Morgunblaðið - 22.01.1986, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.01.1986, Blaðsíða 1
48 SIÐUR STOFNAÐ1913 17.tbl. 72. árg.___________________________________MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR1986_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Kristjánsborgarhöll i Kaup- mannahöfn, en EB er óvinsæl- ast með Dönum. Evrópubúar: Styðja hug- mynd um bandaríki Brussel, Belgiu, 21. janúar. AP. FLESTIR íbúar í löndum Evrópubandalagsins eru þeirrar skoðunar að stofna eigi bandariki Evrópu, en eru efins um að slík hugmynd komist til framkvæmda fyrir næstu aldamót, að því er fram kemur i skoðanakönnun sem birt var í dag. Þó voru jafnvel ennþá fleiri þeirrar skoðunar að samræma ætti utanríkis- stefnu og efnahag þjóða í Evrópu, en þær myndu að öðru leyti halda fullveldi sinu óskertu. 51% íbúa í löndum Evrópu- bandalagsins voru fylgjandi hugmyndinni um stofnun bandarílq'a, 24% voru andvígir og 25% voru óákveðnir eða svöruðu ekki. Mest var fylgið meðal ítala, Frakka og Lúxem- borgara, en Danir skáru sig hins vegar úr hvað varðaði lítið fylgi við hugmyndina og voru raunar eina þjóðin í Evrópubandalag- inu, þar sem ekki var meirihluti fyrir nánari tengslum banda- lagsþjóðanna. Aðeins 14% Dana fannst þetta góð hugmynd og 60% voru andvígir henni. 75% íbúa EB voru fylgjandi nánari samvinnu á sviði efnahagslífsins en nu er. Suður-Jemen: Tuttugu og tveir deyja og 102 særast þegar bíll springur í Beirút: Logandi bensín þeyttist fimmtíu metra vegalengd Beirút, 21. janúar. AP. ^ J TUTTUGU og tveir Iétust og 102 slösuðust er mannlaus bifreið með sprengiefni sprakk í loft upp nálægt skrifstofu Falangista- flokks Amins Gemayels i hverfi kristinna í Austur-Beirút. Engin samtök hafa lýst ábyrgð á sprengingunni á hendur sér. Óstaðfestar fregnir herma að hiyðjuverkamennimir hafi látið sem svo að bifreiðin væri biluð, skilið hana eftir við gangstéttarbrúniha og komið sér í örugga flarlægð áður en þeir komu sprengingunni af stað með flarstýringu. í bflnum voru auk sprengiefna, kútar með bensfni og súrefni. Mikill eldur fylgdi því í kjölfar sprengingarinnar og kveikti hann í bflum í grenndinni með þeim Peres í Lundúnum Haag, 21.janúar. AP. SHIMON Peres, forsætisráð- herra ísraels, fór til Lundúna i kvöld, þar sem búist er við að hann hitti Richard Murphy, sér- legan sendimann Bandaríkja- stjórnar hvað varðar friðarvið- ræður fyrir botni Miðjarðar- hafsins, að máli í annað skiptið á fáum dögum. Umræðuefnið er mögulegar friðarviðræður við Jórdaníu, en ekki er búist við að það komi til fundar með Peres og Hussein, konungi Jórdanfu, sem nú er staddur í Lundúnum. Fulltrúi Peres sagði við frétta- menn fyrir brottförina frá Haag að ísraelar væm tilbúnir til beinna viðræðna við Jórdaníu um ástandið á vesturbakkanum og á Gazasvæð- inu og hvemig mætti bæta það. Búist er við að Peres reyni að fá Margaret Thatcher, forsætisráð- herra Bretlands, til að beita sér fyrir samningaviðræðum ísraela annars vegar og Jórdana og Palest- ínumanna hins vegar án þátttöku PLO, skæruliðahreyfingar Palest- ínuaraba, en góð tengsl eru milli Bretlands og Jórdaníu. afleiðingum að fjöldi ökumanna og farþega og gangandi vegfarenda brann til bana. Talið er að 250 kíló af sprengi- efni hafí verið í bflnum. 