Morgunblaðið - 19.03.1987, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 19.03.1987, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1987 17 1800 manns í Hinu íslenska náttúru- fræðifélagi AÐALFUNDUR Hins íslenska náttúrufræðifélags var haldinn 21. febrúar. Stjórn félagsins er nú svo skipuð: formaður er Þóra Ellen Þórhallsdóttir, varafor- maður Hreggviður Norðdahl, gjaldkeri Ingólfur Einarsson, rit- ari er Eva Þorvaldsdóttir og meðstjórnandi Ingibjörg Kaldal. I varastjórn sitja Einar Egilsson og Gyða Helgadóttir. Hið íslenska náttúrufræðifélag er félag áhugamanna um íslenska náttúru og allar greinar náttúru- fræða. Félagar eru nú rúmlega 1800 talsins. Tímarit félagsins, Náttúrufræðingurinn, kemur út ársfjórðungslega. Ritstjóri Náttúru- fræðingsins er Árni Einarsson. Á vetrum eru haldnir fyrirlestrar mánaðarlega. Á sumrum eru skipu- lagðar dagsferðir sem og þriggja daga ferðir undir leiðsögn kunnugra náttúrufræðinga. Þá hefur félagið gengist fyrir námskeiðum, svo sem í sveppatínslu. Hið íslenska náttúrufræðifélag er öllum opið og ættu allir sem áhuga hafa á íslenskri náttúru eða náttúrufræðum almennt að finna þar eitthvað við sitt hæfi. oventroD vcrtnssíur fyrir kqtt vatn. Eigum OVENTRAP vcitnssíur fyrir kaldavatnskerti. Stœrðir 1", IW', VA" og 2". Þrír grófleikar af síum. Sfumar mó hreinsa og nota aftur og aftur. VATNSVIRKINN/it ARMÚU 21 - PÓSTHÖU 6620 - 128 REYKiAVtK SlMAR. VERSIUN 686455. SKRf STOf A 685066 Hægt að leggja arma nið- ur og breyta í rúm. CLEOPATRA KLIKK KLAKK Bakið fellt niður og þá er komið 120 cm. breitt rúm. Rúmfatageymsla í sökkli. SUDURLANDSBRAUT 22 S:36011 Bolfiskafla 1986 skipt eftir kjördæmum: Mestum afla landað í Reykjaneskjördæmi MESTUR bolfiskur barst á land í Reykjaneskjördæmi á síðasta ári, þegar lönduðum bolfiskafla er skipt eftir kjördæmum. Alls var landað í kjördæminu 106.000 lestum eða 18% bolfiskaflans. Mestur þorskur barst hins vegar á land í Norðurlandskjördæmi eystra. Minnstur afli barst á land i Norðurlandskjördæmi vestra, 32.000 lestir eða 5% aflans. Af 10 hæstu löndunarhöfnunum á síðasta ári vom fjórar í Reykja- neskjördæmi. Þessar upplýsingar koma fram í grein eftir dr. Ágúst Einarsson, framkvæmdastjóra Hraðfrysti- stöðvarinnar í Reykjavík, en greinin birtist í öðru tölublaði Ægis á þessu ári. Ágúst kallar greinina leik að tölum, þar sem hann skipar afla- tölum og verðmætum eftir kjör- dæmum, en slíkt er ekki gert að jafnaði. Hann styðst í þessu við skýrslur Fisjdfélags íslands og LÍÚ. I grein Ágústs kemur fram, að Reykjavík er önnur aflahæsta lönd- unarhöfnin hvað bolfisk varðar, næst á eftir Vestmannaeyjum, sem eru einu hafnirnar, sem tóku á móti meiru en 40.000 lestum á síðasta ári. Þá vekur hann athygli á því, að 10 hafnir tóku á móti meiru en 20.000 lestum af bolfiski á árinu. Þar af eru fjórar í Reykja- neskjördæmi og 7 þeirra eru á suðvesturhorni landsins. Engin Austfjarðahöfn kemst í þennan hóp, engin á Snæfellsnesi og aðeins Akureyri á Norðurlandi. Síðan skiptir Ágúst aflanum nið- ur eftir kjördæmum. Þá kemur í ljós, að mestur bolfiskafli barst á land í Reykjaneskjördæmi, alls 106.000 lestir eða 18% aflans. Næst kemur Norðurlandskjördæmi eystra með 86.000 lestir eða 14%, Vestjarðakjördæmi er með 83.000 lestir, 14%, Suðurlandskjördæmi með 79.000, 13%, Austurlandskjör- dæmi með 79.000, 13%, Vestur- landskjördæmi með 63.000, 10%, Reykjavík 44.000, 7% og Norður- land vestra er með 32.000 lestir eða 5%. 6% var landað erlendis. Um þessa skiptingu segir Ágúst, að hún stingi heldur í stúf. við þá umræðu, sem nú sé í gangi; að allur sjávarút- vegur í Reykjaneskjördæmi sé á vonarvöl og öll skip farin burt. Loks skipar Ágúst kjördæmun- um í röð eftir aflaverðmætum togara innan þeirra: Vestfirðir 15 togarar, aflaverðmæti 1,8 milljarð- ar, Norðurland eystra 18 togarar, 1,6 milljarðar, Reykjavík 14 togar- ar, 1,4 milljarðar, Austurland 17 togarar, 1,3 milljarðar, Norðurland vestra 11 togarar, 843 milljónir, Reykjanes 11 togarar, 759 milljón- ir, Vesturland 7 togarar, 591 milljón og Suðurland 7 togarar, aflaverð- mæti 536 milljónir. Mest gjaldeyris- öflun togara var á Vestfjörðum, 2,541 milljarðar, Norðurlandi eystra 2,510 milljarðar, Austurlandi 2,270 milljarðar, Reykjavík 1,700, Norðurlandi vestra 1,228, Reykja- nesi 1,163, Vesturlandi 980 milljón- ir og Suðurlandi 921 milljón króna. Rennur fram með einu handtaki og verður 140 cm. breitt rúm
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.