Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR18. JANÚAR 1986 45 VELVAKANDI SVARAR f SÍMA 10100 KL. 10—11.30 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS tiUdtmÆl tUBL * Arásir á fjallgöngumenn Til Velvakanda. Víglundur Jónsson skrifar. Þær eru orðnar óþolandi þessar árásir í Velvakanda og lesendadálki DV, um að þeir sem leggja leið sína á fjöll og öræfi, bæði til útivistar og reiða, séu einhveijir moðhausar sem björgunarsveitir séu alltaf að leita að á kostnað skattborgara. Menn vaði vanbúnir hingað og þangað, sem þeir eigi ekkert erindi og þeir skuli borga Ieit, allt úr eigin vasa. Vissulega eru svartir sauðir í þessu sporti sem öðrum. Nú síðast hringir einhver Gunnar í Velvakanda og bullar eins og smástrákur í sandkassa. Ég ætla að benda honum á og fleirum sem eru í þessum kór, að það er furðu- legt að ein íþróttagrein eða sport- mennska, hvort sem fólk vill kalla það, sé lögð svona í einelti. Þetta er múgsefjun og ekki annað. Ég ætla að rökstyðja þetta með nokkrum dæmum. Hvað heldur grátkórinn að þær læknisferðir kosti skattborgara sem gerðar eru á spítölum á öllum þeim tugum hundruðum manna sem á hveiju ári meiðast í svokölluðum bolta- íþróttum? Boltaíþróttir hafa meira að segja leitt af sér manndráp, íkveikjur, skemmdarstarfsemi og þjófnað oft og oft. Hvað heldur grátkórinn að það kosti skattborg- ara að senda sjúkrabíla upp í Blá- §öll að sækja fótbrotið og limlest skfðafólk og hafa það svo inni á spftölum á eftir? ISða öll uppbygg- ingin þar: skíðalyftur, snjóruðnings- tæki og launakostnaður starfsfólks? Þetta eru aðeins tvö dæmi sem aldrei er minnst á. Það er ekki $ heldur minnst á skrílinn sem sækir þessa svokölluðu skemmtistaði og allt það sem leiðir af því, þjófnaði, innbrot, morð og nauðganir, dýra löggæslu, upplausn fjölskyldna en þetta eru víst taldir sjálfsagðir hlutir. Að lokum ætla ég að biðja Gunnar og aðra að líta á málin af raunsæi og líta frekar á björtu hlið- amar hvað varðar útivist og þá sem hafa unun af að ferðast úti í hinni stórbrotnu og hrikalegu náttúm okkar. Um tannlækningakostnað örorkulífeyrisþega Kæri Veivakandi. Tilefni þessarar greinar er eftir- farandi vinur minn, sem er örorku- lífeyrisþegi, fór til tannlæknis og bað hann um að smíða í sig neðri- góm, þar sem hann var orðin hálf- laus en tannlæknirinn vildi ekki gera það, nema að smfða í efri góm einnig. Þessi vinur minn gat ekki fallist á það, þar sem hann átti ekki peninga til þess, en allir vita hve dagpeningar öryrkja eru litlir. Þetta breytti þó ekki afstöðu tann- læknisins og endirinn varð sá, að ekkert varð úr tannsmíðinni. Nú er mér spum, getur svona þjónusta gegnið. Á viðskiptavinur- inn ekki að ráða því sjálfur, hvaða þjónustu hann kaupir, eða eiga aðrir að ráða því. Það er hart ef setja þarf reglugerð um málefni sem þetta, en hjá því verður ekki kom- ist. Nú er rétt að geta þess, að Tryggingastofnun ríkisins greiðir tannlæknakostnað fyrir elli- og örorkulífeyrisþega, en þeir verða að leggja út fyrir því að innheimta síðan. Það er hins vegar ekki víst að þeir séu færir um að leggja upphæðina fram sökum fátæktar, og ekki er hægt að ætlast til að þeir geti lagt svona háa upphæð fyrir. Útbúa þyrfti eihvers konar plagg sem örorkulífeyrisþegar gætu útfyllt og kvittað fyrir, en síðan gæti tannlæknirinn innheimt þetta sjálfur hjá Tryggingastofnun, eins og aðrir læknar verða að gera. Eggert E. Laxdal Vísa vikunnar Ómargallogherliðhans hrafnsáflaugerkunni, þegar buðu þýðan dans þjóðarfyölskyldunni. Félagið Svæðameðferð heldur námskeið í svæðameðferð og hefst það þriðjudaginn 21. janúar kl. 20.00 að Austurströnd 3. Innritun verður laugardaginn 18. janúar milli kl. 14 ag 16 á sama stað. Stjórnin Sjónvarpsstöðvaj á Norðurlöndum liafa hver um sig ákveðið að láta gera stutta leikna kvikmynd fyrir börn tólf ára og yngri. Þessar myndir skulu vera tilbúnar 1. október 1986 og verða kynntar sem samnorrænn myndaflokkur þar sem hver kvikmynd er sjálfstætt verk. Ríkisútvarp-Sjónvarp óskar því eftir hugmyndum að slíkri barnamynd. Myndinyrði um 15 til 20 mínútur að lengd. Hugmyndum þessum skal skilað skriflega til Sjónvarpsins fyrir 10. febrúar. Á grundvelli þessara hugmynda yrði látið vinna handrit sem síðan er fyrirhugað að bjóða út. RÍKISÚTVARPIÐ IAUGAVEG/ 176, 105 REYKJA V/K Bladið sem þú vaknar við!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.