Morgunblaðið - 10.01.1986, Blaðsíða 1
56SIÐUR B
MMunItibiMfr
STOFNAÐ 1913
7. tbl. 72. árg.
FÖSTUDAGUR10. JANÚAR1986
Prentsmiðja Morgunblaðsina
„Ég verð að yfir-
gefa samkvæmið“
FARINN
Michael Heseltine yfirgefur emb-
ættisbústað forsætisráðherra
Bretlands í Downing Street 10
eftir að hafa gengið út af ríkis-
stjómarfundi þar sem hann sagði
af sér starfí. Afsögn Heseltine
kom vegna deilna um framtíð
brezks þyrlufyrirtækis og hefur
vakið mikla athygli.
London, 9. janúar. AP.
MICHAEL HESELTINE, sem sagði af sér starfi vamarmálaráðherra
á rikisstjórnarfundi, var þungorður í garð Thatcher forsætisráðherra
og sakaði hana um að reyna að kæfa í hel baráttu sína gegn því
að bandarískt fyrirtæki kaupi brezka þyrlufyrirtækið Westland.
Yfirlýsingar Heseltine um stjórnarhætti Thatcher voru þann veg að
blaðamenn og embættismenn úr vamarmálaráðuneytinu göptu hvað
eftir annað af undmn.
Heseltine sagði að heiður sinn
hefði verið að veði og hann hefði
ekki átt annarra kosta völ en segja
af sér. Hann var andvígur þeirri
samþykkt stjómarinnar í morgun
að hún eða ráðherrar létu ekkert
frá sér fara um mál Westland fram
á þriðjudag, en þá taka hluthafar í
fyrirtækinu afstöðu til kauptilboða,
sem kennd eru annars vegar við
bandaríska þyrlufyrirtækið Sikorsky
og Fiat-verksmiðjumar á Italíu, og
hins vegar við brezk-evrópska fyrir-
tækjasamsteypu.
Þegar stjómin hafði samþykkt
þagnarskyldu á fundinum stóð Hes-
George Younger, eftirmaður
Heseltine.
eltine upp og sagði: „Ég er víst
hræddur um að ég verði að yfirgefa
samkvæmið." Samráðherrar hans
kváðust undrandi á afsögninni og
Margaret Thatcher sendi Heseltine
bréf þar sem hún lýsti hryggð sinni.
Hún beið þó ekki boðanna og út-
nefndi George Younger Skotlands-
málaráðherra sem eftirmann Heselt-
ine. Hermt er að Thatcher hafí í
engu reynt að telja Heseltine af
afstöðu sinni.
Heseltine sagði að Thatcher hefði
gert vísvitandi tilraunir til að þagga
niðri í sér og hún hefði vísvitandi
forðast að fjailað yrði um framtið
Westland frá sjónarmiði brezkra
landvama og tæknikunnáttu. Þá
hefði Thatcher bmggað ráð með
öðmm ráðhermm um að þegja yfir
gögnum, sem vom brezk-evrópsku
samsteypunni hagstæð. Einnig hefði
verið reynt að hylma yfir ágreining
innan stjómarinnar með því að
sleppa mótmælum hans úr fundar-
skýrslum. Loks hefði verið reynt að
sverta nafn sitt með því að leka
„völdum" og „æmmeiðand" upplýs-
ingum í Qölmiðla. „Hér var illa á
máli haldið og ég vil ekki bera
ábyrgð á málatilbúnaði af þessu
tagi,“ sagði Heseltine.
Leiðtogar brezku stjómarand-
stöðunnar gagnrýndu hvemig
Thatcher hefði haldið á málum og
sögðu hana þjást áf forsetaveiki, sem
stríddi gegn brezkri hefð um að
forsætisráðherrann væri aðeins
fremstur meðal jafningja. Þeir kváðust
mundu krefjast þess að stjómin
gerði þinginu grein fyrir stefnu sinni
þar sem um augljósa vamar- og
iðnaðarhagsmuni væri að ræða.
Heseltine, sem er 52 ára, var
vamarmálaráðherra í þrjú ár og
hefur verið talinn líklegur eftirmaður
Thatcher. Hann neitar því að póli-
tískur metnaður hafí knúið sig til
afsagnar. Með brotthvarfi hans situr
aðeins Peter Walker orkuráðherra
eftir í stjóminni úr þeim hópi valda-
manna i flokknum sem hafa verið
Thatcher þungir í skauti.
Sjá Erlcndan vettvang, „Uppnám
vegna af sagnar Heseltine", á bls. 21.
AP/Símamynd
Rússar bera í bæti-
fiáka fyrir Khadafy
Woahínrrtnn MouL’vu Q inm'inr A P
Washington, Moskvu, 9. janúar. AP.
