Morgunblaðið - 21.02.1986, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 21.02.1986, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1986 II UUI . VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 14—15 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS IWUJMWUM'tJ If Þessir hringdu . . . Afkomendur Ingibjargar Björnsdóttur Álfheiður Guðmundsdóttir hringdi: Ég óska eftir að hafa sam- band við afkomendur Ingibjarg- ar Bjömsdóttur. Hún fæddist á Syðri-Þverá í Vesturhópi, gift Guðmundi skipstjóra í Reykja- vík. Tilgangurinn er að koma til skila gömlum myndum. Sím- inn er 27214. Eiður og íslensk karlremba Svava Guðmundsdóttir hringdi: Mér finnst undarlegt hvað Eiður Guðnason alþingismaður virðist hræddur við kvennalista- konur. Um daginn kvartaði hann sáran í íslenskuþættinum yfír því að Sigríður Dúna Krist- mundsdóttir talaði um þing- konur en ekki þingmenn þegar fjallað væri um konur á þingi. Eg held að það væri margt annað og mikilvægara sem Eiður gæti benti á sem þyrfti að lagfæra í þessu þjóðfélagi áður en að þessu atriði kæmi. Stuttu seinna var haft eftir honum að aðrir Norðurlandabú- ar kímdu f laumi þegar minnst væri á sérframboð kvenna á fs- landi. Þetta eru nýjar fréttir fyrir okkur því nágrönnum okkar hefur þótt mikið til um íslenska kvennapólitík og fylgst vel með henni. Mér ásamt öðrum hefur dottið í hug að áhugi Eiðs á kvenna- framboðinu sé tii kominn vegna þess að hann skammist sín fyrir íslenska karlrembu. Hér á landi er hlutfall kvenna á þingi nefni- lega 15% og hækkaði reyndar úr fímm af hundraði eftir síðustu þingkosningar. Á hinum Norð- urlöndunum er þetta hlutfall mun hærra eða 25—28%. Að lokum langar mig að þakka fyrir þættina „Á líðandi stund“. Agnes Bragadóttir er góður spyrill og spyr hvassra spuminga, sem fólk kemst ekki upp með að leiða hjá sér. Þó fínnst mér furðulegt að hún fær aldrei að tala við sjálfstæðis- menn. Að þessu leyti fínnst mér þátturinn fá pólitískt yfírbragð og er það miður. Erindi Hugrúnar Guðrún hringdi: Þakka ber athyglisvert erindi sem Hugrún skáldkona flutti í þættinum Um daginn og veginn, mánudaginn 17. febrúar. Þar stakk hún á ýmsum kýlum, ef ekki banvænum meinsemdum í þjóðfélaginu okkar og annarra þjóða. Það er staðreynd að hömlu- laust svokallað „frelsi" getur eyðilagt óþroskaða unglinga svo aldrei verður bætt. Ef til vill eig- um við of fáa góða ábyrga for- eldra en of marga fræðinga ýmiss konar. Skúlaskála og Völund að söfnum Einar Vilhjálmsson hringdi: Nú stendur til að rífa Kveldúlfs- húsið og Völund við Skúlagötuna og eru rökin meðal annars þau að ekki sé hægt að tengja þau upprunalegum tilgangi sínum á nokkum máta. Þetta tel ég rangt. Það er áhugamál þjóðminjavarðar og fleiri manna að gera Kveldúlfs- húsið að sjóminjasafni og Völund að iðnminjasafni og yrði söfnun- um þar með búin framtíðarað- staða. Auk þess em húsin sýning- argripir sjálf og merkir kaflar í atvinnusögu Reykjavíkur. Á þess- um stöðum yrði þá komið á einn stað mörgum merkum munum, sem annars yrðu á víð og dreif um borgina og týndust áður en langt um liði. Vitaskuld þyrfti að sinna endurgerð og viðhaldi ým- issa véla og tækja, en slík störf gætu verið unnin af nemum Sjó- mannaskólans sem hluti af námi þeirra. Mér fínnst meiri ástæða til þess að Reykvíkingar komi upp veg- legu sjóminjasafni en að svo sé gert í Hafnarfirði. Upphaf sjó- minjasafnsins þar má rekja til áhuga Gísla Guðmundssonar fyrr- verandi lögregluþjóns en hann safnaði mörgum gömlum gripum. Þegar hans naut ekki lengur var mununum síðan komið yfír á ríkið með því að kalla þá sjóminjasafn. í Hafnarfírði, sem var áður ver- stöð eins og hver önnur, er engin ástæða til að starfrækja sjóminja- safn til frambúðar enda stendur safnið nú þegar ekki undir nafni og er þar ftjálslega farið með staðreyndir. Mikið fé hefur verið lagt í safnið í Hafnarfírði, sem hefði verið betur komið annars staðar. Kveldúlfshúsið og Völundur eru veglegustu gjafir sem hægt væri að gefa Reykjavík á 200 ára afmæli hennar á þessu ári. Einvalalið á Klöpp Eigandi R: 40548 hringdi: Mig langar að þakka starfs- mönnum smurstöðvarinnár á Klöpp sérlega góða afgreiðslu. Viðmót afgreiðslufólks er jafn ólíkt og það er margt, en í þau 12 ár sem ég hef notið þjónustu smurstöðvarinnar hef ég aldrei mætt öðru en einstakri kurteisi og alúð. Endursýnið „Á líðandi stundu“ Dagga hringdi: Við erum hér fleiri saman sem langar til að fara þess á leit við sjónvarpið að endursýna þáttinn „Á líðandi stundu“ frá 29. janúar síðastliðnum. í honum var rætt við Karvel Pálmason og Helga Seljan en því miður misstum við af honum. Geymið lyf þar sem bðrn. tí\ ekki tii Omaklega veg- ið að heilsu- hæli NLFÍ Ég hef árlega dvalið á Heilsuhæli Náttúrulækningafélagsins um 15 ára skeið, en eftir þau skrif í blöðum sem ég hef séð undanfarið get ég ekki orða bundist, þar sem svo ómaklega er að þessari stofnun vegið. Eg er einstæð kona, 77 ára, og reyni að sjá fyrir mér sjálf en fer árlega austur á Heilsuhæli. Þessi tími þar hefur verið mér bæði til- hlökkunarefni og heilsubót, hvert ár. Sama er að segja um ýmsa sem ég þekki og hafa dvalist þama og fengið góða hvíld og bót meina sinna. Aðstaðan þama er öll til fyrirmyndar, böðin, sundlaugin, nuddpottamir og síðast en ekki síst maturinn og ágætir læknar og starfsfólk. Aldrei hef ég orðið vör við að farið sé í manngreinarálit á þessum stað og hef ég séð að starfs- fólkið er af ýmsu tagi, ekki nærri allt úr því félagi sem rekur hælið. Þó ég sé ekki í Náttúrulækninga- félaginu þykir mér vænt um þennan stað og fínnst að forráðamenn þjóð- arinnar og blaðamenn ættu frekar að þakka fyrir það góða starf sem þama er unnið en vega ekki ómak- leg að starfi þessa heilsuhælis. Þakklátur vistmaður í§*. Sólskin 0 stofuna! þegar þig furu þá er úrvalið mest hjá okkur Við tökum að sjálfsögðu greiðslukortin bæði sem út- borgun á kaupsamninga og sem staðgreiðslu með 5% af- slætti ~r m HUS6A6NAH0LLIN BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK« 91-81199 og 81410 Blaðburóarfólk óskast! Austurbær Hvassaleiti 18-30 Leifsgata

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.