Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR18. JANÚAR1986 Alþjóðleg bænavika 18.—25.janúar Samstarfsnefnd kristinna trúfélaga á íslandi stendur að undir- búningi Alþjóðlegu bænavikunnar hér á landi en hún verður haldin 18.—25. janúar. Bænavikan ber munuð vera vottar mínir". í ávarpi samkirkjuiegrar undir- búningsnefiidar á vegum Alkirkju- ráðsins segir meðal annars: „Krist- ur sendir lærisveina sína í heiminn til þess að bera honum og frelsandi starfí hans vitni í orðum og at- höfiium." Einn liður í þessu er að kristnir söftiuðir heimsæki hveijir aðra og taki þátt í guðsþjónustum hver annars þessa viku, segir í frétt fránefndinni. í Reykjavík hefst bænavikan á morgun, sunnudag, kl. 11.00 í Dómkirkjunni. Samkomur verða kl. 20.30 miðvikudag í Kristskirkju, Landakoti, fímmtudag í Hjálpræðis- hemum, föstudag Aðventkirkjunni, laugardag Fíladelfíu, en bænavik- unni lýkur með guðsþjónustu í Grensáskirkju sunnudaginn 26. janúar kl. 14.00. Á Akureyri hefst vikan að þessu sinni með guðsþjónustu í Glerár- skóla á morgun, sunnudag, klukkan 14. Þar prédikar sr. Ágúst Eyjólfs- son prestur katólskra. Æskulýðskór Hjálpræðishersins, Hvítasunnukór- að þessu sinni yfirskriftina „Þér inn og Kirkjukór Lögmannshlíðar- sóknar syngja. Á mánudagskvöld verður sam- koma á Hjálpræðishemum klukkan 20.30. Ræðumaður verður major Kolbjöm Enguy. Æskulýðskórinn og Hvítasunnukórinn syngja. Á miðvikudagskvöld klukkan 20.30 verður samkoma í Katólsku kirkjunni. Ræðumaður verður sr. Birgir Snæbjömsson. Anna Júlíana Þórólfsdóttir syngur einsöng. Á fimmtudagskvöld verður sam- koma í Hvítasunnukirkjunni. Ræðu- maður verður sr. Pálmi Matthías- son. Skúli Torfason tannlæknir sýn- ir myndir frá landinu helga. Hvíta- sunnukórinn og Kirkjukór Lög- mannshlíðarsóknar syngja. Bænavikunni lýkur síðan með guðsþjónustu í Akureyrarkirkju sunnudaginn 26. janúar klukkan 14.00. Þar er ræðumaður Iautenant Paul Willam Marti. Kirkjukór Akur- eyrarkirkju syngur. Á öllum samverunum annast fulltrúar trúfélaganna lestur úr ritningunni. Morgunblaðið/RAX Á myndinni eru, talið frá vinstri: Erla Þórðardóttir gjaldkeri, Ragn- heiður Ágústsdóttir meðstjómandi, Birna Flygenring og Guðmundur Egilsson sem tók við styrk Bryndisar Guðmundsdóttur, Þórey Guð- mundsdóttir formaður og Ólöf Knudsen ritari. Námsstyrkjum úthlutað tíl háskólakvenna NÁMSSTYRK félags háskóla- kvenna og kvenstúdenta var út- hlutað 10. janúar sl., en eitt af markmiðum félagsins er að styrkja konur til framhaldsnáms. Styrk hlutu að þessu sinni Bima Flygenring til framhaldsnáms í hjúkrunarfræðum og Bryndís Guð- mundsdóttir til náms í talmeina- fræðum. Vinsældalisti rásar 2: Hjálpum þeim enn í 1. sæti 4. (3) In the Heat of the Night HJÁLPUM þeim, lag íslensku hjálparsveitarinnar, er enn í fyrsta sæti á vinsældarlista rás- ar tvö, 6. vikuna í röð. Það hefur aldrei áður gerst að sama lagið hafi tijónað svo lengi í fyrsta sæti listans. Listinn sem valinn var á fimmtudaginn er sem hér segir: 1. (1) Hjálpum þeim______ís- lenska hjálparsveitin 2. (4) Gaggó Vest ... Gunnar Þórðarson 3. (2) Allur lurkum laminn ... Bubbi Morthens ... Sandra 5. (6) Segðu mér satt... Stuð- menn 6. (7) Sentimental Eyes ... Rickshaw 7. (9) Brothers In Arms_____ Dire Strait 8. (5) Fegurðardrottning ... Ragnhildur Gisladóttir 9. (8) Saving All My Love for You ... Whitney Houston 10. (15) Gull ... Gunnar Þórð- arson Hafnfirðingar og Jón Rafn (jr.) leikur og syngur