Morgunblaðið - 09.01.1986, Blaðsíða 1
64SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
6. tbl. 72. árg.____________________________________FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR1986 Prentsmiðja Morgunblaðsins
AP/Símamynd
Reag-an á bladamannafundinum i fyrrinótt þegar hann skýrði frá
þvi til hvaða aðgerða Bandaríkjastjórn ætlaði að grípa gegn Khad-
afy, Líbýuleiðtoga.
Beirút:
Bardagar þrátt
fyrir vopnahléið
Beirut, 8. janúar AP.
KRISTNIR menn og múhameðs-
Viðbrögðin við ræðu Reagans um Khad^fy, Líbýuleiðtoga:
Lítill stuðningur
við refsiaðgerðir
Ríkisstjórnir í Vestur-Evrópu hafa litla
trú á, að efnahagsþvinganir beri árangur
Washington, London, Bonn, Moskvu, 8. janúar. AP.
NOKKURRAR vantrúar gætir meðal bandamanna Bandaríkj-
anna í Evrópu og víðar á að efnahagslegar refsiaðgerðir
gegn Líbýu geti komið að miklu gagni. Hafa ýmsar vestrænar
ríkisstjórnir ákveðið að taka ekki þátt í þeim en aðrar ætla
að sjá hverju fram vindur áður en þær ákveða sig. f ræðu
sinni í nótt fór Reagan, Bandaríkjaforseti, mjög hörðum
orðum um Khadafy, Líbýuleiðtoga, kallaði hann villimann og
kvaðst hafa óvefengjanlegar sannanir fyrir aðild hans að
hryðjuverkunum í Róm og Vín.
trúar skiptust i dag á skotum við
„grænu linuna'1, sem skiptir
Beirut, og til stórskotaliðsorr-
ustu kom milli drúsa og stjórnar-
hermanna, sem hollir eru
Gemayel, forseta. Virðist lítt
hilla undir margumræddan fríð.
Að sögn lögreglunnar særðust sjö
menn í átökunum í Beirut en þau
bijóta í bága við vopnahléið, sem
þrír valdamestu stríðsherramir í
Líbanon sömdu með sér fyrir tilstilli
Sýflendinga 28. desember sl. Stór-
skotaliðsátökin áttu sér stað í fjöll-
unum fyrir ofan Beirut en á báðum
vígstöðvum samdist um vopnahlé
þegar nokkuð var liðið á dag.
Gemayel, Líbanonsforseti, hefur
enn ekki undirritað samkomulagið,
sem gert var í Damaskus og er
ætlað að binda enda á styrjöldina
í landinu. Nabih Berri, leiðtogi shíta
og dómsmálaráðherra í stjóm
Gemayels, varaði í gær Gemayel
við „í síðasta sinn“ og sagði, að
kristnir menn yrðu að samþykkja
samninginn eins og hann væri.
Gemayel fer undir helgi til fundar
við Assad, Sýrlandsforseta, í Dam-
Winnie Mandela:
Áfrýjar brott-
vísun yfirvalda
Jóhannesarborg, 8. janúar. AP.
WINNIE Mandela, eiginkona
Nelsons Mandela, átrúnaðargoðs
svartra manna í Suður-Afríku,
hefur höfðað mál fyrir hæsta-
rétti landsins og viU hún fá ógilt
bann stjómvalda við þvi, að hún
búi i Soweto, úthverfi Jóhannes-
arborgar.
Fyrir átta ámm var Winnie skip-
að að dvelja í Orange, einu heima-
landi svertingja, en síðan í ágúst
hefur hún búið f Soweto. Hún hefur
tvisvar þverskallast við að flytja
aftur til heimalandsins.
askus og er búist við, að hann kveði
þá upp úr með afstöðu sína.
Ríkisstjómir á Vesturlöndum
hafa ekki tekið vel í þá áskomn
Bandaríkjastjómar, að gripið verði
til efnahagslegra refsiaðgerða gegn
Líbýumönnum. Vestur-Þjóðveijar,
Belgíumenn, Portúgalar og Spán-
veijar hafa hafnað því alveg, Bretar
em að íhuga málið og ítalir ætla
ekki að hafast neitt að nema í
samvinnu við aðrar Evrópuþjóðir. í
Evrópu em menn lítt trúaðir á, að
efnahagslegar refsiaðgerðir geti
yfírleitt einhver áhrif haft en auk
þess gætir nokkurrar óánægju með,
að Bandaríkjastjóm skyldi ekki
hafa haft samráð við bandamenn
sína áður. Aðeins Astralíustjóm
hefur lýst áhuga á að fara að dæmi
Bandaríkjamanna.
