Morgunblaðið - 18.07.1986, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 18.07.1986, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 1986 t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURBORG PÉTURSDÓTTIR, Ásvallagötu 59, lést í Borgarspítalanum 8. júlí sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki Borgarspítalans fyrir frábæra umönnun. Anna Dfs Björgvinsdóttir, Svala Schwarsz, Lawrence Schwartz, Selma Björgvinsdóttir, Ulrich Falkner, Pótur Björgvinsson, Margrót Björgvinsdóttir, Steinar Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. i Faöir okkar, tengdafaöir og afi. ■i KRISTJÁN H. GUÐMUNDSSON, áöur til heimilis að Steinagerði 3, andaðist á Hrafnistu miövikudag- inn 16. júlí. Alfreð Kristjánsson, Valborg Jónsdóttir, Aðalheiður Kristjánsdóttir, Valgeir Lárusson, Anna Kristjánsdóttir, Heigi Veturliðason, Bjarney Kristjánsdóttir, Örn Helgason, Jónfna Kristjánsdóttir, Jón Ásgeir Jónsson. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, JAKOBÍNA ÞÓRÐARDÓTTIR, síðast til heimilis að Hverfisgötu 83, Reykjavfk, andaðist á Hrafnistu, Hafnarfirði, 16. júlí sl. Fyrir hönd vandamanna, Guðbjörg Benjamfnsdóttir, Þórður Georgsson. t Frænka mín, SIGRÍÐUR SVEINSDÓTTIR, Nönnugötu 1B, andaðist á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 16. júlí. Lórus Petersen og vandamenn. Bróðir okkar, t KRISTJÁN SAMÚELSSON, Grenimörk 1, Selfossi, lést í Sjúkrahúsi Suðurlands 16. júlí. Kristín Samúelsdóttir, Tryggvi Samúelsson. t Útför konu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, ÖNNU BRYNJÚLFSDÓTTUR, Tryggvagötu 3, Selfossi, fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 19. júlí kl. 13.30. Magnús Tómasson, Tómas Magnússon, Sigrfður Pálsdóttir, Matthías Magnússon, Jóna Lárusdóttir, Jenný Magnúsdóttir, Ragnar Hermannsson, Þórhallur Magnússon, Hafdfs Guðbergsdóttir og barnabörn. Sigurbjörn Ing- þórsson — Minning Fæddur 17. júlí 1934 Dáinn 6. júlí 1986 Að kveldi sunnudagsins 6. júlí sl. lést Sigurbjöm Ingþórsson, kontrabassaleikari, í Borgarsjúkra- húsinu eftir áraiöng veikindi. Hann var sonur Unu Pjetursdóttur og Ingþórs Sigurbjömssonar, sem nú syrgja einkason sinn í hárri elli. Sigurbjöm lifði bemskuna á Sel- fossi og lauk þar skyldunámi með ágætum, en snemma fór að bera á óvenjugóðum tónlistarhæfileikum hjá hinum unga pilti. Fór hann komungur að kynna sér píanó, org- el og harmoniku eða þau hljóðfæri sem hendi vom næst. Sigurbjöm var varla kominn á fermingaraldur- inn þegar hann tók að leika á dansleikjum í byggðarlaginu og fór þá þegar mikið orð af getu hans og hæfíleikum. Brátt stefndi hugurinn hærra eins og efni stóðu til og Sigurbjöm innritaðist í Tónlistarskólann i Reykjavík eftir að fjölskyldan flutt- ist til höfuðborgarinnar. Kennari hans, síðar samverkamaður og vin- ur meðan báðir lifðu, var Einar B. Waage, 1. bassaleikari Sinfóníu- hljómsveitar Islands. A þessum ámm lék Sigurbjöm með mörgum nafntoguðum hljóm- sveitum eins og tríói Áma Elfar (1953), hljómsveit Svavars Gests (1954—55), Orion Quintett Eyþórs Þorlákssonar (1955—56), hinni nafntoguðu hljómsveit Gunnars Ormslev og Hauks Morthens, sem vann til verðlauna í Moskvu 1957, og þannig mætti lengi telja. Bless- unarlega em til nokkrar hljóðupp- tökur frá þessum ámm og má m.a. heyra Sigurbjöm sveifla mikið á jazzplötu Gunnars Ormslev, enda léku þeir oft saman. Ekki var Sigurbimi nóg að vinna þessa sigra sína hér heima heldur var honum eins og eðlilegt að sækja á brattann. Árið 1959 innritaðist hann í Tónlistarháskólann í Ham- borg, þar sem hann var næstu fjögur árin. Stóð hann sig þar með sóma og bætti stómm