SOVÉZKA stjórnin lýsti yfir því
i kvöld að hún „fordæmdi mjög
ákveðið" það sem hún kallar
fjandsamlega og óréttmæta árás
Bandaríkjamanna og ísraela á
Khadafy Líbýuleiðtoga í kjölfar
ódæða, sem hryðjuverkamenn
frömdu um jólin á flugvöllunum
í Vínarborg og Rómaborg. Kveðst
sovézka stjórnin ætlast til þess
að Bandaríkjastjórn „geri sér
grein fyrir hversu alvarlegar og
hættulegar afleiðingar“ gjörðir
hennar gegn Libýu kunni að hafa.
Segir í yfirlýsingunni að viðsjár
séu miklar á Miðjarðarhafi vegna
þessa og „áróðurs fjölmiðla í
NATO-ríkjum“.
Richard Burt, sendiherra Banda-
ríkjanna í Vestur-Þýzkalandi hvatti
ríki Vestur-Evrópu til samstöðu með
stjóm Reagans og grípa til refsiað-
gerða gegn Líbýu. Hann sagði það
ekki ganga að „vestrænar þjóðir
Rússar hafa fjölgað
SS-25 úr 27 í 45
Washington, 9. janúar. AP.
CASPAR W. Weinberger, vamarmálaráðherra Bandaríkjanna, hélt
þvi fram í dag að stöðugt fjölgaði svoézkum kjaraaflaugum. Hann
sagði að i desember hefðu Sovétmenn fjölgað SS-25 kjarnaflaugum
sinum, sem eru á færanlegum skotpöllum, úr 27 i 45.
Weinberger sagði framleiðslu
SS-25-flaugarinnar augljóst brot á
SALT II-samkomulaginu og tilvist
hennar sýndi fram á nauðsyn raun-
hæfra samninga um takmörkun víg-
búnaðar. Hann sagði stefnu stjómar
Reagans í vamarmálum hafa neytt
Sovétmenn að samningaborðinu að
nýju og aukið samstöðu banda-
manna Bandaríkjamanna í Evrópu.
Weinberger sagði hinn fijálsa
heim því ekki hafa efni á „stefnu-
leysi" þegar útgjöld til vamarmála
væru annars vegar. Ávinningi vam-
arstefnu Reagans væri stefnt f voða
með nýjum fjárlögum og lögum um
hallalausan ríkisrekstur, svo og af
þingmönnum sem gerðu sér ekki
grein fyrir sambandinu milli póli-
tískra áhrifa og herstyrks. Fjárlögin
sýndu mönnum fram á hvort Banda-
ríkjamenn væm líklegir til að ná
raunhæfum samningum við Sovét-
menn.
ættu viðskipti við morðingja". Hann
átti viðræður við Hans-Dietrich
Genscher utanríkisráðherra í dag í
því skyni að fá Þjóðverja til þátttöku
í refsiaðgerðum. Ekkert ríki Vestur-
Evrópu hefur ákveðið að fara að
fordæmi Bandaríkjamanna, en
Frakkar hvöttu í dag til neyðarfund-
ar Evrópubandalagsins um málið og
verður af fundinum þar sem ítalir
og Grikkir höfðu áður beðið um slík-
an fund. Raddir eru uppi um það
innan bandalagsins að annaðhvort
standi EB-ríkin öll að efnahagsleg-
um refsiaðgerðum og viðskiptabanni
eða ekkert verði af slíkum aðgerð-
um. í næstu viku fer John White-
head, aðstoðarutanríkisráðherra
Bandaríkjanna, til Evrópu til að
vinna stefnu stjómar sinnar gagn-
vart Líbýu fylgi.
Bandariskur öldungadeildarmað-
ur, Howard M. Metzenbaum, kvaðst
efast um að efnahagsþvinganir
dygðu og lagði hann til í dag að
Khadafy yrði tekinn af lífi, ef í Ijós
kæmi að hann hefði staðið á bak
við hryðjuverkin í Róm og Vín. Hann
sagði að líklegast væri komið að
því að taka yrði Khadafy af lífi.
George Shultz, utanríkisráðherra,
sagði í kvöld að Bandaríkjamenn
væru staðráðnir í að uppræta hryðju-
verkastarfsemi sem Líbýumenn
stæðu beint eða óbeint á bak við og
Moammar Khadafy ræðir
fréttamenn á sunnudag.
hann sagði að ein leiðin að því marki
væri að beita hervaldi. ,
Khadafy Líbýuleiðtogi lýsti ódæð-
isverkunum í Róm og Vín í upphafi
sem hetjudáð, en síðan hefur hann
söðlað smám saman um og á óvenju-
legum fundi með vestrænum sendi-
fulltrúum í Trípólí í dag sagði hann
hryðjuverkamennina vera „bandvit-
lausa."
Sjá leiðara, „Atlaga gegn hryðju-
verkamönnum“, á bls 20, og fréttir,
„Ekki ástæða til viðskiptabanns" á
bls.7 og „Samræma aðgerðir...“ á
bls.17.