Morgunblaðið - 27.06.1985, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.06.1985, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 142. tbl. 72. árg.___________________________________FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 1985_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins AP/Símamynd Jimmy Dell Palmer frá Little Rock í Arkansas sést hér að baki Nabih Berri, leiðtoga amakshíta í Líbanon. Mynd þessi var tekin i fundi með fréttamönnum í gær, sem haldinn var á heimili Berri i Beirút. Þar skýrði Berri frá því, að Dell hefði verið veitt frelsi vegna sjúkdóms, en Dell, sem er 48 ára gamall, er veill fyrir hjarta. Enn eru 39 Bandaríkjamenn í gíslingu hjá flugræningjunum. „Feginn að vera farinn frá Beirút“ Einn af bandarísku gíslunum látinn laus í gær Beirút, 26. júní AP. „Feginn er ég, að vera farinn frá Beirút," sagði Jimmy Dell Palmer, er hann kom til Kýpur í dag. Hann var í hópi bandarísku gíslanna í Beirút, en vegna hjartasjúkdóms var honum leyft að fara þaðan, eftir að hafa verið fangi flugræningjanna í 13 daga. Nabih Berri, leiðtogi amal-shíta í Líbanon, sagði í dag, að til athugunar væri að láta enn einn gísl lausan vegna veikinda. Hertar ráðstafan- ir til verndar flugi Cork, 26. júní. AP. BREZK og írsk skip héldu áfram víðtækri leit í dag að indversku þotunni, sem fórst fyrir fjórum dögum. Sérfræðingar eru nú hins vegar svartsýnni á, að tækin, sem eiga að geyma upplýsingar um för flugvélarinnar og samtöl áhafnarinnar, muni nokkru sinni finnast. Á fundi með fréttamönnum í dag bar Berri fram tillögu um, að gíslarnir yrðu fluttir úr fylgsnum þeim, þar sem þeir eru faldir nú, til einhvers vestræns sendiráðs í Beirút. Slíkt yrði þó aðeins gert gegn loforði um, að gíslarnir yrðu ekki látnir lausir fyrr en 735 líb- anskir fangar í ísrael hefðu verið leystir úr haldi í samræmi við kröfur flugræningjanna. Haft var eftir áreiðanlegum heimildum í Israel, að stjórnvöld þar hygðust láta lausa 70 líbanska fanga á morgun, fimmtudag. Yitzhak Rabin varnarmálaráð- herra sagði, að stefnt væri að því, að engir líbanskir fangar yrðu eft- ir i Israel. Bandaríkjastjórn tilkynnti í dag, að af hennar hálfu yrði ekk- ert sagt að sinni um hugsanlegar ráðstafanir í þvi skyni að frelsa gíslana. Reagan forseti hélt tveggja klukkustunda fund með helztu ráðgjöfum sínum í utanrík- ismálum, en á fundi með frétta- mönnum á eftir sagði Larry Speakes, talsmaður forsetans, að ekki yrði unnt að svara spurning- um þeirra um gislamálið. Philip Maresca, aðstoðarflug- stjóri TWA-þotunnar, var i dag fluttur úr flugvélinni á sjúkrahús bandariska háskólans i Beirút til læknisrannsóknar. Hafði annar handleggur hans og öxl bólgnað mjög af völdum skordýrabits, sem hann hlaut fyrir einni viku, svo að hættulegt var orðið. Höfðu flug- ræningjarnir þá samband við sjúkrahúsið og báðu um lækni. Þegar nokkur timi leið, án þess að læknir kæmi á vettvang, tilkynnti einn þeirra frá flugvélinni: „Eg er með deyjandi mann i flugvélinni, ég þarf að fá lækni.“ Var aðstoðar- flugstjórinn, Maresca, sem er 42 ára gamall, síðan fluttur á sjúkra- húsið. Kanadísk stjórnvöld skýrðu svo frá í dag, að ekki væri unnt að skera úr um það, svo að öruggt væri, að hryðjuverkamenn hefðu grandað þotunni og að tengsl væru milli þess atburðar og spreng- ingarinnar, sem varð á flugvellin- um í Tókýó. Indverska flugfélagið Air India hætti í dag flugferðum til Kanada á þeirri forsendu, að þotan, sem fórst, hefði verið að koma þaðan. Yrðu Kanadamenn að herða á öllum öryggisráðstöf- unum á flugvöllum hjá sér. Með indversku þotunni voru 329 manns, en enn þá hefur aðeins fundizt 131 lík. Leitarskip eru þó stöðugt að finna brak úr þotunni. Það eru þó aðeins litlir hlutir, sem fundizt hafa til þessa og er 2,5 AP/Símamynd V'opnaðir brezkir hermenn á eftir- litsferó i Heathrow-flugvelli í Lond- on í gær. Alls staðar gætir uggs vegna (lugrána og hryðjuverka að undanförnu og hafa öryggisráðstaf- anir varöandi flug verið hertar mjög í mörgum löndum. metra langur bútur úr væng stærstur