2,5 metra djúpur gígur myndaðist þar sem bfllinn var, logandi bensín sprautað- ist 50 metra vegalengd f allar áttir, átta byggingar hrundu í sprenging- unni og kviknaði í öðmm. Þetta er fyrsta bflsprengjan í Beirút á þessu ári, en að sögn létust 313 manns f slíkum sprengingum á síðasta ári. Sprengingin kemur í kjölfar viku- langra bardaga milli kristinna fylgj- enda Gemayels forseta og kristinna andstæðinga hans og Múhameðs- trúarmanna, sem njóta stuðnings Sýrlendinga. Þessir bardagar hafa kostað 400 manns lífíð og 800 hafa særst. Fregnir herma að sérsveitir sýrlenska hersins séu að koma sér fyrir í fjöllunum austan við Beirút °g liggi Sýrlendingar undir þrýst- ingi frá Múhameðstrúarmönnum að taka þátt í bardögunum gegn kristnum mönnum. Vegf arendur kalla á aðstoð eftir sprenginguna f Beirút. AP/Símamynd Skipulag Evrópubandalagsins: Danska þingið felldi breytíngartillöguna Kaupmannahöfn, 21. janúar. Frá Ib Bjömbak, fréttaritara Morgunbladsins. DANSKA þjóðþingið visaði naumlega á bug tillögu rfkis- stjórnarinnar um að samþykkja fram komnar breytingar á skipu- lagi Evrópubandalagsins. 80 þingmenn höfnuðu breytingun- Uppreisnarmenn sækia í sig veðrið Manama, 21.iammr. AP. J Manama, 21. janúar. Uppreisnarsveitir Ismail fyrr- verandi forseta virðast heldur sækja S sig veðrið f bardögum við her stjórnvalda f Suður- Jemen, að þvi er vestrænir og arabískir _ stjórnarerindrekar hermdu. Átök hafa aftur færst í aukana S höfuðborginni Aden og fregnir herma að barist sé f kringum sovéska sendiráðið f Khormatsar í úthverfi Aden. Mohammed, forseti, er sagður stýra her sinum frá fæðingarbæ sínum austan við Aden. Sovét- menn og Norður-Jemenar halda áfram tilraunum sfnum til að koma á vopnahléi. Haldið er áfram að bjarga útlend- ingum frá landinu. Britannia, snekkja Bretadrottningar, tók 200 erlenda borgara til viðbótar um borð, þar af 15 Breta og breska flutningaskipið Demantaprinsessan tók 200 að auki. Báðar hinna stríðandi fylkinga reyna að gera lítið úr átökunum í landinu og ýkja úr hófí fram tök Nasser Mohammed Abdul-Fattah Ismail sín á ástandinu í landinu. Þannig hefur ríkisútvarpið í Eþíópfu eftir Mohammed forseta, sem brá sér þangað á sunnudag til að tryggja sér stuðning stjómvalda þar, að hann hafi töglin og hagldimar í landinu, með þeirri undantekningu að barist sé í Aden. Útvarp upp- reisnarmanna segir hins vegar að ný samvirk stjóm hafí tekið við völdum og segir ástandið nær eðli- legt. um, en 75 þingmenn studdu þær. Uffe Elleman-Jensen, utanríkis- ráðherra, fer á morgun í þriggja daga ferð til sex höfuðborga Evrópu að kynna stjórnvöldum þar afstöðu Dana og að þvi loknu verður málið að takast upp í þinginu á nýjan leik. Það er hins vegar ekkert sem bendir til þess að ekki komi til þjóð- aratkvæðagreiðslu um breytingam- ar á skipulagi Evrópubandalagsins, en það er óljóst hvort af henni getur orðið fyrir Norðurlandaráðsþingið i Kaupmannahöfn, sem verður 3.-7. mars. Talsvert hefur verið rætt um að atkvæðagreiðslan fari fram 25. febrúar. Sósíaldemókrataflokkurinn er andvígur breytingum á skipulagi Evrópubandalagsins og greiddi atkvæði á móti þeim, sem og Radí- kalaflokkurinn, en þeir styðja efna- hagsstefnu rikisstjómar borgara- flokkanna. Einn þingmaður frá hvorum flokki greiddi þó atkvæði með breytingunum. y

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.