Reagan, Bandaríkjaforseti, fór
ófögmm orðum um Khadafy,
Líbýuleiðtoga, sagði, að hann væri
villimaður og að óhrekjanlegar
sannanir væm fyrir aðild hans að
manndrápunum í Róm og Vín.
Sagði hann, að bandarísk fyrirtæki
yrðu að hætta öllum viðskiptum við
Líbýumenn og að Bandaríkjamenn,
sem störfuðu í landinu, yrðu að
koma sér á brott þaðan fyrir mánað-
arlok. Hafa bandarísk olíufyrirtæki
þegar ákveðið að hætta þessum
viðskiptum.
Arabaríkin hafa ákveðið að
styðja Líbýumenn og segir í sam-
þykkt, sem gerð var í gær á fundi
Arababandalagsins í Fez í Mar-
okkó, að Líbýumönnum verði komið
til hjálpar ef á þá verði ráðist.
Sovétmenn hafa sakað Bandaríkja-
menn um yfirgang við Khadafy og
Ali Khameini, forseti írans, hefur
lýst yfir stuðningi klerkastjómar-
innar í Teheran við Líbýuleiðtog-
ann.
Sovétríkin:
Á geðveikra-
hæli vegna
friðarstarfs
Moskvu, 8. janúar. AP.
SAUTJÁN ára gömul skóla-
stúlka, félagi i einu óopinberu
friðarhreyfingunni, sem vitað er
um í Sovétríkjunum, hefur verið
send á geðveikrahæli. Skýrðu
tveir félagar í hreyfingunni svo
frá i dag, að þetta hefði gerst
eftir að stúlkan hefði tvisvar
sinnum átt þátt í að kynna mál-
stað hreyfingarinnar opinber-
lega.
Nikolai Khramov og Alexander
Ruchenko, félagar í hinni óopinberu
friðarhreyfíngu í Sovétríkjunum,
skýrðu vestrænum fréttamönnum
frá því í dag, að sl. þriðjudag hefðu
lögreglumenn handtekið Irinu
Pankratova, 17 ára gamla skóla-
stúlku, og flutt hana á geðveikra-
hæli í suðurhluta Moskvu. Var
henni sagt, að þar fengi hún að dúsa
um óákveðinn tíma.
Pankratova var í desember á
fundi þar sem minnst var dauða
bítilsins Johns Lennon og hún tók
einnig þátt í útifundi 10. desember
sl., á alþjóðamannréttindadeginum.
Var hún í hvorttveggja sinnið meðal
þeirra, sem voru handteknir og
yfírheyrðir af lögreglunni. Pankr-
atova er félagi í óopinberri friðar-
hreyfíngu, sem stofnuð var sumarið
1982 og hefur m.a. að markmiði
að efla gagnkvæmt traust milli
þegna stórveldanna, Bandaríkjanna
og Sovétríkjanna. Sumir félagar
hreyfíngarinnar hafa verið fangels-
aðir en aðrir verið neyddir til að
hrökklast úr landi eða fara í fang-
elsi ella.
Læknamistök
í Noregi:
Hællinn
fram en
tær aftur
Ósl6,8. janúar. Frá Jan Erik Laure,
fréttaritara Morgunblaðsina.
LÆKNUM við sjúkrahúsið í
Túnsbergi urðu á mikil mis-
tök þegar þeir gerðu aðgerð
á Jannikhe Langved, 24 ára
gamalli stúlku. Þeir sneru
óvart öðrum fætinum þannig,
að nú veit hann aftur.
Jannikhe hefur verið fötluð á
mjöðm alla tíð og lýsti sér það
þannig, að hún var innskeif í
meira lagi og átti erfítt með
gang. Fyrir þremur mánuðum
var gerð aðgerð á hægra fæti
og honum snúið til réttrar áttar
og fyrir tveimur mánuðum átti
að fara eins að með þann vinstri.
Læknamir sneru hins vegar
fætinum þannig, að hann vísar
skáhallt aftur í „eðlilegri" stöðu
og á Jannikhe auðvelt með að
láta hann snúa beint aftur.
„Þetta eru einhver mistök
hjá ykkur,“ sagði Jannikhe við
læknana skömmu eftir aðgerð-
ina en þeir vildu ekki fallast á
það, sögðu, að hún þyrfti bara
að æfa sig og þá færi fóturinn
í réttar skorður. Nú hafa þeir
þó áttað sig á mistökunum og
í dag gerðu þeir aðra atlögu að
fætinum eftir að hafa lofað því
að vanda sig við verkið. Búist
er við, að Jannikhe Langved fái
myndarlegar skaðabætur.
rz 0
Verdens Gang/Símamynd
Jannikhe Langved. Eins og sjá má veit fóturinn fremur aftur en
fram og átti hún auðvelt með að láta hann snúa beint aftur.