Morgunblaðið - 24.07.1986, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 24.07.1986, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1986 63 — ■ ■ --------—------------------------------------------------------------------------m. ■ ■ ' ■Í’í;' j ' y JÉ ■ ’* í ■■ 'A . ■ . x Vk tr > Kl Guðmundur Steinsson og Ágúst Már Jónsson komu mikiA við sögu í leik KR og Fram í gærkvöldi og áttu báðir mjög góðan leik. Hér berjast þeir um knöttinn, en KR-ingarnir Jósteinn Einarsson, Loftur Ólafs- son og Júlíus Þorfinnsson ásamt Pétri Ormslev, Fram, eru viðbúnir. Bikarmeistarar Fram komnir í undanúrslit — Pétur Ormslev skoraði þrennu FRAM heldur áfram á sigurbraut. í gærkvöldi unnu Framarar KR- inga á KR-velli f 8-liða úrslitum Mjólkurbikarkeppninnar 6:2 eftir framlengdan leik. KR var 2:0 yfir í hálfleik, en Fram jafnaði 2:2 þegar 8 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Nær 900 áhorfendur urðu vitni að bráð- skemmtilegum leik, dæmigerðum bikarieik, þar sem baráttan réð ríkjum, leikgleði, harka og marka- regn. KR-ingar mættu ákveðnir til leiks og sýndu í fyrri hálfleik hvers þeir eru megnugir. Þeir gáfu leik- mönnum Fram aldrei frið til að byggja upp spil og sóknir þeirra skiluðu árangri. Björn Rafnsson skoraði fyrsta markið á 32. mínútu, eftir slæm varnarmistök Þorsteins Þorsteins- sonar. Þorsteinn fékk knöttinn frá markverði, en gaf hugsunarlaust fyrir mark Fram beint á Björn, sem þakkaði fyrir sig með hnitmiðuðu skoti í markið. A 43. mínútu tók Gunnar Gísla- son langt innkast inn í vítateig Fram. Loftur Ólafsson skallaði til Willums Þ. Þórssonar, sem gaf á Ásbjörn Björnsson og hann skor- aði af stuttu færi. Framarar hófu seinni hálfleik með látlausri sókn, sem skilaði árangri á 68. mínútu. Jósteinn Ein- arsson felldi Guðmund Steinsson innan vítateigs og réttilega dæmd vítaspyrna, sem Guðmundur Torfason skoraði úr af öryggi. Glæsilega var staðið að jöfnun- armarki Fram á 82. mínútu. Framarar lóku vel saman, Guð- mundur Steinsson sendi á nafna sinn Torfason, sem framlengdi á Kristinn Jónsson og hann skoraði með góðu skoti. Péturs þáttur Ormslev byrjaði fyrir alvöru í framlengingunni, en þá skoraði hann þrjú mörk. Pétur kom Fram yfir 3:2 á 98. mínútu eftir að hafa fengið stungusend- ingu frá Kristni og eftirleikurinn var auðveldur. Sex mínútum síðar var Pétur enn á ferðinni og skoraði af stuttu færi eftir góða sendingu frá Gauta Laxdal. Skömmu áður hafði Ágústi Má Jónssyni, besta manni KR í leiknum, verið vikið af velli eftir stympingar við Guðmund Steinsson. Pétur fullkomnaði þrennuna á 117. mínútu. GuðmundurTorfason lék upp vinstri kantinn, gaf á Gauta og hann á Pétur, sem gaf sér nægan tíma áður en hann skoraði af stuttu færi. Guðmundur Steinsson skoraði sjötta mark Fram á síðustu mínútu framlengingarinnar úr vítaspyrnu eftir að Gunnar Gíslason hafði fellt hann innan vítateigs.- Sem fyrr sagði var leikurinn bráðskemmtilegur og fjörugur. KR-liðið lék sem ein heild í fyrri hálfleik, leikmennirnir börðust allir sem einn og liðið var 2:0 yfir í hálfleik. KR-ingar ætluðu greini- lega að halda fengnum hlut í seinni hálfleik, en slíkt hefur hingað til ekki gefist vel gegn Fram. Ágúst Már Jónsson var yfirburðamaður hjá KR. Framarar sýndu enn einu sinni hvers konar yfirburðaliði þeir hafa yfir að ráða. Þeir létu ekki mótlæt- ið á sig fá, heldur tvíefldust i seinni hálfleik og gerðu síðan út um leik- inn í framlengingunni. Liðið var jafnsterkt, en Guðmundur Steins- son, Guðmundur Torfason, Pétur Ormslev og Gauti Laxdal voru burðarásarnir. Gísli