Morgunblaðið - 20.07.1985, Blaðsíða 1
48 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
160. tbl. 72. árg.
LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sjónarvottar að náttúruhamförunum á Norður-Ítalíu:
„Héldum að nú væri
kominn heimsendir“
Austuri
Sviss
Ítalía
AP/Sfmamynd
Tórfnó, 19. jólf. Frá Brynju Tomer, rrétUriUra MorjfunblaósinH. AP.
„VIÐ HÉLDUM að kominn væri heimscndir," sagði fólk sem komst sf er 50
metra há flóðbylgja æddi niður Fiemme-dal nyrst i Ítalíu upp úr hádegi.
Sópaði hún með sér fjórum hótelum og 20 íbúðarhúsum i þorpinu Stava og
a.m.k. 220 manns fórusL Heilu fjölskyldurnar biðu bana á þessum vinsælu
ferðamannaslóðum, ofarlega f Dólómítunum, er garðar uppistöðulóns við
flússpatnámu brustu með þeim afleiðingum að um 150 þúsund rúmmetrar
vatns æddu niður þröngan dalinn. Að sögn Ólafs Gíslasonar fararstjóra hjá
Samvinnuferðum í Rimini og Ingiveigar Gunnarsdóttur fararstjóra Utsýnar í
Lignano voru engir íslendingar á þessum slóðum á vegum feröaskrifstof-
anna.
Flestir þeirra 220, sem taldir
eru af, eru útlendir ferðamenn. í
kvöld höfðu 78 lik fundist og 15
mönnum verið bjargað úr eðju,
sem vatnsflaumurinn skildi eftir
sig. Björgunarstarf, sem Giuseppe
Zamberletti ráðherra almanna-
varna stjórnar, gengur erfiðlega.
Strax eftir hamfarirnar voru 900
her- og slökkviliðsmenn fluttir á
þyrlum, þar sem vegir rofnuðu, en
rúmlega 4.000 brutust landleiðina.
Garður uppistöðulónsins gaf sig
vegna hás vatnsborðs í lóninu, en
geysimiklar rigningar hafa verið á
þessum slóðum undanfarið.
Verkamenn við lónið gerðu marg-
oft viðvart um sprungur í varn-
argarðinum síðasta árið, en við-
gerð var jafnan slegið á frest.
Sjónarvottar sögðust hafa heyrt
mikinn hávaða og töldu fjöllin
vera að hrynja í jarðskjálfta. í
kjölfar gífurlegra skruðninga
hefði flaumur vatns, eðju og trjáa
farið í hendingskasti framhjá.
Kraftaverk þykir að 50 skáta-
drengir frá Mílanó, á aldrinum
13—15 ára, skyldu sleppa. Þeir
Hvalveiðar í vísindaskyni:
ætluðu að reisa tjöld í dalbotnin-
um, en vegna rafmagnstruflana
seinkaði hádegisverði þeirra i húsi
í fjallshlíðunum og þar með för
þeirra niður í dalinn.
í þorpinu Stava, sem er nálægt
borginni Trento, er nú fátt sem
bendir til að þar hafi staðið fjögur
hótel og 20 hús í morgun. Flóð-
bylgjan tók með sér húsin öll og
hótelin Erika, Stava, Miramonti
og mestan hluta Dolomiti, en í
þeim voru 170 gestir.
Frá flóðasvæðinu í Fiemme-dal á
Norður-ltalíu. Björgunarmenn leita í
rústum húss sem slútir fram af und-
irstöðu sinni, en hún sópaðist að
hluta í burtu með vatns- og eðju-
flaumnum. Á innfelldu myndinni er
kort sem sýnir afstöðu þorpsins
Stava, þar sem um 220 manns fór-
• ust
Alþjóðahvalveiðiráðið
féllst á sjónarmið okkar
— segir Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra
Bournemouth 19. júli. Frá Ómnrí Vnldimaranyni, blnénmanni Morpinblaémna.
