Tíminn - 01.10.1965, Blaðsíða 1

Tíminn - 01.10.1965, Blaðsíða 1
r - % í.................. Aogíysing í Timanœn feemur daglega fyrir augu 80—100 þúsund lesenda. Gerizt áskrifendur að Tímanum Hringið í sima 12323- Frá prentarafundinum í Iðnó í gær. Formaður félagsins er i ræðustól, og skýfir Hlna nýiu samninga fyrir prenturunum sem mættu vel á fundlnum eins og myndin ber með sér. (Tímamynd K.J.) Pre:iíaravorkfz"i afiýst EJ—Reykjavík, fimmtudag. Klukkan fjögur í nótt voru undirrjtaðir samuingar við prentara .bókbindara offset- prentara og prentmyndasmiða. með fyrirvara um samþykki félagsfunda. Fundir voru haldn ir hjá prentsmiðjueigendum og hjá prenturum og var sam komulagið þar samþykkt ein- róma- Er því prentaraverkfall því, er hefjast átti kl. 12 á mið nætti aðfaranótt föstudagsins aflýst. Kjarabætur þær, sem prent arar fengu. eru í aðalatrjðum essar: - , Kauphækkun prentara á fyrsta ári er 6%, á öðru og þriðja ári 9-7%, og eftir þrjú ár 15% frá því, sem áður var. Aðeins verður unnið hálfa laugardaga í október. nóveín- ber og desember, og þýðir það að vinnuvika prentara í dag- vinnu verður 43 stundir að jafn aði. Veikjndadagar verða 14 i stað 12 áður. Eigi prentarar ónotaða veikindadaga. skulu þeir vjð hver áramót greiddir inn á reikning viðkomandi manns hjá prentarafélaginu og koma horium því til góða síðar ef hann veikist. Laun nema hækka þannig, að á fyrsta ári fá þeir 45% af fullum launum. á öðru ári 55%, á þriðja ári 65% og á fjórða ári 75%. Bókbindarar héldu einnig fundi i dag og samþykkfu. Kjötsmygliö í framhalds- rannsókn! KJ—Reykjavík, fimmtudag. Saksóknari ríkisins hefur sent kjötsmyglsmálið úr Síld og fisk aftur til Sakadóms Reykja. víkur me® beiðni um fram- haldsrannsókn í málinu- Þar sem yfirl’sing eiganda verzlun arinnar um brottrekstur verzl- unarstjórans ber með sér að verzlunarstjórinn hafi játað að ejga kjötið, virðist framhalds rannsókn sú, sem sakadómari hefur óskað eftir, beinast að því, með hvaða leiffum kjötið hefur komjð inn í landið, og hvort þaff hefur verið ætlað ti! sölu í verzluninni Síld og fisk við Bergstaðastrætj. Kjötsmygl brýtur ekki aðeins í bág við tollalöggjöfina held- ur og líka heilbrjgðislöggjöf- ina, þar sem bannaff er að flytja kjöt erlendis frá til ís- lands, nema með leyfi yfirdýra læknis, og það leyfi mun mjög vandfengið. enda efflilegt þar sem alltaf vofir sú hætta yfir, að smitnæmar pestir berjst ti! landsins með innfluttu kjöti og kjötvörum. VERKFALL TRÉ- SMIDA LÖGMÆTT Úrskurður Félagsdóms í trésmiðadeilunni féll í gær SÍÐASTA TILRAUN TIL SAM- KOMULAGS NTB-London, fimmtudag. Forsætisráffherra Rhodesíu, Ian Smith, fer tií London I næstu viku tii þess að reyna að fá brezku stjórnina til þess að gefa iandinu sjálfstæði. Telja sérfræðingar í London, að þessi heimsókn sé tákn um, að Smith sé ákveðinn í að gera sína síðustu tilraun til þess að fá Breta til þess að fallast á sjálfstæði Rhodesíu, og þá á grundvelli þess, að hvítir . menn, sem eru í miklum minnihluta í landinu, haldi völdunum. Ef ekki næst samkomulag um sjálfstæði landsins, er líklegt að Rhodesía muni senda út einhliða yfirlýsingu, sem tilkynni, að land- ið taki sér sjálfstæði. Mun