Morgunblaðið - 21.02.1986, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 21.02.1986, Blaðsíða 47
MORGUNBliKÐIÐ/FÖSTUDAKSÖRfii: FEBEÚAR1986' 47 Pálmar var hreint stórkostlegur HAUKAR sluppu með skrekkinn í gærkvöldi er þeir sigruðu KR-ingana í úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Haukar skoruðu Knattspyrnu- punktar Frá Bob Hennessy, fréttaritara Morgunbladsins á Englandi. ABERDEEN skaust upp í ann- að sætið í skosku úrvalsdeild- inni í knattspyrnu á miöviku- dagskvöldið er liðið vann Rangers með einu marki gegn engu í alisögulegum leik. Það voru alls átta leikmenn bókaðir og tveir reknir útaf, einn úr hvoru liði. Það var James Bett sem var rekinn útaf úr liði Aberdeen. PAT JENNiNGS sagði á miðvikudaginn að hann væri ekki viss um að hann hefði gert rétt í því að samþykkja að fara til Mexíkó. „Ég hef ekki leikið í 1. deildinni nú í 10 mánuði og ég er orðinn fertugur þannig að ég er ekki alveg eins viss um að ég hafi gert rétt þegar ég tók þessa ákvörðun. Ef ég fer til Mexíkó þá er þetta sjötta heimsmeist- arakeppnin mín og það er bara ansi gott held ég," sagði hann í gær. Því má svo bæta hér við að hann hefur haldið mark- inu hreinu í síðustu fimm leikj- um með N-[rlandi en alls hefur hann leikið 113 leiki fyrir N-íra. BANDARÍKJAMENN settu enn eitt metið í vikunni. Steve Guzell, sem er knattspyrnu- maður, var þá seldur fyrir eina milljón dollara frá San Diego til Tacoma Stars. Rétt er að það fylgi sögunni að drengur þessi leikur aðeins innanhús- knattspyrnu. Strax að sölunni lokinni léku liðin saman og var Guzell skipt útaf eftir 15 mínút- ur. Hann labbaði sér að bekkn- um og settist auðvitað á vara- mannabekk San Diego af gömlum vana. PAUL MILLER hefur fram- lengt samningi sínum við Tott- enham um tvö ár en hann hefur nú verið hjá félaginu í rúm tíu ár eða frá því hann var 14ára. HULL er mikið í fréttunum núna. Framkvæmdastjóri knattspyrnuliðs staðarins ætl- ar að kaupa Gary Parker, miðjuleikmanninn hjá Luton, í dag og kaupverðið er 70.000 pund sem þykir mikið fyrir tví- tugan knattspyrnumann. SKATTHEIMTUMENN í Skotlandi eru að gera knatt- spyrnumönnum lífið leitt þessa dagana. Þeir komust að því á dögunum að frímiðar þeir sem knattspyrnumenn fá fyrir hvern leik og dreifa til vina og kunningja eiga að teljast til skatts. Þetta gæti þýtt að þegar leikið er á laugardögum þurfi þeir 800 knattspyrnu- menn sem þá leika að greiða alls um 10.000 pund. FYRIR ÞREMUR árum léku Brighton og Manchester Un- ited til úrslita í bikarkeppninni ensku. í liði Brighton lék þá Gordon nokkur Smith sem þótti standa sig mjög vel þó svo honum tækist ekki að skora á lokamínútunni er hann komst einn í gegn. Hvað um það í vikunni keypti Oldham Smith frá Manchester City fyrir aðeins 5.000 pund. Hann má muna sinn fífil fegri dreng- urinn sá. 95 stig gegn 89 stigum KR en staðan í leikhléi var 62:44. Það var fyrst og fremst frábær leikur !>eirra Pálmars Sigurðssonar og vars Webster sem skóp sigur Hauka því þrátt fyrir að vera vel yfir í leikhléi var sigurinn alls ekki öruggur þar sem KR-ingar léku frábærlega í sfðari hálfleik og voru nærri því að vinna en það tókst ekki og þar með eru þeir ekki lengur inni f myndinni varð- andi úrslitakeppnina. Pálmar skoraði átta þriggja stiga körfur í leiknum og er það met í úrvals- deildinni í vetur, en alls skoraði kappinn 48 stig og er nú stiga- hæstur í deildinni. Haukar léku hreint frábærlega í fyrri hálfleik og komust um tíma í 22ja stiga forystu, 58:36, en hún átti eftir að minnka. Vörnin var mjög góð og nýtingin í sóknunum einnig. Þeir hittu bókstaflega úr hverju skoti og voru vel að foryst- unni komnir. í síðari hálfleik snerist dæmið algjörlega við. KR-ingar léku mjög vel en Haukar að sama skapi mun verr en í fyrri hálfleiknum. Það hvorki gekk né rak hjá þeim núna en allt gekk eins og i lygasögu hjá KR-ingum. Þeir léku mjög skyn- samlega því þeir spiluðu upp á góð færi og smám saman tókst þeim að minnka muninn. Staðan þegar fjórar mínútur voru til leiksloka var 83:82 en þá misstu KR-ingar sinn besta mann, Guðna Guðnason, útaf með fimm villur. Guðni hafði átt mestan þátt í góðum leik KR í síðari hálfieik ásamt bakvörðunum Páli og Ást- þór. Haukar náðu síðan að knýja fram sigur með stórkostlegum kafla þeirra Pálmars og Webster eins og áður sagði og sigra í þess- um bráðskemmtilega leik. Bæði liðin geta verið stolt af þessum leik, en því miður Haukarnir aðeins í fyrri