Morgunblaðið - 10.07.1985, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 10.07.1985, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLl 1985 19 Lokastyrjöldin Nýja brjóstaröntgentækiö í notkun. Röntgendeild Krabbameins- félagsins tekin í notkun KRABBAMEINSFÉLAGIÐ hefur tekið í notkun röntgentæki til myndatöku af brjóstum kvenna. Alþingi hefur nýlega sam- þykkt þingsályktunartillögu um skipulega leit að brjósta- krabbameini með röntgenmyndatöku og Matthías Bjarnason heilbrigðisráðherra hefur lýst því yfír að slík leit muni hefjast eigi síðar en árið 1987. íslendingar ættu að geta orðið fyrstir til að láta slíkar rannsóknir ná til heillar þjóðar. Röntgenmyndataka af brjóst- um kvenna, sem hafa einkenni eða grun um sjúkdóm, hefur fyrir löngu sannað gildi sitt. Einnig er nú ljóst að mikils er að vænta af aðferðinni, sé henni beitt við skoðanir og eftirJit einkenna- lausra kvenna. Flest krabba- meina sem greinast við slika leit eru mjög lítið og finnst ekki við þreifingu. Þetta bætir lífshorfur kvennanna. Undanfarin ár hafa orðið mikl- ar breytingar á tækni og þekk- ingu á sviði röntgengreiningar krabbameina í brjóstum. Á síð- asta áratug hefur tekist að auka næmi myndkerfis, svo að geisla- skammturinn, sem nota þarf, er nú aðeins 1—2% af því sem áður tíðkaðist. Eftir að jákvætt álit svo- nefndrar mammógrafíunefndar landlæknisembættisins lá fyrir, á miðju ári 1984, barst Krabba- meinsfélaginu að gjöf finnskt röntgentæki af gerðinni Mamex DC. Var þá hafist handa við loka- hönnun húsnæðis, sem ætlað hafði verið undir röntgendeild í Skógarhlíð 8. Pöntuð voru jaðar- tæki og innrétting húsnæðisins hafin. Deildin var formlega tekin í notkun 30. maí sl. Hin nýja röntgendeild skiptist í tvennt, annars vegar til frum- myndatöku í skipulegri leit, hins vegar til myndatöku við sérskoð- un á þeim konun sem rannsaka þarf nánar. Fyrst um sinn mun finnska tækið verða notað til að taka myndir af brjóstum kvenna, vegna grunsamlegra breytinga eða aukinnar áhættu. Innan tíðar verður tekið í notk- un annað röntgentæki, sem Rauði kross fslands gaf. Það er franskt, af gerðinni Senographe 500 T, mjög fullkomið og fyrst og fremst ætlað til framhaldsrannsókna. Tækið er búið geislasíu, sem nota má til að auka andstæður í mynd- inni, og hægt er að taka stækkaða mynd af grunsamlegum breyting- um. Þá mun fylgja fullkominn út- búnaður til að taka nálarsýni úr grunsamlegum svæðum sem sjást á myndum, en finnast ekki við þreifingu. í framtíðinni er þörf fyrir röntgentæki til að flytja á milli heilsustöðva utan höfuðborgar- svæðisins. Hafin hefur verið fjár- söfnun til kaupa á slíku tæki. Erlendar bækur Siglaugur Brynleifsson Mario Vargas Llosa: The War of the End of the World. Faber and Faber 1985. Höfundurinn, Mario Vargas Llosa, fæddist í Perú 1936. Hann hlaut menntun í Perú og síðar í Madrid og París. Eftir átján ára dvöl og ritstörf í Evrópu og Bandaríkjunum hélt hann til Perú og settist að í Lima skömmu áður en lýðræði var komið þar á aftur. Hann var forseti PEN frá 1976—79. Kröfur hans um mál og ritfrelsi hafa vakið reiði bæði til hægri og vinstri. Hann hefur stundað bók- menntarannsóknir m.a. á verkum Garcia Marquez, Flaubert, Sartre og Camus. 1984 var honum boðið forsætisráðherra embættið í Perú, hann hafnaði því. Meðal skáld- sagna hans eru: Conversation in the Cathedral, Aunt Julia and the Scriptwriter (1983). Skáldsögur Llosa hafa hlotið mjög lofsamlega dóma og margir telja hann meðal snjöllustu suður-amerískra höf- unda. Þessi bók, kom fyrst út á ensku í Bandaríkjunum og Kan- ada (1984). Þetta er söguleg skáldsaga, sem styðst við atburði, sem áttu sér stað í Brasilíu á öldinni sem leið. Dularfullur spámaður kemur fram, sem talinn var frelsarinn endurkominn, hann taldi að heimsendir væri í nánd og stofnar nýtt lýðveldi, Canudos, þar sem frelsi og fögnuður ríkir. Allir út- skúfaðir áttu þar hæli og fylgdu honum, skækjur, betlarar, þjófar og morðingjar. Spámaðurinn fer um landið, áminnir klerkdóminn og biðst fyrir í kirkjunum. Alþýða manna trúir á hann og furðusögur komast á kreik. Á þessum árum var Brag- ansa-ættin svipt völdum í Brasilíu og stofnað lýðveldi. Kviksögur koma upp um undirbúning kon- ungssinna að valdaráni og það er tengt spámanninum. Spámaður- inn er talinn hættulegur lýðveld- inu og eftir að hann hefur stimpl- Mario Vargas Telosa að „lýðveldið" sem Antikrist, þá er þetta orðið pólitískt mál. Her- flokkum er stefnt gegn spámann- inum en þeir eru gjörsigraðir fyrst í stað. Sagan gerist í nokkrum hlutum, landeigendur og fyrrverandi þrælaeigendur koma til sögunnar, frjálslyndir aðdáendur nýrra hátta og tæknivæðingar, anarkisti frá Evrópu o.fl. o.fl. Persónurnar eru fjölmargar og mannlífið ákaf- lega litauðugt, grimmt og safa- mikið. Mannlífið er lítils virði og trúin á kraftaverk sjálfsögð. Höfundurinn vekur upp þetta gamla samfélag og andrúmsloft þess mettar lesandann, hann lifir í þessum heimi, villtrar náttúru, óskaplegra fjarlægða og hrika- legra atburða. Andstæðurnar í mannlífi og náttúru, lífsskoðunum og stjórnmálum magnast eftir því sem líður á sögutímann. Lykilmynd af byltingum í Suður-Ameríku fyrr og síðar. Trú- arleg hýstería, heimsendavon, kapítalismi, anarkismi, hugsjónir, heift og ást. Lifandi og safamikil saga. BRAUTARHOLTI 33 - SÍMI: 6212 40 # VIÐ ERUM í hjarta borgarinnar viö Brautarholt. # VIÐ HÖFUM rúmgóöan sýningarsal og útisölusvæöi. # VID BJÓÐUM mikið úrval notaðra bíla af öllum geröum. # VID VEITUM góða og örugga þjónustu Baldur F. Sigfússon yfirlæknir, Þuríður Halldórsdóttir og Sigríður Kristjáns- dóttir röntgentæknar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.