við kunnáttu sína. Að námi loknu réðst hann til Sinfóníuhljómsveitar Islands og lék þar um tveggja áratuga skeið. I röð bassaleikaranna stendur þar einn eftir, frá fyrri tíð Jón Sigurðsson, og mun hann leika einleik við útför starfsbróður síns í dag. Sigurbimi þótti vænt um starfs- systkini sín eins og hljómlistina og það sama gilti um þau er hann eign- aðist eftir að hann fór í vinnu hjá Olís um skeið eftir að hann lagði hljómlistina á hilluna fyrir fáeinum ámm. Hann lék síðast opinberlega hjá Jazzklúbbi Reykjavíkur snemma á árinu 1985. Það er erfítt fyrir okkur vini Sig- urbjöms að fínna honum verðug kveðjuorð. Ekki verður heldur með orðum lýst þeim andlegu og líkam- legu erfíðleikum, sem hann mátti þola mörg sín síðustu æviár, þó góðir foreldrar gerðu sitt besta með hjálp heilbrigðisstétta. Verður sú harmatala ekki flutt hér. Forsjónin sér blessunarlega fyrir því, að alla jafna sitja eftir hinar fögm og skemmtilegu minningar í hugum okkar. Hvað Sigurbjöm varðar var hann allra yndi og eftir- læti á meðan hann gekk heill til skógar og gat gefíð öðmm af sjálf- um sér. Hann fékk snemma á sig gælunafnið Bjössi bassi og okkur þótti hann greindur, músíkalskur og skemmtilegur. Ekki sakaði það neitt nema síður væri, að hann var að listamanna sið rómantískur og hrifnæmur og umfram allt við- kvæmur. Hann átti létt með að hrífa aðra með inn í heim tónlistar og fagurs umhverfis. Hann hafði metnað fyrir hönd tónlistargyðjunn- ar og vann henni heils hugar sem og landi sínu enda unni hann því og leitaði oft í barm fóstuijarðarinn- ar í útivist. Bjössi var mannvinur og unni því fólki, sem tengdist honum á lífsleið- inni og þó mest foreldrum sínum, sem hann taldi aðalþolendur í hans eigin veikindum. Börnin sín hefði hann gjaman viljað hafa nær sér, enda unni hann þeim heitt þó úr fjarlægð væri. Þegar Bjössi var sæmilega frískur hittumst við vinir oft en þegar syrti í álinn lét hann það nægja að hringja í okkur og vildi að við hringdum til hans. Hon- um var ekki um að vera innan um fólk þegar veikindin hijáðu hann. Við töluðum oftast um lífíð og til- veruna, tilgang með- og mótlætis, en alltaf voru umræðumar fullar af von og góðri trú á jákvæðari öfl heimsins. Að ferðalokum spyrjum við eðli- lega, hvort við hefðum getað gert betur fyrir Bjössa, en slíkar hugsan- ir gagna ekkert. Hann hafði lengi barist og var orðinn þreyttur. Það er huggun harmi gegn, að þessi æskufélagi og vinur skuli hafa hlotið hvíld, þó við hefðum í eigin- gimi okkar gjaman viljað eiga hann hjá okkur ögn lengur og það við góða heilsu. Samferðamenn Sigurbjöms Ing- þórssonar og starfssystkini í Félagi íslenskra hljómlistarmanna senda foreldrum hans, dóttur, syni og öðru venslafólki djúpar samúðar- kveðjur. Boginn hans Bjössa leikur ekki framar um strengi bassafíðlunnar, en tónn góðs tónlistarmanns mun halda áfram að óma í minningunni. Hrafn Pálsson Sverrir Garðarsson Mér barst sú harmafregn að vin- ur minn Sigurbjöm Ingþórsson bassaleikari væri allur. Hann var lengi vel einn þekktasti skemmti- kraftur Reykjavíkur, fríður sýnum og hár vexti þannig að það var tek- ið eftir honum, þar sem hann stóð á sviðinu og skemmti af miklu ör- yggi. Okkar kynni hófiist er Úlfar Þórðarson augnlæknir lagði mig inn á Landakotsspítala til smá augnað- gerðar, sem tókt vel, en Sigurbjöm var þar er ég kom, og hann var þar líka þrem vikum síðar er ég fór. Ekki man ég lengur hvað gekk að Sigurbimi, en hann var hress og kátur, og spjölluðum við mikið saman, eins og gerist um drengi á fermingaraldri sem em að velta lífínu og tilverunni fyrir sér. Þá hafði Sigurbjöm mest gaman af