Morgunblaðið - 10.07.1986, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 10.07.1986, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1986 Boy George háður heróíni? Sá orðrómur hefur verið á kreiki í Bretlandi að söngvarinn Boy George sé háður eiturlyfinu heróíni og í síðustu viku kom bróðir popparans, David O’Dowd, fram i sjónvarpi og sagði orðróminn vera sannan. Söngvarinn og annar bróðir hans, Kev- in, þvertóku fyrir að nokkurt sannleikskom væri að finna í þessum staðhæfingum, en á þriðjudag vora Kevin og þrir aðrir handteknir og sakaðir um að hafa ætlað að selja Boy George heróin. Kevin var Iátinn laus skömmu síðar, en ekkert hefur spurst til popparans síðan Kevin var handtekinn. McDonalds: Ljóstrar upp leyndarmálum Chicago, AP. MCDONALDS-fyrirtækið, sem selt hefur milljarða hamborgara um dagana, ætlar á næstunni að dreifa 750 þúsund bæklingum, þar sem neytendur fá upplýsing- ar um innihald og kaloriufjölda í framleiðsluvörum fyrirtækis- ins. Það hefur kostað yfír milljón dala að hanna bæklinginn, sem er 37 síður. í honum segir m.a., að McDonalds noti aðeins ósvikið nautakjöt í hamborgarana, í þeim séu engin aukaefni. Einnig er nákvæm upptalning á þeim hráefnum, sem notuð eru í sósuna, en þau eru fjölmörg. Nautahátíðin í Pamploma á Spáni: Sætir harðri gagnrýni dýraverndunarsamtaka Frá fréttaritara Morgunblaðsins f Barcelona, Jóni Arasyni. NÚ STENDUR yfir ein mesta nautahátíð hér á Spáni, sem haldin er árlega. Hún hófst 7. júli í Pamplona og stendur í viku. Þar er sleppt fjölda nauta á götum úti og eru dauðsföll og slys tíð. Þess vegna m.a. hefur hátíðin sætt harðri gagn- rýni ýmissa dýraverndunar- samtaka, sem staðið hafa að mikilli herferð gegn nautaati undanfarnar vikur. Á hinn bóginn er þetta mikil skemmtun og eru dæmi þess að fólk hafi ekki sofíð í sjö daga samfleytt á meðan á hátíðinni stendur. Þá tvo daga sem af er hátíða- höldunum, er nefnast San Fermin, hafa 27 manns meiðst lítillega. Einn útlendingur, Bandaríkja- maður að nafni Fred Sields, viðbeinsbrotnaði og hlaut nokkrar minniháttar skeinur hér og þar. Eftir eru fimm dagar þar til þess- um samleik manna og nauta lýkur og er því ekki enn séð fyrir hvem- ig veislugestir verða á sig komnir þá er yfír lýkur. Margir fara eins konar pílagrímsferð árlega og skemmta sér alltaf jafn vel. Þai er mikið um dýrðir fyrir utan Frá hátiðinni i Pamploma á Spáni í fyrra. Þá særðust tveir menn alvarlega, þegar nautin vora rekin um götur borgarinnar. nautagamanið og er dýrlingurinn heilagur Fermin hinn hressasti yfir öllu þessu tilstandi. í bók Hemingways Hátíð, er hann skrif- aði um þessi hátíðahöld í Pampl- ona sem helguð eru heilögum Fermin, segir frá hópi ungmenna sem fór frá Frakklandi í leit að ævintýrum og til að hreinsa sig af illum öndum. Spænskt mannlíf er litskrúðugt og forlagatrúin í hinni spænsku þjóðarsá! gefur lífsháskanum byr undir báða vængi og er sá þáttur kapítuli útaf fyrir sig. Verða nautaöt lögð niður á Spáni í framtíðinni? Þessi uppáhaldsíþrótt