Morgunblaðið - 02.10.1985, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 02.10.1985, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER1985 7 Yfirlitssýning á verkum Kjarvals: Elsta myndin máluð er Kjarval var sextán ára REYKJAVÍKURBORG efnir til yfir- litssýningar á verkum Jóhannesar Sveinssonar Kjarvals í tilefni af því að 15. október nk. eru liðin hundrað ár frá fæðingu hans. Sýningin verður opnuð á Kjarvalsstöðum á afmæiis- daginn. Að sögn Þóru Kristjánsdóttur listráðunautar á Kjarvalsstöðum hafa verið valin 200 verk á sýning- una af þeim tæplega 3000 málverk- um og teikningum eftir Kjarval sem skráð eru á Kjarvalsstöðum. Stór hluti þeirra verka sem sýnd verða eru í einkaeign og hafa ekki fyrr verið sýnd opinberlega. Elsta myndin á sýningunni, Illa Rauðka, er máluð 1901, er Kjarval var sextán ára gamall, en sú yngsta er frá 1968. Ljósmyndir af Kjarval frá ýms- um tímum verða á sýningunni, svo og munir úr fórum hans. Þá verða til sýnis ljóðabækur eftir Kjarval og safn ritgerða eftir hann. í tengslum við sýninguna verða fluttir fyrirlestrar um Kjarval og sýndur verður þáttur um hann af myndbandi. í sýningarskrá verða birtar greinar um Kjarval, mynd- list hans og ritverk. Morgunblaðið/RAX Þóra Kristjánsdóttir heldur hér á elstu myndinni á sýningunni, Illu Rauðku, sem máluð var árið 1901, er Kjarval var 16 ára. Sýningin stendur yfir frá 15. október, eins og áður sagði, til 15. desember. „Fráleitt að segja að við látum sem Pólýfón- kórinn sé ekki til“ segir Hákon Sigurgrímsson Svo virðist sem tónlistarunnendur geti átt von á því að hlusta á verkið Carmina Burana eftir Carl Orrf tví- vegis í vetur, annars vegar flutt af Sinfóníuhljómsveitinni og kór ís- lensku hljómsveitarinnnar og hins- vegar af Pólýfónkórnum. Eins og fram kom í blaðinu í gær hefur einhver ágreiningur komið upp milli stjórnenda Pólýfónkórs- ins og stjórnenda Sinfóníunnar varðandi flutning verksins á kom- andi vetri. Ingólfur Guðbrandsson segir í blaðinu í gær að stjórn Sinfóní- unnar hafi ekki svarað margítrek- uðu erindi kórsins um flutning verksins og segir að kór Islensku óperunnar hafi verið úthlutaður flutningur Carmina Burana löngu eftir að Pólýfónkórinn hafi sett það á efnisskrá sína fyrir næsta starfsár. Hann heldur því einnig fram að hér sé um að ræða við- skiptasamning framkvæmda- stjóra Sinfóníuhljómsveitarinnar við íslensku óperuna og Söngskól- ann í Reykjavík. Morgunblaðið hafði í gær sam- band við Hákon Sigurgrímsson stjórnarformann Sinfóníuhljóm- sveitar íslands vegna ummæla Ingólfs Guðbrandssonar. Hákon sagði að það væri fráleitt að halda því fram að Sinfóníu- hljómsveitin léti sem Pólýfónkór- inn væri ekki til. Kórnum hefði verið boðin samvinna um að flytja Messías, eða eitthvert stórverka Bachs, í desember ’86, þá væntan- lega í Hallgrímskirkju. „Varðandi það að við höfum ekki svarað erindi kórsins, þá var bréfið sem kórinn sendi tekið fyrir á næsta stjórnarfundi eftir að það barst, og ákvörðun tekin og því svarað. Við erum alltaf að velja flytj- endur fyrir hin ýmsu viðfangsefni og reynum að velja þá eftir því sem best hentar hverju viðfangsefni. Pólýfónkórinn hefur margsýnt, að það fer enginn annar í fötin þeirra hvað varðar flutning á kirkjuleg- um verkum Bachs og Hendels, þess vegna veljum við Pólýfónkórinn til að flytja þau verk. En á undan- förnum árum höfum við stefnt að því að hafa samvinnu við fleiri kóra, Fílharmóníukórinn og það er okkar mat að kór íslensku óper- unnar sé kór sem sé mun forvitni- legt að hlusta á þegar um ræðir viðfangsefni eins og Carmína Burana. Það er enginn dulinn samningur í þessu fólginn, við höfum eingöngu samið um flutning á þessu eina verki, við höfum einnig samið um flutning við báða karlakórana á milli, Þjóðleikhúskórinn og árum saman við Fílharmóníu, og kór Menntaskólans við Hamrahlíð og þessi samningur er gerður á sama grundvelli og aðrir slíkir samning- ar. Það er fráleitt að tala um að leggja Pólýfónkórinn niður til að aðrir fái að njóta sín, eins og Ingólfur segir í lokin. Mér finnst, að það boð sem stjórnin gerði kórn- um um að flytja Messías sé einmitt til þess fallið að gera kórnum kleift að lifa og starfa áfram. AFMÆLI í ENGIN SMA Sumargleði Matseöill Rj&malöffud humarsúpa Grísahnetusteik Mokkaís m/konfekti og rjóma Ingimar Eydal leikur fyrir matargesti Nú er um aö gera aö tryggja sér miöa tímanlega á gleðileik Sumargleöinnar sem aldrei hef- ur veriö betri en nú. Miðasala og boröapantanir í síma 77500 var mál manna sem sáu þá félaga á afmælishátíðinni um helgina í Broadway Sumargleðin er frábær skemmtun sem fólk ætti ekki að láta fram hjá sér fara. 17 úrvals skemmtikraftar með þá Ragga Bjarna, Ómar Ragnarsson, Bessa Bjarna, Magga Óla og Hemma Gunn í fararbroddi sem fara á kostum í stórglæsilegri sýningu sem býður upp á söng, dans, grín og gleði eins og best veröur á kosið. Nú greíöum víó gíróseóílínn viö arögum 12. okt. Verum öll meó byööingu tónlistarhúss Samtcfc um byggingu tónlistarhúss
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.