Morgunblaðið - 13.03.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.03.1987, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 60. tbl. 75. árg. FÖSTUDAGUR 13. MARZ 1987 Prent8miðja Morgunblaðsins Ástralía: Njósnari mábirta minningar Sydney, Reuter. RÉTTUR í Ástralíu kvað í gær upp úrskurð um að Peter Wright, fyrrum njósnari bresku leyni- þjónustunnar, mætti gefa út endurminningar sínar og kröfu bresku stjórnarinnar um að banna bókina. Philip Powell, dómari í hæsta- rétti í Nýju-Suður-Wales, sagði að bresku stjóminni bæri að greiða kostnað af málaferlunum, sem stað- ið hafa í átján mánuði, og gæti Wright farið fram á skaðabætur. Bókin „Spycatcher" fjallar um tengsl sovésku leyniþjónustunnar KGB og bresku gagnnjósnastofnun- ina MI5. Verkföll o g róstur á Spáni Madrid, Reinosa, AP, Reuter. MÓTMÆLENDUR í bænum Reinosa í norðurhluta Spánar yfirbuguðu í gær lögregluþjóna. 57 menn slösuðust í átökum, sem blossuðu upp vegna yfirvofandi atvinnuleysis. Embættismenn sögðu að lög- regla hefði orðið uppiskroppa með gúmmíkúlur í átökunum og hefðu verkamenn króað tíu þeirra af í blindgötu, þrifíð vopn þeirra og varpað þeim í brunna. Lætin í Reinosa hófust á mið- vikudag þegar starfsmenn stálverk- smiðjunnar Foijas y Aceros tóku Enrique Antolin, fyrrum forstjóra hennar, í gíslingu, er hann kom til að taka til í skrifstofu sinni, vegna áætlana um að fækka starfsfólki. Sérsveit lögreglu frelsaði Antolin í gærmorgun. Talið er að 80 þúsund starfsmenn í kolanámum í ríkis- og einkaeigu hefðu tekið þátt í verkfallinu til að mótmæla efhahagsstefnu spænsku stjómarinnar. Kosningar í Finnlandi Auglýsingaspjöld eru víða snar þáttur í kosn- ingabaráttu. I Finnlandi, þar sem gengið verður að kjörborðinu á sunnudag og mánudag, kippa kjósendur sér ekki einu sinni upp við það þótt myndir af nöktu fólki séu á kosningaspjöldum. Á spjöldum þessum, sem límd hafa verið upp hafa verið upp í strætisvagnaskýli í Helsinki, stendur: „Skortir þig hugmyndir? Neyttu at- kvæðis þíns’J" Ekki fylgdu upplýsingar um hvort spjöldin eru almenn hvatning til kjósenda eða frá stjómmálaflokki. Skoðanakannanir spá hægri mönnum miklum meðbyr í kosningunum og vonast þeir til að geta steypt samsteypu- stjóm jafnaðarmannsins Kalevi Sorsa. Flokkur jafnaðarmanna hefur haft töglin og hagldimar í finnskum stjómmálum í tæpa hálfa öld og er stjómin, sem nú situr, sú langlífasta í Finn- landi frá lokum heimsstyxjaldarinnar síðari. Vopnasölumálin í Svíþjóð: Hellström vitnar fyrir þingnefnd Talið að Carl-Fredrik Algernon hafi svipt sig lífi Stokkhólmi, AP, Reuter. MATS Hellström, fyrrum ráð- herra utanríkisviðskipta og núverandi landbúnaðarráðherra, var í gær yfirheyrður af stjómar- skráraefnd sænska þingsins vegna ásakana friðarsamtaka um að ýmsir ráðherrar hefðu beint blinda auganu að ólöglegum vopnaútflutningi Bofors-verk- smiðjanna. Var einkum rætt um vopnasölu til Singapore en gmnur leikur á, að þaðan hafí þau verið flutt til ann- arra ríkja. Sagði Hellström, að aðallega hefði verið um að ræða skotfæri, sem herinn í Singapore hefði notað á skotæfíngum. I yfírliti sænsku hagstofunnar yfir síðasta ár kemur það hins vegar fram, að vopnasalan til þessa smáríkis hafí numið 10% af öllum vopnaútflutn- ingi Svía í fyrra. Sænska lögreglan telur útilokað, að um morð hafi verið að ræða þeg- ar Carl-Fredrik Algernon, aðmíráll og opinber