margra Spánveija, sem og annarra, liggur nú undir hörðu ámæli sambands dýravemdunarfélaga hér á Spáni og eru þessi sambönd heldur hvassyrt í garð yfírvalda og fylgj- enda jþessarar þjóðaríþróttar íbera. I einu blaðanna hér má lesa eftirfarandi auglýsingu: „Hjálpið okkur við að stöðva þetta" hljóðar fyrirsögnin, en síðan kemur auglýsingin í heldur kaldhæðnislegum stíl: „Komið, kaupið ykkur miða inn á leika gladíatoranna, þar verður kvalið og pyntað og missið ekki af hinu langa dauðstríði þessa vesalings dýrs, sem er kvalið og pínt á leik- vanginum og sært til ólífis á snilldarlegan hátt eftir langdregið helstríð fyrir augum §öldans.“ Önnur fyrirsögn hljóðar þann- ig: „Öll berum við ábyrgðina," og heldur greinin svo áfram: „I hundruðum þorpa á Spáni, þar sem hátíðahöld fara fram árlega og stundum oftar, er hápunktur skemmtiatriðanna hrottaleg pynt- ing á dýrum, þar sem yfirvöld á hveijum stað eru í fararbroddi og nefna þetta siðmenningu og þjóð- lega skemmtan fyrir erlenda ferðamenn. Þetta er gjaldeyris- plokk ogferðamannabeita." Þessu lýkur svo með þessum orðum: „Sameinist okkur í að stöðva þessa villimennsku!" Svo hljóðar þessi rödd dýra- vemdunarsamtakanna hér og er ekki séð fyrir hvaða afleiðingar þessi áróðursherferð kann að hafa í för með sér né heldur hve sterk rök þarf til að breyta hugarfari manna og ástríðu þessarar þjóðar á þessari aldagömlu hefð — og að sjálfsögðu kemur þetta mörg- um „spánskt fyrir sjónir“. Hemingway segir í bókinni Dauðinn eftir hádegr. „Ég fór með marga að sjá nautaat og þá tók ég eftir að fólk skiptist í tvo flokka; þ.e. þeir sem eru „mann- vinir" og hinir sem eru „dýravin- ir“.“ Sri Lanka: Saulján Sinhalesar létu lífið í skæruliðaárás Colombo, Sri Lanka, AP. SAUTJÁN óbreyttir borgarar af kynþætti sinhalesa voru vegnir i árás tamílskra skæruliða á þrjá flutningabila á þriðjudagskvöld. Árásin átti sér stað um fimm km suður af hafnarborginni Trinco- malee í austurhluta Sri Lanka. Var fólkið að flýja úr héraðinu og hafði fengið far með bílunum. Skömmu síðar var fimm manna tamílsk fjölskylda myrt í hefndarskyni í miðborg Trincomalee. Lögreglan þar sagði, að um 20 Aðeins einn maður komst lífs af. skæruliðar tamíla hefðu ýmist skot- Talsmaður stjórnvalda sagði, að ið, stungið eða höggvið fólkið til 12 hinna myrtu hefðu verið far- bana og síðan kveikt í bílunum. þegar, þar af tvær konur og tvö böm undir fimm ára aldri. Auk þeirra létu lífið bflstjóramir þrír og tveir aðstoðarmenn þeirra. Lögreglan sagði, að aðeins klukkutíma eftir að fréttin af at- burðinum barst til Trincomalee á þriðjudagskvöld, hefðu ungir menn ráðist á tamílafjölskyldu, hjón með þijú böm, á aðalgötu borgarinnar, barið þau til bana og síðan kveikt í líkunum. Afganski kommúnistaflokkurinn: Hreinsamr líklegar Islamabad, AP. MIKLAR deilur eru nú í afg- anska kommúnistaflokknum um skipan Najibullah í embætti for- manns flokksins og leiðtoga stjóraarinnar, að sögn vestrænna heimildarmanna. Sömu heimildir herma að flokkurinn sé