Ijúflingslög fyrir matargesti á veitingahúsinu A. Hansen laugardagskvöld 18. janúar. ALLIR ÁVALLT VELKOMNIR. V — Myndin er tekin er hljómplötumar voru kynntar hlaAamönmun í enda nóvember. Frá vinstri eru: Þorkell Sigurbjörnsson formað- ur Tónskáldafélags íslands, Hjálmar H. Ragnarsson fulltrúi stjómar íslenskrar tónverkamiðstöðvar, Karolína Eiriksdóttir fulltrúi stjómar íslenskrar tónverkamiðstöðvar, Hörður Vil- hjálmsson fjármálastjóri Ríkisútvarpsins og Viðar Gunnarsson fulltrúi Vöku-Helgafells, sem sér nm dreifingu platnanna innan- lands. Þrjár íslensk- ar hljómplötur verðlaunaðar - í tilefni Evrópuárs tónlistarinnar 1985 Þrjár íslenskar hljómplötur fengu svokölluð „Discoboles 1985“ verðlaun i keppni, sem haldin var í tilefni Evrópuárs tónlistarinn- ar 1985. Það var franska stofnunin „Grand Prix de l’Académie de Disque Francaix" sem stóð fyrir keppninni — sú sama og veitir hin árlegu „Grand Prix de Disque“-verðlaun, sem eru ein eftirsóttustu hljómplötuverðlaun í heiminum. Að sögn Karolínu Eiríksdóttur tónskálds sendu öll Evrópulönd plötur inn til stofnun- arinnar og mun hveiju þeirra hafa verið úthlutað einum til tvenn- um verðlaunum. Hljómplötumar, sem allar inni- halda íslenska tónlist, komu út fyrir jól: íslensk hljómsveitartón- list, íslensk fíðlutónlist og íslensk píanótónlist. Sinfóníuhljómsveit Islands leikur á plötunni íslensk hljómsveitartónlist. Stjómendur em Jean-Pierre Jacquillat og Páll P. Pálsson. Einleikarar em Krist- ján Þ. Stephensen og Einar Jó- hannesson. Verkin á þeirri plötu em eftir þá John Speight, Leif Þórarinsson og Jón Nordal. ís- lensk fíðlutónlist er einleiksplata Guðnýjar Guðmundsdóttur. Á henni em verk eftir Karolínu Eiríksdóttur, Jón Nördal, Áskel Másson, Jónas Tómasson og Þor- kel Sigurbjömsson. íslensk píanó- tónlist er einleiksplata Önnu Ás- laugar Ragnarsdóttur og á þeirri plötu em verk eftir Þorkel Sigur- bjömsson, Jónas Tómasson, Atla Heimi Sveinsson og Hjálmar H. Ragnarsson. Islensk tónverkamiðstöð gaf plötumar út í samvinnu við ríkis- útvarpið, en alls er fyrirhugað að gefa út tólf hljómplötur. Fyrirjólin komu §órar þeirra út og á næstu tveimur ámm munu átta hljóm- plötur í viðbót verða gefnar út með íslenskri tónlist. Hljómplöt- unum er ætlað að gefa sem heil- steyptasta mynd af skapandi tón- list á íslandi undanfarin 15 ár, að sögn útgefenda. Hljómplötum- ar vora að mestu teknar upp í hljóðveri Ríkisútvarpsins í Há- skólabíói og í Langholtskirkju og var Bjami Rúnar Bjamason upp- tökustjóri. Gullplötur fyrir „Borgarbrag“ Skemmtidagskráin „Söngbók Gunnars Þórðarsonar" verður frumsýnd í veitingahúsinu Bro- adway í kvöld. Þar mun 13 manna hljómsveit Gunnars flytja hans þekktustu lög ásamt mörg- inn þekktum söngvurum. Á frumsýningunni í kvöld mun Fálkinn afhenda Gunnari gullplötu fyrir hljómplötuna „Borgarbrag", en Gunnar hefur samið öll Iög plöt- unnar. Ennfremur munu Davíð Oddsson borgarstjóri og Ólafur Haukur Símonarson rithöfundur fá afhentar gullplötur, en þeir hafa samið texta plötunnar. Hljómplatan „Borgarbragur" hefur selst í u.þ.b. 6.000 eintökum, að því er fram kemur í frétt frá Fálkanum. Mokveiði á loðnumiðunum MOKVEIÐI er nú á loðnumiðun- um á Bakkaflóadýpi sunnan Langaness. Öll íslenzku skipin hafa verið þar og aflað vel, bæði dag og nótt. Norsku skipin hafa verið við Hvalbak og aflað minna. Sólarhringsafli þerra á hádegi í gær var 2.670 Iestir. Á fimmtudag fengu 34 íslenzk skip samtals 22.430 lestir og síðdegis á föstudag var aflinn orðinn 10.010 lestir af 12 skipum. 