Morgunblaðið - 21.02.1986, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR1986
15
fullan á almannafæri. í dag eyðir
þorri ungs fólks sínum vasapening-
um í heilsurækt og fín fot. Það er
„stællinn". Og þessi breyting hefur
einmitt átt sér stað á sama tíma
og veitingastöðum með vínveitingar
hefur Qölgað um helming í landinu.
Það verður með öðrum orðum
minna eftirsóknarvert að sjást undir
áhrifum áfengis þegar framboðið
hefur aukist verulega.
Einmitt þetta atriði er allrar
athygli vert. Eða ætti ekki áfengis-
neysla í landinu að hafa stóraukist
með flölgun vínveitingahúsa? Það
segja okkur rannsóknir sem Ámi
Gunnlaugsson vitnar sífellt í. Stað-
reyndin er þó sú, að fremur hefur
verið um samdrátt að ræða og
glæný frétt frá Áfengisvamarráði
staðfestir einmitt að svo hafí verið.
Skýtur það ekki skökku við niður-
stöður rannsóknanna?
Hug-arfarsbreyting-
gagnvart áfengi
Hugarfarsbreyting gagnvart
áfengi er að eiga sér stað í landinu.
Sú sælkeraöld sem við emm að
gahga inn í hefur átt ríkan þátt í
því. Fjölgun milliklassa veitinga-
staða þar sem léttvín er haft um
hönd hefur smátt og smátt leitt til
hóflegri drykkju. Menn neyta minna
áfengismagns, en velja vínið af
meiri kostgæfni og gefa því meiri
gaum, hvað í glasinu er. Það, að
fara á matsölustað og fá sér glas
af léttu víni með góðum mat er
mikið að koma í stað þess að kaupa
flösku af sterku áfengi til neyslu í
heimahúsum áður en haldið er á
dansleik.
Vissulega er ofneysla áfengis
viðurstyggð og geri ég enga tilraun
til að mæla henni bót. En hóflega
drukkið vín gleður mannsins hjarta,
eins og þar stendur. Áfengi er einn
af þessum hlutum, sem umgangast
ber af varúð, rétt eins og það getur
verið hættulegt að aka fjölskyldu-
bílnum of hratt, temja sér ofát eða
fara yfir götu án þess að líta fyrst
til beggja handa. Meira að segja
hefur landlæknir varað landslýð við
því að elskast ógætilega. Slíkt geti
leitt til alnæmissmitunar. Varúðar
er víðast þörf.
Bæjarbúum blöskrar
Skynsamlega rekin bindindis-
fræðsla er af hinu góða, en öfgafull-
ur áróður og aðgerðir bindindis-
manna geta líka snúið vopnunum í
höndum þeirra. Þannig hefur fram-
ganga þeirra í málum veitingarekst-
urs í Hafnarfirði á síðustu mánuð-
um leitt til þess, að bæjarbúum
hefur blöskrað. Það sýnir hin mikla
þátttaka í undirskriftasöfnuninni
og sýnir sig væntanlega einnig í
kjörklefanum næstkomandi laugar-
dag.
Höfundur er ritstjóri og útgefandi
tímaritanna Lúxus ogHús & hi-
býli.
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
Á JÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁRÁÐHÚSTORGI
Atkvæðagreiðsla
um áfengisútsölu
ATKVÆÐASEÐILL
Ert þú samþykk(ur) opnun
áfengisútsölu í Hafnarfirði?
□ JÁ
□ NEI
eftirPil V.
Daníelsson
Á morgun, laugardaginn 22.
febrúar, fer fram atkvæðagreiðsla
um heimild fyrir Áfengis- og tób-
aksverslun ríkisins til þess að opna
áfengisútsölu í Hafnarfírði.
Hér er um alvarlegt mál að ræða.
Atkvæðagreiðslan er eingöngu um
þann þátt áfengismálanna að gera
fólki auðveldara að kaupa áfengi
en snertir ekki aðalvandamálið, sem
er afleiðingar áfengisneyslunnar,
en að öðru jöfnu eykur Qölgun út-
sölustaða neysluna og þar með það
böl, sem af henni leiðir. Við þurfíim
því að íhuga þessi mál vel, látum
þau ekki fram hjá okkur fara heldur
tökum afstöðu með tilliti til málsins
í heild og gera það eitt, sem vamar
því að ástandið í áfengis- og öðrum
vímuefnamálum versni og helst að
bæta nokkuð úr.
Áfengisútsalan hefur hvergi bætt
úr slæmu ástandi í áfengismálum
en hún hefur víða gert það verra.
Það er því rökrétt að segja nei.
Ef við viljum almennt vinna gegn
„Áfengisútsalan hefur
hvergi bætt úr slæmu
ástandi í áfengismálum
en hún hefur viða gert
það verra. Það er því
rökrétt að segja nei.“
vímuefnaneysiu, en byijun hennar
er áfengisneysla, þá segjum við nei.
Ef við viljum forða fólki, yngra
sem eldra, frá vaxandi böli vímu-
efnaneyslunnar, þá hljótum við að
segja nei.
Ef við viljum ekki að við sjálf
eða okkar nánustu lendi í því að
þurfa að greiða þann toll, sem
áfengisneysian tekur af svo allt of
mörgum, þá skulum við segja nei.
Ef við viljum draga úr slysatíðni
vegna ölvunaraksturs hljótum við
að segja nei.
Ef við viljum ekki taka þá áhættu
að áfengisútsalan verði staðsett í
nágrenni við íbúðarhverfí okkar þá
er rétt að segja nei.
Ef við viljum vemda bæinn okkar
fyrir auknu böli vimuefnaneyslunn-
ar verðum við að segja nei.
Margt fleira sem miður fer í
sambandi við áfengisneyslu mætti
telja eins og aukin lögbrot, ofbeldis-
verk, lausung og hverskonar spill-
ing^u. Við þurfum því að vera vel á
verði, gera okkur grein fyrir málum
og mæta á kjörstað til þess að taka
virka afstöðu. Og sú afstaða hlýtur
að miðast við það að hugsa um
velferð þessa byggðarlags í heild
en ekki einhvem ímyndaðan stund-
arhag tiltölulega fárra.
Höfundur er kunnur baráttumað-
urgegn vínneyslu.