brezka stjórnin líta á slíka yfirlýsingu sem uppreisn. í yfirlýsingu, sem stjórnin í Rhodesíu sendi út í dag, segir m. a. að brezku stjórninni hafi verið tilkynnt. að þar sem við- ræðurnar um sjálfstæði landsins hafi verið dregnar á langinn í tvö ár og rúmlega það, hljóti við- ræðurnar í London í næstu viku að teljast endanlegar og afger- andi. Búizt er við Smith til London á mánudaginn, og næsta dag mun hann hefja viðræður við Arthur Bottomley, samveldismálaráð- herra. Talið er, að viðræðumar muni standa í marga daga, og muni þær verða harðar. í London telja menn, að brezka ríkisstjóm- in muni halda fast við þá skoðun Framhaid á bls. 2 EJ-Reykjavík, fimmtudag. í dag féll dómur í Félagsdómi vegna ákæru Meistarafélags húsa- smiða á hendur Trésmiðafélagi Reykjavíkur út af verkfalli tré- I smiða í Árbæjarhverfi. Héldu i húsasmiðir þvi fram, að verkfall i þetta væri löglegt. Félagsdómur j sýknaði algerlega Trésmiðafélagið af þeirri kæru, og úrskurðaði, að téð verkfall væri löglegt í »lla staði. í forsendum dómsins segir: „Telja verður að framangremd vinnustöðvun Trésmiðafélags Reykjavíkur í Árbæjarhverfi, sem ágreiningslaust er að samnykkt hafi verið og tilkynnt með lcg- mætum hætti, brjóti hvorki í ðáða við ákv. 2. kafla laga nr. 80/ 1938 (þ. e. vinnulöggjöfina) né þau meginsjónarmið, sem hafa ber í huga þegar nefnd ákvæði eru skýrð. Eigi verður heldur talið að hún sé andstæð oðrum þeim réttarreglum, sem til álita koma í þessu sambandi. Sam- kvæmt þessari niðurstöðu ber að sýkna stefnda af kröfum stefn- anda. Eftir atvikum þykir rett að málskostnaður falli niður“ Dómsorðið er svohljóðandi: — „Stefndi, Alþýðusamband íslands fyrir hönd Trésmiðafélags SevKÍa víkur, skal vera sýkn í máli þessu af kröfum stefnanda Vinnuveit- endasambands íslands vegna sjálfs sín og fyrir Meistarafélag húsasmiða í Reykjavík. Málskostn aður falli niður“. Fyrsti fundur kjurudóms í dug EJ-Reykjavík, fimmtudag. Kjaradeila Bandaiags starfs- manna ríkis og bæja cg hins opin- bera fer nú til kjaradóms, og hef- ur dómþing verið boðað kl. 17 á morgun, föstudag, að þvi er Kristján Thorlacius forseti BSRB tiáff blaðinr í dag. Svo er ákveðið i lögum, að hafi samningar milli kjararáðs BSRB og fulltrúa ríkisstjórnarinnar ekki tekizt fyrir 1. október, þá skuli deilan ganga til kjaradóms Síð- asti viðræðufundurinn var hald- inn : gær og varð þar ekki sam- komulag. Hefui sáttanefnd sú. sero skipuff var haldif fimir <amj ingafundi, en áður hafði sátta- semjari ríkisins haldið þria fundi með deiluaðilum. Samkvæmt lögum á K.iaradóm- ur að hafa skilað úrskurði sinum fyrir 1. desember n. k. Kristján sagði blaðinu, að í dag yrði haldinn bandalagsstjómar- fundv.- og máli« ræd>' þar Afengi hækkur mikið / verði MB—Rvík, firnmtudag. Frá og með morgundeg- inurn, föstudeginum 1. októ- ber verður mikil verffhækk- un á flestum tegundum á- fengis hérlendis. Brennjvíns flaskan hækkar úr 240 krón um í 270 krónur .skozkt viskí úr 365 krónum í 400, rauðvín og hvítvín úr 75 krónum I 90 og úr 90 krón um í 110 ,svo nokkur dæmi séu nefnd- Koníak og líkjör eru einu vintegundimar, sem ekkert hækka.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.