„ÞETTA hefur verið mjög erfítt en ég tel að við getum verið ánægðir með
niðurstöðuna,“ sagði Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins í lok 37. ársfundar Alþjóðahvalveiðiráðsins hér í
AP/Simamynd
Heim í dag
Ronald Reagan Bandaríkjafor-
seti gefur til kynna að hann sé
búinn að ná sér vel eftir upp-
skurð si. laugardag. Forsetinn
átti að útskrifast af sjúkrahúsi í
dag, laugardag.
dag.
Eftir marga maraþonfundi, sem
stóðu fram undir morgun síðast-
liðna nótt, tókst sjávarútvegs-
ráðherra að fá felld út úr ályktun-
artillögu Svía og Svisslendinga,
sem sagt var frá í Morgunblaðinu
í gær, ákvæði um að bannað yrði
að selja allar afurðir hvala, sem
veiddir yrðu í vísindalegum til-
gangi. Sú tillaga hefði kippt
grundvellinum undan þeim ítar-
legu rannsóknum á hvalastofnin-
um við ísland sem ríkisstjórnin
hyggst láta gera á næstu árum.
Sömuleiðis féll ráðið frá þvf að
taka beina afstöðu til rannsókna-
áætlana íslendinga sem hyggjast
veiða 200 hvali á ári næstu fjögur
árin.
„Þetta þýðir að ráðið fellst á það
sjónarmið okkar að við höfum
óskoraða heimild til að gera það
sem við höfum ætlað okkur,“ sagði
sjávarútvegsráðherra. „Ráðið lýs-
ir að vísu yfir áhyggjum sínum
sem ég tel eðlilegt. Því vissulega
er hægt að misnota heimildir til
að stunda hvalveiðar i vísinda-
legum tilgangi."
Halldór Ásgrfmsson sagði að ís-
lenska sendinefndin myndi á
næstunni meta ýmis þau ráð sem
hún hefði fengið frá vísinda-
mönnum annarra þjóða hér og að
ríkisstjórnin myndi sfðan taka
ákvörðun um framhald málsins.
Undirbúningur hvalrannsóknanna
hefst á næstu vikum.
Róðurinn hefur verið mjög
þungur hér fyrir íslensku sendi-
nefndina, enda er mikill meiri-
hluti í ráðinu andvígur hverskon-
ar hvalveiðum. íslendingar hafa
til dæmis hvað eftir annað verið
sakaðir um að ætla að halda
áfram að stunda hvalveiðar í at-
vinnuskyni á fölskum forsendum.
Á lokuðum fundum í nótt varaði
Halldór Ásgrímsson mjög alvar-
lega við áðurnefndri tillögu Svía
og Svisslendinga. „Ég taldi þessa
tillögu stríða gegn fundarsköpum
hér og stofnsamningi Alþjóða-
Nýju Delhí, 19. júlí. AP.
ÞEIR sem vinna að rannsókn slyss-
ins þegar fíugvél indverska fíugfé-
lagsins fórst við strönd írlands í síð-
asta mánuði segja að helztu raf-
eindatæki vélarinnar hafí bilað sam-
tímis og það styður þær grunsemdir
hvalveiðiráðsins," sagði ráðherra.
„Ég lagði áherslu á að það gæti
verið mjög alvarlegt fyrir framtíð-
arstarf ráðsins ef slík tillaga yrði
samþykkt."
Hann sagðist ekki hafa hótað
úrsögn íslendinga úr Alþjóða-
hvalveiðiráðinu en hins vegar
hefði hann bent á að ef tillagan
yrði samþykkt — sem fullt útlit
var fyrir — myndu íslendingar
„endurskoða ýmislegt varðandi
þessi mál og undir það tóku marg-
ar þjóðir”, eins og sjávarútvegs-
ráðherra orðaði það.
að sprenging hafí orðið í flugvélinni.
Komizt var að þessari niður-
stöðu eftir rannsókn á hljóðritan-
um í flugstjórnarklefa flugvélar-
innar og flugritanum.
Sjá nánar á bls. 22.
Sprenging í þotunni