Morgunblaðið - 04.02.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR1986
5
Prófkjör Alþýðuflokksins í Hafnarfirði;
Guðmundur Árni
Stefánsson í 1. sæti
ússon í samtali við Morgunblaðið.
„Þátttakan í þessu prófkjöri var
mjög glæsileg," sagði Bjami. „Nú
var kosið um þrisvar sinnum færri
sæti en í síðasta prófkjöri, 2 á móti
6. Þar af leiðandi var fjöldi fram-
bjóðenda mun minni nú, eða 7 á
móti 12. Aðeins þessar forsendur
hefðu átt að valda mun minni þátt-
töku en hún var mjög_ mikil, hátt í
það sama og síðast. í annan stað
eru úrslitin afgerandi. Það er mjög
afgerandi munur milli mín og Sig-
urðar og Bryndís kemur frábærlega
sterk út úr þessu í annað sætið.
Lög Alþýðuflokksins kveða þannig
á, að 20% af kjörfylgi frá síðustu
kosningum þurfi til að úrslitin séu
bindandi og svo er nú. Þeir, sem
vilja, geta skoðað öll úrslit próf-
kjörsins, en við hin, sem nú höfum
sigrað, ætlum bara að vinda okkur
að baráttunni framundan, borgar-
stjómarkosningunum. Ég vísa öllu
tali um það, að úrslitin séu ekki
bindandi og niðurstaðan ekki afger-
andi á bug,“ sagði Bjami.
Sigurður E.
Guðmundsson:
Eg barðist einn gegn
ofurefliliðs
„ÉG TEL mig hafa náð mjög
góðum árangri í þessu prófkjöri,
miðað við allar aðstæður. Mig
langar þvi tíl að færa öllu Al-
þýðuflokksfólki í borginni, vin-
sem kemur fram í íjölgun félags-
manna um rúmlega fjögurhundr-
'uð,“ sagði Svavar Gestsson. „Niður-
stöðumar sýna að þama er um
sigurstranglegann hóp fyrir flokk-
inn að bjóða fram og ég tel mikil-
vægt að þessum áfanga sé náð og
hægt sé að fara að snúa sér að
kosningabaráttunni. Forvalið raðar
í sæti og markar stefnuna og ég
hef ekki orðið var við sérstaka
uppreisn hjá okkur, allir em sam-
heijar.
Það vekur náttúrlega athygli að
Guðmundur Þ. Jónsson færist mikið
til en það leiðir af sjálfu sér þegar
margir stefna á sama sætið.
Tryggvi Þór Aðaisteinsson sem er
einn af forystumönnum verkalýðs-
hreyfingarinnar hreppir sætið en
hinn ekki. Hins vegar má benda á
að Siguijón Pétursson er kominn
til starfa sem félagi í hefðbundnum
verkalýðssamtökum og Guðrún
Agústsdóttir hefur tekið þátt í
verkalýðsmálum á vegum opinberra
starfsmanna.“
Hefur orðið útundan
í skotgrafahernaði
„Það vom mér mikil vonbrigði
að Guðmundur Þ. Jónsson skyldi
ekki fá fleiri atkvæði en hann fékk,“
sagði Ásmundur Stefánsson. „Það
er alveg ljóst að í þessu forvali var
mjög hart barist og margir sem
sóttust hart eftir að komast mjög
ofarlega á listann, ekki síst í 3.
sætið. Það er greinilegt að í þessum
skotgrafahemaði hefur hann orðið
útundan.
Ég hefði gjaman viljað hafa list-
ann öðmvísi - en hann varð svona
og svo er bara að vona að listinn
standi sig betur í næstu baráttu -
baráttunni við íhaldið.“
Verkafólk er í minni-
hluta innan flokksins
„Ég held að orsakanna sé ekki
langt að leita,“ sagði Guðmundur
J. Guðmundsson. „Guðmundur Þ.
Jónsson er ekki mikill auglýsinga-
maður - ekki snjall í að auglýsa
eigið ágæti eins og virðist vera
aðalatriðið í forvalinu. Þá sýnist
mér að all skuggalegir hlutir séu
að gerast sem flokkurinn mætti
fara að athuga en það er samsetn-
ingin. Hún er orðin þannig að
almennt verkafólk er orðið í miklum
minnihluta meðal flokksmanna.
