Morgunblaðið - 18.12.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, VJDSHPn/JOVINNUIÍF FTMM'fUDAGUR 18. DESEMBER 1986
B 5
Nýsköpun
Tæknigarðar á Islandi
orðnir tímabærir
- segir í áliti starfshóps á vegum Rannsóknarráðs
HUGMYNDIR hafa vaknað um
að setja á lag-girnar hér á landi
í tengslum við Háskóla íslands
og rannsóknarstofnanir svo-
nefnda tæknigarða. Fjallað
hefur verið um þessa hugmynd
I starfshópi á vegum Rannsókn-
arráðs ríksins, sem komist hefur
að þeirri niðurstöðu að stofnun
tæknigarða sé tímabær og jafn-
framt hafa borgaryfirvöld sýnt
málinu áhuga.
Tæknigarður er húsnæði í nábýli
við rannsóknarstofnun, og er það
leigt undir nýsköpunarfyrirtæki á
vegum rannsóknarstofnunarinnar.
Hér hefur ýmist verið um að ræða
ný fyrirtæki, sem sprottin eru beint
úr stofnun starfseminnar eða utan-
aðkomandi fyrirtæki, er vilja njóta
samvista við rannsóknimar, eða
þróunardeildir gróinna fyrirtækja
sem starfa vilja í sama andrúms-
lofti. Með slíkum tæknigörðum er
þess vænst að árangur rannsókna
skili sér einna fljótast í nýrri at-
vinnustarfsemi. Þá er markmiðið
að mynda stóra einingu á viðkom-
andi fræðasviði sem staðið geti
undir sameiginlegum þörfum tækja,
bóka, þekkingar og þjónustu. Ekki
er gert ráð fyrir að nein atvinnu-
starfsemi sé til langframa í tækni-
garðshúsnæði. Um leið og verkefni
eru komin jrfir þróunarstig og hefur
leitt til reglubundinnar framleiðslu,
á það að víkja. Góð reynsla hefur
yfírleitt verið erlendis af tæknigörð-
um sem þessum, að því er fram kom
í umræðum innan starfshópsins á
ársfundi Rannsóknarráðsins.
Fram kom innan starfshópsins
að uppi eru hugmyndir í Háskólan-
um um tæknigarð á sviði rafeinda-
tækni, tölvutækni og hugbúnaðar-
gerðar í tengslum við Raunvísinda-
stofnun og Reiknistofnun HÍ.
Fullyrt var að þar yrði strax í upp-
hafí not fyrir húsnæði upp á nokkur
hundruð fermetra. Kæmu þar eink-
um til verkefni og fyrirtæki sem
eiga rætur sínar að rekja til starf-
semi Háskólans á umræddum
sviðum. Sumpart er slík starfsemi
þegar til eða kæmist á laggimar
um leið og hentugt húsnæði feng-
ist. Janframt var talið að nokkur
hugbúnaðarfyrirtæki utan skólans
mjmdu vilja flytja í slíkt sambýli.
Þá var talið líklegt að gagn væri
að slíkri fyrirtækjafóstrun í tengsl-
um við Rannsóknarstofnun fískiðn-
aðarins og nefnd ákveðin
matavælafyrirtæki sem mjmdu vilja
nýta sér hana. Ennfremur var bent
á ýmis svið líftækniframleiðslu sem
bersýnilega hefðu gagn af nábýlinu
við við viðkomandi rannsóknastofn-
anir. Þá kom fram hjá þátttakanda
úr atvinnulífínu að starfandi fyrir-
tæki kjmnu að sjá sér hag í því að
geta látið nýmælaþróun fara fram
í í tæknigarðsumhverfí, ekki aðeins
til að nýta samvistir við rannsóknar-
stofnun heldur væri oft æskilegt
fyrir fyrirtæki að nýmælaþfounin
færi fram í öðm umhverfi en hin
hefðbundna starfsemi.
All miklar umræður spunnust um
það hversu brýnt væri að tækni-
garður væri í nábýli við viðkomandi
rannsóknarstofnun og hvað nálægð
merkti í því tilfelli. Háskólamenn í
hópnum lögðu mikla áherslu á ná-
lægðina. Töldu þeir æskilegast að
tæknigarðsbúar og rannsóknar-
menn hefðu t.d. sameiginlega
kaffístofu. Varðandi tæknigarð á
sviði tölvutækni höfðu þeir í huga
að háskólastarfsemin væri í sama
húsi ogtæknigarðsstarfsemin. Rök-
in voru helst þau að einingar hér
væru það smáar að ekki veitti af
að slá mönnum saman og skapa
þannig örvandi andrúmsloft. Ýmsir
aðrir töldu of mikið gert úr nauðsyn
nálægðarinnar. Hins vegar voru
menn sammála um að í tæknigarði
þyrfti að vera sameiginleg þjónusta,
svo sem sameiginleg skrifstofa,
matstofa og verkstæði og boðið upp
á sameiginlega bókhaldsþjónustu.