embættismaður, sem kann að hafa verið viðriðinn hugsan- legt vopnasmygl, lét lífíð undir neðanjarðarlest í Stokkhólmi um miðjan janúar sl. Er talið líklegast, að hann hafí stytt sér aldur. Torsten Wulff, saksóknari, sagði, að vitni bæru, að Algernon „hefði stokkið fyrir lestina" þegar hann var á leið heim úr vinnu 15. janúar sl., viku áður en yfirmenn í sænsku toll- gæslunni ætluðu að yfírheyra hann um ólöglega vopnasölu til írans. í fyrstu fréttum var leitt getum að því, að Algemon, sem sá um að veita vopnaframleiðendum útflutn- ingsleyfí, hefði verið hrint undir lestina. Mats Hellström Kjell Olof Feldt Sænska stjórnin boðar við- skiptabann gegn S-Afríkn Stokkhólmi, AP. SVÍAR lýstu yfir því í gær að sett yrði viðskiptabann á Suður- Afriku. Hér er um að ræða hörðustu refsiaðgerðir, sem iðnríki hefur ákveðið að beita stjórn hvita minnihlutans i Suður-Afriku til þessa. Sten Andresson utanríkisráð- herra sagði að stjómin vonaðist til þess að ákvörðun þessi myndi leiða til þess að Sameinuðu þjóðimar mæltust til bindandi refsiaðgerða. „Þegar Svíar bönnuðu fjárfest- ingar í Suður-Afríku árið 1979 sögðu menn að bannið myndi engu máli skipta," sagði Andersson á blaðamannafundi. „En í raun fylgdu mörg ríki fordæmi ókkar. Tími til að afnema aðskilnaðar- stefnu Suður-Afríkustjómar með friðsamlegum hætti er að renna út, ofbeldið eykst," sagði Ander- son. Svíar vom einna fyrstir til að grípa til takmarkaðra aðgerða gegn Suður-Afríku, en vildu hvorki veita Dönum lið þegar þeir hvöttu til víðtæks banns á síðasta ári, né Norðmönnum, sem gerðu svipaðar tillögur og liggja þær nú fyrir norska þinginu. Fmmvarp um bannið þarf að fara fyrir þingið, en víst þykir að það verði samþykkt þar sem aðeins flokkur hægri manna (Moderata samlingspartiet) er andvígur því. Anita Gradin, viðskiptaráð- herra, sagði að bannið tæki gildi 1. júlí og hefðu sænsk fyrirtæki frest til 1. október til að hætta öllum viðskiptum við Suður- Afríku. Sænsk yfírvöld em nú að rann- saka smygl á loftvarnaflaugum frá Bofors-verksmiðjunum til írans snemma á þessum áratug en sænsk lög banna vopnasölu til landa, sem eiga í styijöld. Wulff sagði, að engin ástæða væri til að kanna hvers vegna Algemon hefði svipt sig lífi og neitaði að segja nokkuð um það, hvort hugsanleg tengsl hans við Bofors ættu einhvem þátt í því. Aftonbladet sænska hefur það eftir samstarfsmönnum Algemons, að hann hafi verið „í miklu upp- námi“ þegar hann fór úr vinnunni 15. janúar sl. en þá var hann nýkom- inn af fundi með Anders Carlberg, forstjóra Bofors-verksmiðjanna, móðurfyrirtækis Nóbel-samsteyp- unnar. í viðtali við blaðið segist Carlberg ekki hafa rætt við Algem- on um smyglrannsóknina. í öðmm fréttum segir, að annar sænskur saksóknari sé nú að kanna hvort Kjell-Olof Feldt, fjármálaráð- herra, hafi sem viðskiptaráðherra á síðasta áratug heimilað leynilegar vopnasendingar til írans í skiptum fyrir olíu. Sænska ríkisútvarpið og nokkur dagblöð höfðu það eftir ónefndum kaupsýslumanni, að þegar á árinu 1973 hefði Feldt leyft, að flug- skeyti, jarðsprengjur og_ fallbyssur yrðu fluttar landveg til írans. „Ef verið er að ræða um samn- inga, sem ekki samræmast sænskum lögum, þá hef ég ekki samþykkt þá. Það liggur í augum uppi og annað hef ég ekki að segja,“ sagði Feldt í viðtali við Dagens Nyheter.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.