Morgunblaðið - 15.03.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.03.1987, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 62. tbl. 75. árg.____________________________________SUNNUDAGUR 15. MARZ 1987_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Kosið í Finnlandi: Fimmfalda græningjar fylgi sitt? Helsinki, Reuter. GRÆNINGJAR í Finnlandi virð- ast ætla að vinna stórsignr í þingkosningunum um helgina og má rekja fylgisaukningu þeirra til kjamorkuslyssins í Chemobyl. Aðeins tveir þingmenn græningja sitja nú á þingi, en samkvæmt skoð- anakönnunum gætu þeir fengið allt að tíu þingmenn í kosningunum í dag og á morgun. Finnsku græn- ingjmir gætu jafnvel gert sér vonir um ráðherraembætti að kosningum loknum. Juha Pentikainen, varaformaður Miðflokksins, sem situr í núverandi samsteypustjóm, hefur sagt að græningjar gætu samið um sæti í ríkisstjóm ef fylgi þeirra fímm- faldaðist eins og skoðanakannanir segja til um. Helsti hugmyndafræðingur græningja, Osmo Soininvaara, sagði að til greina kæmi að flokkur- inn tæki þátt í stjómarsamstarfi. Samkvæmt skoðanakönnunum verður mjótt á munum í kosningun- um og er ógemingur að segja til um hvaða flokkar muni hafa bol- magn til að mynda stjóm saman. Skyldleiki með Alz- heimer’s- og Downs- sjúkdóm Washington. Reuter. FRANSKIR og bandarískir vísindamenn hafa fundið erfða- fræðileg tengsl á milli Alzheim- er’s-sjúkdómsins og Downs-sjúk- dómsins, sem stundum er kallaður mongólismi. Segja vísindamennimir frá þessu í grein, sem birtist í fyrradag í tímaritinuSe/ence Magazine. Tengslin, sem kunna að varpa ljósi á undirrót Alzheimer’s-sjúk- dómsins, felast í arfbera, sem er haldinn þeirri ónáttúm að skipta sér eða fæða af sér annan eins. Komu þessi óeðlilegn, erfðafræði- legu frávik fram við rannsóknir á þremur Alzheimer’s-sjúklingum og tveimur, sem voru haldnir Downs- sjúkdómnum. Sjúklingamir áttu það allir sam- eiginlegt að vera með annað eintak af þeim arfbera, sem stjórnar fram- leiðslu ákveðins efnis, svokallaðs „amyloids", en þessi tvenna veldur óeðlilegum breytingum í heila Alz- heimer’s-sjúklinga. Ekki kváðust vísindamennimir enn skilja hvað ylli því, að arfberinn gæti af sér tvífarann en hafa á pijónunum miklu víðtækari rannsóknir. Með þeim vilja þeir reyna að komast að því hvort hér er í raun um að ræða sameiginlegt megineinkenni fyrir fyrmefnda tvo heilasjúkdóma. Þyrlan kemur til bjargar við erfiðar aðstæður Þessar myndir tók Snorri Böðvarsson félagi í björgunarsveit Slysavamar- félagsins í Ólafsvík af bjargbrún í Dritvík þegar skipveijum af Barðanum GK var bjargað um borð í TF-SIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar. Barðinn GK strandaði í Dritvík: Áhöfninni bjarg- að um borð í þyrlu NÍU skipverjum af Barðanum GK 475 var bjargað um borð i þyrlu Landhelgishæslunnar í gærmorgun skömmu eftir að skip- ið hafði strandað í Dritvík á Snæfellsnesi. Allir skipveijar eru heilir á húfi, en skipstjórinn var fluttur til Reykjavíkur þar sem hann var orðinn mjög þrekaður. Tilkynning um strandið barst hálftíma síðar. Sjötíu til áttatíu Tilkynningarskyldunni í gegn um manns munu hafa verið við björg- Loftskeytastöðina í Reykjavík og unarstörfin og voru menn voru björgunarsveitir kallaðar út sammála um að ómögulegt hefði á áttunda tímanum í gærmorgun. verið að ná skipveijum í land Þær voru komnar á strandstað með línu vegna aðstæðna á strandstað. Þyrla Landhelgis- gæslunnar hefði því enn einu sinni sannað gildi sitt. Skipstjóri á Barðanum var Eðvald Eðvaldsson. Aðrir skip- veijar voru: Bergþór Ingibergs- son stýrimaður, Friðfinnur Hallgrímsson, Hafliði Þorsteinn Brynjólfsson, ólafur Siguijóns- son, Þorlákur Halldórsson, Eiríkur Ingvarsson, Sævar Ingi Pétursson og Sigursteinn Smári Karlsson. Barðinn GK er stálskip, 131 tonn að stærð, í eigu útgerðarfé- lagsins Rafns hf. frá Sandgerði. Skipið var smíðað í Noregi árið 1960 og hét áður Jón Sturlaugs- son. Sjá samtöl við skipveija og björgunarmenn á bls. 2.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.