Guðmundsson, dómari, hafði nóg að gera og hafði tök á leiknum. S.G. Mjólkurbikarinn: ÍA áfram eft- irframlengingu og vítaspyrnu ÁHORFENDUR á leik Breiðabliks og ÍA f átta liða úrslitum bikar- keppni KSÍ, Mjólkurbikarnum, fengu svo sannarlega sitthvað fyrir aurana. Bráðskemmtilegan og hressilega spilaðan leik, æsi- spennandi framlengingu og magnaða vítaspyrnukeppni. Það er sárt að tapa leikjum eins og þessum, en það verður annað lið- ið að gera - Breiðabliksmenn urðu að sjá á eftir sigrinum eftir rúmlega tveggja klukkustunda viðureign. Skagamenn skoruðu samtals sjö mörk á móti sex mörkum Blikanna. Vítaspyrnukeppnin, eftir að framlengdum leiknum hafði lokið með 2:2 jafntefli, var óvenju spennandi. Fyrstu sex spyrnurnar voru allar mjög góðar og höfnuðu í netinu. Ólafur Björnsson, Rögn- valdur Rögnvaldsson og Magnús Magnússon skoruðu fyrir Blikana, en Guðjón Þórðarson, Guðbjörn Tryggvason og Sveinbjörn Hákon- arson fyrir Skagamenn. Þegar þarna var komið sögu varði Birkir Kristinsson mjög vel spyrnu frá Skagamanninum í liði Blika, Guð- mundi Guðmundssyni. Ólafur Þórðarson skoraði síðan úr sinni spyrnu, og Jón Þórir úr síðustu spyrnu Blikanna. Júlís P. Ingólfs- son, sem jafnan er vítaskytta Skagamanna gat því tryggt liði sínu sigurinn úr síðustu spyrnu ÍA. En hann skaut í stöng, og Blikarn- ir fengu því enn eitt tækifæri. En Guðmundur Valur Sigurðsson skaut framhjá, og Alexander Víglundsson var öruggur í sjötta vítinu og tryggði Skagamönnum sæti í fjögurra liða úrslitum. Sem fyrr segir var leikurinn fjör- ugur, og mikið um opin marktæki- færi. Fyrsta markið kom á 29. mínútu. Eftir þóf á vallarhelmingi Blika kom hár bolti inn í vítateig, og Ólafur Björnsson, sem skömmu áður hafði fengið skurð á ennið eftir samstuð, lagði ekki í að skalla frá - boltinn skoppaði einu sinni á markteig og Valgeir Barðason nokkaði honum í netið af tveggja matra færi. Tæpum tíu mínútum síðar juku Skagamenn forystuna. Eftir svip- aðan barning og í fyrra markinu gaf Guðjón Þórðarson háan bolta frá hægri endamörkum yfir Blika- vörnina. Einn Skagamanna náði aðp skjóta föstu skoti í átt að markinu og Sigurður Lárusson potaði honum í netið. Blikarnir minnkuðu muninn rétt á eftir. Þorsteinn Geirsson átti þá háa sendingu frá hægri yfir á Helga Ingvason sem var vinstra megin í vítateig ÍA og hann tók boltann viðstöðulaust á lofti og skoraði með föstu skoti. Mjög fallegt mark. Jöfnunarmarkið kom svo á síðustu mínútu hálfleiksins. Rögn- valdur Rögnvaldsson var með boltann á vinstri kantinum, náði*í að komast innfyrir vítateigslínu og datt þar nokkuð faglega. Svo fag- lega að Magnús Theódórsson gat ekki dæmt annað en víti, sem Jón Þórir skoraði úr af miklu öryggi. 2:2 i hálfleik. í síðari hálfleik dofnaði nokkuð yfir leiknum en bæði lið fengu þó ágæt marktækifæri, sérstaklega Skagamenn. Það sama má síðan segja um framlenginguna, bæði liðin fengu góö tækifæri til að gera út um leikinn, m.a. Aðalsteinrvr. Víglundsson, varamaður Skaga- manna sem lét Örn Bjarnason verja frá sér úr góðu færi á síðustu mínútu. En hann bætti fyrir það í vítakeppninni. Heimir Guðmundsson og Ólafur Þórðarson voru bestir Skaga- manna í leiknum, en Jón Þórir Jónsson hjá Blikum. Annars áttu flestir leikmanna góðan dag. -GA Jjap£ ■ ■ f. * Jón Þórir Jónsson sóst hór jafna vörnum viö. Morgunblaðið/Börkur lelklnn fyrir Breiðablik. Birkir Kristinsson markvörður ÍA kemur engum MJ OLKURBIKARINN n F.H.------ l-B.K- íö' 8 liða úrslit Kaplakrikavöllur í kvöid ki. 20.00.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.