Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1986 21 Ap/Símamynd Brjóstmynd af Martin Luther King afhjúpuð Coretta Scott King, ekkja Martins Luthers King, fagnar, þegar bijóstmynd af manni hennar var afhjúpuð í Was- hington, höfuðborg Bandaríkjanna. Með henni á myndinni er sonur þeirra, Dexter Scott King. HOSTR Störf vð ferðamannaþjónustu Hótel- og ferðaþjónustuskóli, stofnaður árið 1959 í Leysin, frönskumælandi Sviss. Prófskírteini í lok námskeiðs. Kennsla fer fram á ensku. 1. 2ja ára fullnaðarnám í hótelstjórn (möguleiki á að innrita sig annaðhvort á 1. árið á stjórnsýslunámskeið eða á 2. árið í framhaldsnám í hótelstjórn). 2. 9 mánaða alþjóðlegt ferðamálanámskeið, kjarnanám, viður- kennt af Alþjóða flugmálastofnuninni og UFTAA, sem lýkur með prófi. Fullkomin íþróttaaðstaða einkum til skíða- og tennisiðkunar. Næsta námskeið hefst 24. ágúst 1986. Skrifið til að fá upplýsingar til: HOSTA; CH-1854, Leysin Tel: 9041/25-34-18-14 Telex: 456-152 crto ch. fMtogiiiiMfKftife Askriftcirsíminn er 83033 Bladburóarfólk óskast! Austurbær Vesturbær Ingólfsstræti Ægissíða 44-78 Þingholtsstræti Ártúnsholt (iðnaðarhverfi) Stj órnarandstöðuflokkar í Svíþjóð: Vilja herða stórlega viðurlög við afbrotum Stokkhólmi, 17. janúar. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunbladsins. STJÓRNARANDSTÖÐUFLOKKARNIR í Svíþjóð lögðu I dag, föstu- dag, fram á þingi tillögu um miklu strangari refsingar við öllum brotum, sem beinast gegn einstaklingum, einkum ofbeldisverkum. í Svíþjóð hefur lengi verið mikil viðurlög við þessum brotum verið umræða um afbrot gegn ríkinu, hert allverulega. Þingmönnum einkum skattalagabrot, og hafa stjómarandstöðunnar fínnst nú tími Svenska Dagbladet opinberlega ákært Birti í sumar grein um umfangsmikla njósnastarfsemi Sovétmanna í Svíþjóð Stokkhólmi, 17. janúar. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins. RÍKISSAKSÓKNARINN í Sviþjóð birti í dag í dagblaðinu „Svenska Dagbladet“ kæru fyrir að hafa brotið lög um prentfrelsi. Er kæran tíl koinin vegna greinar, sem birtist í blaðinu sl. sumar og fjallar um njósnastarfsemi Sovétmanna í Sviþjóð. 1 greininni í „Svenska Dagblad- et“ sagði m.a. frá Spetsnaz-sveitun- um sovésku, sérþjálfuðum skemmd- ar- og hryðjuverkasveitum, og frá mönnum, sem hafa það að yfírvarpi, að þeir séu málverkasalar, en hafa það hlutverk í raun að hafa upp á heimilisföngum allra lykilmanna í sænska hemum. Ríkissaksóknarinn sænski telur, að birting þessara upplýsinga sé tilræði við öryggi sænsku þjóðar- innar og vamir hennar. Sovét- mönnum hafi nú verið skýrt frá því hve mikið Svíar vita um starf- semi þeirra í landinu. Búist er við, að þetta mál verði tekið fyrir í næsta mánuði en ábyrgðarmaður „Svenska Dagblad- et“, Lennart Person, ber á móti því að blaðið hafí birt leynilegar upplýsingar. Segir hann, að blaðið hafí aðeins vakið athygli sænsks almennings á athæfí Sovétmanna í Svíþjóð. til kominn, að öðrum afbrotamönn- um, einkum ofbeldismönnum, verði gert það ljóst, að samfélagið lítur alvarlegum augum á glæpi þeirra og hafa þeir lagt til, að refsingar við þessum brotum verði stórhertar. Einnig er lagt til, að sektir og bóta- upphæðir verði endurskoðaðar reglulega en verðbólgan hefur vald- ið því, að þessar fjárupphæðir eru orðnar að engu. Það em þingmenn Hægriflokks- ins (Moderata Samlingspartiet) og Þjóðarflokksins, sem flytja þetta mál fyrir hönd allrar stjómarand- stöðunnar, og taka þeir það skýrt fram, að þeir eru samþykkir því að auka refsingar við brotum gegn rík- inu, t.d. stórkostlegum skattsvik- um. Þeir gagnrýna hins vegar harð- lega þau lög, sem kveða á um, að fyrirtæki verði að standa ríkinu skil á sköttum undirverktaka, sem ekki hafa það sjálfír. í Gautaborg var nýlega kveðinn upp dómur I máli af þessu tagi. Trésmiðurinn Hjortzberg lét það undir höfuð leggjast að kynna sér skattamál undirverktaka sinna og vegna þess, að þeir voru ekki miklir reiðumenn, ætlaði ríkið að neyða Hjortzberg til að borga fyrir þá rúmlega 3,3 milljónir ísl. kr. Hann var hins vegar sýknaður af þessari kröfu og liggur það nú í loftinu, að ríkið ætli ekki að reyna að fram- fylgja þessum lögum í annað sinn. GÆÐIN OFAR ÖLLU. Birgdir af þessum frábæru verkfærum jafnan fyrirl iggjandi. G.J. Fossberg Vélaverzlun hf. Skúlagötu 63 Símar 18560-13027

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.