8 skip voru þá á leið til erlendra hafna með afla sinn, þar sem þau fá um 3.000 krónur fyrir hveija lest en 1.700 til 1.800 krónur hér heima. Á föstudag vom 13 norsk skip á miðunum við Hvalbak og hafði þá 41 norskt skip haldið heim með fullfermi, 31.995 lestir samtals. Auk þeirra skipa, sem áður hefur verið getið í Morgunblaðinu, til- kynntu eftirtalin skip um afla á fímmtudag: Dagfari ÞH, 540, Kefl- víkingur KE, 540, Hákon ÞH, 820, Sighvatur Bjamason VE, 680, Bjami Ólafsson AK, 1.170, Albert GK, 600, Guðrún Þorkelsdóttir SU, 700, Jón Kjartansson SU, 1.050, Sigurður RE, 1.400,-Svanur RE, 700, Pétur Jónsson RE, 830, og Beigur VE, 500 lestir. Síðdegis á föstudag höfðu eftir- talin skip tilkynnt um afla: Víkingur AK, 1.250, Kap II VE, 710, Júpíter RE, 1.350, ísleifur VE, 730, Gígja RE, 770, Beitir NK, 1.300, Fífill GK, 420, Þórður Jónasson EA, 500, Guðmundur RE, 700, Hilmir II SU, 550, Magnús NK, 530, og Hilmir SU 1.200. Félag einstæðra foreldra: Vonbrigði með úthlut- un fj árveitinganefndar STJÓRN Félags einstæðra for- eldra samþykkti á stjómarfundi 6. jan.: „Við lýsum yfir miklum og óþyrmilegum vonbrigðum með þá fjárupphæð, sem fjárveit- inganefnd úthlutaði FEF á fjár- lögum 1986 og kallaði „bygg- ingastyrk". Við höfðum farið fram á 2ja milljóna króna fram- lag, enda var orðið tímabært að Alþingi veitti FEF i fyrsta sinn stuðning, sem einhveiju máli skipti. Við teljum það verkefni brýnt sem óskað var eftir stuðningi við og lítum á það sem móðgun, að til FEF er náðarsamlegast veitt 300 þúsund krónum. Óskiljanlegt er, hvað fjárveitingamefndarmenn hafa ætlað að „styrkja" með út- hlutun af slíku tagi. Öllu verra er þó áhugaleysið sem býr að baki þessum „byggingar- styrk“ og augljós vanþekking og síðast en ekki sízt almennt skeyt- ingarleysi á stöðu og högum ein- stæðra foreldra og bama þeirra margra. Þessi úthlutun er Igömum fulltrúum þjóðarinnar ekki til sóma.“ S^óm FEF vill einnig benda á að á síðustu 16 mánuðum hefur verið tekið á móti umsóknum í hús- næði FEF í Skeljanesi, frá 68 ein- stæðum foreldrum með 98 böm. Unnt reyndist að leysa vanda 25 einstæðra foreldra með 40 böm. Af 68 umsækjendum vom 24 utan Reykjavíkur. Frá því húsið í Skeljanesi tók til starfa í apríl nýbyijum 1981 hafa búið þar 105 foreldrar með 130 böm. Tveir þriðju hlutar umsækj- enda hafa enga úrlausn fengið. Með kaupum á Öldugötu 11 var markmiðið að reyna að greiða götu fleiri. Húsið kostaði 9,3 milljónir, breytingar og endurbætur um 2 milljónir. Ljóst er að Félag ein- stæðra foreldra hefur ekki nú frem- ur en áður orðið þess aðnjótandi að hljóta vemlegan styrk þótt það hafí löngum sannað nauðsyn starf- semi sinnar. (Úrfréttatilkynningu) Sjálfboðaliðar í Háskólabíói HÁSKÓLABÍÓ hefur tekið til sýninga gamanmyndina „Sjálf- boðaliðamir“. I aðalhlutverkum eru þau Tom Hanks, John Candy og Rita Wilson. — Lawrence Boume þriðji er dæmigerður glaumgosi. Hann er nýlega laus úr skóla, en í stað þess að læra, hefur hann stundaÆ fiár- hættuspil, og er skuldum vafínn. Karl faðir hans er æfareiður og neitar að hjálpa. Þegar skuldunaut- amir gerast aðgangsharðir grípur Lawrence til þess ráðs að fela sig meðal hóps sjálfboðaliða í friðar- sveitum, sem fara til Thailands. Þangað ætlar Lawrence sér alls ekki að fara, en — það er ekki svo auðvelt að losna aftur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.