Morgunblaðið - 21.01.1986, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 21.01.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐE), ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR1986 5 Morgunblaðið/Anna Bjamadóttir Hólmfríður Karlsdóttir, Ungfrú heimur, í bás Flugleiða á ferðakaupstefnunni í Bern. Hólmfríður kom íslandi í fréttirnar í Sviss Ziirich, 20. janúar. Frá Önnu Bjarnadóttur fréttaritara Morgunblaðsins. FERÐ HÓLMFRÍÐAR Karlsdóttur, Ungfrú heims, til Sviss um helgina vakti verulega athygli. Utbreiddasta blað landsins, Blick, birtir á forsíðu í dag mynd af henni að blása í alpahom og aðalblað höfuðborgarinnar, Der Bund, birtir viðtal með stórri mynd af fegurðardrottningunni á baksíðu. Athygli lesenda er beint að viðtalinu með litlum myndum af nefi, munni, augum og fótum „fallegustu konu heims“ á víð og dreif um blaðið. Sjón- varpsupptökumenn fylgdust með ferð hennar og sjö mínútna mynd um hana var sýnd í fréttaþætti sjónvarpsins á mánudags- kvöld og verður endurtekin siðdegis á þríðjudaginn. Beat Iseli ferðaheildsali og eigandi Saga Reisen, sem selur ferðir til íslands, átti hugmyndina að fá Hólmfríði á ferðakaupstefnu í Bem til að kynna ísland. Flug- leiðaskrifstofan í Sviss gekk í lið með honum og þessir tveir aðilar stóðu að komu Hólmfríðar til Sviss. Hún vakti athygli á íslandi með því einu að vera þaðan, en auk þess fór hún jákvæðum og fallegum orðum um landið í við- tölum við íjölmiðla. Henni var ekið inn á ferðakaup- stefnuna í rauðum, fomum bíl og það fór ekki framhjá neinum að fegurðardrottningin frá íslandi var mætt á staðinn. Gestum gafst tækifæri til að taka myndir af henni og hún ritaði nafn sitt á kynningarbæklinga Saga Reisen og Flugleiða í sýningarbásum þeirra. Hún brosti til fólksins og „bræddi hjörtu karlmannanna", eins og segir í DerBund. Iseli og Richard Gugerli, fram- kvæmdastjóri Flugleiða í Sviss, vom ánægðir með komu Hólm- fríðar. „Ég veit ekki hvort íslend- ingar geri sér grein fyrir hversu góð kynning Hófí er fyrir landið. Það eitt að sjónvarpið gerði langa fréttamynd um hana er alveg stór- kostlegt. Þama fékkst ókeypis kynning fyrir landið í sjónvarpinu en hálfrar mínútu auglýsing kost- ar mörg þúsund franka,“ sagði Iseli. „Hólmfríður var góð kynn- ing fyrir ísland," sagði Gugerli. „Eg er viss um að kostnaður Flugleiða og Saga Reisen í. sam- bandi við komu hennar á eftir að margborga sig.“ Sinfóníuhljómsveit íslands: Guðný Guðmunds- dóttir einleikari Sinf óníuhlj ómsveit íslands heldur síðustu fimmtudagstónleika sma á fyrra misseri nk. fimmtudag í Háskólabíói kl. 20.30. Stjórnandi verður Jean-Pierre Jacquillat og einleikari verður Guðny Guðmunds- dóttir konsertmeistari. Guðný er einleikari í fyrstu þrem- ur verkunum á efnisskránni, en þau voru valin í samráði við Jean-Pierre Jacquillat og eiga það sameiginlegt að vera rómantísk verk. Fyrsta verkið er „Tvær rómönsur" eftir Áma Bjömsson sem hann samdi upphaflega fyrir fíðlu og píanó, en Atli Heimir Sveinsson hefur nú út- sett fyrir fiðlu og hljómsveit. Þá er Poéme, op. 25 eftir Emest Chaus- son, sem hann skrifaði árið 1896 fyrir fiðluleikarann Ysaýe og er byggt á smásögu eftir rússneska rithöfundinn Turgenev. Tzigane eftir Ravel er síðasta verkið fyrir hlé. Ravel skrifaði verkið árið 1924 fyrir ungverska fíðluleikarann d’Ar- anyi og ber það keim af sígaunatón- list. Verkið er, að sögn Guðnýjar, óskadraumur allra fiðluleikara. I því era notaðir allir tæknilegir möguleikar hljóðfærisins á þann