Morgunblaðið - 07.07.1985, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.07.1985, Blaðsíða 1
96 SÍÐUR B/C STOFNAÐ 1913 151. tbl. 72. árg. SUNNUDAGUR 7. JÚLÍ 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins Harmleikurinn í Briissel: Þingmenn vilja að ráð- herra víki Britasel, 6. júli. AP. BELGÍSKIR þingmenn, nem rann- sakað hafa atburðina á Heysel- leikvanginum, þegar 38 manns fór- ust í skrflslátum fyrir upphaf knattspyrnukappleiks, krefjast af- sagnar innanríkisráðherrans, Charles-Ferdinand Nothomb, sem yfírmanns lögreglu landsins. Þingmennirnir segja að stuðn- ingsmenn knattspymufélagsins Liverpool hafi framið glæpinn og séu valdir að blóðbaðinu, en dug- leysi lögreglunnar sé óbeint um að kenna hvernig fór. Ennfremur er ábyrgðinni að hluta til skellt á Knattspyrnusam- bönd Evrópu (UEFA) og Belgíu. Lokun Beirútflugvallar: Líbanir ráðgast við Sýrlendinga Beirút, 6. júlí. AP. LEIÐTOGAR múhameðstrúar- manna í Líbanon koma saman til fundar í Uamaskus, höfuðborg Sýr- lands, nú um helgina. Þeir hyggjast ráðgast við stjórnvöld þar um leiðir til að binda enda á yfirráð herskárra shíta yfir flugvellinum í Beirút og koma á lógum og reglu í þeim hlut- um borgarinnar sem herflokkar stríðandi fylkinga múhameðstrúar- manna vaða uppi. OPEC-ríkin íhuga að stofna ný sölusamtök Vw, 6. júlí. AP. V Samkvæmt heimildum í Beirút fer Hussein Husseini, forseti líb- anska þingsins, sem er shíti, til Damaskus í dag. Rashid Karami, forsætisráðherra Líbanons, sem er sunníti, fer þangað á morgun, sunnudag. Nabih Berri, dóms- málaráðherra og helsti leiðtogi shita, fór til Damaskus á föstudag og er búist við því að hann verði þar fram á þriðjudag. Þá er von á Walid Jumblatt, leiðtoga drúsa, til borgarinnar í dag. Blöð sýrlensku stjórnarinnar gagnrýna í dag harkalega ákvörð- un Bandarikjastjórnar að banna bandarískum flugvélum að lenda á flugvellinum í Beirút. Sú ákvörðun var tekin í framhaldi af gíslamál- inu á dögunum. LEIÐTOGAR OPEC, samtaka olíuútflutningsríkja, íhuga nú að stofna ný samtök til að samhæfa olíusölu aðildarríkjanna. Subruto, olíuráðherra Indó- nesíu, sem er forseti OPEC, skýrði fréttamönnum, sem fylgj- ast með ráðherrafundi samtak- anna í Vín, frá þessu í morgun. Hann sagði, að hugmyndin væri sú að tryggja að tekjur OPEC- ríkjanna væru stöðugar og hindra snöggt verðfall á olíu. „OPEC-ríkin eru staðráðin í að verja markaðshlutdeild sína og olíuverðið," sagði Subroto við fréttamenn að loknum tveggja tíma fundi olíuráðherranna í morgun. Hann sagði að allir ráðherrarnir væru sammála um, að halda sig við núverandi verð, sem er 28 doltarar fyrir tunnuna, og breyta ekki framleiðslukvóta aðildarríkj anna. Francisco Labastida Ochoa, olíuráðherra Mexíkó, lét að því liggja í viðtali við hina opinberu fréttastofu landsins, að ríkis- stjórnin kynni að lækka verð á hráoliu einhliða, ef ekki tækist samkomulag um olíuverð á ráð- herrafundinum í Vín. Ochoa er áheyrnarfulltrúi á fundinum. ■ Mexíkó er umfangsmikill