hálfleiknum. Stig Hauka: Pálmar Sigurösson 48, ivar Webster 20, Henning Henningsson 8, Kristinn Kristinsson 8, Ólafur Rafnsson 5, ívar Ás- grímsson 4, Eyþór Árnason 2. Stig KR: Birgir Mikaelsson 33, Guðni Guönason 19, Garöar Jóhannsson 10, Páll Kolbeinsson 10, Ástþór Ingason 8, Þorsteinn Gunnarsson 4, Guömundur Jóhannsson 3, Guömundur Björnsson 2. -ágás. HM í badminton: Frakkar lagðir ÍSLENSKA kvennalandsliðið í badminton vann franskar bad- mintonkonur f heimsmeistara- keppninni í badminton sem fram fer íV-Þýskalandi. íslensku stúlk- Svisslendingar græða Frá Jóhanni inga Gunnarssyni fréttaritara Morgunblaösins í Þýskalandi. SVISSLENDINGAR eru ánægðir með væntanlega heimsmeistara- keppni í handknattleik sem hefst þar nú eftir helgina. Þegar er búið að selja 80% af þeim 120.000 miðum sem seldir verða á keppn- ina og þeir áætla að þegar öllu er lokið þá standi þeir uppi með um 1,8 milljóna afgang og þá er auðvitað verið að tala um sviss- neska franka. Nýlega spáðu allir þjálfarar þeirra liða sem þátt taka í úrslita- keppninni um hvaða þjóðir myndu leika til úrslita og þá kom í Ijós aö mikil óvissa virðist meðal þeirra IpM ItaktíACT Skógerðin á Akureyri færði landsliðinu f handknattleik og farar- stjórn tvenn pör af ACT-skóm f gærkvöldi að gjöf. Skógerðin verður 50 ára á þessu ári og að gömlum og góðum sið sjá þeir um að landsliðið okkar verði vel skóað þegar það heldur f lang- ferðina til Sviss. Hver leikmaður fókk skinnfóðraða kuldaskó, sem koma sór vel f kuldunum f Mið-Evrópu, og ACT spariskó. Það eru þeir félagar Þorglls Óttar Mathiesen og Kristján Arason sem bregða hór á lelk fyrir Bjarna Ijósmyndara. um hvaða þjóðir það verða og enn frekar ef spurt var um væntanlega heimsmeistara. Níu þjálfarar spáöu Rúmenum í úrslitaleikinn, sex töldu að Sovét- ríkin yrðu þar, þrír að Júgóslavía léki til úrslita og einn nefndi A-Þýskaland. Vestur-Þjóðverjar, íþróttasjóður þar í landi, greiða hverjum leik- manni landsliðsins 20.000 mörk fyrir að tryggja sór sæti á næstu Olympíuleikum og ef þeir komast ofar þá fá þeir auðvitað mun meira. Þetta samsvarar því að hver leik- maður fær að minnsta kosti 350.000 íslenskar krónur ef liðið kemst í eitt af sex efstu sætum keppninnar. urnar sigruðu f fimm viðureignum en þeim frönsku tókst ekki að vinna leik. Síðar um daginn lóku stúlkurnar við Hollendinga og sá leikur fór eins nema nú voru Holiendingar f hlutverki sigurveg- arans. Karlaliðið tapaði f gær fyrir Svfum með fimm vinningum gegn engum. A miðvikudaginn unnu karlarnir lið Zambíu með fimm vinningum gegn engum en töpuðu síðan fyrir Austurríki með 4:1. Konurnar kepptu hins vegar viö Sovétríkin og töpuðu þar, 5:0. Valsmenn ÁRSÆLL Kristjánsson knatt- spyrnumaður úr Þrótti hefur nú gengið frá félagaskiptum yfir í Val og verður hann löglegur með liðinu þann 20. mars. Ámundi Sigmundsson, Víkingur, hefur einnig gengið til liðs við Valsmenn og það er því Ijóst að Valsmenn ættu að geta orðið sterkir í sumar eins og reyndar undanfarin ár. Knattspyrnan: Mexíkó vann Sovétríkin MEXÍKÓ sigraði Sovétrfkin í vin- áttulandsleik í knattspyrnu, 1—0, f Mexíkóborg í gær. Mexíkanar og Sovótmenn hafa verið að undirbúa sig fyrir heimsmeistara- keppnina sem hefst í Mexfkó 31. maí f sumar. Eina mark leiksins gerði miðvall- arleikmaðurinn Javier Aguirre, eftir 39 mínútna leik. Leikurinn þótti mjög vel leikinn af beggja hálfu og fór hann fram á Aztec-leikvangin- um þar sem opnunarleikur heims- meistarakeppninnar og úrslitaleik- urinn fara fram. 65.000 áhorfendur voru á leikvanginum sem hefur sæti fyrir 110.000 áhorfendur. Sovéska liðið hefur verið á æf- ingaferð í Mexíkó í tvær vikur og leikið gegn nokkrum félagsliðum þar. Þeir reyna að venjast þunna loftslaginu sem þarna er, en Mexíkóborg er í 2200 metra hæð yfir sjávarmáli. Mexíkó lék einnig æfingaleik við Austur-Þýskaland á miðvikudag og töpuðu þá með einu marki gegn tveimur. Austur-Þjóðverjar leika ekki ílokakeppni HM. Sovétmenn leika í riðli með Frökkum, Kanadamönnum og Ungverjum. Mexíkanar eru í riðli með Paraguay, írak og Belgíu. Fyrsti leikur keppninnar verður 31. maí og úrslitaleikurinn 29. júní. 2. og 3. flokks Islandsmót stúlkna innanhúss verður haldið á Akranesi dag- ana 8. og 9. mars. Þátttökutilkynningar skulu berast skrifstofu KSÍ, pósthólf 8511, 128 Reykjavík, fyrir 28. febrúar ásamt þátttökugjaldi 1.500 kr. pr. flokk. Knattspyrnusambandið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.