Morgunblaðið - 16.10.1985, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.10.1985, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR16. OKTÓBER1985 Fjárlagafrumvarpið 1986: Tekjur 33,5 miUjarðar kr. Lánsfjárþörf ríkissjóðs 4,5 milljarðar kr. SAMKVÆMT fjárlagafrumvarpinu sem lagt var fram á Alþingi í gær verða heildartekjur ríkissjóðs á árinu 1986 33,540 milljaröar króna. Heildargjöld verða 33,417 milljarðar kr. og er tekjuafgangur því um 122 milljónir kr. Samhliða fjárlögunum var lagt fram frumvarp til lánsfjárlaga fyrir árið 1986 og kemur þar fram, að heildarlánsfjárþörf ríkissjóðs verður um 4,5 milljarðar króna. Veitt er heimild til erlendrar lántöku að upphæð um 2,7 milljarðar og innlendrar lánsfjáröflunar að upphæð um 1,8 milljarða króna. 1 athugasemdum við fjárlaga- frumvarpið segir, að það einkennist af áframhaldandi viðleitni ríkis- stjórnarinnar til að draga úr þenslu í þjóðarbúskapnum og sporna gegn viðskiptahalla og verðbólgu, ná jafnvægi í fjármálum ríkisins og hamla gegn vexti opinberra um- svifa. Ennfremur segir í athugasemd- Albert Gudmundsson fjármálaráðherra: Flýtti greiðslum til KR og Fram „ÉG FLÝTTI greiðslu til tveggja íþróttafélaga í Reykjavík, þannig að það er ekki um eiginlega styrki að ræða,“ sagði Albert Guðmunds- son fjármálaráðherra í samtali við Morgunblaðið í gær, og upplýsti jafnframt að hann hefði flýtt greiðslu um tveggja milljóna króna til Knattspyrnufélags Reykjavfkur og hálfrar milljón króna greiðslu hefði hann (lýtt til Knattspyrnufélagsins Fram. Fjármálaráðherra sagði að hér væri um fé að ræða, sem félögin ættu að fá samkvæmt lögum, en hefðu að öðru jöfnu ekki fengið vegna niðurskurðar til Félagsheimilasjóðs. Hann hefði ákveðið að KR fengi þessa fjármuni til þess að geta lokið við æskulýðsmiðstöð þá sem er nú á lokastigi, og Fram fengi hálfa milljón til þess að hægt væri að halda áfram fram- kvæmdum, sem hefðu legið niðri vegna þess að fjármagn skorti til efniskaupa. Albert lagði áherslu á að hér væri um félags- starf íþróttafélaganna að ræða, sem að mestum hluta væri unnið í sjálfboðavinnu. Fjármálaráðherra sagði að hér væri ekki um aukafjárveit- ingu til félagsheimilasjóðs að ræða, því hann ráðstafaði ekki þessu fé, heldur sæi einungis um afgreiðslu til íþróttafélaganna. unum, að með frumvarpinu náist þrjú meginmarkmið. í fyrsta lagi sé erlendum lántökum stillt í hóf, þannig að nýjar erlendar lántökur opinberra aðila verði ekki meiri en nemi afborgunum eldri gengis- bundinna lána. í öðru lagi sé með frumvarpinu séð til þess að sem næst jöfnuður verði á rekstri ríkis- ins. í þriðja lagi er stefnt að því að umsvif ríkisins verði ívið minni en á yfirstandandi ári. Hlutfall ríkisútgjalda af þjóðarframleiðslu verði þannig 27,6% miðað við hið nýja uppgjör þjóðhagsreikninga, en sé áætlað 27,9% í ár. Sjá nánar á þingsíðu á bls. 29. Farþegi höfuðkúpubrotnaði Mortrunbladið/Júlíus GEYSIHARÐUR árekstur varð í Kópavogi á gatnamót- um Borgarhólsbrautar og Urðarbrautar kl. 19.50 í gærkvöldi. Mazda skutbíll sem var að koma suður Urðarbrautina ók í veg fyrir Citroen-bifreið sem kom á miklum hraða vestur Borgarhólsbraut. Ökumaður Mazda-bifreiðarinnar hafði numið staðar við stöðvunarmerki, en ók síðan hægt af stað yfir Borgarhólsbrautina, og að sögn lögrelgunnar hefur hann greinilega ekki gert sér grein fyrir því hversu hratt Citroén-bifreiðina bar að. Höggið þegar bílarnir lentu saman var svo mikið að Mazda-bifreið- in hentist um 15,. metra vegalengd. Ökumaður Mazda-bifreiðarinnar slapp þó ómeiddur, en