvær vikur frá og með laug-
ardagsmorgni. Sagði forsetinn, að
markmiðið með þessu væri að fá
íransstjórn til þess að „íhuga
frið“.
Utanríkisráðherra írans, Ali
Akbar Velayati, sagði hins vegar í
ræðu í kvöld, að franir myndu
halda áfram að berjast unz „loka-
sigur væri unninn".
Símamynd/AP
Vestur-Þýzkaland:
Talsmaður
stjórnar-
innar segir
af sér
Bonn, 14. júni AP.
PETER Bönisch, aöaltalsmaður
vestur-þýzku stjórnarinnar, sagði af
sér í dag vegna réttarrannsóknar
gegn honum fyrir meint skattsvik.
Var frá þessu skýrt í tilkynningu frá
Kohl kanslara í dag, þar sem hann
kvaðst harma afsögn Bönisch. Jafn-
framt var tilkynnt, að annar maður,
Friedhelm Ost, hefði verið skipaður
nýr talsmaður stjórnarinnar.
Ásakanirnar á hendur Bönisch
eru fyrir meint skattsvik frá því
fyrir þann tíma, er hann var
skipaður talsmaður stjórnarinnar,
sem átti sér stað í maí 1983. Bön-
isch, sem er 58 ára að aldri, er frá
Berlín. Hann var áður ritstjóri
blaðanna Bild Zeitung og Die
Welt.
Peter Bönisch. Mynd þessi var tekin
á fimmtudagskvöld á sumarsam-
komu fréttamanna í Bonn. I gær
sagði hann af sér sem talsmaður
stjórnarinnar vegna réttarrannsókn-
ar fyrir meint skattsvik.
Margir hafa orðið til þess að
gagnrýna ritstörf Bönisch hjá
Bild. Þannig hefur komið út bók
eftir nóbelsskáldið Heinrich Böll,
þar sem fjallað er um þessi skrif
Bönisch. Hefur þessi bók verið á
metsölulista í Vestur-Þýzkalandi
frá því á síðasta á ári.
vopnaoir nermenn ur iibanska hernum fylgja konum og bornum, sem fengu að fara ur 1 WA-þotunni a nugveninum
í BeirúL
Ekkert lát á flugránunum:
Þota frá TWA á
valdi flugræningja
Algeirsborg, 14. jnní AP.
FARÞEGAÞOTU frá Trans World Airlines var rænt í dag á leiðinni
frá Aþenu til Rómar. Seint í kvöld var vélin á leið austur yfir
Miðjarðarhaf eftir nær 5 klukkustunda dvöl á flugvelli i Algeirs-
borg, Þar sem 20 manns fengu að fara frá borði. Ekki var vitað hvert
för flugræningjanna var heitið. Um borð í vélinni voru enn 80
bandarískir farþegar auk áhafnar.
Flugræningjarnir voru tveir og
voru þeir vopnaðir handsprengj-
um og byssum. Beindu þeir vél-
inni fyrst til Beirút í Líbanon,
þar sem þeir slepptu 19 konum og
börnum lausum, en skipuðu
áhöfninni síðan að fljúga vélinni
til Alsír, eftir að eldsneyti hafði
verið sett á hana. Flugræningj-
arnir kröfðust þess að skæruliðar
úr röðum shíta, sem eru fangar
ísraelsmanna, yrðu látnir lausir.
Hótuðu flugræningjarnir að
drepa alla þá sem í vélinni væru,
ef ekki yrði gengið að kröfum
þeirra.
Seint í kvöld sagði Steve Forte,
talsmaður TWA í Róm, að far-
þegaþotan væri á leið austur yfir
Miðjarðarhaf, en ekki væri vitað
hvert. Hún gæti skipt um stefnu
hvenær sem væri.
Ronald Reagan Bandaríkjafor-
seti hélt í kvöld skyndifund með
fréttamönnum, þar sem hann
sagði að allt yrði gert til þess að
bjarga farþegum og áhöfn þot-
unnar. Sagðist forsetinn þegar
hafa skipað sérstaka „neyðar-
nefnd", sem leggja ætti á ráðin
varðandi aðgerðir.
Pólland:
Fangelsisdómar yfir þremur
af forystumönnum Samstöðu
Alþjóðasamband frjálsra verkalýðsfélaga fordæmir dómana
(vdansk, 14. júní AP.
PÓLSKUR dómstóll dæmdi í dag þrjá af forystumönnum Samstöðu í
2'/j—3‘A árs fangelsi fyrir að hvetja almenning til þess að fara í verkfall.
Walesa, leiðtogi Samstöðu, fordæmdi í dag þessa dóma sem „það heimsku-
legasta sem stjórnin gat gert,“ og skoraði á Pólverja að „mótmæla öllum
tilraunum til að skapa andrúmsloft haturs í landinu“.
Það var undirréttur í borginni
Gdansk, sem kvað upp dóminn.
Voru mennirnir þrír, þeir Adam
Michnik, Bogdan Lis og Wladys-
law Frasyniuk einnig fundnir sek-
ir um þátttöku í ólöglegri verka-
lýðsstarfsemi. Var Frasyniuk
dæmdur í 3 'A árs fangelsi, Michn-
ik í 3 ára og Lis í 2*A árs fangelsi.
Verjendur þeirra sögðu í dag, að
dómunum yfir þeim öllum yrði
áfrýjað.
Með þessum dómum er lokið að
sinni mestu pólitísku réttarhöld-
unum í Póllandi síðan herlög voru
sett i landinu í desember 1981 í því
skyni að binda enda á starfsemi
Samstöðu, fyrstu frjálsu verka-
lýðshreyfingarinnar í Austur-
Evrópu. Jafnframt fólu þessi rétt-
arhöld í sér mestu aðgerðir komm-
únistastjórnarinnar i landinu
gegn andstæðingum hennar síðan
í júlí í fyrra, er framangreindir
þrír menn og 600 aðrir pólitískir
fangar voru leystir úr fangelsi
með sakaruppgjöf.
Tilgangur verkfallsins, sem
sakborningunum var gefið að sök
að hafa efnt til, var að mótmæla
áformum stjórnvalda um verð-
hækkanir á matvælum. Hætt var
við verkfallið, er stjórnvöld féllust
á að láta verðhækkanirnar taka
gildi smám saman en ekki allar i
einu.
Alþjóðasamband frjálsra verka-
lýðsfélaga fordæmdi dómana í
dag. Mennirnir þrír „voru dæmdir
fyrir starfsemi, sem var í alla
staði lögmæt verkalýðsstarfsemi,"
sagði i yfirlýsingu frá John Vand-
erveken, framkvæmdastjóra al-
þjóðasambandsins í dag.
Lofa að
sleppa
Finnunum
í dag
Kirrat Shmona. farael, 14. júnf AP.
YFIRSTJÓRN ísraelshers til-
kynnti í kvöld, að 21 Finni,
sem verið hefur í gíslingu í
heila viku hjá kristnum hægri-
mönnum í Suður-Líbanon,
verði látinn laus á morgun,
laugardag.
Tilkynning þessi var birt,
eftir að gefið hafði verið í
skyn að friðargæzlulið Sam-
einuðu þjóðanna myndi
beita valdi til að leysa menn-
ina úr haldi. Timur Goksel,
talsmaður friðargæzluliðs-
ins, lýst í kvöld yfir ánægju
sinni með þessa tilkynningu,
en vildi ekki skýra frá ein-
stökum atriðum þess sam-
komulags, sem náðst hefði
varðandi frelsun Finnanna.