þeirra. Flugmálastofnun Sameinuðu þjóðanna heldur fund á morgun, þar sem fjallað verður um ind- versku þotuna og flugránið í Beir- út. Aðalviðfangsefni fundarins verður að ræða, hvernig koma megi í veg fyrir flugrán og skemmdarverk á flugvélum í framtíðinni. Vestur-þýzka stjórnin hyggst nú setja vopnaða verði um borð í allar flugvélar flugfélagsins Lufthansa. Skýrði Friedrich Zimmermann innanríkisráðherra frá þessu í dag. Er talið, að ákvörðun um þetta hafi verið tek- in eftir fund þeirra Helmuts Kohls kanslara og George Bush, varaforseta Bandaríkjanna, i gær. IRA-menn handteknir Loadon 26. jáni. AP. BRESKA lögreglan hefur á síð- ustu dögum handtekið 16 menn sem grunaðir eru um að vera fé- lagar í IRA, írska lýðveldishern- um, og hafa staðið að baki mörg- um sprengjutilræðum í Bretlandi. Meðal þeirra er 33 ára gamall Belfastbúi sem skipulagði banatil- ræði við Margaret Thatcher í fyrra. Með handtökunum hefur líklega verið komið í veg fyrir mörg sprengjutilræði á breskum sumarleyfisstöðum sem mennirn- ir höfðu lagt á ráðin um. Með handtökunum komst lög- reglan yfir áætlanir um sprengju- tilræði á 12 borgum, vinsælum sumarleyfisstöðum í Bretlandi, og er nú verið að leita að hugsanleg- um sprengjum. Lögreglan telur þó nær fullvíst, að aðeins hafi verið búið að koma einni fyrir, á Rub- ens-hótelinu í London, en hana tókst að gera óvirka í tæka tíð. Kveikjubúnaður hennar var sá sami og notaður var í sprengjunni sem sprakk í Brighton. Lögreglan komst fyrst á sporið árið 1983 þegar tveir kassar með vopnum og sprengiefni fundust í Englandi. Eftir sprenginguna f Brighton vaknaði grunur á ákveðnum manni sem hafði dvalið nokkru áður í fjórar vikur á hótel- inu undir fölsku nafni, og tókst að rekja slóðina til Dyflinnar þar sem fylgst var með honum og hann síðan handtekinn þegar hann kom til Skotlands. Á lista IRA yfir borgir þar sem gera átti sprengjuárásir, voru Blackpool, Southampton, Torquay, Bournemouth, Brighton, East- bourne, Folkestone, Dover, Rams- gate, Margate, Southend og Great Yarmouth. Brezki íhaldsflokkurinn áform- ar að halda flokksþing í Blackpool í október, Verkamannaflokkurinn í Bournemouth í september og Jafnaðarmannaflokkurinn í Tor- quay í september. Þá er áformað að Elísabet drottning heimsæki Great Yarmouth eftir fimm vikur. Iþróttamálaráðherrar í Evrópu: Sett verði ströng lög um keppnishald í knattspyrnu StrugbofK, Prakklandi, 26. juni. AP. ÍÞRÓTTAMÁLARÁÐHERRAR margra Evrópurfkja munu á morgun, fimmtudag, koma saman í Strassborg í Frakklandi til að ræða um lög, sem öllum verður skylt að hlíta og eiga að koma í veg fyrir óeirðir á knattspyrnuleikvöngum. Um er að ræða 21 ráðberra þeirra þjóða, sem eiga aðild að Evrópuráðinu, og er tilefni fundarins harmleikurinn á Heysel-leikvanginum í Briissel. Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráð- herra situr fundinn fyrir íslands hönd. Fyrirhuguð lög verða að stofni alþjóðlega keppni og að nefnd til drög, sem samkomulag varð um á fundi ráðherranna á Möltu í fyrra, en auk þess er gert ráð fyrir, að leikvangarnir verði að hafa sérstakt leyfi til að halda manna fylgist með framkvæmd- inni hverju sinni. Samkvæmt lögunum eiga ríkis- stjórnir að „ábyrgjast” að yfir- völd íþróttamála, íþróttafélög og forráðamenn leikvanganna standi við eftirtalin at.iði: • Skilji að fylgismenn keppnis- liðanna og taki frá fyrir þá sérstök svæði. • Banni kunnum vandræða- mönnum aðgöngu. • Takmarki eða banni áfengis- sölu og -bjórs og sjái til, að umbúðirnar, ef sala er leyfð, geti ekki verið hættulegar. • Sjái til, að farið sé í einu og öllu eftir reglum UEFA, Knattspyrnusambands Evr- ópu. Þær þjóðir, sem gangast inn á þetta, verða einnig að setja lög þar sem dómstólum i hverju landi verður heimilað að sækja til saka óeirðaseggi hvaðan sem þeir koma og refsa þeim eins og þeir hafa unnið til. Nægur lögreglu- vörður verður að vera inni á leikvöngunum, utan þeirra og þar sem fylgismenn liðanna eru lík- legastir til að valda vandræðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.