Morgunblaðið - 16.05.1987, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 16.05.1987, Blaðsíða 72
V^terkurog k_J hagkvæmur auglýsingamiðill! LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR. Stefnir í12 milljón kr. Lottóvinning * jrfslendingar hafa slegið heimsmetið „ÞAÐ stefnir allt í að 1. vinn- ingur verði ekki undir 12 milljónum króna að þessu sinni“, sagði Aðalsteinn Sig- urðsson, talsmaður Lottós 5/32, er hann var spurður um sölu Lottóraðanna I þessari viku. Eins og kunnugt er voru 5,8 milljónir í pottinum í síðustu viku, sem ekki gengu út og bætast þvi við upphæðina sem dregin verður út í kvöld. Aðalsteinn sagði að salan í •^þessari viku hefði verið þrefold - upp á hvem dag miðað við venju- lega viku. „Þetta þýðir að íslend- ingar eru búnir að slá heimsmet í sölu á Lottómiðum á þessum fímm mánuðum sem liðnir eru frá því Lottóið hóf göngu sína. Meðal- salan á mann í landinu er komin í 50 krónur, en sambærileg tala frá Bandaríkjunum, þar sem þetta er gamalgróinn og vinsæll leikur, er 26 krónur á íbúa,“ sagði Aðal- steinn. Morgunblaðið/Ol. K. M. VIÐ UPPHAF VIÐRÆÐNA ÞORSTEINN Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins hóf viðræðunum var Friðrik Sophusson. Þorsteinn sagði að stjórnarmyndunarviðræður sínar síðdegis í gær með því þarna hefði verið um að ræða gagnlegar könnunarviðræð- að ræða við fulltrúa Alþýðuflokksins, Jón Baldvin Hanni-. ur. Fundurinn stóð í rúmar fjórar klukkustundir. balsson og Jóhönnu Sigurðardóttur. Með Þorsteini í Sjá frétt á bls. 2. Reuter/Max Scherer. Hannes Hlífar lagði Búlgarann Belchev að velli í gærdag. Heimsmeistaramót unglinga 1 skák; Hannes Hlífar vann fimmtu skák sína í röð * ‘3 HANNES Hlífar Stefánsson vann sína fimmtu skák í röð á Heimsmeistaramóti unglinga í skák í Austurríki og er áfram einn í efsta sætinu. Guðfríður Lilja Guðmundsdóttir vann einn- ig skák sina í 5. umferð mótsins í gær og er um miðjan hóp í kvennaflokki. Hannes vann Belchev frá Búlg- aríu í fimmtu umferð mótsins. Að sögn Guðmundar Siguijóns- sonar, fararstjóra ungmennanna, tefldi Hannes skákina vel og þjarmaði hægt og örugglega að Búlgaranum. Hannes er því með 5 vinninga en næstur kemur Hol- lendingurinn Loeh de Wely með 4,5 vinninga og tefla þessir tveir saman í 6. umferðinni í dag. Guðfríður Lilja vann Davies frá Wales og er með 2,5 vinninga. Efst í stúlknaflokki er Bojkovic frá Júgóslavíu með 4,5 vinninga. ISAL kaupír fyrsta íslenska iðnróbótann ÍSLENSKA álfélagið hf. staðfesti í gær pöntun á iðnró- bóta frá fyrirtækinu JHM, almenn tækniþjónusta sf., og mun það vera fyrsti íslenski róbótinn, sem tekinn er í notk- un í iðnaði hér á landi. Verðmæti róbótans er um 4 miiljónir króna og er gert ráð fyrir að hann verði settur upp í álver- inu í Straumsvík í september á þessu ári. Jón Hjaltalín Magnússon verk- fræðingur, sem hannaði róbótann, sagði í samtali við Morgunblaðið að tækið yrði notað til að setja á sjálfvirkan hátt kraga utan um tinda á rafskautum, áður en þau eru sett í kerin. „Þetta er, að því ég best veit, fyrsti íslenski róbót- inn sem tekinn er í notkun í iðnaði hér á landi. Við urðum þama hlut- skarpari í samkeppni við norsk og þýsk fyrirtæki, sem buðu svip- aðan búnað, en tæknimönnum ÍSAL þótti íslenska lausnin betri og hagkvæmari," sagði Jón Hjal- talín. Hann sagði að á vegum fyrir- tækisins hefði verið unnið í tæpt hálft ár að hönnun róbótans, en beðið hefði verið eftir staðfestingu frá Alusuisse í Sviss á kaupunum og barst sú staðfesting í gær eins og áður segir. „Við höfum verið að vinna að nokkrum verkefnum á sviði sjálfvirkni í samvinnu við Landssmiðjuna hf., en Lands- smiðjan mun sjá um samsetningu og uppsetningu á þessum iðnró- bóta í ÍSAL,“ sagði Jón. Hann sagði að róbótinn væri nokkuð stór um sig, en hann sam- anstæði af palli undir rúllu með kragalínu, mótor sem drægi efnið að rúllunni, klippum sem klippa efnið í hæfílega kraga og sjálf- virkum róbóta, sem beygði efnið utan um tinda rafskautsins og festi það þar. „Að sögn Ragnars Halldórssonar, forstjóra ÍSAL, er þetta liður í áframhaldandi tækni- væðingu álverksmiðjunnar og þeir hjá ÍSAL eru mjög ánægðir með að íslensk fyrirtæki skuli geta boðið lausnir, sem standa framar erlendum fyrirtækjum að þeirra áliti,“ sagði Jón Hjaltalín enn- fremur. Varðandi möguleika á að setja slíka iðnróbóta á markað erlendis sagði Jón að ekki væri ólíklegt að einhveijar álverksmiðjur er- lendis gætu séð sér hag í að setja upp svona róbóta og unnið væri að því að koma upplýsingum um þessa íslensku lausn á framfæri við erlendar verksmiðjur. Hæstíréttur staðfestí skilorðs- bundinn dóm fyrir manndráp HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær dóm undirréttar og dæmdi ungan pilt í fjögurra ára skilorðsbundið fangelsi, en pilturinn varð öðrum pilti að bana með því að stinga hann með hnifi. Skilorðsbindingu í málum þar sem dæmt er til lengri fangelsisvistar en 1 árs hefur ekki verið beitt til þessa hér á landi, en mál þetta var um margt sérstætt. Pilturinn á við sjúkdóm að etja og er mikil stríðni að útliti sínu. Vegna þessa kom til orðaskipta og átaka milli hans og annars pilts fyrir utan skemmtistaðinn „Villta, tryllta Villa“ við Skúlagötu í sept- ember 1985. Lyktaði samskiptum þeirra svo að pilturinn dró upp vasahníf og stakk hinn með honum. í niðurstöðum Sakadóms Reykja- víkur í október síðastliðnum sagði, að málið væri mjög sérstætt og óvenjulegt. Kæmi þar til hinn ungi aldur ákærða annars vegar og hins vegar það samspil tilfínningalegs ójafnvægis, sem rekja megi til sjúk- dóms hans, og óhappaatvika, sem leiddu til hins örlagaríka verknaðar hans. Fangelsun hefði alvarleg áhrif á persónuþroska hans, aðlögun, nám og nánast alla hans framtíð. Undirréttur dæmdi piltinn því til fjögurra ára fangelsisvistar, skil- orðsbundið, og hefur Hæstiréttur nú staðfest þann dóm. Málið dæmdu hæstaréttardómar- amir Magnús Thoroddsen, Guð- mundur Skaftason, Guðrún Erlendsdóttir og Þór Vilhjálmsson og Amijótur Bjömsson prófessor.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.