Var bent á fyrirkomulag í Sunda-
borg sem fyrirmynd í þessu
sambandi.
Rætt var um hvemig staðið
skyldi að fjármögnun á byggingu
tæknigarða. Þar sem gengið er út
frá að fyrirtæki í tæknigarði greiði
eðlilega húsaleigu og standi undir
: SHANNON:
: datastor :
Allt á sínum staö
meö :shannon:
:datastor:
skjalaskáp
Ef einhver sérstök vörzluvandamál þarf aö leysa biöjum viö
viökomandi góöfúslega aö hafa samband viö okkur sem
allra fyrst og munum viö fúslega sýna fram á hvernig
íkdHHOH skjalaskápur hefur „allt á sínum staö".
: Útsölustaðir:
; Reykjavík; ólalur Gíslason & co. h/f, Kopavogur; Gísli J. Johnsen. Keflavík; Bókabúö Kellavikur.
Akranes; Ðókaversl. Andrés Nielsson h/l ísafjörður; Bókaverslun Jónasar Tómassonar Akureyri;
Bókval. bóka- og ritfangaverslun. Husavík; Bókaverslun Þórarins Stefanssonar Eskifjöröur; Elias
Guðnason, verslun Egilsstaðir; Bókabúóin Hlöðum
OlASftíS OÍ-Sl.ASOM 4 CO. ilf.
SUNDABORG 22 104 REYKJAVÍK SÍMI 84800
sameiginlegum kostnaði og því bent
á að eins og hlutfall er hér milli
markaðsvaxta og markaðsleigu, þá
sé hér ekki unnt að reisa hús fyrir
lánsfé sem húsaleiga standi undir.
Því þjrfti að koma til eitthvert það
framlag sem ekki væri krafíst mik-
illar ávöxtunar að. Hvað varðaði
tölvutæknigarð virtist hins vegar
einsýnt að atvinnulífíð væri fúst til
að leggja fram nokkurt fé til að
tryggja tilvist hússins. Janframt
væri athugað með þáttöku borgar-
innar í því að örva nýsköpun í
atvinnulífínu með einhverri aðstöð
og eins og áður er getið hafa borg-
aryfírvöld sýnt málinu áhuga.
Niðurstaða starfshópsins er því
að tímabært sé að koma hér á lagg-
imar tæknigarði. Einkum var bent
á tvö svið í þessum sambandi. Ann-
ars vegar tæknigarð undir tölvu-
og rafeindatækni í tengslum við
Háskólann og hins vegar aðstöðu
fyrir vöruþróun í fiskiðnaði og öðr-
um matvælaiðnaði í sambandi við
Rannsóknarstofnun fískiðnaðarins.
Yfírleitt töldu menn nauðsynlegt
að ná- eða sambýli væri með tækni-
garðsstarfseminni og viðkomandi
rannsóknarstarfsemi, amk. varð-
andi tölvutæknihúsið. Þá var talið
að eitt húsnæði væri ekki nóg.
Bjóða þjrfti upp á nokkra sameigin-
lega þjónustu. Ekki var talið útilok-
að að reisa mætti tæknigarð alfarið
fyrir lánsfé en þó talið æskilegra
að stilla húsaleigu i hóf með ein-
hveijum framlögum til stofnkostan-
aðar.
Kaupskip
Eimskip selur Irafoss
EIMSKIPAFÉLAG íslands hef-
ur selt írafoss til Grikklands
og var skipið afhent fulltrúa
kaupandans í Danmörku nú
fyrr í vikunni. Kaupverð skips-
ins var um 20 milfjónir króna.
írafoss er eitt fjögurra skipa
sem Eimskip eignaðist við gald-
þrot Hafskips. Þijú skipanna, þau
sem áður hétu Selá, Skaftá og
Rangá og voru öll systurskip,
hafa nú öll verið seld. Fjórða skip-
ið sem nú heitir Laxfoss, er hins
vegar enn í flutningum fyrir Eim-
skip.
Irafoss var í sumar aðallega í
bílaflutningum til landsins. Það
er byggt 1971 og var með alls
um 2800 tonna burðargetu.
HLUIABREF
Kaupum og seljum hlutabréf
Hlutafélag Kaupgengi* Sölugengi*
Eimskipafélag íslands hf 2,18 2,30
Flugleiðirhf 2,18 2,30
Iðnaðarbankinn hf 1,25 1,32
Verslunarbankinn hf 1,10 1,15
Hlutabréfasjóðurinn hf — 1,0125
SKfiTTRFSLflTTUR
Kaupendum hlutabréfa skal bent á, að samkvæmt
stjómarfrumvarpí verður heímill frádráttur vegna
hlutabréfakaupa í ár kr. 44.540 hjá einstaklingum
og kr. 89.080 hjá hjónum.
* Að lokinni ákvörðun um
útgáfu jöfnunarhlutabréfa
FJARFESTINGARFEIAGIÐ
UERÐBRÉFAMARKAÐURINN
Hafnarstræti 7 101 Reykjavík (91) 28566