munnhörpunni sinni, enda var hann þá þegar farinn að troða upp á skemmtistöðum sem skemmtikraft- t Útför eiginmanns míns og föður okkar, ÞORSTEINS GEORGS JÓNASSONAR, Ljósalandi, Hveragerði, fer fram frá Hverageröiskirkju laugardaginn 19. júlí kl. 14. Jónas Þorsteinsson, Viggó Þorsteinsson, Árni Þorsteinsson, Helgi Þorsteinsson, Sigríöur Þorsteinsdóttir. Ögn Sigfúsdóttir, Margrót Þorsteinsdóttir, Sverrir Þorsteinsson, Siguröur Þorsteinsson, Rósa Þorsteinsdóttir, t Útför dóttur minnar, móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, KATRÍNAR AÐALBJÖRNSDÓTTUR, Hvolsvegi 25, Hvolsvelli, sem lést 10. júlí sl., fer fram frá Stórólfshvolskirkju laugardaginn 19. júlí nk. kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á að láta Krabbameins- félag Islands njóta þess. Fyrir hönd annarra vandamanna, Þorbjörg Grimsdóttir, Aðalbjörn Þór Kjartansson, Kristrún Kjartans. Hólmfrföur Kjartansdóttir, Björn Ingi Gfslason, barnabörn og barnabarnabarn. ur. Okkar kynni urðu ekki mikil eftir þetta, en hann heilsaði ævin- lega upp á mig, þar sem hann var að skemmta, áður en ég kvæntist, og aldrei varð ég var við að hann hefði áfengi um hönd undir slíkum kringumstæðum. Hann átti þó nokkuð langa sjúkdómssögu á Borgarspítalanum, og fannst mér með ólíkindum að slíkur ágætis- maður skyldi gefast upp. Eg minnist brúðarmyndar af honum og gullfallegri stúlku í Morgun- blaðinu, og ræddi ég einu sinni við þau yfír kaffíbolla á Hressingar- skálanum og virtist hamingjan og framtíðin blasa við þeim báðum. Með Sigurbirni Ingþórssyni er genginn einn fremsti hljómlistar- maður þjóðarinnar, sem átti þó nokkuð langa sjúkdómssögu. Á seinni árum þegar ég rakst á hann var hann hættur að brosa. Hann gekk til leiks særður maður, án þess að hann gæfí sig upp. Ég sendi ættingjum og aðstandendum hans mínar dýpstu samúðarkveðjur. Ég veit að allir hinir mörgu sem nutu hæfíleika hans munu fylgja honum síðasta spölinn, og ég veit að Drott- inn vor mun opna dyr sínar upp á gátt fyrir þessum næma og hæfí- leikaríka listamanni, sem átti sögu sem ég mun hvorki skilja fyrr né síðar. Sumarliði Steinarr Benediktsson Systrakveðja: Bjössi bróðir okkar lést á Borg- arspítalanum 6. júlí sl. Þegar við minnumst hans er okkur efst í huga myndir frá fyrstu bemsku hans, hvað hann var yndislegur drengur, fallegur, stilltur og prúður. Dugleg- ur að læra eftir að í bamaskóla kom. Svo taka unglingsárin við, með sama námsáhuga og dugnaði. Glæsilegur ungur maður, er hann tekur inntökupróf í Tónlistarskól- ann í Reykjavík, því músíkin var hans áhugamál, sama hvort spilað var á harmoniku, orgel eða píanó, því allt lék í höndum hans og huga, sem tónlist við kom. Svo kom kontrabassinn, sem tók allan huga hans. Við, fjölskylda hans í Sigtúni 45, eigum margar glaðar minningar frá þeim tíma er músíkin glumdi um húsið marga vetur. Eftir að námi lauk í tónlistar- skóla hér fór hann til Þýskalands á tónlistarháskóla í Hamborg, stundaði þar tilskilið nám í fjóra vetur og lauk prófí með ágætum. Við getum ekki minnst yngri bróður okkar án þess að minnast hins eldri, Svavars Benediktssonar, sem látinn er fyrir fáum árum. Hann var einnig tónlistarmaður og eru mörg mjög falleg lög til eftir hann. Þegar Bjössi „bassi“ og Svavar Ben. stilltu hljóðfæri sín saman, var yngsta systir þeirra glöð og skemmti sér vel. Bjössi bróðir okkar var auga- steinn foreldra sinna, móður okkar og stjúpa. Við vottum þeim innileg- ustu samúð okkar systranna og biðjum við guð að gefa þeim styrk og þrek. Fari kæri bróðir okkar í friði. Unnur Ragna, Hulda ogOlga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.