Morgunblaðið - 19.02.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1986
Stjórnir verkalýðsfélaganna á Austurlandi:
Fordæma brottrekstur
formanns verkalýðsfé-
lagsins úr kaupfélaginu
Egilsstöðum 18. febrúar.
STJÓRNIR stéttarfélaga á
Austurlandi komu saman til
fundar í Valaskjálf á Egilsstöð-
um um helgina. Til fundarins
komu um 50 manns á svæðinu
á milli Vopnafjarðar og Breið-
dalsvíkur. Á dagskrá fundarins
var meðal annars brottrekstur
formanns Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Fáskrúðsfjarðar
úr Kaupfélagi Fáskrúðsfirð-
inga og samþykkti fundurinn
að fordæma hana.
Ályktunin var svohljóðandi:
„Fundur stjórna stéttarfélaga á
Akureyri:
Slasaðist
Austurlandi haldinn í Valaskjálf
15. febrúar 1986 fordæmir að-
gerðir stjómar og framkvæmda-
stjóra Kaupfélags Fáskrúðsfirð-
inga gegn formanni Verkalýðs-
félags og sjómannafélags Fá-
skrúðsfjarðar. Fundurinn telur að
nái gerræðislegar aðferðir Kaup-
félags Fáskrúðsfirðinga tilgangi
sínum sé opin leið til skipulegra
árása vinnuveitenda á einstaka
forystumenn verkalýðshreyfing-
arinnar fyrir það eitt að fram-
kvæma samþykktir sinna stéttar-
félaga. Fundurinn skorar á stjóm
Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga að
draga brottrekstur formanns
Verkalýðs- og sjómannafélags
Fáskrúðsfjarðar til baka. Verði
stjóm Kaupfélags Fáskrúðsíjarð-
ar ekki við því skorar fundurinn
á miðstjóm ASI að láta málið til
síntaka."
— Ólafur
Lærbrotnaði um borð í Viðey
Morgunblaðið/Júlíus
HÁSETI á togaranum Viðey RE lærbrotnaði í gær þegar togarinn var á veiðum á Reykjaneshrygg.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, sótti hásetann og var hann fluttur á slysadeild Borgarspítal-
ans. Myndin var tekin þegar maðurinn var fluttur úr þyrlunni.
á æfingn
Akureyri, 18. febrúar.
FÉLAGI í hjálparsveit Skáta
á Akureyri slasaðist á laugar-
daginn á Súlumýrum er sveitar-
menn voru þar á björgunaræf-
ingu. Óhappið varð með þeim
hætti að Baldvin Stefánsson ók
á snjósleða fram af snjóhengju
og mun snjóblinda hafa valdið
þvi að hann sá ekki hengjuna.
Talstöð vélsleðans eyðilagðist
og gat Baldvin því ekki kallað á
félaga sína sér til hjálpar. En
hann hafði neyðarblys meðferðis
og gat notað það. Blysið sást og
komu félagar Baldvins honum til
hjálpar.
Baldvin var fluttur á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri. Hann er
fótbrotinn með brákaðan hrygg
og smávægilega áverka að auki.
Vélsleðinn er ónýtur.
Seltjarnarnes:
Brotist inn
í apótekið
TVEIR ungir menn voru hand-
teknir í fyrrinótt eftir að hafa
brotist inn í apótekið á Seltjarn-
arnesi. Þeir voru teknir í kjölfar
innbrotsins skammt frá og höfðu
komist yf ir skiptimynt.
OPEL RECORD
1 bíll eftir
OPEL KADETT
3 bílar eftir
Nýjung í bílaviðskiptum á íslandi ^KAUPLEIGA
reglulega af
ölmm
fjöldanum!
ENGIN
ÚTBORGUN
Bílvangur býður nú fjórar tegundir af OPEL '85 eða ársfjórðungslegum til allt að fjögurra ára.
á sérlega hagstæðu verði og NÝJUM GREIÐSLU- Nánari upplýsingar veita sölumenn okkar að
KjÖRUM-KAUPLEIGU. EHöfðabakka 9 eða í síma 687300.
Nú eiga menn völ á mánaðarlegum greiðslum
BiLVANGURsf? I
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300