þrír menn voru í Citroén-bílnum og slösuðust þeir allir, farþegi í framsæti alvarlega. Hann höfuðkúpubrotn- aði, en er ekki talinn í lífshættu. Grunur leikur á að ökumaður Citroén-bílsins hafi verið undir áhrif- um áfengis. Aðkoman að slysstaðnum var mjög ljót, að sögn lögreglunnar, og segir hún að þessi gatnamót séu ein þau hættulegustu í Kópavogi. Árekstrar voru sérlega tíðir þarna áður fyrr en ástandið lagaðist eftir að sett var stöðvunarskylda á Urðarbrautina. Á hinn bóginn verða árekstrar þarna iðulega mjög harðir. Ekki er vitað um sjónarvotta að slysinu og biður lögreglan í Kópavogi þá sem kynnu að hafa orðið vitni að því að gefa sig fram. Már sleginn Ríkisábyrgða- sjóði á 110 milljónir króna Bæjarsjóður og 6 stærstu fiskvinnslufyrirtækin í Ölafs- vík og á Hellissandi gætu tapað stórum fjárhæöum Ólafsvík, 15. október. Frá Hirti Gíslasyni, blaðamsnni Morgunblaosins. TOGARINN Már SH frá Olafsvík var í dag sleginn Ríkisábyrgðasjóði fyrir 110 milljónir kr. á fyrra uppboði á skipinu hér í Ólafsvík. Annað og síðara uppboð verður 16. desember næstkomandi. Fiskveiðasjóður bauð 106 milljónir kr. í skipið og Lands- bankinn 107 og fór auk þess fram á annað og síðara uppboð. Skuldir að upphæð um 260 milljónir kr. hvfla á skipinu, sem kostaði um 26 milljónir komið til heimahafnar 1980. Útgerðarfélag skipsins, Útver hf., er í eigu Olafsvíkurbæjar að 40 hundraðshlutum, þrjú fisk- vinrislufyrirtæki í ólafsvík eiga 15 hundraðshluta hvert og þrjú fisk- vinnslufyrirtæki á Hellissandi eiga 5 hundraðshluta hvert. Skuldir á fyrsta veðrétti í skipinu við Fisk- veiðasjóð nema 105 milljónum, á öðrum veðrétti við Ríkisábyrgða- sjóð 73 milljónum og við Lands- bankann með sjálfskuldarábyrgð eigenda um 80 milljónum. Ljóst er að kaupi Landsbankinn ekki skipið verður hann að ganga eftir úti- standandi skuldum sínum við eig- endur skipsins. Með því móti fellur Morgunblaðid/Friðþjófur Jóhannes Árnason, sýslumaður Snæfellinga, slær Ríkisábyrgðasjóði togar- ann Má í gær. Smiðjuvegsmálið: Játar á sig öll ákæruatriði SIGURÐUR Adolf Frederiksen játaði sig sekan af ákæruatriðum ríkissak- sóknara við dómsyfirheyrslur í Sakadómi Kópavogs í gær — fyrir að hafa þann 15. mars síðastliðinn orðið Jósef Liljendal Sigurössyni að bana í trésmiðju í Kópavogi; slá hann að minnsta kosti þrisvar í höfuðið með járnröri svo Jósef féll í gólfið, stungið hann tvívegis með skrúfjárni — í kvið og andlit, síðan hellt lakkþynni eða öðrum eldfimum vöka yflr Jósef heitinn og lagt að eld, sem leiddi Jósef heitinn til dauða. Þá er Sigurður Adolf ákærður trésmiðjuna JHS-innréttingar, fyrir að hafa kveikt í Boða GK 24, sem er liðlega 200 lesta stál- skip, þar sem það lá í Keflavíkur- höfn og valdið verulegu tjóni, auk þess að hafa stofnað lífi tveggja manneskja í hættu. „Ég sá rautt“ Sigurður Adolf lýsti fyrir dómi aðdraganda manndrápsins. Hann kvaðst hafa hitt Jósef heitinn í veitingastaðnum Ypsil- on í Kópavogi og hefði Jósef boðið honum í partí. Sigurður Adolf kvaðst hafa verið mjög drukkinn. Þeir hefðu gengið yfir götuna í sem Jósef var eigandi að. Þar hefði Jósef hringt þrjú til fjögur símtöl, en enginn svarað hring- ingum hans og síðan sofnað fram á borðið. Sigurður Adolf kveðst hafa ýtt við Jósef, sem hefði brugðið og slegið hann í andlitið. „Ég sá rautt — tók járnrör og sló hann og síðan man ég lítið eftir mér fyrr en í Smiðjukaffi þegar ég var að þvo blóð af höndum mér,“ sagði Sigurður Adolf. Sigurður Adolf var spurður hversu oft hann hefði slegið Jósef heitinn. „Ég lamdi hann í