út- flytjandi olíu og fréttaskýrendur segja, að verði hráolía þaðan lækkuð í verði komist OPEC- ríkin 13 ekki hjá því að fylgja á Hreinsað til í Kremi Maakvu, 6. júlí. AP. HREINSAÐ var til í sovézka stjórnkerfinu í morgun og nú var ráðherra járns- og stálvinnslunnar, Ivan P. Kazanets, látinn víkja. Við starfi hans tók Serafim V. Kolpakov, sem verið hefur fyrsti aðstoðarráðherra Kazanets frá 1981. Mikhail S. Gorbachev flokks- leiðtogi gagnrýndi málmiðnaðinn harðlega í tvígang í siðasta mán- uði fyrir léleg afköst og slæma framleiðni. Kvað hann Sovétmenn mestu stálframleiðendur heims en samt líða krónískan skort á þeim málmi. Kemur það m.a. niður á hergagnaframleiðslunni. Kvað hann nauðsynlegt að hraða tækni- væðingu stálvera og gagnrýndi að- gerðarleysi í þeim efnum. Kazanets hefur farið með mál- efni járn- og stáliðnaðarins frá 1965, eða í tvo áratugi. Hann er 67 ára. Af opinberri hálfu heitir það að hann hafi látið af starfi „af heilsufarsástæðum". Dzhumber I. Patiashvili hefur verið skipaður leiðtogi Kommún- istaflokks Georgiu i stað Eduard A. Shevardnadze, sem gerður var utanríkisráðherra Sovétrikjanna fyrr í vikunni. Patiashvili hefur verið í stjórnmálaráði Georgíu- deildarinnar frá 1974. Hafði hann með landbúnaðarmál að gera. eftir. Fawzi Shakshuki, olíuráðherra Líbýu, sagði við fréttamenn er hann kom á fund OPEC-ráðherr- anna í morgun, laugardag, að hann væri þess fullviss að sam- komulag myndi nást. Hann kvað Líbýumenn ekki geta fallist á verðlækkun, en þeir gætu hins vegar sætt sig við að dregið yrði úr framleiðslunni sem næmi allt að hálfri annarri milljón tunna á dag. Oliuframleiðsla OPEC-ríkj- anna hefur numið 16 milljónum tunna á dag, en minnkandi eftir- spurn og aukin olíuframleiðsla ríkja utan samtakanna, s.s. Bret- lands, hefur haft það í för með sér að undanfarna tvo mánuði hefur framleiðslan verið 14 millj- ónir tunna á dag. Orka í bráðnu bergi virkjuð Lo« AnfEelrH, 5. júli. AP. Á VEGUM handaríska orkuráóuneytsins veróur á næstunni boraó nióur í kvikuþróna í því skyni að nota jaróvarmann í bráónu bergi til orku- framleióslu. Kosta mun 20 milljónir dollara aó bora holuna, en verkió allt, þ.m.t. bygging orkuvers, 100 milljaróa króna. Borað verður niöur í kviku- þróna á árinu 1988, samkvæmt áætluninni, i Kaliforníu eða Oregon. Holan verður um 5 kíló- metra djúp, og hefur ekki áður verið borað jafn djúpt i þessu skyni. Borað var niður í kviku- þróna undir eldfjallinu Kilauea á Hawaii fyrir nokkrum árum, en 8Ú hola var aðeins nokkur hundruð metra djúp. Köldu vatni verður dælt niður milljónir dollara, eóa jafnvirói 4.2 í kvikuþróna, þar sem það breyt- ist í gufu, og gufan mun knýja hverfla, sem framleiða rafmagn. Núverandi jarðhitaver nýta ým- ist gufu eða heitt vatn af hlut- fallslega litlu dýpi til orkufram- leiðslu. Jarðvísindamenn segja að þannig verði um hnútana búið að engin hætta verði á að kvikan þröngvi sér upp um holuna og gos hefjist.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.