klofinn í fylkingar og hafa andstæðingar hins nýja leiðtoga staðið á bak við sprengjutilræði í höfuðborg- inni Kabúl undanfaraa daga. Heimildarmennimir telja líklegt að Najibullah muni reyna að koma andstaeðingum sínum frá á næsta þingi kommúnistaflokksins, sem hefst bráðlega. í viðtali við Naji- bullah á mánudaginn sagðist hann reiðubúmn til viðræðna við hófsama andstæðinga sína, en þvertók fyrir að eiga viðræður við leiðtoga skæruliða, sem beijast gegn stjóm- arhemum. Heimildarmennimir sögðu að sprengjur hefðu sprungið víða í Kabúl um helgina, og einnig hefði vélbyssuskothríð heyrst. Þeir segja að rekja megi sprengingamar til stríðandi fylkinga innan flokksins frekar en til átaka milli stjómar- hersins og skæmliða. Vestrænir stjómarerindrekar í Pakistan staðfestu í gær að miklir bardagar hefðu orðið milli stjómar- Najibullah, leiðtogi afganska' kommúnistaflokksins. hersins og skæruliða í borginni Herat. Skæruliðar náðu stórum hluta borgarinnar á sitt vald og er talið að margir óbreyttir borgarar hafí fallið í bardögunum. Tamílska skæmliðahreyfingin gaf út yfírlýsingu í aðalstöðvum sínum í Indlandi í gær, þar sem sagði, að stjómarhermenn hefðu drepið tamílana í Trincomalee og hefðu fómardýrin verið sjö talsins en ekki fimm. Tilkynnt var í ríkisútvarpinu á Sri Lanka í gærmorgun, að stjóm- völd hefðu sett á útgöngubann í Tricomalee og nágrenni um óákveð- inn tíma. Talsmaður stjómarinnar sagði, að það væri gert í því skyni að koma í veg fyrir frekari hefndar- aðgerðir vegna árásar skæmlið- anna. Þeirra er nú ákaft leitað. Innanlandsátökin á Srí Lanka hafa harðnað að miklum mun síðustu þijá mánuðina og sprengju- tilræðum og árásum á óbreytta borgara fjölgað. Iranir gera harðar loftár- ásir fyrir vestan Mehran Segjast hafa fellt og sært 2.300 íraska hermenn Nicosíu, Kýpur, AP. ÍRÖNSK hemaðaryfirvöld segja, að herþotur þeirra hafi gert harða hríð að fjórum íröskum stórfylkjum og fellt og sært 2.300 hermenn, auk þess sem 155 írak- ar hafi verið teknir til fanga. Að sögn írönsku fréttastofunnar IRNA bar loftárásimar upp á tíunda dag sóknaraðgerða írana á Mehr- an-svæðinu, þar sem barist er á um 180 km breiðu svæði. í opinbem tilkynningunni var ekki tekið fram, hver skiptingin væri milli særðra og fallinna. írönsk hemaðaryfirvöld sögðu frá því á þriðjudag, að fjögur írösk stórfylki á víglínunni hefðu verið borin ofurliði og a.m.k. 2.000 írak- ar felldir. írösk stjómvöld hafa ekkert látið frá sér fara um síðustu yfírlýsingar írana. Hafa þau hins vegar vísað á bug siguryfirlýsingum þeirra frá því á þriðjudag og sögðu iraska herinn hafa hmndið mörgum árás- um írana og fellt og sært „þúsund- ir“ íranskra hermanna. Að sögn IRNA hafa hersveitir Irana verið að treysta stöðu sína á herteknu svæðunum í kjölfar loft- árásanna í gær. Hafa íranir náð á sitt vald um 300 ferkflómetmm lands fyrir vestan landamærabæinn Mehran í austurhluta íraks, frá því að sókn þeirra hófst fyrir tíu dögum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.