Morgunblaðið - 24.07.1985, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 24.07.1985, Blaðsíða 55
MORGUNBLADIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLl 1985 55 mmt • Guðmundur Steinsson skorar hér fyrsta mark leiksins í gær. Skot hans fré hliðarlínu mark- teigs ratar í markið, Ögmundur nser ekki að hafa hendur á bolt- anum. Fram sigraði verðskuldað 2:0 á Laugardalsvelli. son komst einnig tvívegis í gegn- um vörn Víkings og átti aöeins Ögmund markvörö eftir sem tók bæöi skot hans. Þaö er aöeins hægt aö tala um eitt færi í hálfleiknum hjá Víkingi, þaö var er Einar Einarsson átti hörkuskot frá vítateig sem smaug rétt framhjá stönginni. Framarar voru góöir í þessum leik, þótt ekki tækist þeim að skora úr þeim aragrúa færa sem þeir fengu, nema tveimur. Þaö skipti ekki máli þótt þeir léku tiu mest allan hálfleikinn, þeir voru mun betri aöilinn fyrir þaö. Víkingur átti aldrei möguleika i þessum leik og viröist falliö blasa viö liðinu sem var aö tapa sínum tíunda leik i röö. Leikmenn eru Enn eitt tap Vfldnga FRAM vann verðskuldaöan sigur, 2—0, á Víkingi í 1. deild íslands- mótsins í knattspyrnu. Þetta var jafnframt tíunda tap Víkings í rðö og er ekki margt sem getur bjargað þeim úr þessu. Þeir hafa aðeins unniö einn leik, fyrsta leik sinn í mótinu, gegn Val. Þetta var leikur glataöra tækifæra hjá Fram. Leikmenn liðsins áttu að geta gert tvö til þrjú mörk til viöbótar. Viðar Þorkelsson var rekinn af leikvelli fyrir aö slá einn leikmann Víkings utanundir í byrjun síöari hálfleiks. Það dugði ekki fyrir Víking, þeir náðu ekki að skapa sér færi þótt þeir væru einum leikmanni fleiri síðasta hálftímann. Framarar sóttu frá upphafi og skall hurö oft nærri hælum viö mark Víkings, leikurinn fór aö mestu fram á þeirra vallarhelmingi. Pétur Ormslev fékk fyrsta mark- tækifæri leiksins er gott skot hans var variö á linu. Tiu mínútum síöar komst Ómar Torfason einn innfyrir vörn Vik- ings, lék á Ögmund markvörö og var aöeins of seinn og skaut í hliö- arnetiö. Stuttu seinna áttí Guö- mundur Torfason skot en rétt framhjá. Fyrsta mark leiksins kom svo á 31. mínútu. Guömundur Steinsson skoraöi eftir mikinn ein- leik upp aö endamörkum og skot hans úr þröngri stööu út viö hliö- arlínu for beinustu leið í markiö efst í horniö nær óverjandi fyrir Ögmund (sjá mynd). Fjórum mínútum síöar klúöraöi Guömundur Torfason dauöafæri er hann komst innfyrir og lék á Ögmund og átti aöeins eftir aö renna knettinum í netiö en á óskilj- anlegan hátt hitti hann ekki mark- iö. Fram komst í 2—0 á 38. mínútu, þá skoraöi Kristinn Jónsson eftir stórglæsilega sóknarflóttu Fram- ara, þar sem Guömundur Torfason rak endahnútinn á og gaf á Krist- inn sem kom á fullu í gegnum Fram — Víkingur 20 vörnina og skoraði auöveldlega. Þannig var staöan í hálfleik. Sama var upp á teningnum í seinni hálfleik. Fram sótti en færin fóru öll forgöröum. Ómar komst tvívegis í gegn, en Ögmundur varöi skot hans vel. Guömundur Torfa- margir hverjir nettir meö knöttinn og reyna þeir óspart aö sýna þaö og bitnar þaö óneitaniega á leik liösins. Eini leikmaöurinn sem stóö uppúr slöku liöi Víkings var Ög- mundur Kristjánsson sem varöi oft meistaralega í seinni hálfleik. i ctuttu méli: Laugardalsvöllur 1. deild. Fram — Vikingur 2:0 (2:0). Mörfc Fram: Guómundur Steinsson á 31. min- útu og Kristinn Jónsson á 38. minútu. Gul spiöld: Kristínn