Vænlegra að vera í skóla en for-
svarsmaður láglaunafólks til að
komast áfram innan flokksins."
um mínurn og velunnurum hjart-
anlegar þakkir fyrir stuðning-
inn. Ég er þeirra skoðunar að
Alþýðuflokksfólk hafi aldrei
veitt mér jafn ríkan og mikinn
stuðning eins og einmitt nú að
þessu sinni. Ég barðist einn gegn
ofurefli iiðs, sem saman stóð af
mörgum aðilum og öflum,“ sagði
Sigurður E. Guðmundsson í
samtali við Morgunblaðið.
„í fyrsta lagi er þess að geta,“
sagði Sigurður ennfremur, „að
flokksforystan stóð meira og minna
sem einn veggur gegn mér og hefur
reyndar grafið undan mér leynt og
ljóst allt síðastliðið ár. í öðru lagi
lít ég svo á, að tveir meðframbjóð-
endur mínir, Bjami P. Magnússon
og Bryndís Schram, hafi þverbrotið
próflqorsreglumar, sem kváðu á um
einstaklingsbundin framboð með
stofnun sérstaks hræðslubandalags
gegn mér einum. Auk þessa veittu
þau ótrúlega miklu fjármagni í
auglýsingaskyni, hvemig sem það
er fengið. í þriðja lagi tel ég að
fáranlegar niðurstöður skoðana-
könnunar DV í liðinni viku hafi
komið eins og eftir pöntun og spillt
verulega fyrir mér. En þrátt fyrir
allt þetta er ég þeirra skoðunar, að
ég hafi haft mjög góða möguleika
á því að ná sigri, ef ekki hefði komið
eitthvað fleira til. Ég hef sterkan
gmn um það, að það hafi verið ein
af einkakosningavélunum innan
Sjálfstæðisflokksins, sem hafi
hlaupið undir bagga með hræðslu-
bandalaginu og lagt nægilega mikið
að mörkum til þess að það vann
sigur. Slíka aðför stóðst ég ekki til
viðbótar öllu hinu,“ sagði Sigurður
E. Guðmundsson.
PRÓFKJÖR Alþýðuflokksins í
Hafnarfirði fór fram uin helg-
ina. Finun efstu frambjóðend-
urnir hlutu bindandi kosningu,
en til þess þurfti a.m.k 267
atkvæði. Hörður Zóphaníasson
bæjarfulltrúi gaf ekki kost á sér.
Úrslit prókjörsms urðu þannig
að Guðmundur Ámi Stefánsson
bæjarfulltrúi hlaut 389 í fyrsta
sætið. í öðm sæti er Jóna Ósk
Guðjónsdóttir með 271 atkvæði í
fyrstu tvö sætin. í þriðja sæti er
Ingvar Viktorsson með 324 at-
kvæði í 1. - 3. sæti. í fjórða sæti
er Tryggvi Harðarson með 271
atkvæði í 1. - 4. sæti og í fímmta
sæti er Valgerður Guðmundsdóttir
með 330 atkvæði í 1. - 5. sæti.
Alls kusu 579 manns í prófkjör-
inu.
PHILCO A HÖRKUGOÐU VERÐI.
ÞVOTTAVÉL FYRIR KR. 27.760.-
OG ÞURRKARINN FYRIR KR. 20.780.-
Philco 421 þurrkarinn.
Philco þurrkarinn tekur 5 kg af þurrþvotti
sama magn og þvottavélin. Hann er
einfaldur í notkun; þú velur á milli 3
sjálfvirkra þurrkkerfa sem henta öllum
tegundum þvottar. Þurrktími getur
varaö allt aö tveimur klst. auk átta
mínútna kælingar í lok þurrkunar.
Philco w 393 þvottavélin.
Ytri belgurinn sem er úr ryðfríu stáli gerir
Philco aö enn betri og öruggari
þvottavél en áöur. Vélin vindur meö
allt aö 1000 snúninga hraöa á mínútu.
Hún hefur stóran þvottabelg og. tekur
inn á sig bæöi heitt og kalt vatn.
Þannig sparast umtalsverö orka.
Hægt er aö láta þurrkarann standa ofan á þvottavélinni
- það sparar þér dýrmætt rými og eykur vinnuhagræði.
Á vélunum er öryggisbúriaður sem tryggir þér betri endingu og lægri viðhaldskostnað.
Að síðustu má ekki gleyma að vélarnar heita Philco
og eru frá Heimilistækjum. Það talar sínu máli: Traust nöfn, sanngjarnt verð og örugg þjónusta.
Láttu Philco skila þér þvottinum hreinum og þurrum - engar snúrur, engar áhyggjur.
Við erum sveigjanlegir í samningum.