hátt sem best verður á kosið. Síð- asta verkið á efnisskránni er eftir Antonin Dvorák, sinfónía nr. 8 í G-dúr, sem hann skrifaði árið 1888. Sinfóníuhljómsveit íslands vill vekja athygli á að endumýjun áskriftarskírteina stendur nú yfír í Háskólabíói alla virka daga kl. Islendingarnir í Jemen óhultir 14.00—18.00 til 31. janúar. Miða- sala á tónleikana er á fimmtudaginn í Bókabúð Sigfúsar Eymundssonar og Lárasar Blöndal og í ístóni. Guðný Guðmundsdóttir konsert- meistari leikur einleik með Sin- fóníuhljómsveit íslands nk. fimmtudagskvöld á tónleikum í Háskólabíói. ÍSLENDINGARNIR, sem eru við vinnu í Suður-Jemen, eru allir heilir á húfi og ekki átt í neinum vandræðum vegna bardaganna, sem geisað hafa í höfuðborginni Aden undanfama daga. íslendingamir eru níu, sex verk- fræðingar og tæknimenn, og tvær konur og eitt bam. Þau starfa öll við holræsagerð á vegum danskrar fyrirtækjasamsteypu í borginni Mukalla á suðurströndinni, sem er næst stærsta borg landsins. íslendingamir era allir fyrram starfsmenn ístaks hf. í Reykjavík. Þeir era ráðnir til að vera í S-Jem- en, sem nú heitir raunar Alþýðulýð- veldið Jemen, í 6—12 mánuði. Flugumferðarstjórar: ORD/MYND Gagnlegar viðræður Flugfumf erðarstjórar og fulltrúar samgönguráðu- neytisins munu halda við- ræðufund vegna ágreinings þeirra fyrrnefndu og Péturs Einarssonar flugmálastjóra, á morgun, miðvikudag. Þessir aðilar ræddu saman á fimm klukkustunda fundi síðastlið- inn laugardag, og var stefnt að því að taka aftur upp þráðinn í gær, en þeim fundi var frestað til morgundagsins. Flugumferðar- stjórar hyggjast ekki efna til vamaraðgerða, sem þeir nefna svo, fyrr en útséð er hver niðurstaðan verður af viðræðum þeirra við ráðuneytið. Birgir Guðjónsson, deildarstjóri í samgönguráðuneytinu, stýrir viðræðunum. Hann sagði að fund- urinn á laugardaginn hefði verið gagnlegur og hefði þokast í sam- komulagsátt í mörgum atriðum. „Það væri viðræðunum hins vegar ekki til framdráttar að ræða ein- stök efnisatriði þeirra opinberlega á þessu stigi, en ég hef góðar vonir um að við finnum lausn á þessu máli í heild, sem báðir aðilar geta fellt sig við,“ sagði Birgir. ftót Au.&'' lyetwfc'A-(siá —— ALMENN ENSKA ——— Pitman English as a foreign language — intermediate. Kennt er fjóra daga í viku, tvœr klukkustundir í senn í fjórtón vikur. Pitmanspróf er tekiö í lok námskeiösins. Áhersla lögö á: málfrœöi, aukinn oröaforöa, skrifa eftir upplestri, ritgeröir, lýsingar og brét. VERSLUNARENSKA I Pitman English for Business Communications — elemantary. Kennt er fjóra daga I viku, tvœr klukkustundir í senn í fjórtán vikur. Pitmanspróf er tekiö í lok námskeiös- ins. Áhersla lögö á: samin verslunarbréf eftir ítarlegum minnisatriöum varöandi kaup og sölu, kvartanir, fyrirspurnir o.fl.; persónuleg bréf fyrir vinnuveitenda varö- andi meömœli, hamingjuóskiro.fl.; móttaka og sending skilaboöa gegnum síma og telex. VERSLUNARENSKA II Pitman English for Business communications — intermediate. Kennt er fjóra daga í viku, tvœr klukkustundirí senn í fjórtán vikur. Próf er tekiö í lok námskeiösins. Aöalatriöi prófsins eru þau sömu og í verslunarensku I en aukinheldur samin skýrsla eftir sundurlausum upplýsingum. Námstimi: 3. febrúar til 16. maí. Kennt fjóra daga vik- unnar og hœgt að velja á milli þriggja mismunandi tíma: 9—11, 13—15 og 16—18. Títínan I STOFNUNIN UPPLÝSINGAR OG INNRITUN í SÍMA 10004/21655 INNLENT IÁNANAUSTUM 15 mAlaskóli RITARASKÓLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.