Morgunblaðið - 07.02.1986, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 07.02.1986, Blaðsíða 5
5 MORGUNBLAÐH), FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR1986 Selfoss, áður Selá, með saltfisk til Spánar TEKIST hefur að útvega verk- efni fyrir tvö af þeim þremur skipum, sem Eimskip keypti úr þrotabúi Hafskips. Fyrir nokkru sigldi Laxfoss, fyrrum Hofsá, til Bretlands og megin- lands Evrópu með ferskan og frystan fisk. Og síðdegis í gær sigldi Selfoss áður Selá, tíl Hafnarfjarðar, þar sem skipið lestar saltfisk sem seldur hefur verið til Spánar. Rangá hefur hins vegar hvorki fengið verk- efni né nýtt nafn enn sem komið er. Að sögn Valtýs Hákonarsonar yfirmanns flutningasviðs Eim- skipafélagsins mun Laxfoss lesta í Vestmannaeyjum á næstu dög- um og halda í aðra ferð til Bret- lands og meginlandsins. Hann sagði að önnur verkefni hefðu hins vegar ekki fengist enn fyrir skipin. Selá breytt í Selfoss. Gjaldþrot Hafskips hf. Stefnt að skipta- fundi í júní Skiptaráðendur Hafskips hf. stefna að því að efna til skiptafundar i búi félagsins í júní. Kröfulýsingafrestur rennur út 15. maí. Unnið er að rannsókn málsins af skiptaráðendunum, þeim Markúsi Sigurbjörnssyni og Ragnari Hall. Hafa þeir fengið starfsmenn Endur- skoðunarmiðstöðvarinnar hf. - N Mancher til liðs við sig. Skiptaráðendur verjast allra frétta af gangi málsins. Þeir vinna að því að afla sem gleggstra upplýs- inga um rekstur fyrirtækisins. í því skyni hafa þeir kallað til ýmsa fyrrverandi starfsmenn Hafskips hf. og spurt þá um einstök atriði eða almennt um ákvarðanir varð- andi fyrirtækið og afkomu þess. Samkvæmt gjaldþrotalögum get- ur skiptaráðandi boðað til skipta- funda, þegar hann telur þess þörf. Fundir þessir hafa ákvörðunarvald um málefni þrotabús innan þeirra marka, sem lög ákveða. Fer at- kvæðisréttur á þeim eftir flárhæð krafna. Á fyrsta skiptafundi eftir lok kröfulýsingarfrests skal skipta- ráðandi bera fram tillögu um tiltek- inn skiptastjóra og er greitt um hann atkvæði eftir kröfufjárhæð- um. Enn hafa kröfuhafar rúma þrjá mánuði til stefnu til að lýsa kröfum í þrotabú Hafskips hf. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er ekki unnt á þessari stundu að gera sér grein fyrir því, hve ^háar fjárhæðir er hér um að tefla. Á fyrsta skipta- fundi, sem ætlunin er að halda í júní, skýra skiptaráðendur opin- berlega frá stöðu búsins og kröfu- hafar fá aðstöðu til að taka ákvarð- anir um málefni þess. Morgunblaðið talaði í gær við Jón Þorsteinsson, hæstaréttarlögmann, sem er formaður rannsóknanefndar þeirrar, sem Hæstiréttur tilnefndi til að rannsaka viðskipti Hafskips við Útvegsbankann og aðra aðila. Jón sagði, að nefndin hefði hafið störf, en af þeim vildi hann ekkert segja á þessu stigi. Auk Jóns eru í nefndinni Biynjólfur I. Sigurðsson, dósent við Háskóla íslands, og Sigurður Tómasson, löggiltur end- urskoðandi. Þú getur gert stór góðkaupá vetrar-útsölunni Austurstræti 22. Laugavegi 30. Laugavegi 66. Glæsibæ. Bonaparte i(í=k JL Austiirstrapt tjgp S. Austurstræti 22 GIRBD Austurstræti 22

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.