höfuðið — þrisvar, fjórum sinnum. Hann sat við borðið og féll í gólfið. Ég man ég tók skrúfjárn og stakk hann,“ sagði Sigurður Adolf, en kvaðst ekki muna hvar. Hann kvaðst ekki hafa vitað til þess að hafa stungið Jósef heitinn í andlitið fyrr en hann hefði lesið um það í blöðum. Ætlaði að fela ummerki „Ég kíkti í veski hans — af hverju veit ég ekki, kveikti í og fór út. Ég veit ekki af hverju — ætli ekki til að fela ummerki." Sigurður var spurður hvort hann hefði ekki gert sér grein fyrir því, að Jósef heitinn var lifandi þegar eldur var borinn að honum. „Ég hugsaði ekki út 1 þetta — maður er í sjokki." Dómari spurði Sigurð Ádolf þá hvort hann hefði kannað hvort Jósef hefði verið lifandi. „Nei,“ var svarið. Sigurður Adolf kvaðst hafa farið út og þvegið hendur sínar og síðan hitt félaga sína. „Ég ætlaði heim, en þoldi ekki við — þoldi ekki hvað ég hafði gert og hugsaði um eldinn og lét vita að eldur væri laus í húsinu. Mig rámar i að hafa hringt og látið vita,“ sagði Sigurður Adolf. Dyraverðir í Ypsilon brugðust skjótt við og slökktu eldinn og slökkvilið og lögreglan í Kópa- vogi kom á vettvang. Lögreglu- menn tóku niður nöfn manna á staðnum — þeirra á meðal Sig- urðar Adolfs. Hann var síðan kallaður til yfirheyrslna hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins daginn eftir og þá vaknaði grun- ur um að hann hefði verið valdur að dauða Jósefs Liljendal Sig- urðssonar. um 32 milljóna kr. greiðsla á bæjar- sjóð, 12 milljónir á hvert fyrirtækj- anna þriggja í Ólafsvík og 4 milljón- ir á fyrirtækin þrjú á Hellissandi. Gjaldþrot vofir því yfir 6 stærstu fiskvinnslufyrirtækjunum í Ólafs- vík og á Hellissandi og fram- kvæmdastöðvum hjá Ólafsvíkurbæ næstu árin. Áætlað árlegt fé til framkvæmda á vegum ólafsvíkur- bæjar er um 8 milljónir kr. í ár og næstu ár en heildartekjur álíka miklar og skuldin við Landsbank- Víglundur Jónsson eigandi Hróa hf., eins þriggja umræddra fyrir- tækja í Ólafsvík, segist engan veg- inn borgunarmaður 12 milljóna kr. með litlum fyrirvara. Bankinn geti því alveg eins hirt eignir fyrirtæk- isins og sett þar upp útibú með fiskverkun i hjáverkum, eins og að ætla sér innheimtu þessarar fjár- hæðar á skömmum tíma. Bárður Jensson, formaður Verkalýðsfé- lagsins Jökuls, segir afleiðingar þess að skipið hverfi í byggðarlag- inu ófyrirsjáanlega erfiðleika og atvinnuleysi. Að öllum líkindum munu yfir 100 manns missa atvinn- una fari svo að skipið verði selt úr byggðarlaginu. Kristján Pálsson framkvæmdastjóri Utvers segir stööuna svona slæma í dag vegna svikinna vilyrða síðustu ríkis- stjórnar og gengisþróunar síðustu ára þar sem áhvílandi lán hafi öll verið f dollurum. Samkvæmt yfir- lýsingum stjórnvalda hafi lán úr FÍ8kveiðasjóði átt að nema 67% af kaupverði skipsins og 10% úr Byggðasjóði. Ekkert hafi komið úr Byggðasjóði og um 50% úr Fisk- veiðasjóði. Þetta tvennt hafi gert gæfumuninn því bilið hafi orðið að brúa með erlendum lánum með sjálfskuldarábyrgð í gegnum Landsbankann með mun hærri vöxtum en á lánum Byggðasjóðs og Fiskveiðasjóðs. Stefán Jóhann Sig- urðsson, forseti bæjarstjórnar og stjórnarformaður Útvers, segir heimamenn ákveðna í þvf að halda togaranum sé þess nokkur kostur. í því skyni muni þeir stofna hluta- félag til kaupa á togaranum að loknu uppboði. Svo það gangi verði að afskrifa eitthvað af skuldum skipsins eins og þegar hafi verið gert við uppboð á öðrum skipum. Skip eins og Má verði ekki hægt að reka fari kaupverð þess upp fyrir 190 rrtilliónir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.