Helgason. Gylfi Rútsson og Aóalsteinn Aóalsteinsson allir úr Víkingi Rauó spiöld: Viöar Þorkelsson. Fram. Dómari: Guómundur Haraldsson og dæmdi hann mjög örugglega og lét leikmenn ekki komast upp meö neina hörku. Áhorfendur: 911. Einkunnagjöfin: Fram: Friórik Frióriksson 3, Þorsteinn Vil- hjálmsson 3, Ormarr örtygsson 3, Sverrir Ein- arsson 3, Pétur Ormslev 2. Viöar Þorkelsson 2, Kristinn Jónsson 4, Guómundur Steinsson 3, Ómar Torfason 3, Guómundur Torfason 3 og Asgeir Elíasson 3. Víkingur: ögmundur Kristjánsson 3, Gytfi Rútsson 2, Aðalsteinn Aöalsteinsson 3, Trausti Ómarsson 2, Kristinn Helgason 2, Ámundi Sigmundsson 1, Andri Marteinsson 2, Atli Einarsson 1, Einar Einarsson 2, Björn Bjartmarz 2, Jóhann Holton 1, Þóróur Mar- eisson 2 (vm). Glæsi- mark hjá Jóni Þóri Morgunblaöiö/Bjarni • Breiðablik sigraði Njarövík 2—0 á Kópavogsvelli í gærkvöldi. Hér er Hákon Gunnarsson að kljást um knöHinn við einn leikmann Njarðvík- inga. BREIÐABLIK vann öruggan sigur, 2:0 á Njarðvíkingum í 2. deildinni í knattspyrnu í Kópavogi í gær- kvöldi. Blikarnir eru þvi enn á toppi deildarinnar ásamt KA. Blikarnir voru mun betri i fyrri hálfleik í gærkvöldi og skoruöu þá bæöi mörk sín. Eftir aö liöiö haföi fengiö nokkur mjög góð marktæki- færi kom fyrsta markiö loksins á 37. mínútu. Þvílíkt markl Heiöar Heiöarsson gaf fyrir frá hægri á Jón Þóri Jónsson, sem var skammt utan vítateigs, fyrir miðju. Jón afgreiddi knöttinn viöstööu- laust og þrumufleygur hans small í stönginni áöur en hann þandi netamöskva Njarðvíkurmarksins. Sannkallaö gullmark. Einni mínútu fyrir leikhlé var Há- kon Gunnarsson felldur í vítateig Njarövikinga — vítaspyrna rétti- lega dæmd og Jón Þórir skoraöi sitt annaö mark í leiknum af ör- yggi, þrumaöi í hliöarnetið. Síöari hálfleikur var leiöinlegur á aö horfa, liðin skiptust á um aö sækja og Njarövíkingar voru sterkari ef eitthvað var. Marktæki- færi voru nánast engin. Sigur UBK var sanngjarn eins og áöur segir. Bestu menn liðsins voru miöjumaöurinn Guömundur Baldursson, mjög skemmtilegur leikmaöur, og Jón Þórir Jónsson. Njarövíkingar voru slakir og leikmenn liösins veröa aö taka á honum stóra sínum ef ekki á illa aö fara. Tveir Blikar fengu gult spjald, Guömundur Baldursson og Stein- dór Elísson. Áhorfendur voru 180. Góöur dómari var Gylfi Orrason. — SH Völsungur tapaði LEIFTUR frá Ólafsfirði vann sinn annan sigur í röð í gærkvöldi þegar liðið sigraöi Völsung fré Húsavík í 2. deildinni í knatt- spyrnu. Leíkurinn fór fram á Ólafsfírði og uröu úrslit þau að Leiftursmenn skoruöu eitt mark en Húsvíkingar ekkert. Þaö var strekkingsvindur þegar leikurinn fór fram og eina mark leiksins kom strax á 10. minútu. Þá var darraöardans i vítateig Húsvik- inga og Helgi Jóhannsson, Helga- sonar, skallaöi knöttinn í netið. Liöin sóttu á víxl en tókst ekki að skapa sér umtalsverö mark- tækifæri. Nokkur harka var i leikn- um og á tíöum sáust skemmtilegir samleikskaflar en mörkin voru sjaldnast í hættu. Völsungar sóttu meira í síöari hálfleik, undan vindinum, en Leift- ur átti skyndisóknir sem voru hættulegar. Varnarleikur Ólafsfirö- inga var aöal liösins aö þessu sinni. Varnarmönnunum tókst mjög vel aö halda hættulegum sóknarmönnum Völsunga í skefj- um. — já. Tekiö upp í dag Dömu-, herra- og barnatréklossar ALDREI MEIRA ÚRVAL Póstsendum GEísiP^ i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.