Morgunblaðið - 04.06.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.06.1987, Blaðsíða 1
í 124. tbl. 75. árg. Osló: 10.000 bændur mótmæla Osló, frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunblaðsins. TÍU ÞÚSUND norskir bændur fóru í mótmælagöngu um mið- borg Oslóar í gærkvöldi til að mótmæla landbúnaðarstefnu stjórnarinnar. Talið er að deilan kunni að valda stjórnarkreppu. Samtök bænda slitu nýverið samningaviðræðum við fulltrúa ríkisstjórnarinnar þegar ekki var orðið við kröfum þeirra um að tveimur milljörðum norskra króna yrði varið í niðurgreiðslur á land- búnaðarvörum á þessu ári. Stjórnvöld telja sig ekki geta varið nema milljarði, eða helmingi lægri upphæð en bændurnir vilja, í niðurgreiðslur. Norska þingið sam- þykkti á sínum tíma að bændur skyldu hafa samskonar tekjur og faglært iðnverkafólk. Fulltrúar bænda sögðu í gær p.ð tilboð stjóm- arinnar jafngilti launalækkun. Borgaralegu flokkamir eru sagðir hafa ákveðið að greiða atkvæði gegn niðurgreiðslufrumvarpi stjómarinnar í næstu viku og er því talið að stjóm Verkamanna- flokksins falli fyrir sumarfrí þingmanna. Bændur hvaðanæva úr Noregi tóku þátt í mótmælagöngunni og sagði leiðtogi þeirra, Nils Valla, að mótmælin minntu á uppreisn bænda gegn höfðingjakúgun á víkinga- tímanum. 76 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins Stórtap á heimavelli Morgunblaðið/RAX íslendingar steinlágu á Laugardalsvellinum í gærkvöldi; töpuðu 6:0 fyrir Austur-Þjóðveijum í 3. riðli Evrópu- keppninnar í knattspyrnu. Hér er það Atli Eðvaldsson, fyrirliði íslenska liðsins, sem sækir að einum Austur- Þjóðveijanum. Sjá nánar á bls. 74 og 75. Alnæmi: Bóluefni í sjónmáli? Washington, Reuter. FRANSKI visindamaðurinn Daniel Zagury, sem sprautaði sjálfan sig með mótefni gegn alnæmi, vonast til að geta haf- ið tilraunabólusetningar gegn sjúkdómnum á sjálfboðaliðum í Zaire fljótlega. Zagury kynnti tilraunir sínar fyrir 7.000 mönnum úr heilbrigð- isstétt, sem sátu þriðju alþjóð- legu ráðstefnuna sem haldin er um alnæmi. „Þótt við séum bjart- sýn viljum við ekki vekja tálvonir hjá fólki,“ sagði Zagury eftir fyrirlestur sinn. Ef af tilraunum hans verður, þá verða þær hinar fyrstu sinnar tegundar. í kjölfar þeirra má eiga von á tilrauna- bólusetningu lítils hóps í Banda- ríkjunum. Dr. Samuel Broder hjá banda- rísku krabbameinsstofnuninni sagði að allt benti til að efni sem kallast AZT geti gert einkenni alnæmis vægari og lengt líf sjúklinganna. „Þótt lyfið lækni engan, finnst mér ekki hæfa að segja að ekkert sé hægt að gera við alnæmi." Zagury sprautaði sjálfan sig á síðasta ári með efni því sem hann er að þróa. Það þykir góðs viti að engar eiturverkanir hafa komið í ljós af bólusetningunni og að honum tókst að ná fram ónæmissvörun gegn alnæmi, Daniel Zagury sem er nauðsynlegt til að hægt sé að mynda bóluefni. Reuter Ný skoðanakönnun BBC: ^ Meirihluti íhalds- flokksins miiinkar Kosningabaráttan hófst fyrir I hluti hans minnki frá því sem nú hálfum mánuði í Bretlandi. Tugir er. Samkvæmt könnununum hefur skoðanakannana hafa verið gerðar Verkamannaflokkurinn sótt í sig í millitíðinni og benda þær allar til veðrið. Virðist það vera á kostnað sigurs íhaldsflokksins, en að meiri- | Bandalagsins. Þjóðernisdeil- nr í Moldavíu London, Reuter. BREZKI Verkamannaflokkurinn vinnur á íhaldsflokkinn, sam- kvæmt nýrri skoðanakönnun brezka ríkisútvarpsins, BBC. Benda niðurstöður hennar til þess að meirihluti íhaldsflokks- ins í neðri málstofunni verði aðeins 22 sæti eftir kosningarnar í næstu viku, miðað við 144 nú. BBC kannaði afstöðu kjósenda í kjördæmum, þar sem úrslit kosn- inganna er talin geta ráðist. Samkvæmt könnuninni nýtur íhaldsflokkurinn fylgis 40% kjós- enda, Verkamannaflokkurinn 35% og Bandalag Fijálslynda flokksins og Jafnaðarmannaflokksins 23%. Könnunin var gerð í kjördæmum þar sem þingsæti unnust með litlum mun í kosningunum 1983. Niður- stöðurnar hjá BBC voru allt aðrar en í samskonar könnun MORI- stofnunarinnar í sömu kjördæmum. Niðurstöður hennar voru birtar um helgina og þær bentu til þess að Ihaldsflokkurinn fengi 140 þing- sæta meirihluta í kosningunum. Moskvu, Reuter. Varaformaður Kommúnista- flokksins í Moldavíu, Viktor Smirnov, segir að þar hafi borið á þjóðernisdeilum af svipuðum toga og brutust út í Kasakstan í desember. Smirnov sagði þetta í ræðu á fundi ungkommúnista í Moldavíu og er ræðan rakin í flokksblaðinu Sovietskaya Moldavia. Nýlega var einnig skýrt frá ókyrrð í sovétlýð- veldinu Kirgisíu í Mið-Asíu. Meirihluti rúmlega fjögurra millj- óna íbúa lýðveldisins er náskyldur Rúmenum en landsvæðið var hluti Rúmeníu til 1940 er Sovétmenn innlimuðu það. Smirnov, sem sjálfur er Rússi, sagði m.a. að „borið hefði á þröng- sýni, tilhneigingu til þjóðernislegrar einangrunarstefnu og rembings og komið til atburða sem minntu á óeirðirnar í Alma-Ata (höfuðborg Kasakstans)".
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.